Morgunblaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012
Múmínsnáðinn og tunglskinsævintýrið
bbbbn
Byggt á sögu og myndum Tove Jansson
Íslensk þýðing: Sigþrúður Gunnarsdóttir
Mál og menning 2012
Múmínsnáðinn og tunglskinsævintýrið er
sjálfstætt framhald á hinni yndislegu bók Múm-
ínsnáðinn á afmæli sem út kom í fyrra. Hér eru
á ferðinni bækur byggðar á myndum og sögu
hinnar ástsælu skáldkonu Tove Jansson. Múm-
ínsnáðinn er í aðalhlutverki í báðum bókum þótt
flestum persónum múmínheimsins bregði fyrir.
Í nýjustu bókinni ákveður múmínfjölskyldan
að sigla til Einmanaeyjar enda kjörið að borða
þar nesti, renna fyrir fisk og leita að fjársjóðum.
Áður en hægt er að leggja í hann er hins vegar
að ýmsu að huga, s.s. hvers konar nesti taka eigi
með, hvaða veiðistengur og hvernig best sé að
klæða sig. Þegar allir loks eru tilbúnir er sólin
sest, en það stoppar ekki ferðalangana því þau
ákveða að leggja í staðinn upp í tunglskins-
ævintýri.
Þessi saga er hugljúf og skemmtileg með ein-
staklega fallegum og litríkum myndum sem
fanga vel athygli ungra lesenda. Vonandi koma
fleiri bækur í þessari nýju bókaröð, því þær
henta sérlega vel til þess að kynna undraverur
Múmíndals fyrir nýjum lesendum. Reyndar
væri óskandi að Múmínbækurnar yrðu í heild
sinni endurprentaðar og þannig gerðar aðgengi-
legar nýrri kynslóð. Rúm fjörutíu ár eru síðan
bækurnar komu fyrst út í íslenskri þýðingu og
hefur Halastjarnan ein verið endurútgefin á
allra síðustu árum.
Maxímús Músíkús bjargar ballettinum
bbbbn
Texti eftir Hallfríði Ólafsdóttur og myndir eftir Þór-
arin Má Baldursson
Mál og menning 2012
Í þessari þriðju bók um
Maxímús Músíkús heimsæk-
ir músin tónelska listdans-
skóla og fær innsýn í undra-
heim ballettsins. Eftir að
hafa í fyrri bókum ratað inn í
tónlistarhúsið og kynnst sin-
fóníuhljómsveitinni og síðan
trítlað í tónlistarskólann er
mjög vel til fundið að láta
Maxímús kynnast ballett-
inum, enda dansinn tengdur tónlistinni órjúf-
anlegum böndum.
Maxímús er sérlega forvitinn um umhverfi
sitt og þannig tekst höfundum bókarinnar að
miðla alls kyns skemmtilegum og áhugaverðum
fróðleik á mjög áreynslulausan hátt. Í fyrri bók-
unum tveimur var Maxímús fyrst og fremst í
hlutverki könnuðar eða áhorfanda, en í þessari
þriðju bók stígur hann fram sem úrræðagóður
bjargvættur sem með hugvitssemi sinni tekst að
bjarga ballettsýningu barnanna. Ekki spillir síð-
an fyrir að hann eignast góða vinkonu í leiðinni
og verður gaman að sjá hvort músinni Petítlu
Pírúettu bregði fyrir í næsta ævintýri Max-
ímúsar.
Teikningar bókarinnar leika stórt hlutverk.
Þær eru sérlega fallegar og fanga vel athygli
ungra lesenda. Þótt vissulega sé hægt að lesa
bókina eina og sér eykur það óneitanlega heild-
arupplifunina að hlusta á geisladiskinn sem
fylgir bókinni. Þar er sagan lesin af Val Frey
Einarssyni leikara á sérlega skemmtilegan og
lifandi hátt auk þess sem heyra má viðeigandi
áhrifshljóð og tónlistina sem leikur stórt hlut-
verk í bókinni og flutt er af Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Óhætt er að segja að bókin og disk-
urinn séu miklir gæðagripir sem gleðja munu
bæði lesendur og áheyrendur.
Sá hlær best …! sagði pabbi
bnnnn
Gunilla Bergström samdi bæði texta og myndir
Íslensk þýðing: Sigrún Árnadóttir
Mál og menning 2012
Á 40 ára afmæli Einars
Áskels sendir Gunilla Bergs-
tröm frá sér Sá hlær
best …! sagði pabbi, en hér
er um 26. bókina að ræða um
þennan litla snáða sem
löngum hefur heillað les-
endur. Sagan hefst á því að
Einar Áskell og vinkona
hans, Milla, eru í óðaönn að
undirbúa heimsókn tveggja
frænda Einars Áskels með því að byggja heilan
ævintýraheim í barnaherberginu. Þegar frænd-
urnir mæta á svæðið láta þeir það verða sitt
fyrsta verk að leggja barnaherbergið í rúst með
þeim afleiðingum að Einar Áskell og Milla ráð-
ast á strákana. Þá skerst pabbi Einars Áskels í
leikinn og tekur Einar Áskel og Millu afsíðis til
þess að refsa þeim meðan frændurnir liggja á
hleri.
Þótt tekið sé fram í bókinni að það megi ekki
berja börn lætur pabbi Einars Áskels frænd-
urna tvo halda að hann hafi rassskellt Einar Ás-
kel og Millu og í framhaldinu hótar hann frænd-
unum samskonar refsingu. Áður en yfir lýkur
komast frændurnir að því að þeir hafi verið
blekktir og engu líkamlegu ofbeldi hafi í raun
verið beitt. Þetta klækjabragð pabbans vekur
hins vegar mikla aðdáun frændanna sem líta
upp til hans fyrir vikið.
Boðskapur bókarinnar þess efnis að í lagi sé
að hóta börnum líkamlegu ofbeldi (sem er auð-
vitað ofbeldi í sjálfu sér) og blekkja þau með
lygum er að mínu mati ekki ásættanlegur og al-
gjörlega úr takt við tímann. Sökum þessa get ég
aðeins gefið bókinni eina stjörnu, sem hún fær
fyrir vel útfærðar myndir.
Nýútkomnar íslenskar og
þýddar barnabækur
Barnabækur
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Forvörður, jarðfræðingur og lista-
menn leiða saman hesta sína á mál-
þingi sem helgað er sýningunni
Hreyfing augnabliksins, sem nú
stendur yfir í Listasafni Reykjavík-
ur – Hafnarhúsi, nk. sunnudag milli
kl. 14 og 16. „Í erindum og um-
ræðum verður gengið út frá hug-
myndinni um tímann sem grunnein-
ingu í listrænu ferli
myndlistarverka,“ segir m.a. í til-
kynningu frá safninu.
Þátttakendur eru Ólafur Ingi
Jónsson forvörður, Lovísa Ás-
björnsdóttir jarðfræðingur og lista-
mennirnir Guðrún Einarsdóttir,
Harpa Árnadóttir, Ragna Róberts-
dóttir, Sólveig Aðalsteinsdóttir og
Þór Elís Pálsson sem eiga verk á
sýningunni. Margrét Elísabet
Ólafsdóttir leiðir umræðurnar.
Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason
safnstjóri.
Málþing um Hreyfingu augnabliksins
Sýningin Málþing á sunnudag.
HHHH
-Þ.Þ., Fréttatíminn
HHHHH
- J.I., Eyjafréttir.is
HHHHH
- H.H., Rás 2
HHHHH
- H.S.S., Morgunblaðið
HHHH
- H.V.A., Fréttablaðið
HHHH
- K.G., DV
SAVAGES Sýnd kl. 8 - 10:40
DJÚPIÐ Sýnd kl. 4 - 6 - 8 - 10
THE BOURNE LEGACY Sýnd kl. 10:15
INTOUCHABLES Sýnd kl. 5:50 - 8
PARANORMAN 3D Sýnd kl. 4 - 6
ÁVAXTAKARFAN Sýnd kl. 4
LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarÍSL TEXTI
SÍÐUSTU SÝNINGAR
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
ÍSL TAL
10
7
12
12
L
16
HÖRKU SPENNUMYND
TRYGGÐU Þ
ÉR MIÐA Á
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%
27. SEPTEMBER - 7. OKTÓBER 2012
GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
SAVAGES KL. 5.15 - 8 - 10.45 16
DJÚPIÐ KL. 3.40 - 5 - 5.50 - 8 - 10.10 10
DJÚPIÐ LÚXUS KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 10
DREDD 3D ÓTEXTUÐ KL. 8 - 10.10 16
RESIDENT EVIL KL. 10.20 16
ÁVAXTAKARFAN KL. 3.30 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 8 16
THE WATCH KL. 5.40 12
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L
SAVAGES KL. 8 - 10.15 16
DJÚPIÐ KL. 6 - 8 - 10 10
DREDD 3D KL. 6 16
- Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN
- J.I., EYJAFRÉTTIR
-H.G., RÁS 2
- K.G., DV
- H.S.S., MORGUNBLAÐIÐ
- H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ
DJÚPIÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10 10