Morgunblaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012
Leitin að Nemó í þrívídd
Teiknimyndin um trúðfiskinn sem
verður viðskila við föður sinn og
lendir í ýmsum hrakningum og æv-
intýrum er hér komin í þrívídd.
Myndin hlaut Óskarsverðlaunin
2004 sem besta teiknimynd ársins og
er úr smiðju fyrirtækisins Pixar sem
heyrir nú undir Disney. Leikstjórar
myndarinnar eru Andrew Stanton
og Lee Unkrich.
Metacritic: 89/100
Rotten Tomatoes: 99%
Looper
Spennumynd sem gerist árið 2072
og segir af Joe nokkrum sem gegnir
starfi „loopers“, þ.e. manns sem hef-
ur þann starfa að myrða fórnarlömb
mafíunnar í fortíðinni. Fórn-
arlömbin eru send 30 ár aftur í tím-
ann og þar bíður þeirra leigumorð-
ingi mafíunnar sem kemur þeim
fyrir kattarnef. Einn slíkur morð-
ingi er Joe og fær hann það erfiða
verkefni að drepa sjálfan sig, þ.e.
Joe ársins 2072 er sendur aftur í
tímann þar sem Joe yngri bíður eftir
honum. Hefst þá barátta upp á líf og
dauða þar sem líf sama mannsins er
í hættu. Leikstjóri er Rian Johnson
og í aðalhlutverki eru Bruce Willis,
Joseph Gordon-Levitt og Emily
Blunt.
Metacritic: 85/100
Rotten Tomatoes: 92%
Savages
Vinirnir Ben og Chon eru athafna-
menn í Laguna Beach og græða vel
á að selja eitt besta maríjúana sem
ræktað hefur verið. Þeir eiga báðir í
ástarsambandi við Opheliu. Dag
einn flytur mexíkóskur eiturlyfja-
hringur starfsemi sína til bæjarins
og heimtar að þríeykið starfi með
hringnum. Þegar þau neita ákveður
Elena, forsprakki eiturlyfjahrings-
ins, að ræna Opheliu til að neyða
Ben og Chon til samstarfs. Í kjölfar-
ið segja þeir eiturlyfjahringnum
stríð á hendur.
Leikstjóri er Oliver Stone og í aðal-
hlutverkum eru Aaron Taylor-
Johnson, Taylor Kitsch og Blake Li-
vely.
Metacritic: 59/100
Rotten Tomatoes: 49%
Þess má að lokum geta að Alþjóðleg
kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF,
hófst í gær og verður mikill fjöldi
kvikmynda sýndur á henni um
helgina. Dagskrá hátíðarinnar má
nálgast á riff.is.
Sjálfsvíg Joe yngri (Gordon-
Lewitt) og eldri (Willis) takast á.
Fiskar í þrívídd, tímaflakk
og eiturlyfjastríð
Bíófrumsýningar
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Architecture of Loss nefnist nýút-
komin breiðskífa Valgeirs Sigurðs-
sonar og er hún jafnframt þriðja
sólóplatan hans. Á plötunni má
finna tónlist sem Valgeir samdi við
samnefnt dansverk danshöfund-
arins Stephens Petronios sem dans-
flokkur hans í New York flutti sl.
vor. Dansararnir fluttu verkið við
lifandi undirleik Valgeirs, Nadiu
Sorata víóluleikara og Shahzads Is-
mailys sem lék á bassa, slagverk og
hljóðgervla. Þau flytja verkin á
plötunni ásamt þeim Nico Muhly og
Helga Jónssyni.
Kraftmikið
Valgeir segir tónlistina að hluta
sprottna út frá titli verksins og
vangaveltum þeirra Petronios um
það hvernig hlutir formist og
sundrist. „Við erum að leika okkur
með það og hvað það þýðir í tónlist
og hljóðum og hann er að vinna
með það í hreyfingum,“ segir Val-
geir. Agnir raðist saman og springi
svo aftur í sundur. „Það er mikil
dínamík,“ segir Valgeir um verkið.
Hann hafi samið verkið með það í
huga að þrír tónlistarmenn gætu
flutt það og píanó og víóla leiði það.
„Ég er í rauninni að vinna með
frekar þröngan hóp miðað við plöt-
una sem ég gaf út síðast, Drauma-
landið, þar sem var stór kamm-
ersveit og eiginlega allir
möguleikar.“
Valgeir segist hafa þurft að sam-
hæfa með Petronio lengdir á köfl-
um í verkinu, uppbyggingu og
framvindu og heildarflæðið. „Það
tók á sig mjög skýra mynd um leið
og hann fór að setja einhverjar
hreyfingar við. Það er magnað hvað
maður sér þá hvað virkar. Það var
augljóst að sumt virkaði ekki fyrir
sólódansara, annað virkaði ekki fyr-
ir hóp, þetta voru allt upp í ellefu
dansarar.“
Pláss fyrir tónlistina
Valgeir hafði ekki samið tónlist
fyrir dansverk áður en Petronio
hafði samband við hann. Hann seg-
ist lítið hafa spáð í hvað Petronio
myndi gera við tónlistina, hafi ein-
beitt sér fyrst og fremst að þemanu
og þeim hugmyndum sem þeir
Petronio köstuðu sín á milli. „Þetta
er mjög skemmtilegt ferli og í raun
alveg frábært form fyrir tónlist því
það er svo mikið pláss fyrir hana. Í
kvikmyndum, leikhúsi eða sjónvarpi
á tónlistin alltaf í basli með að vera
ekki fyrir,“ segir Valgeir. Tónlistin
megi ekki yfirgnæfa tal leikara og
hin ýmsu hljóð en í dansverki fái
hún að njóta sín til fulls.
En hvernig fékk hann þetta verk-
efni, að semja fyrir Petronio?
„Hann sendi mér bara tölvupóst.
Hann þekkti fyrri plöturnar mínar
og sagði að sig hefði lengi langað til
að fá mig til að semja fyrir sig,“
segir Valgeir. Þá hafi hann þekkt til
verka sem Valgeir hefur unnið með
öðrum tónlistarmönnum og tón-
skáldum, m.a. Íslandsvininum Nico
Muhly.
Það er plötuútgáfa Valgeirs,
Bedroom Community, sem gefur
plötuna út en hún var tekin upp í
hljóðveri hans, Gróðurhúsinu. Frek-
ari upplýsingar má finna á bed-
roomcommunity.net og valgeir.net.
Hlutir sem formast og sundrast
Þriðja sólóplata Valgeirs Sigurðssonar, Architecture of Loss, geymir tónlist sem hann samdi fyrir
dansverk Stevens Petronios Samið með það fyrir augum að þrír tónlistarmenn gætu flutt það
Ljósmynd/Samantha West
Form „Þetta er mjög skemmtilegt
ferli,“ segir Valgeir Sigurðsson.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Johan Glans þekkja líklega fáir Íslendingar en hann
er löndum sínum Svíum vel kunnur. Glans hefur
hlotið titilinn „Sveriges roligaste man“, þ.e. fyndn-
asti maður Svíþjóðar, en eini maðurinn sem hefur
einnig hlotið þann titil er Robert nokkur Gustafsson.
Glans er margreyndur uppistandari og annað kvöld
kl. 20 mun hann bjóða upp á eitt slíkt í Þjóðleik-
húskjallaranum og ber það yfirskriftina Johan
Glans’s World Tour of Scandinavia, eða Heimsreisa
Johans Glans um Norðurlönd. Um upphitun sér
grínarinn Ari Eldjárn. Uppistandið fer fram á ensku
þannig að gestir þurfa ekki að kunna sænsku.
Leikarinn og grínistinn Gunnar Hansson þekkir
vel til Glans því Glans lék í einum þátta hans, Mér er
gamanmál. Í þáttunum heimsótti heimsborgarinn
Frímann Gunnarsson mikilsmetna grínista á Norð-
urlöndum í þeim tilgangi að rannsaka húmor. Glans
fræddi Frímann um sænskan húmor með eft-
irminnilegum hætti (þáttinn má sjá á vefnum Vi-
meo, slóðin er http://vimeo.com/19867555).
Fyndinn og sniðugur
„Hann er algjörlega brilljant þessi gaur, hann er
svo fyndinn og sniðugur,“ segir Gunnar um Glans.
Bróðir Gunnars, Ragnar, leikstýrði þáttunum og
segir Gunnar að Ragnar hafi ekki þorað að stöðva
tökur því Glans hafi farið á mikið flug. „Það fyndna
var að þegar við kynntumst honum fyrst, hittum
hann á fundum og höfðum heyrt að hann væri rosa
stórt nafn, þá fannst okkur hann vera svolítið til
baka og rólegur og við vorum ekki alveg vissir með
hann. En strax og við byrjuðum að fara eitthvað inn
í efnið lifnaði yfir honum, eins og hann hefði ýtt á
einhvern „on“-takka,“ segir Gunnar.
Frekari upplýsingar um Glans má finna á vefsíðu
hans, johanglans.se, og á YouTube má sjá fjölda
myndskeiða þar sem hann fer með gamanmál.
Miðasala á uppistandið annað kvöld fer fram á midi-
.is.
Grín með Glans
Sænski grínistinn Johan Glans verður með uppi-
stand í Þjóðleikhúskjallaranum annað kvöld kl. 20
Grínbræður Frímann faðmar Johan Glans í Sví-
þjóð þegar tökur fóru fram á Mér er gamanmál.
Kjölfesta nefnist sýning Heiðrúnar
Kristjánsdóttur sem opnuð verður í
Reykjavík Art Gallery á Skúlagötu
30 á morgun kl. 16. Heiðrún lauk
námi í myndlist/grafík frá San
Francisco Art Institute og hefur
starfað sem myndlistarkennari
ásamt því að vinna að eigin mynd-
list. „Á sýningunni fá bækur liðins
tíma tækifæri til að láta ljós sitt
skína í nýju samhengi og tala sínu
máli sem myndir á vegg,“ segir
m.a. í tilkynningu frá galleríinu
Sýningin stendur til 21. október, en
opið er virka daga kl. 10-18 og kl.
13-17 um helgar.
Bækur Gamlar skruddur fá nýtt hlutverk.
Kjölfesta í Reykja-
vík Art Gallery
12-36 mánaða binditími
Engin útborgun
Ábyrgðar- og kaskótrygging
Bifreiðagjöld
20.000 km á ári
Sumar- og vetrardekk
Þjónustuskoðanir og smáviðhald
Leigð´ann
Eigð´ann
Nýlegir bílar
Allir í toppástandi
Fara í gegnum gæðaskoðun AVIS
Þriggja daga reynsluakstur
www.avisbilar.is
S. 5914000
... og krækja sér í bíl á frábæru verði!
til þess að fara inn á avisbilar.is
11ástæður