Morgunblaðið - 28.09.2012, Side 2

Morgunblaðið - 28.09.2012, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. sín um að hann ætli ekki að bjóða sig fram. „Ég hef margoft sagt að sá kafli í lífi mínu sé búinn. Ég var stoltur af því á sínum tíma að leiða Samfylkinguna í 32% bæði í sveit- arstjórnarkosningum og þingkosn- ingum, en það endurtekur enginn söguna. Það væri stílbrot og ég hef hvorki áhuga á né vilja til þess,“ sagði Össur við blaðamann mbl.is í gær. Þá benti hann á að kominn væri tími á kynslóðaskipti í flokkn- um. Hver tekur við af Jóhönnu? „Allt á sinn tíma og þetta er dag- ur þessarar merku tilkynningar Jó- hönnu og það dugar í dag,“ sagði Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, aðspurður hvort hann muni bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar. Þá sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, að ótímabært væri að svara þeirri spurningu hvort hann myndi gefa kost á sér í formannsembættið. „Umræður okkar í Samfylkingunni munu leiða í ljós svörin við því á næstu vikum,“ sagði Helgi. „Ég hef líka sagt að telji fólk mig eiga að vera í forystuhlutverki þá muni ég að sjálfsögðu íhuga það. Nú þurfa flokksmenn í Samfylking- unni að ræða saman og velta fyrir sér hvers konar forystu flokkurinn þarf til framtíðar. Það eru mörg verkefni framundan og það er mik- ið starf að vera formaður. Hver sá sem ætlar sér að taka það að sér þarf að íhuga það mjög alvarlega,“ sagði Sigríður Ingibjörg Ingadótt- ir, þingmaður Samfylkingarinnar, aðspurð hvort hún stefni á for- mannssætið en hún benti einnig á að formannsframboð hefði ekki vakað sérstaklega fyrir sér. Þá sagði Lúðvík Geirsson, þing- maður Samfylkingarinnar og fyrr- verandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, við blaðamann í gær að hann hefði ekki hugleitt formannsframboð á þessari stundu. „Ég hef ekkert hugleitt það á þessari stundu, ég er að melta þessi tíðindi eins og aðr- ir,“ sagði Lúðvík. Aðspurður hvort hann væri búinn að gera upp hug sinn varðandi formannsframboð sagði Dagur B. Eggertsson, vara- formaður Samfylkingarinnar: „Ég hef ekkert gefið út á það, og mér finnst þetta heldur ekki dagurinn til þess. En ég hef ekki verið á nein- um framboðsbuxum,“ sagði Dagur. Ekki náðist í Katrínu Júlíusdótt- ur, þingmann Samfylkingarinnar, við vinnslu fréttarinnar en hún hef- ur lengi verið orðuð við formanns- embættið. Þá virtust flestir þeir kjörnu fulltrúar Samfylkingarinnar sem Morgunblaðið talaði við í gær vera á þeirri skoðun að tilkynning Jó- hönnu væri stórmerk tíðindi og að hún ætti að baki farsælan feril. Jóhanna hættir stjórn- málaþátttöku sinni í vor  Enginn búinn að lýsa yfir formannsframboði  Landsfundur fer fram í febrúar Morgunblaðið/Golli Endalok Jóhanna Sigurðardóttir ætlar sér að hætta formennsku í Samfylk- ingunni og láta af stjórnmálaþátttöku sinni að loknu þessu kjörtímabili. Lúðvík Geirsson Dagur B. Eggertsson Árni Páll Árnason Össur Skarphéðinsson Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Katrín Júlíusdóttir Jóhanna hættir » Jóhanna Sigurðardóttir hef- ur setið á Alþingi frá árinu 1978. » Hún hefur á þeim tíma einn- ig gegnt þremur ráðherraemb- ættum. » Að svo stöddu hefur enginn lýst yfir framboði sínu til for- manns Samfylkingarinnar. » Mögulegt er að næsti for- maður Samfylkingarinnar verði kjörinn í póstkosningu. » Össur Skarphéðinsson kall- ar eftir kynslóðaskiptum í flokknum. » Kjörnir fulltrúar flokksins segja tilkynningu Jóhönnu vera merkileg tíðindi. FRÉTTASKÝRING Skúli Hansen skulih@mbl.is Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis- ráðherra og formaður Samfylking- arinnar, tilkynnti í gær að hún ætli að hætta sem formaður Samfylk- ingarinnar að loknu núverandi kjörtímabili og samhliða því láta af þátttöku sinni í stjórnmálum. Jó- hanna, sem verður sjötug 4. októ- ber næstkomandi, hefur setið á Al- þingi samfleytt frá árinu 1978 en auk þess að sinna almennum þing- störfum hefur hún á þingferli sín- um gegnt þremur ráðherraembætt- um. Þannig var hún félags- málaráðherra á árunum 1987-1994 og svo aftur frá 2007 til 2008, fé- lags- og tryggingamálaráðherra frá árinu 2008 til 2009 og loks hefur hún gegnt embætti forsætisráð- herra síðan árið 2009. „Lokaspretturinn er hafinn, bæði minn pólitíski endasprettur og endasprettur fyrstu meirihlutarík- isstjórnarinnar undir forystu okkar jafnaðarmanna. Á mánuðunum fram að landsfundi og síðan fram að kosningum mun ég að sjálfsögðu gera mitt ýtrasta í þeim störfum sem þið hafið falið mér til að ná fram baráttumálum okkar jafnað- armanna og til þess að tryggja að Samfylkingin verði áfram forystu- afl í íslenskum stjórnmálum,“ sagði Jóhanna í tilkynningu sinni í gær. Kominn tími á kynslóðaskipti Landsfundur Samfylkingarinnar fer fram helgina 1. til 3. febrúar næstkomandi. Ekki er þó víst að kosið verði um nýjan formann á landsfundinum enda gera lög flokksins ráð fyrir því að formanns- kosning geti farið fram í formi alls- herjaratkvæðagreiðslu á meðal allra skráðra flokksmanna. Slík allsherjaratkvæðagreiðsla fór ein- mitt fram síðast þegar formanns- slagur átti sér stað innan Samfylk- ingarinnar, á milli Össurar Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur árið 2005, en þá voru atkvæði greidd í póstkosn- ingu. Til þess að atkvæðagreiðsla þess eðlis fari fram þurfa a.m.k. 150 flokksmenn að óska eftir slíkri at- kvæðagreiðslu ekki síðar en 45 dög- um fyrir boðaðan landsfund. Í samtali við mbl.is í gær sagði Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra að hann stæði við fyrri orð Skúli Hansen skulih@mbl.is Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur sent Sveini Arasyni ríkisendurskoðanda opið bréf þar sem farið er fram á að Ríkisendurskoðun skili fullbúinni skýrslu um kaup ríkisins á fjár- hags- og maunnauðskerfinu Oracle á árinu 2001, innleiðingu kerfisins sem og rekstur þess síðan þá. Al- þingi óskaði eftir því 6. apríl 2004 að Ríkisendurskoðun ynni skýrslu af þessu tagi en stofnunin hefur ekki ennþá skilað af sér þeirri skýrslu. „Ég tel að dráttur á gerð skýrsl- unnar sé mjög aðfinnsluverður. Slíkt má aldrei endurtaka sig. Lagaheimild til þess að óska skýrslna Ríkisendurskoðunar er einn mikilvægasti þátturinn í eft- irlitshlutverki Alþingis,“ segir Ásta Ragnheiður í bréfi sínu til Sveins. Fer beint til nefndar Í bréfinu kom jafnframt fram að skýrsla Ríkisendurskoðunar yrði send stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd Alþingis til meðferðar jafn- skjótt og hún berst Alþingi. Þá muni ríkisendurskoðanda gefast færi á því að fylgja skýrslunni eftir á vettvangi nefndarinnar. Einnig kemur þar fram að nefndin muni í samræmi við þingsköp leggja nið- urstöður athugana sinna fyrir Al- þingi með nefndaráliti en einnig sé nefndinni heimilt að gera tillögu til þingsályktunar. „Ég bind vonir við að málið hljóti með þessum hætti eðlilega meðferð og niðurstöðu af hálfu Al- þingis. Forsenda þess er þó sú að fullbúin skýrsla Ríkisendurskoðun- ar komi fram hið fyrsta,“ segir Ásta Ragnheiður í bréfinu. Ætlar ekki að segja af sér „Engin viðbrögð. Ég náttúrlega geri það sem um er beðið og var reyndar búinn að gera ráðstafanir til þess að fara eftir því sem okkur [Ástu Ragnheiði] fór á milli í gær,“ segir Sveinn Arason, spurður út í fyrstu viðbrögð vegna bréfsins. Aðspurður hvort hann hafi íhugað stöðu sína, eða jafnvel afsögn sína, í ljósi umræðunnar á síðustu dögum segir Sveinn svo ekki vera. Ekki náðist í Ástu Ragnheiði við vinnslu fréttarinnar í gær. Vill að skýrslunni verði skilað  Ríkisendurskoðandi segist ætla að fara að óskum forseta Alþingis um að skýrslu um kaup ríkisins á kerfinu Oracle verði skilað  Ríkisendurskoðandi segist ekki hafa íhugað að segja starfi sínu lausu Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Sveinn Arason „Ég hef tekið ákvörðun um að gefa kost á mér í annað sæti í sam- eiginlegu próf- kjöri sjálfstæð- ismanna í Reykjavík sem nú lítur út fyrir að verði 24. nóv- ember,“ sagði Birgir Ármanns- son, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Með því er ég auðvitað að gefa kost á mér til þess að vera í einu af forystu- sætum flokksins í borginni. Ég er þeirrar skoðunar að fyrir Sjálfstæðis- flokknum liggi mörg sóknarfæri í kosningunum í vor og ég vil leggja mitt af mörkum til þess að sem best- ur árangur náist í þeim bardaga,“ bætir Birgir við. skulih@mbl.is Birgir gefur kost á sér í annað sætið í Reykjavíkurkjördæmi Birgir Ármannsson Forseti Íslands hefur fallist á til- lögu innanríkisráðherra um að skipa þá Benedikt Bogason, dóm- stjóra og settan hæstaréttardóm- ara, og Helga I. Jónsson dómstjóra í embætti tveggja hæstaréttardóm- ara frá og með 1. október nk. Samdóma niðurstaða dómnefnd- ar var sú að þeir Benedikt og Helgi væru hæfastir umsækjenda til að hljóta embættin. Benedikt er 46 ára gamall, en Helgi er 56 ára gamall. Þeir hafa báðir leyst af sem dóm- arar í Hæstarétti. Helgi og Benedikt skipaðir í Hæstarétt Helgi I. Jónsson Benedikt Bogason Hæstiréttur hefur dæmt mann í 12 mánaða fangelsi fyrir brot gegn lyfjalögum og lögum um tóbaks- varnir. Maðurinn seldi ákveðin lyf í verslun sinni án þess að hafa til þess leyfi. Júlíus Þorbergsson, sem rak verslunina Drauminn á Rauð- arárstíg, var í ákæru sakaður um að hafa árin 2008-2009 selt lyf, auk þess að hafa átt fjölda dósa af fín- kornóttu neftóbaki og munntóbaki sem ætlað var til sölu. Þá var sak- borningur einnig sakfelldur fyrir peningaþvætti og var gert að sæta upptöku eigna. Dæmdur fyrir ólög- lega sölu á lyfjum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.