Morgunblaðið - 28.09.2012, Síða 4
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Undirbúningur er í fullum gangi fyrir
þing ASÍ sem fram fer 17.-19. októ-
ber og á 301 fulltrúi rétt til setu á
þinginu. Meginmál þingsins verða at-
vinnu- og lífeyrismál sem fjallað er
um í ítarlegum umræðuskjölum, sem
lögð verða fram. Nú er hins vegar
orðið ljóst að engin formleg tillaga
varðandi aðildarumsóknina að Evr-
ópusambandinu og hvort breyta eigi
stefnu ASÍ í því máli verður lögð fyrir
þingið, þar sem formlegur frestur til
að leggja fram ályktanir til efnislegr-
ar meðferðar og afgreiðslu er runn-
inn út.
Komi slík tillaga fram um breyt-
ingar á stefnunni fæst hún einungis
rædd en þingið getur ekki tekið efn-
islega afstöðu til hennar. Yrði slíkri
tillögu þá hugsanlega vísað til mið-
stjórnar. Evrópumálin voru ekkert
rædd á fundi miðstjórnar ASÍ í fyrra-
dag þar sem farið var yfir tillögur og
mál sem leggja á fyrir.
Viðmælendur á vettvangi ASÍ
segja þó að ekki sé þar með skotið
loku fyrir að Evrópumálin komi til
umræðu á þinginu. ASÍ er með mjög
afdráttarlausa stefnu um að aðild Ís-
lands að ESB og upptaka evru sé eina
færa leiðin. Var hún samþykkt á árs-
fundi 2008 af þorra þingfulltrúa sem
voru um 270 gegn 6 mótatkvæðum.
Meðal þeirra sem voru á móti voru
fulltrúar Sjómannasambandsins.
Sævar Gunnarsson, formaður sam-
bandsins, segir að þó frestur sé liðinn
til að leggja fram tillögur sé engu að
síður hægt að taka hvaða mál sem er
upp á þinginu til almennrar umræðu.
Hann segir stuðninginn við stefnu
ASÍ á sínum tíma hafa verið mjög af-
gerandi en örfáir, og hann þar á með-
al verið á móti. „Ég hef komið sjón-
armiðum Sjómannasambandsins
mjög skýrt á framfæri á vettvangi Al-
þýðusambandsins. Við leggjumst
gegn aðild að Evrópusambandinu,“
segir Sævar og kveðst hann hafa
fylgt þessari afstöðu eftir og muni
gera ef tilefni gefst til en Sævar
hyggst ekki leggja til á þinginu að af-
stöðu ASÍ í málinu verði breytt.
Gylfi gefur áfram kost á sér
Gylfi Arnbjörnsson ætlar að gefa
kost á sér áfram sem forseti ASÍ á
þinginu og gerði hann miðstjórn
grein fyrir því fyrir sumarleyfi.
Spurður um ástæður þess að Evr-
ópumálin eru ekki nefnd í umræðu-
skjölunum sem lögð verða fyrir þing-
ið segir Gylfi að menn hafi talið
mikilvægast að taka atvinnumálin
sérstaklega fyrir, húsnæðismál verði
ofarlega á baugi og lífeyrismálin. Um
Evrópumálin segir Gylfi að ASÍ telji
mjög mikilvægt að viðræðurnar við
ESB haldi áfram og þeim ljúki innan
skamms tíma þannig að þjóðin geti
tekið afstöðu til álitamálanna.
,,Við gerum okkur alveg grein fyrir
því að málið er umdeilt og Alþýðu-
sambandið er ekki og hefur ekki ver-
ið með kröfu um aðild að Evrópu-
sambandinu óháð öllu öðru. Það eru
mjög sterkir fyrirvarar sem þingið
okkar setti hvað varðar sjávarút-
vegsmál, byggðamál og landbúnað-
armál. Það er líka ljóst að það hafa
komið upp eftir hrunið atriði sem
tengjast fjármagnsflutningum og
stöðu gjaldmiðilsins. Það eru því alls
konar ljón í veginum en við sjáum
ekki að það sé neinn ákvarðanatöku-
punktur núna. Það er þróun í
gangi bæði hérlendis og í
Evrópu og þegar þjóðin
tekur afstöðu til þessara
mála þegar þar að kemur,
þá mun það vafalaust
verða gert í ljósi
þeirra að-
stæðna sem
uppi verða
bæði hér og
í Evrópu.“
ESB ekki á dagskrá ASÍ-þings
Forseti ASÍ segir mjög sterka fyrirvara við aðild að ESB í stefnu ASÍ Ekki er minnst á ESB-mál
í þingskjölum ASÍ-þings og frestur til að leggja fram tillögur er runninn út 301 fulltrúi situr þingið
Morgunblaðið/Golli
Settu stefnuna á ESB Miklar umræður fóru fram um Evrópumálið á ársfundi ASÍ í október 2008. Þar var sam-
þykkt Evrópustefna ASÍ sem enn er í gildi um að sækja bæri um aðild að ESB og um upptöku evru. Sex voru á móti.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012
flutt
í Skútuvog 11
Við erum
Verslun: Skútuvogi 11 • 104 Reykjavík • 510 8888
Stefán Einar Stefánsson, formað-
ur VR, segir það hafa komið á
óvart að ekkert er fjallað um Evr-
ópusambandsmálið í umræðu-
skjölum sem undirbúin hafa verið
fyrir þing ASÍ.
„Ég hélt trúnaðarráðsfund í VR
í síðustu viku og þar kom þetta til
umræðu og það stakk í augun að
ekkert væri fjallað um Evrópu-
málin í þessum pakka,“ segir
hann.
Stefán segist túlka umræðuna
á fundinum svo að menn telji að
ASÍ eigi ekkert að vera að tjá sig
um aðild að ESB og evruna.
„Menn telja að þetta eigi að vera
á höndum stjórnmálaflokkanna.
Ekki vegna þess að þetta varði
ekki okkar hagsmuni, heldur
vegna þess að við sjáum, m.a. af
könnunum sem ég hef látið gera
meðal okkar félagsmanna, að það
eru mjög skiptar skoðanir um
þetta. Allar kannanir benda til
þess að meirihluti sé andvígur
þessari hugmynd,“ segir hann.
„Ég mun kalla eftir afstöðu
þingsins um það hvort forseti Al-
þýðusambandsins eigi yfirhöfuð
að tjá sig um þessi mál, enda er
ekki hægt að vitna eilíflega í
gamlar ályktanir frá löngu liðnum
þingum. Menn verða að endur-
nýja þá afstöðu til þess að geta
talað í umboði þessarar stóru
hreyfingar,“ segir Stefán og
minnir á að miklar breyt-
ingar hafa átt sér stað í
umheiminum.
Mun kalla eftir
afstöðu þingsins
FORMAÐUR VR
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Ef lögreglumenn eru að velja eitt verkefni umfram
annað mun það væntanlega leiða til stórslyss,“ segir
Snorri Magnússon, formaður Landsambands lögreglu-
manna. Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær frá lög-
reglumönnum á Suðurlandi kemur fram að vegna nið-
urskurðar sé raunveruleikinn orðinn sá að
lögreglumenn þurfi að velja á milli tveggja, jafnvel
þriggja, slysa eftir því hvert þeirra hljómar alvarlegast
og geta ekki sinnt hinum. Snorri kannast við slík dæmi
úr starfi lögreglumanna víða um land.
Lögreglumenn eru orðnir þreyttir
„Við erum komnir langt fram yfir þann punkt þar sem
allir eru búnir að fá nóg af þessum niðurskurði. Hljóðið í
lögreglumönnum er þungt og það er mikil þreyta. Stað-
an er óbreytt og álagið stöðugt að aukast,“ segir Snorri
og bætir við að ný fjárlög ríkisins beri þess ekki merki
að bætt verði úr ástandinu. „Það er skrítið að stétt-
arfélag lögreglumanna þurfi að standa í þeirri baráttu
að lögreglumenn fái og geti unnið vinnuna sína.“
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi og
formaður Lögreglustjórafélags Íslands, segir að því
miður hafi niðurskurður til löggæslumála haft þau áhrif
að ekki sé hægt að sinna löggæslunni með sama hætti
og var gert fyrir fimm árum. Hann segir lögreglumenn
á Suðurlandi hafa áhyggjur en þeir reyni að gera sitt
besta og sinna því mikilvægasta. „En það er ákveðin
hætta á því að upp kunni að koma aðstæður þar sem við
getum ekki gert það, ef margt gerist í einu,“ segir Ólaf-
ur. Svo gæti farið að lögreglumenn þyrftu að fremja lög-
brot til að geta sinnt vinnu sinni. „Við stöndum frammi
fyrir því að velja á milli þess að fara að þeim lögum sem
ákvarða um stjórnsýslu og löggæslu og hinsvegar fjár-
lögum,“ segir Ólafur.
Í ársskýrslu ríkislögreglustjóra 2011 kemur fram að
frá árinu 2008 hafi rekstur embættisins einkennst af nið-
urskurði og endurskipulagningu. Samanlagður sam-
dráttur rekstrarfjár á árunum 2008 til 2012 nemi um
30% en sé í raun mun meiri en prósentutölur fjárlaga
gefa til kynna. Hinn 1. febrúar 2011 voru 652 lögreglu-
menn starfandi, 77 færri en árið áður. Þá fjölgaði árs-
verkum um 2% árið 2011 frá fyrra ári.
Ríkislögreglustjóri fundar með lögregluliðum
Þessar vikurnar fundar Haraldur Johannessen rík-
islögreglustjóri með lögregluliðum landsins um stöðu
löggæslumála. Alls verða 11 fundir haldnir víðs vegar
um land og var Haraldur staddur á Egilsstöðum í gær á
sínum fimmta fundi. Hann segir vera ágætt hljóð í lög-
reglumönnum og lögreglustjórum en hinsvegar hafi þeir
áhyggjur af áhrifum niðurskurðar á fækkun lögreglu-
manna og frumkvæðisvinnu. „Lögreglan hefur fundið
fyrir niðurskurðinum undanfarin ár og þurft að bregðast
við honum með því að forgangsraða verkefnum og
breyta áherslum við löggæsluna. Ég geng út frá því að
það komi að því að þessari þróun verði snúið við og lög-
gæslan fái það fjármagn sem hún þarf á að halda,“ segir
Haraldur.
Niðurskurðurinn
leiðir til stórslyss
Lögreglumenn geta ekki sinnt öllum slysum, þurfa að velja
Ólafur Helgi
Kjartansson
Haraldur
Johannessen
Snorri
Magnússon
Í umræðuskjali um jöfnun lífeyr-
isréttinda fyrir þing ASÍ í næsta
mánuði segir að líkur séu til þess
að reyna muni á ákvæði um jöfnun
lífeyrisréttinda við endurskoðun
kjarasamninga í ársbyrjun 2013.
„Ekki hefur verið staðið við framlög
úr ríkissjóði til jöfnunar lífeyrisrétt-
inda líkt og samið var um í síðustu
kjarasamningum,“ segir þar.
Fram kemur einnig að tafir hafa
orðið á vinnu starfshóps um sam-
ræmt lífeyriskerfi, m.a. vegna kröfu
um að ekki verði hróflað við rétt-
indum opinberra starfsmanna.
„Ekki hefur náðst sátt um skil-
greiningu á áunnum réttindum og
verður það mál einnig til umfjöll-
unar við endurskoðun kjarasamn-
inga í janúar. Gert er ráð fyrir að út-
færsla á hækkun iðgjalda til
lífeyrissjóðanna komi til umræðu
við endurskoðun kjarasamninga í
byrjun næsta árs.“
Ekki staðið við framlög
JÖFNUN LÍFEYRISRÉTTINDA OG SAMRÆMT LÍFEYRISKERFI
Gylfi Arnbjörnsson