Morgunblaðið - 28.09.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012
Þar sem gæðagleraugu kosta minna
ReykjavíkuRveguR 22 • S. 565 5970 • SjonaRholl.iS
SJÓNARHÓLL
gleraugu á verði fyrir ALLA
Mikið úrval umgjarða
fisléttar og sterkar
flott hönnun
litríkar
•
•
•
•
Margverðlaunuð
frönsk gæðagler
verð uMgjarða
4.900
9.900
14.900
19.900
24.900
Samkvæmt gögnum sem Stak-steinar hafa undir höndum og
víðar réðu yfirvöld útvarpsstjóra
til starfs árið 1930 eða svo.
Samkvæmt sömugögnum sýna
launareikningar
hans framreiknaðir
og laun núverandi
útvarpsstjóra aft-
urreiknuð, sem
Staksteinar hafa
einnig undir höndum og víðar, að
laun hans hafa verið áætluð um 18
milljónir króna.
Þetta eru há árslaun og hærrien forsætisráðherra hefur,
sem er lögbrot, en segir þó ekki
alla söguna.
Því samkvæmt niðurstöðu vasa-reiknivélar, sem Staksteinar
hafa undir pappírsflóði á borðinu,
var búið, þegar síðast var skoðað,
að greiða útvarpsstjóra eitt þús-
und fjögur hundruð sjötíu og sex
milljónir króna í laun frá því að sú
áætlun var gerð! Ríkisendurskoð-
andi mun sem þrumu lostinn og
boðar skýrslu um málið á 1.100
ára afmæli Alþingis árið 2030.
Þessi ógnar fjárhæð hefur aldr-ei verið birt áður í heild og
því verið leynileg fram að þessu.
Samkvæmt minnisblaði semStaksteinar sáu oft fyrir
mörgum árum má byggja átta
vönduð barnaheimili fyrir fjár-
muni sem varið hefur verið til að
greiða laun þessa eina embættis-
manns og eru þá launatengd gjöld,
frír sími, bifreið og risna ekki talin
með.
Í Kastljósi í kvöld verða þessi 8barnaheimili sýnd og spurt
hver beri ábyrgð á hneykslinu.
Páll Magnússon
Embættismaður
með 1.476 milljónir
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 27.9., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 4 alskýjað
Akureyri 3 rigning
Kirkjubæjarkl. 7 rigning
Vestmannaeyjar 5 rigning
Nuuk 3 súld
Þórshöfn 9 skúrir
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 12 skúrir
Stokkhólmur 12 skýjað
Helsinki 13 skúrir
Lúxemborg 12 skýjað
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 12 léttskýjað
London 16 léttskýjað
París 15 skýjað
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 13 skúrir
Berlín 16 léttskýjað
Vín 16 skýjað
Moskva 13 heiðskírt
Algarve 18 skýjað
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 11 skýjað
Montreal 12 léttskýjað
New York 22 heiðskírt
Chicago 17 léttskýjað
Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:30 19:07
ÍSAFJÖRÐUR 7:36 19:11
SIGLUFJÖRÐUR 7:19 18:54
DJÚPIVOGUR 6:59 18:37
Talið er víst að fíkniefnum hafi verið
smyglað hingað til lands í tengslum
við stóra fíkniefnamálið sem upp
kom í Danmörku á dögunum. Ekki
var lagt hald á fíkniefni í tengslum
við málið hérlendis og því má gera
ráð fyrir að þau hafi farið á götuna.
Átta Íslendingar hafa verið hand-
teknir í tengslum við málið í Dan-
mörku og Noregi, þar á meðal er
höfuðpaurinn. Flestir Íslendinganna
hafa komið við sögu lögreglu hér á
landi. Rannsókn málsins hófst hér á
landi um mitt síðasta ár og að sögn
Karls Steinars Valssonar, yfirmanns
fíkniefnadeildar lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu, byggðist rann-
sóknin á upplýsingum um ætlaðan
innflutning fíkiefna til Íslands og
annarra Norðurlanda. Í kjölfarið var
haft samband við lögregluyfirvöld í
Danmörku og Noregi og málið unnið
í samvinnu við þarlend lögreglu-
yfirvöld. Auk þess var Interpol gert
viðvart eins og venja er í alþjóð-
legum málum. Málið er eitt það
stærsta sem kemur hefur inn á borð
íslensku lögreglunnar en hald var
lagt á tugi kílóa af amfetamíni sem
hægt er að drýgja verulega. Götu-
verð getur því numið milljörðum.
Aðspurður hvort til standi að
leggja fram framsalsbeiðni segir
Karl ekkert liggja fyrir um slíkt en
útilokar þó ekki þann möguleika. Í
samtali við mbl.is segir Karl að mál-
ið sé enn eitt dæmið um að ekki þýði
að líta á Ísland sem einangrað í
fíkniefnaheiminum, algengara sé að
mál hafi erlendar tengingar.
Umfangsmikil rannsókn hófst á Íslandi
Íslendingur talinn höfuðpaur í um-
fangsmiklu fíkniefnamáli í Danmörku
Vopn Byssa sem danska lögreglan lagði
hald á í tengslum við rannsóknina.
Ávanaefni kannabis hefur verið ein-
angrað frá í lyfinu Sativex, sem ætl-
að er til meðhöndlunar á fylgikvillum
MS-sjúkdómsins, og er lyfið því ekki
ávanabindandi. Þetta kemur fram í
frétt á vef MS-félagsins.
Morgunblaðið sagði frá því á mið-
vikudag að Lyfjastofnun hefði veitt
bresku lyfjafyrirtæki markaðsleyfi
fyrir lyfinu en virka efnið í því er er
Delta-9-tetrahydrocannabinoll
(THC BDS) sem þekktast er fyrir að
vera virka vímuefnið í kannabisefn-
um. Þá inniheldur lyfið jafnframt
virka efnið Cannabidiol Botanical
(CBD BDS) en líkt og THC þá finnst
það einnig í kannabisplöntum.
Engin áhrif á framgang MS
Á vef MS-félagsins segir ennfrem-
ur að lyfið sé almennt ætlað fyrir
MS-sjúklinga sem eru slæmir af
spasma og verkjum. Það sé ekki MS-
lyf í þeim skilningi að það hafi áhrif á
framgang sjúkdómsins.
Þá segir að Sativex hafi ekki verið
markaðssett á Íslandi enn sem kom-
ið er og ekki sé víst hvort og hvenær
af því verði. Áður en hægt sé að ávísa
lyfinu hér á landi þurfi lyfjagreiðslu-
nefnd að samþykkja leyfilegt há-
marksverð á lyfinu. kjartan@mbl.is
Verði
ekki háð-
ir Sativex