Morgunblaðið - 28.09.2012, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C
Opið alla virka daga 11-18 og laugardaga frá 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
Ermar
Röndóttar og einlitar
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is Ríta tískuverslun
ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG!
GÓÐIR
KULDAGALLA
R
FYRIR ALLA!
Dynjandi hefur úrval af
vönduðum kuldafatnaði
fyrir alla, börn og fullorðna.
Komdu og skoðaðu úrvalið.
Dynjandi örugglega fyrir þig!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is
Truflanir hafa orðið á starfsemi
hestamannafélagsins Gusts í kjölfar
gruns um að eitraðri lifrarpylsu
hefði verið komið fyrir í reiðhöll fé-
lagsins í aðdraganda hundasýn-
ingar sem halda átti í höllinni um
síðustu helgi. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins hefur engum
dýrum verið hleypt inn í reiðhöllina
síðan atkvikið kom upp og því hafa
æfingar fallið niður en ýmist er um
útleigða tíma eða skipulagðar æf-
ingar að ræða.
Dýrum ekki
hleypt inn í
reiðhöllina
Morgunblaðið/ÞÖK
Lokun Ekki er tekin áhætta á því að hleypa dýrum inn í reiðhöll Gusts með-
an niðurstöður rannsókna á lifrarpylsunni liggja ekki fyrir.
Katrín Júlíusdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, snýr aftur í
ríkisstjórn þann 1. október næst-
komandi, á mánudag. Hún mun
taka við embætti efnahags- og fjár-
málaráðherra sem Oddný G. Harð-
ardóttir hefur gegnt síðan í lok síð-
asta árs. Flokksstjórn Sam-
fylkingarinnar samþykkti tillögu
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra þess efnis í síðasta mán-
uði.
Katrín sem nýlega sneri aftur úr
fæðingarorlofi gengdi áður emb-
ætti iðnaðarráðherra. Breytingar á
stjórnarráðinu sem komu til fram-
kvæmdar 1. september síðastliðinn
fólu í sér að iðnaðarráðuneytið var
sett undir hatt nýs atvinnuvega-
ráðuneytis auk þess sem efnahags-
og viðskiptaráðuneyti var sameinað
fjármálaráðuneyti.
Katrín Júlíusdóttir tekur við af Oddnýju
sem nýr efnahags- og fjármálaráðherra
Oddný G.
Harðardóttir
Katrín
Júlíusdóttir
Síðasta skemmtiferðaskipið á þessu
sumri er væntanlegt til Reykjavík-
ur á morgun.
Það er rússneskt og heitir Aka-
demik Sergey Vavilov. Stærð skips-
ins er ekki í samræmi við hið vold-
uga nafn því skipið er aðeins 6.344
brúttótonn. Áætlað er að það legg-
ist að Skarfabakka klukkan 4.
Fyrsta skemmtiferðaskip sum-
arsins kom 17. maí í vor og á þeim
rúmum fjórum mánuðum sem liðnir
eru síðan hafa skipakomur verið
alls 81.
Nú þegar hafa verið bókaðar 75
komur skemmtiferðaskipa til
Reykjavíkur sumarið 2013 og bók-
unum mun væntanlega fjölga í vet-
ur. Stærsta skipið sem bókað hefur
komu sína heitir Adventure of the
Seas og er 137.276 brúttótonn.
sisi@mbl.is
Síðasta
skemmti-
ferðaskipið
Morgunblaðið/Ómar
Skipin Oft er þröng í Sundahöfn.
mbl.is
alltaf - allstaðar