Morgunblaðið - 28.09.2012, Síða 10

Morgunblaðið - 28.09.2012, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 María Ólafsdóttir maria@mbl.is H enriette Kjeldal er þúsundþjalasmiður sem bæði teiknar, málar og föndrar. Henriette er nú ný- flutt til Noregs þar sem hún hyggur á nám í grafískri hönnun. Henriette er hönnuður mánðarins hjá buxna- laus.is en þar á síðunni má finna bol skreyttan með grafík Henriettu. Buxnalaus.is er samfélag áhuga- hönnuða sem stendur fyrir keppni í að hanna boli sem eiga síðan mögu- leika á því að verða framleiddir og seldir á buxnalaus.is. Að baki fyr- irtækinu standa þeir Björgvin og Óli Tómas sem vilja með þessu gera sitt besta til þess að styðja við bakið á efnilegum íslenskum hönnuðum. Hauskúpur og Þórshamar Henriette vann hönn- unarkeppni í mars þar sem hönn- uðir sendu teikningar sínar en keppnin var í samstarfi við Thors- hammer. Í framhaldi af því var hún síðan valin sem fyrsti hönnuður mánaðarins á buxnalaus.is. Henri- ette segist mikið hafa fylgst með hönnun Thorshammer en undir því eru hönnuð belti og aðrir fylgi- hlutir. „Mér finnst fallegt það sem þeir hafa verið að gera og nýtti mér það dálítið sem innblástur. Ég mið- aði að því að hafa hönnunina dálítið í rokk og ról-stíl en ég er mjög hrif- in af því að teikna hauskúpur. Ég fléttaði þeim því saman við rúnir og Þórshamarinn og síðan bættust vængirnir við. Það var mjög gaman að vinna með strákunum hjá buxna- laus.is og um að gera fyrir fólk sem dundar sér við að teikna að senda þeim hugmyndir sínar,“ segir Henriette. Gamaldags og kósí Henriette hefur teiknað og föndrað síðan hún man eftir sér en fyrir tveimur árum byrjaði hún líka að mála og segist hafa fundið sig vel í því. „Ég hef fikrað mig sjálf áfram í þessu og er í dag mest að teikna og mála. Hugmyndirnar koma víða að og ég fer oft á netið til að safna í hugmyndapakka og síðan þróast hugmyndirnar áfram. Núna langar mig að stefna á jólin og gera eitt- Sækir innblástur til íslenskra listamanna Henriette Kjeldal er hönnuður mánaðarins hjá buxnalaus.is sem er samfélag áhugahönnuða. Henriette hannaði grafík á stuttermabol sem nú fæst hjá buxna- laus.is en miðaði að því að hafa hönnunina í rokk og ról-stíl og blandaði þar sam- an hauskúpum, Þórshamri og vængjum. Rokk og ról Bolurinn sem Henriette hannaði fyrir buxnalaus.is Málverk Henriette hefur mikla unun að því að teikna og mála. Nýjasta nýtt frá franska tískuhúsinu Mugler var sýnt á dögunum. Hönnuðurinn Thierry Mugler hef- ur breytt og þróað hönnun sína síðastliðna ára- tugi en þetta er fjórða línan undir nýjustu tísku- stefnu hans. Þótti fatnaðurinn öllu frjálslegri en það sem áður hefur sést frá Mugler og heildarmyndin þroskaðri og heildrænni en fyrri línur tískuhúss- ins. Andi Muglers sjálfs sveif yfir vötnum en hönnunin teygði sig lengra en áður þó að form- fastar línur fyrirfyndust enn. Grafík og litir voru áberandi, efnin fínleg en silki var áberandi. Mættust á tískupöllunum áhrif bandarískrar poppmenningar í bland við frönsk og asísk áhrif. Þykir tískuspekúlöntum sem yfirhönn- uðum í Mugler-tískuhúsinu hafi tekist vel til við að vinna undir stjórn meistarans að þessu sinni. Stefnir því í að vorið 2013 verði blómstrandi og fallegt hjá Mugler. Nýtt frá Mugler Formfast Falleg efni og litir voru áberandi en hönnunin klassísk. AFP Mugler Tískuspekúlantar voru ánægðir með það sem sást á pöllunum. Grafík og litir áberandi í hönnun Muglers

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.