Morgunblaðið - 28.09.2012, Síða 18

Morgunblaðið - 28.09.2012, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Fiskveiðiyfirvöld í Bretlandi hafa samið við íslenska fyrirtækið Track- Well um kaup og þjónustu á tölvu- kerfi sem hefur eftirlit með átta þúsund skipum á öllum hafsvæðum í landhelgi Bretlands næstu fimm til sjö ár. Hugbúnaðurinn er not- aður til að hafa eftirlit með öllum breskum skipum yfir tólf metrum að lengd og með skipum annarra þjóða sem stunda veiðar á bresku hafsvæði. „Frá árinu 2007 höfum við sótt á erlenda markaði en þessi samning- ur er sá stærsti sem við höfum gert. Við gerum ráð fyrir að með samn- ingum verði erlend velta orðin meiri en innlend. Við gerum einnig ráð fyrir að þessi samningur muni hjálpa okkur í sölustarfsemi annars staðar,“ segir Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri TrackWell, í samtali við Morgunblaðið. TrackWell hreppti samninginn eftir útboð sem 14 fyrirtæki tóku þátt í, þar á meðal nokkrar af stærstu verkfræðistofum heims. Hugbúnaður sem þessi er yfirleitt boðinn út og segir Jón Ingi að fyr- irtækið sé að vinna að fleiri útboð- um. Seldu til Albaníu Fyrir ári varð TrackWell hlut- skarpast í útboði hjá Evrópusam- bandinu fyrir hönd Albaníu, ásamt tveimur samstarfsfyrirtækjum. „Flestir viðskiptavina okkar eru í Norður-Ameríku og Evrópu en við höfum einnig unnið með Alþjóða- bankanum að þróun fiskveiðieftir- litskerfis til notkunar í Afríku og Asíu,“ segir Jón Ingi, þegar blaða- maður undrast að íslenskt fyrirtæki sé að selja til Albaníu. Spurður um umfang breska samningsins segir hann að fjárhæð- ir í því sambandi séu trúnaðarmál. „Þetta er fast viðskiptasamband með mánaðarlegum greiðslum þar sem við veitum ýmsa þjónustu og höldum kerfinu gangandi, auk þess sem við erum sífellt að þróa hug- búnaðinn og betrumbæta hann. Við- skiptavinurinn er því alltaf með nýj- asta nýtt í höndunum á hverjum tíma. Næstu misseri mun samning- ur taka nokkurn hluta af starfsem- inni til sín en um heildarumfang er erfitt að segja að svo stöddu,“ segir Jón Ingi. Hann segir að kaupendahópurinn að þessum eftirlitskerfum hafi lengi einungis viljað stunda viðskipti við stórfyrirtæki. Viðhorfið hefur þó breyst í þá átt að kaupa af fyrir- tækjum sem eru með sérhæfingu og staðlaðar lausnir. „Samningurinn sýnir fram á að aðferðafræðin sem við lögðum upp með, að vinna náið með okkar viðskiptavinum og kaupa grunntækniþjónustu af öðrum, er góð og virkar. Í þessu tilfelli eru British Telecom og Amazon sam- starfsaðilar okkar,“ segir hann. Fyrirtækið lagði upp með ákveðna hugmyndafræði árið 2005, en fyrirtækið var stofnað 1996, um hvernig best væri að búa til upplýs- ingakerfi, hvaða sérþekkingu það hefði og á hvaða markaði það vildi sækja. Þá var ákveðið að sérhæfa sig í lausnum tengdum forðastýr- ingu en þær lausnir byggjast á tækni tengdri fjarskiptum og stað- setningartækni, sem fyrirtækið hafði áður unnið með. Viðskipta- módelið byggist á því að reka hug- búnaði í hýsingarmiðstöðvum og leigja hann til viðskiptavina. „Við seljum 50 nýjum fyrirtækjum eða stofnunum á ári. Viðskiptamanna- grunnur hefur því smám saman verið að byggjast upp,“ segir Jón Ingi. Skrifstofa í Texas Fyrirtækið rekur skrifstofur á Ís- landi og í Texas í Bandaríkjunum. „Við erum með um 400 viðskipta- vini. Flestir þeirra eru íslenskir en þeim hefur fjölgað hvað mest er- lendis. Það má skipta viðskiptavin- unum niður með eftirfarandi hætti: 30.000 starfsmenn nota tíma- og verkskráningarkerfið okkar á hverjum degi, liðlega 2.000 bílar eru skráðir í flotakerfið og um 18.000 skip fara í gegnum eftirlitskerfin okkar á ári,“ segir Jón Ingi. „Fyrir okkur skiptir heimamark- aðurinn öllu máli. Við höfum þróað hugbúnaðinn okkar í samstarfi við viðskiptavini okkar hér heima. Þeir eru lykillinn að þeim árangri sem við höfum náð erlendis,“ segir hann. Selja breskum yfirvöldum  Eftir sölu TrackWell á hugbúnaði sem hefur eftirlit með skipum til breskra fiskveiðiyfirvalda mun meirihluti tekna fyrirtækisins koma erlendis frá  Fyrirtækið fær 50 nýja viðskiptavini á ári Morgunblaðið/ Styrmir Kári Stærsti samningur TrackWell „Frá árinu 2007 höfum við sótt á erlenda markaði en þessi samningur er sá stærsti sem við höfum gert,“ segir Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri TrackWell, sem er með um 400 viðskiptavini. ● Vísitala neyslu- verðs hækkaði um 0,76% í sept- embermánuði, að því er fram kemur í nýjum tölum frá Hagstofunni. Við þetta jókst 12 mánaða verð- bólga úr 4,1% í 4,3%. Þetta er í takt við flestar spár greining- araðila, en spáð var 0,7-0,8% aukningu. Greining Íslandsbanka segir í morg- unkorni sínu að gert sé ráð fyrir 0,6% aukningu milli september og október og að 12 mánaða verðbólgan fari upp í 4,5% og á síðasta ársfjórðungi muni hún aukast ennþá meira, eða upp í 4,7%. Spá meiri verðhækkun Verðbólga Eykst úr 4,1% í 4,3%. ● Breska hagkerfið dróst saman um 0,4% á öðrum ársfjórðungi. Þetta er hins vegar minni samdráttur heldur en spár höfðu gert ráð fyrir. Skipta þar mestu máli betri hagtölur í bygging- ariðnaði. Fjárhagsstaða heimilanna virðist ennfremur ekki jafn slæm og bráða- birgðatölur gáfu til kynna; einkaneysla á fjórðungnum dróst saman um 0,2% en ekki 0,4%. Ráðstöfunartekjur heim- ilanna jukust um 1,9% á fjórðungnum. Þetta er þriðji ársfjórðungurinn í röð sem tölur sýna fram á samdrátt, en áð- ur hafði samdrátturinn mælst 0,4% á síðasta ársfjórðungi 2011 og 0,3% á þeim fyrsta á þessu ári. Samdráttur í níu mánuði Stuttar fréttir…                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-.,/ ,0+.-1 +,2.,/ ,+.-32 ,+.2, +4.451 +3,.,2 +.1// +/+.,/ +1/.41 +,-.1/ ,0+./- +,2.22 ,+.-// ,+.24- +4./3 +3,.23 +.2035 +/+.42 +20.3 ,,+./211 +,-.4/ ,0,.-3 +,5.03 ,+.12, ,+.5-4 +4./41 +33 +.204- +/,.-3 +20.51 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Rekstur TrackWell er kominn vel á veg og síðustu ár hefur hagnaður fyr- irtækisins verið að aukast. „Nú er þetta bara spurning um hversu langt við munum ná. Þessi samningur gefur ágæta vísbendingu um að við get- um náð langt,“ segir Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri TrackWell. TrackWell hefur vaxið í stuðningsumhverfi sprota- og nýsköpunarfyr- irtækja hér á landi. TrackWell var t.d. fyrsta fyrirtækið sem Frumtak, fjárfestingarsjóður sem sérhæfir í nýsköpunarfyrirtækjum, fjárfesti í. „Sjóðurinn var stofnaður til að koma fyrirtækjum eins og okkar af stað, og ég tel að þessi fjárfesting þeirra sé vel heppnuð,“ segir Jón Ingi. Fyrirtækið er í eigu stofnenda og annarra starfsmanna, Frumtaks og Skipta, en Skipti lögðu grunninn að fyrirtækinu. Frumtak kom í hópinn þegar fyrirtækið var komið með vöru í hendurnar og var að fara að selja hana. Hagnaðurinn að aukast TRACKWELL VAR FYRSTA FJÁRFESTING FRUMTAKS ● Atvinnulausum hefur fækkað í Þýskalandi í septembermánuði, en alls eru 2,79 milljónir Þjóðverja án atvinnu, að því er fram kemur í nýjum tölum frá Vinnumálastofnun Þýskalands. Atvinnuleysi mælist nú 6,5% en var 6,8% í ágúst. Hátt í 117 þúsund færri eru nú á atvinnuleysisskrá en í mán- uðinum á undan. Fyrir ári mældist atvinnuleysi 6,6% í Þýskalandi en spár benda hins vegar til þess að atvinnuleysi eigi eftir að aukast á ný í Þýskalandi. Atvinnuleysi dregst saman í Þýskalandi Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Gæði og glæsileiki á góðu verði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.