Morgunblaðið - 28.09.2012, Síða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012
Heildartekjur og
útgjöld íslenskra
sveitarfélaga hafa ver-
ið um 200 milljarðar
síðustu ár og heild-
arfjöldi sveitarstjórn-
armanna eftir kosn-
ingarnar 2010 var 512.
Þessar tölur mætti
túlka þannig að hver
sveitarstjórnarmaður
í landinu bæri að með-
altali ábyrgð á um 390
milljónum króna á ári. Ef meiri-
hlutar í sveitarstjórnum eru um
60% af kjörnum fulltrúum eru það í
raun ekki nema 300 sveitarstjórn-
armenn sem fara með fjárstjórn-
arvald og ábyrgð hvers og eins að
meðaltali nær 670 milljónum króna
á ári. Auðvitað eru sveitarfélög ólík
af stærð og gerð en fjárveiting-
arvaldi getur fylgt mikil freisting
líkt og útgjalda- og tekjuaukning
sveitarfélaga árin 2000-2010 ber
með sér þó að ekki sé hægt að horfa
framhjá nýjum lögbundnum verk-
efnum sveitarfélaga sem fjölgaði á
þessu tímabili.
Verkefni og skyldur
Sveitarfélög hafa margvíslegum
skyldum að gegna og ber að leysa
þau verkefni af hendi sem lög fela
þeim auk þess sem þau hafa visst
svigrúm til að taka að þér önnur
verkefni sem varða íbúa þeirra.
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir
flokkun þessara verkefna.
Verkefni sveitarfélaga hafa verið
flokkuð í lögbundin verkefni og
ólögbundin verkefni. Lögbundin
verkefni sveitarfélaga eru flokkuð í
valkvæð verkefni og
skyldubundin verkefni.
Byggist sú flokkun á
því hvort sveitarfélagi
sé skylt að sinna verk-
efninu eða hvort því sé
heimilt að taka það upp
að eigin frumkvæði.
Sveitarfélögum er t.d.
skylt að reka grunn-
skóla en geta sjálf
ákveðið hvort þau reki
tónlistarskóla. Val-
kvætt verkefni getur
hinsvegar verið lög-
skylt verkefni þ.e.
ákveði sveitarfélag að reka tónlist-
arskóla skal sá rekstur lúta sérlög-
um um tónlistarskóla
Í heimildum sveitarfélaga til að
beita fjármunum sínum í því skyni
að taka að sér ný verkefni – án lög-
gjafans – kristallast sjálfstæði sveit-
arfélaganna og hin raunverulega
þýðing fjárstjórnarvalds þeirra.
Tekjur sveitarfélaga koma í
gegnum fimm tekjuliði: Útsvar er
tæp 55% af heildartekjum, þjón-
ustutekjur um 15%, fasteignaskatt-
ur 13%, jöfnunarsjóður sveitarfé-
laga um 10% og aðrar tekjur um 8%
Í kjölfar tekjusamdráttar eftir
hrun hefur krafan orðið ríkari á að
sveitarstjórnarmenn verði að leita
bestu leiða til að draga úr út-
gjöldum sveitarfélaga. Þá kemur til
skoðunar hvaða lögbundnu verk-
efnum sé verið að sinna á hag-
kvæman hátt, hvaða verkefni séu
ekki lögbundin og hvaða verkefni
falli undir svokallaða grunnþjón-
ustu.
Grunnþjónusta hefur m.a. verið
skýrð sem sú þjónusta sem gerir
íbúum kleift að rækja samfélags-
legar skyldur sínar, er nauðsynleg
til að efnahagslíf þrífist með eðlileg-
um hætti og/eða rík hefð hefur
skapast fyrir í starfseminni.
Í skýrslu sem KPMG vann fyrir
Garðabæ, og var kynnt á íbúafundi
um fjármál þar í bæ 11. nóvember
2009, kom fram að 46% af út-
gjöldum sveitarfélagsins runnu til
svokallaðrar lögbundinnar þjón-
ustu. Önnur grunnþjónusta nýtti
30% af útgjöldum sveitarfélagsins.
Önnur þjónusta sem unnt var að
leggja af með ákvörðun sveit-
arstjórnar var 16% af útgjöldum
sveitarfélagsins.
Vald og ábyrgð
Stjórnarskráin tryggir ekki ein-
ungis sjálfstjórn sveitarfélaga held-
ur takmarkar hana einnig. Fjár-
hagslegt sjálfstæði sveitarfélaga er
í raun takmarkað vegna þeirra lög-
bundnu verkefna sem þeim er falið
og þeim lagaskyldum sem sveit-
arfélögum ber að fara eftir reyni
þau að fullnusta kröfuna um svo-
kallaða grunnþjónustu.
Sveitarstjórnarmönnum er falið
mikið vald og bera þeir pólitíska og
persónulega refsiábyrgð á gjörðum
sínum. Verkefni sveitarstjórna eru
víðfeðm og bera sveitarstjórn-
arfulltrúar ávallt hina endanlegu
ábyrgð á þeim enda þótt sveit-
arstjórn hafi heimild til að fram-
selja verkefni m.a. til nefnda og
starfsmanna. Skaðabótaábyrgð
sveitarfélaga vegna ákvarðana full-
trúa sveitarstjórna og nefnda er rík
og í samræmi við vaxandi kröfur
sem gerðar eru til opinberra starfs-
manna. Refsiábyrgð sveitarstjórn-
armanna og reglurnar um skaða-
bótaábyrgð eiga að veita
sveitarstjórnarmönnum aðhald í
störfum sínum
Í nýju sveitarstjórnarlögunum
eru fjármálareglur sveitarfélaga
hertar og ákvæði um eftirlits-
hlutverk ríkisins mikið breytt frá
því sem var. Það eru hinsvegar á
endanum sveitarfélögin, og íbúar
þeirra, sem bera í grundvall-
aratriðum ábyrgðina á því hvernig
til tekst með rekstur þeirra.
Fjármál
sveitarfélaga
Eftir Kjartan Örn
Sigurðsson
» Ábyrgð hvers og eins
sveitarstjórnar-
manns að meðaltali nær
670 milljónir króna á
ári.
Kjartan Örn
Sigurðsson
Höfundur er bæjarfulltrúi.
Skatttekjur Lögbundin þjónusta Önnur grunnþjónusta Önnur þjónusta Sameiginlegir liðir Rekstrarniðurstaða
Útsvör,
fasteignaskattar
og framlög frá
jöfnunarsjóði
sveitarfélaga
Þjónusta sem
kveðið er á um í
lögum og því ekki
unnt að leggja
af nema með
lagabreytingu
Þjónusta sem gerir
íbúum kleift að rækja
samfélagslegar skyldur
sínar, er nauðsynleg til að
efnahagslíf þrífist með
eðlilegum hætti og/eða
rík hefð hefur skapast fyrir
starfseminni
Þjónusta sem
unnt er að
leggja af með
ákvörðun
sveitarstjórnar
Sameiginlegur kostnaður
sem ekki hefur verið skipt
á rekstrareiningar, svo
sem rekstur bæjar-
skrifstofu og hækkun
lífeyrisskuldbindingar.
Hlutfallsleg skipt-
ing skatttekna
skv. ársr. 2008
Hlutfallsleg skipt-
ing skatttekna
skv. áætl. 2009
41%
46%
29%
30%
13%
16%
8%
7%
9%
1%
Tekjur sveitarfélaga Gjöld sveitarfélaga
250.000
200.000
150.000
100.000
50.000
0
1980 1990 2000 2010
1.1471.133
30.36930.173
78.82881.716
192.585
205.511
Greining útgjalda í Garðabæ (Heimild: KPMG)
Þróun tekna og útgjalda sveitarfélaga á Íslandi í þús. kr. frá 1980-2010
(Heimild. Hagstofa Íslands, Þjóðarhagsreikningar og opinber fjármál)
Uppi er krafa um
að Íslendingar setji
sér ný stjórnskip-
unarlög. Sú krafa er
sett fram án þess að
útskýrt sé á fullnægj-
andi hátt hvað hrjáir
stjórnarskrá lýðveld-
ins. Því er haldið
fram að á sínum tíma
hafi verið skorað á
framtíðarkynslóðir
Íslendinga að endur-
skoða stjórnarskrána. Frá lýð-
veldisstofnun hefur stjórnarskráin
reyndar verið í nær stanslausri
endurskoðun og þar að auki verið
breytt sex sinnum.
Það liggur fyrir að tillagan sem
stjórnlagaráð hefur lagt fram fel-
ur ekki í sér endurskoðun á
stjórnarskránni. Tillagan felur í
sér að stjórnarskráin verði með
öllu afnumin – hent í ruslið – og
ný og aldeilis ólík henni samþykkt
í staðinn. Það felur í raun í sér að
lýðveldi Íslands frá 1944 verði
lagt niður og 2. lýðveldi Íslands
stofnað. Hafi það verið mál
manna árið 1944 að hvetja til þess
að fram færi yfirveguð endur-
skoðun á stjórnarskránni í fyll-
ingu tímans þá má fullyrða að sú
atburðarás sem núna er farin af
stað hafi ekki verið það sem þá
var haft í huga. Aldrei mun nást
samstaða um að tillaga stjórnlag-
aráðs verði grunnur að bættri og
endurskoðaðri stjórnarskrá. Ein-
faldlega vegna þess að tillagan
felur í sér að afnema beri stjórn-
arskrána og setja eigi eitthvað
annað í staðinn. Án raunverulegr-
ar eða rökstuddrar ástæðu.
Enn er þó tækifæri
til að koma í veg fyrir
stjórnskipunarlegt
stórslys. Stjórn-
arskráin er nefnilega
mikilvægari og
merkilegri en svo að
henni megi fórna í
flýti á altari póli-
tískra stundarhags-
muna núverandi vald-
hafa. Hafna ber því í
atkvæðagreiðslu að
tillaga stjórnlagaráðs
verði lögð til grund-
vallar nýrri stjórn-
arskrá. Vissulega er þörf á að
sníða ýmsa vankanta af ákvæðum
stjórnarskrárinnar. En í stað
hugmyndavinnu stjórnlagaráðs
væri réttara að horfa til tillögu í
anda þeirrar sem Ágúst Þór
Árnason og Skúli Magnússon
settu fram að endurskoðaðri
stjórnarskrá. Í þeirri tillögu felst
yfirveguð og skynsamleg nálgun á
viðfangsefninu og breytingar á
vanköntum sem líklegt er að sam-
staða náist um. Er þar kominn
fram ágætur grunnur að frekari
umræðu um stjórnarskrármálið á
Alþingi og í samfélaginu sem lík-
legt er að geti skilað einhverjum
árangri og verið Íslendingum til
heilla.
Endurskoðun í
stað ruslakörfunnar
Eftir Teit Björn
Einarsson
» Tillagan felur í sér að
stjórnarskráin verði
með öllu afnumin – hent
í ruslið – og ný og al-
deilis ólík henni sam-
þykkt í staðinn.
Teitur Björn
Einarsson
Höfundur er lögmaður.
VANDAÐIR ÞÝSKIR
PÓSTKASSAR
MIKIÐ ÚRVAL
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
Opið virka daga
frá 9-18 og
lau frá
10-16
Póstkassar
frá 7.980,-
Lykilverslun við
Laugaveginn frá 1919
Bréfalúgur,
dyrahamrar
og húsnúmer
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir aðsendar
greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Kerfið er auðvelt í notkun og
tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki grein-
ar sem einnig eru sendar eru á aðra
miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morg-
unblaðslógóinu efst í hægra horni
forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á
lógóið birtist felligluggi þar sem lið-
urinn "Senda inn grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið
er notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar
fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu.