Morgunblaðið - 28.09.2012, Side 39
ÍSLENDINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012
arkennari við Háteigsskóla frá
1998. Þá hefur hún verið stunda-
kennari í leiklist við HÍ. Hún hefur
samið töluvert af námsefni í leik-
list, sent frá sér þrjár leiklist-
anámsbækur og heldur úti vefsíð-
unni, Leikum af list, þar sem fjallað
er um leiklist og leiklistarkennslu
fyrir börn og unglinga.
Rannveig er formaður FLÍSS,
Félags um leiklist í skólastarfi, frá
2008. Félagið sem var stofnað árið
2005, vinnur að því að efla leiklist-
arkennslu í grunnskólum og fram-
haldsskólum.
Leiklistarkennslu í grunnskóla
En hvers vegna ætti að kenna
börnum og unglingum leiklist? Er
ekki offramboð á leikurum?
„Nei. Aldrei of margir leikarar,
enda snýst þetta ekkert um það að
gera hálfa þjóðina að atvinnuleik-
urum. Þetta snýst um skapandi
nám og um það að þroska nem-
endur. Þetta snýst um það að efla
félags-, samskipta- og tilfinn-
ingaþroska nemenda, auka skilning
þeirra á mannlegum samskiptum,
skilning þeirra á öðru fólki, efla
umburðarlyndi þeirra og víðsýni.
Með leikrænni tjáningu er leik-
arinn stöðugt að setja sig í spor
annarra, upplifa aðstæður þeirra
og líðan. Það hefur margsýnt sig
með fjölda rannsókna að nemendur
sem læra leiklist eiga hægara með
að skilja aðra og aðstæður þeirra.
Þeir verða m.ö.o. betri, umburð-
arlyndari og skilningsríkari þjóð-
félagsþegnar.
Auk þess býður kennsla í leiklist
upp á skapandi nám sem nýtist
ekki síst þeim sem eiga erfitt með
að fylgjast með, eiga erfitt með
lestur, eða eru sem nýbúar að að-
lagast nýju samfélagi.
Loks má svo bæta því við að
kennsla í leiklist í grunnskólum
styrkir leikhúskúltur samfélagsins
almennt en slík menningareinkenni
bæta öll samfélög og eru hluti af
mikilvægum lífsgæðum okkar.“
Samkvæmt þessu ætti leiklistin
að eiga hug þinn allan.
„Já. Ég hef sem betur fer áhuga
og trú á því sem ég er að gera.
Vissulega hef ég áhuga á leiklist og
leiklistarkennslu og er enn að læra
á því sviði. En ég hef auðvitað einn-
ig áhuga á ýmsu öðru eins og geng-
ur. Ég hef t.d. gaman af að ferðast
og svo les ég reiðinnar býsn, ekki
síst skemmtilega krimma.“
Fjölskylda
Eiginmaður Rannveigar er Gísli
Jónasson, f. 16.3. 1966, íslensku-
fræðingur og starfsmaður við
tölvudeild RÚV. Hann er sonur
Jónasar Guðmundssonar, f. 6.2.
1926, og Auðar Gísladóttur, f.
10.12. 1925.
Synir Rannveigar og Gísla eru
Arnar Björn Gíslason, f. 22.12.
1998, og Þorsteinn Bragi Gíslason,
f. 21.3. 2002.
Systkini Rannveigar eru Svava
Kristín Þorkelsdóttir, f. 15.12. 1959,
hjúkrunarfræðingur, búsett á Sel-
tjarnarnesi; Gísli Þorkelsson, f.
10.3. 1970, kennari, búsettur í Mos-
fellsbæ.
Foreldrar Rannveigar eru Þor-
kell Jón Gíslason, f. 9.1. 1934, d.
9.7. 1997, borgarfógeti í Reykjavík,
og Margrét Sjöfn Davíðsdóttir, f.
15.6. 1934, hárgreiðslumeistari og
húsfreyja.
Úr frændgarði Rannveigar Bjarkar Þorkelsdóttur
Rannveig Björk
Þorkelsdóttir
Gísli Andrésson
b. á Hamri í Múlasveit
Sigurlílna Berglín Jónsdóttir
húsfr. á Hamri
Davíð J. Gíslason
stýrim. sem fórst með Dettifossi
Svava Ásdís Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Margrét Sjöfn Davíðsdóttir
hárgreiðslum. í Rvík
Lísabet Þóra Einarsdóttir
húsfr. á Eskifirði
Jón Kr. Jónsson
klæðskeri á Eskifirði
Þuríður Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Jón Jónsson
vkm. í Rvík
Rannveig Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Gísli Þorkelsson
steinsm, í Rvík
Þorkell Jón Gíslason
borgarfógeti í Rvík
Guðrún Höskuldsdóttir
húsfr. á Grímsstöðum
Þorkell Þorkelsson
b. á Grímsstöðum, Leiðvallahr.
Andrés Gíslason
b. á Hamri í Múlasveit
Guðrún
Andrésdóttir
húsfr. í Rvík
Hreggviður Norðdahl
doktor í jarðfræði hjá
Jarðvísindastofnun HÍ
Örlítið yngri Rannveig á árum áður.
Finnur Jónsson ráðherrafæddist 28.9. 1894 að Harð-bak á Sléttu, bæ sem er upp
af Hraunhafnartanga, nyrst á Mel-
rakkasléttu. Hann var sonur Jóns
Friðfinnssonar, bónda þar, og k.h.,
Þuríðar Sesselju Sigurðardóttur
húsfreyju.
Eiginkona Finns var Auður Sig-
urgeirsdóttir, f. 1888, d. 1935, hús-
freyja. Börn þeirra: Þuríður, hús-
freyja í Reykjavík; Birgir, alþm. og
forseti Alþingis; Ásta, kaupmaður í
Reykjavík; Ingibjörg, verslunar-
stjóri á Ísafirði; Finnur, lengst af
kennari á Ísafirði, síðar í Reykjavík,
og Jón, hrl., búsettur í Hafnarfirði.
Systkini Finns voru Ingólfur, hrl.,
bæjarstjóri og prentsmiðjustjóri á
Akureyri; Jóhann, skósmiður á Ak-
ureyri, og Sigrún, húsfreyja á Ak-
ureyri.
Finnur lauk gagnfræðaprófi á Ak-
ureyri 1910. Hann var póstmaður á
Akureyri 1910-1918, verslunar-
maður þar 1919-1920 en flutti þá
með fjölskyldu sína til Ísafjarðar og
var póstmeistari þar á árunum 1920-
1932. Þá var hann framkvæmda-
stjóri Samvinnufélags Ísfirðinga
1928-1944.
Finnur sat í bæjarstjórn Ísafjarð-
ar 1921-1942, var formaður verka-
lýðsfélagsins Baldurs á Ísafirði
1921-1932, beitti sér fyrir stofnun
verkalýðsfélaga á Vestfjörðum og
fyrir stofnun Alþýðusambands Vest-
fjarða og var forseti þess í mörg ár.
Hann var alþingismaður Alþýðu-
flokksins fyrir Ísfirðinga 1933-1951
og var félagsmála- og dómsmála-
ráðherra í nýsköpunarstjórninni
1944-1947.
Magnús Stormur segir um Finn í
Ráðherrum Íslands að hann hafi
verið duglegur maður, greindur og
notið trausts, verið málafylgjumaður
og getað verið harður í horn að taka
en andstæðingar hans, a.m.k. sjálf-
stæðismenn, hafi borið honum vel
söguna. Þá segir Magnús: „Finnur
var einn þeirra manna, sem uxu við
ábyrgðina og þótti hinn nýtasti mað-
ur, þótt ekki væri hann afburðamað-
ur á neinu sviði.“
Hann lést 30.12. 1951.
Merkir Íslendingar
Finnur
Jónsson
85 ára
Helga Kristín Lárusdóttir
Ívar Haukur Jónsson
80 ára
Ísak Þórir Þorkelsson
75 ára
Ása Ólafsdóttir
Lilja Þorsteinsdóttir
Svava Ólafsdóttir
70 ára
Bára Oddsteinsdóttir
Gísli Björgvin Stefánsson
Gunnar Bernburg
Hildur Magnúsdóttir
Margrét Kristjánsdóttir
Sigríður K. Frímannsdóttir
60 ára
Anna Ríkarðsdóttir
Bryndís Rögnvaldsdóttir
Darri Stanko Miljevic
Dóróthea G. Sigvaldadóttir
Helgi Hjörvar
Jóhann Ármann Fannberg
María Guðnadóttir
Sigríður Agnarsdóttir
Sigurd Oliver Staples
Sigurjón Harðarson
Sigurlaug M. Karlsdóttir
Yngvi Þór Kristinsson
50 ára
Bergur Hauksson
Eiður Þór Sveinbjörnsson
Elfa Dröfn Ingólfsdóttir
Guðný Tómasdóttir
Guðrún Andrésdóttir
Guðrún Birna
Jóhannsdóttir
Hafsteinn G. Gunnlaugsson
Harpa Fold Ingólfsdóttir
Hálfdán Einarsson
Kristján Óskarsson
Magnús Ásgeirsson
Michele Broccia
Ruzhen Yang
Sigurður Einarsson
Sigurlaug Sigurðardóttir
Sumarliði Ásgeirsson
40 ára
Anna Linda Bærings
Bjarnadóttir
Arnar Hallsson
Branddís Margrét
Hauksdóttir
Eva Birgitta Eyþórsdóttir
Eyþóra Kristín Geirsdóttir
Guðný Anna Þóreyjardóttir
Jóhann Önfjörð Kárason
Jón Þórðarson
Kolbrún Dögg
Kristjánsdóttir
Kristinn Loftur Karlsson
Rósa Jóhannsdóttir
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
Sonja Einarsdóttir
Stefán Ragnar Magnússon
30 ára
Arnar Jónsson
Birna Þrúður
Sigurbjörnsdóttir
Jón Frímannsson
Karina Maybely Orellana
Rojas
Magnús Már Guðmundsson
Patryk Emanuel Jurczak
Sólmundur Ingi
Einvarðsson
Steinn Sigríðarson
Finnbogason
Trausti Sigurðsson
Þorvarður Atli Þórsson
Til hamingju með daginn
30 ára Kristinn ólst upp í
Vestmannaeyjum. Hann
stundaði fiskvinnslu og er
nú vélagæslumaður hjá
Bræðslunni í Eyjum.
Maki: Þórdís Jóna Braga-
dóttir, f. 1977, fisk-
vinnslukona.
Börn: Brynjar Daði, f.
1998; Rúna Dís, f. 1999,
og Baltasar Karl, f. 2005.
Foreldrar: Erlendur Þór-
isson, f. 1957, sjómaður,
og Harpa Kristinsdóttir, f.
1958, húsfreyja.
Kristinn Þór
Erlendsson
30 ára Arnar lauk BA-
prófi í bókmenntafræði
og MA-prófi í kvikmynda-
gerð og starfar sjálfstætt
við kvikmyndagerð.
Maki: Arnhildur Lilý
Karlsdóttir, f. 1983, MA-
nemi í bókmenntum.
Foreldrar: Sigurður Jóns-
son, f. 1952, for-
stöðumaður smiðju- og
tölvumála HÍ, og Dagný
Guðmundsdóttir, f. 1959,
myndlistarkona og starfs-
maður við Árbæjarsafn.
Arnar
Sigurðsson
30 ára Inga ólst upp á
Kambhóli, býr í Öxarfirði,
er með BA-próf í
spænsku, BEd-próf og
gönguleiðsögumannspróf
frá Leiðsöguskóla Íslands,
framkvæmdastjóri Arctic
Running og verkefnastjóri
hjá Norðurhjara.
Synir: Dýri, f. 2009, og
Kolbeinn, f. 2011.
Foreldrar: Bryndís Ol-
geirsd., f. 1956, og Þor-
valdur Hermannss., f.
1946.
Inga Fanney
Sigurðardóttir
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Fáanlegur í mörgum litumVerð leður
kr. 439.000,-