Morgunblaðið - 28.09.2012, Page 40

Morgunblaðið - 28.09.2012, Page 40
40 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hafðu hugfast að þarfir fólks eru mis- munandi svo það sem er þér fyrir bestu þarf ekki að eiga við um aðra. Reyndu að taka hlutunum létt. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ættir að leggja góðum málstað lið með því að leggja orð í belg. Meira máli skipt- ir að innrætið sé gott og að viðkomandi sé treystandi í samskiptum við annað fólk. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er engin ástæða fyrir þig að blanda ekki geði við einhvern sem þú lítur upp til. Gefðu sjálfum þér lausa stund. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér berast leiðinleg tíðindi sem valda þér miklu hugarangri. Stundum þurfum við bara að taka því sem að höndum ber án of mikilla vangaveltna. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú nálgast viðfangsefni þín af mikilli sannfæringu: það gerir þig fram úr hófi verndandi. Reyndu að hugsa þig tvisvar um áður en þú segir nokkuð. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú tekur stíl þinn alvarlega og heimilið segir margt um þinn innri mann. Trúfesta þín gagnvart vinunum er aðdáunarverð. En mundu að slíkt trúnaðarsamband þarf að virka í báðar áttir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Aðstæður heima fyrir eru ekki eins og best verður á kosið en þeim má breyta ef vilji er fyrir hendi. Notaðu hvert tækifæri til að tjá þig í orðum, tónlist eða hreyfingu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vináttan skiptir þig mjög miklu máli þessa dagana. Láttu vera að ergja þig, þú færð að heyra það sem þú þarft að vita. Styrktu það með þeim bestu og klárustu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Í dag er ekki rétti tíminn til þess að leita sátta í fjölskyldunni eða við yfirmann- eskjuna. Það er ekki auðvelt að halda ró sinni í þeim hamagangi sem er í kring um þig. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert skýrari í hausnum þessa dagana en oftast gerist, svo nýttu þér það. Brosandi segistu vera yfirborðslegur af því að þú elskar glamúr. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur það á tilfinningunni að samstarfsmenn þínir efist um hæfileika þína. Haltu áfram að sýna gagnrýninni manneskju umburðarlyndi. Ekki gefa þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér er það óvænt ánægja hvað þú uppskerð fljótt árangur erfiðis þíns. Gefðu þér tíma til að tala við systkini þín, ættingja eða nágranna í dag. Jóhannes Jóhannesson, bæjarfóg-eti og alþingismaður, kom til Gunnars í Grænumýrartungu og hafði orð á því á eftir, að í baðstofu héngju tvær myndir uppi. Önnur af frelsaranum en hin af Jónasi frá Hriflu. Björn Jónsson ráðherra hafði mynd af Napóleon á vegg hjá sér, sem hann leit upp til: Munurinn reyndar enginn er annar en sá á mér og þér: marskálkarnir þjóna þér þjóna tómir skálkar mér. Svo orti Hannes Hafstein í orða- stað Björns og eitthvað orti Andrés Björnsson líka, sem ég ekki kann. Þetta rifjaðist upp í spjalli okkar Kristjáns Karlssonar. Hann rámaði líka í gamla þingvísu en kunni ekki nema slitur, sennilega stuðlafall: Kallaði nokkur kæran vin í fyrra ............... lygarót lubbamenni og idíót. Gaman væri ef einhver gæti fyllt í eyðurnar. Og líka er tilefni til að rifja það upp, að í Ævisögu Hann- esar Hafsteins segir Kristján Al- bertsson, að þingvísur hefðu á síð- ari árum tíðast verið í naprara lagi, en nú er margt kveðið í gaman- sömum tón. Ort var fyrir munn Hannesar, þegar hann var að svip- ast um í þingsalnum, óviss um ein- lægt fylgi allra fornvina, en því öruggari um stuðning ýmissa fyrri andstæðinga: Hér var allt með öðrum svip fyrir ári, um þetta leyti. En – alltaf má fá annað skip og annað föruneyti. Soffía dóttir Hannesar, sem hann kallaði Kátdís, lá í vöggu og hafði allt á hornum sér við prófastinn á Ísafirði, sem kominn var að vingast við hana; faðirinn orti: Kátdís ýmsar gerir glennur, gargar og rífst við pelann sinn. Nú er hún farin að taka tennur til að bíta prófastinn! Margar af þingvísum Andrésar Björnsson urðu fleygar. Þar á meðal er þetta stuðlafall um Pétur Jónsson, alþingismann og ráðherra frá Gaut- löndum, sem hafði það fyrir prinsip að tala um prinsip í ræðum sínum: Allt var gott er gerði drottinn forðum „princip“ þetta þó hann braut þegar hann bjó til Pétur Gaut. Og svo þessi vísa Andrésar, sem vel mætti minna Jóhönnu Sigurð- ardóttur forsætisráðherra á þá góðu og gömlu daga, þegar við vorum saman í ríkisstjórn Davíðs Odds- sonar og hún bölvaði Alþýðuflokkn- um: Flokkurinn þakkar fögrum orðum fyrir það að gera þetta, sem hann þakkaði forðum að þá var látið vera. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kallaði nokkur kæran vin í fyrra eftir Jim Unger „SKELLTU HENNI BARA INN FYRIR DYRNAR.“ HermannÍ klípu „ÞETTA ER MJÖG FRAMÚRSTEFNULEGUR BÍLL, ÞAÐ ÞARF ENGINN AÐ SITJA AFTUR Í.“ eftir Mike Baldwin Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ...að vita að þú hefur lykil að hjarta hans. ÉG SKAL VIÐURKENNA AÐ HUNDAR ERU GÓÐIR Í AÐ SLAPPA AF. ÉG LOFAÐI AÐ ELSKA EIGINMANNINN MINN Í BLÍÐU OG STRÍÐU ... ... ÉG TRÚI ÞVÍ BARA VARLA AÐ ÞETTA SÉ „BLÍÐAN“. Haustið er ekki aðeins tími lit-brigða í náttúrunni og upphafs skólagöngu hvers skólaárs heldur er þjóðin með allt undir á þessum tíma. Nýtt fiskveiðiár hefst 1. september ár hvert og síðan er fénu smalað og þá liggur fljótlega fyrir hvað slát- urféð gefur af sér. x x x En lífið er meira en fiskveiðar oglandbúnaður. Á sláturtímanum snýst það fyrst og fremst um hring- ekjur í fótboltanum og pólitíkinni. Hverjir lifa af og hvar. x x x Fyrir skömmu greindi stjórnmála-leiðtogi frá því að hann ætlaði að stíga til hliðar að þessu kjörtímabili loknu. Þá var eins og allar flóðgáttir opnuðust og undanfarna daga hafa þingmenn og þeir sem vilja vera þingmenn keppst við að senda frá sér yfirlýsingar. Einn hefur, að eigin sögn, staðið sig vel og ætlar að fara aftur fram á sama stað. Annar hefur líka staðið sig vel, að eigin sögn, og ætlar að bjóða sig fram í annarri sveit en síðast. Sá þriðji hefur líka staðið sig vel, að eigin sögn, og ætlar að fara fram fyrir annan flokk en síðast. Sá fjórði hefur ekki síður staðið sig vel, að eigin sögn, en er hættur við að fara fram fyrir nýjan flokk og hefur ákveðið að taka slag- inn með þriðja hópnum. Sá fimmti hefur jafnframt staðið sig vel, að eig- in sögn, og hefur ákveðið að bregð- ast ekki trausti þeirra fjölmörgu, sem hafa haft samband við hann og kvatt hann til þess að gefa kost á sér í komandi kosningum. Hann ætlar því að bjóða sig fram en hefur ekki ákveðið hvar. Eða hvenær. Og svo framvegis og svo framvegis. x x x Staðan er svipuð í boltanum nemaþar bíða þjálfarar eftir því að heyra að samkomulag hafi náðst milli félags og viðkomandi þjálfara um að þjálfarinn hætti störfum. Með öðrum orðum er beðið í ofvæni eftir fyrsta brottrekstrinum. Og þá fer hringekjan af stað. Síminn stoppar ekki hjá formönnunum. Allir vilja hoppa upp í vagninn. Víkverji bíður spenntur eftir framhaldinu. víkverji@mbl.is Víkverji En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. (Jóh. 17:3) Lýstu upp garðinn. GARÐLÝSINGAR Bjóðum upp á einfalda lausn á lýsingum í garðinn. Kastara sem auðvelt er að koma fyrir hvar sem er á lóðinni. Hægt er að tengja einn eða fleiri kastara saman. Möguleikarnir eru endalausir. TRAUST ÞJÓNUSTA Í YFIR 20 ÁR Frá því Garðlist ehf. var stofnað fyrir 23 árum síðan, höfum við haft það að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu fyrir garðinn á einum stað. Við þökkum þeim þúsundum einstaklinga, húsfélaga og fyrirtækja sem við höfum átt í viðkiptum við unandarin ár, á saman tíma og við bjóðum nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.