Morgunblaðið - 28.09.2012, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 28.09.2012, Qupperneq 48
FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 272. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Biðröð út á bílaplan við ELKO 2. Missti af 60 milljóna símtalinu 3. Synti slösuð í ískulda og myrkri 4. „Þarna sé ég tvær á lífi“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Gleði- og risarokksveitin Júpiters stendur fyrir dansiballi í Edrúhöll- inni, húsi SÁÁ við Efsta- leiti 7, annað kvöld kl. 21. Sérstakur gestur sveitarinnar verður herra Engilbert Jensen, en Dj Magga Stina hitar upp. Júpiters með dansi- ball í Edrúhöllinni  Dansprufur fyrir aðra þáttaröð RÚV af Dans dans dans hefjast í Hörpu í dag kl. 15 og fara þar fram alla helgina. Keppnin er opin öllum sem eru 16 ára á árinu og eldri. Ein- staklingar, pör og danshópar geta val- ið sér hvaða danstegund sem er til að sýna, s.s. samkvæmisdansa, ballett, stepp, nútímadans og allt þar á milli. Dansprufur fara fram í Hörpu alla helgina  Rusty Anderson, sem verið hefur aðalgítarleikari Bítilsins Pauls McCartneys sl. ellefu ár, heldur tón- leika í Austurbæ 18. október, á Græna hattinum 20. október og Rósenberg 22. október. Með honum leika m.a. Todd O’Keefe bassaleik- ari, Karl Pétur Smith trommuleikari og úrvalslið íslenskra tónlistar- manna. Rusty Anderson með tónleika á Íslandi Á laugardag NV 5-10 m/s við NA- og A-ströndina fyrir hádegi og stöku skúrir eða slydduél. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast SA-lands. Á sunnudag A- og NA-átt, víða 8-15 m/s. Rigning S- og A-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Stíf norðanátt með úrkomu, en þurrt á S- og V-landi og lægir þar smám saman seinnipartinn. Fremur hæg NV- læg átt í kvöld, einkum V-til. Hiti 0 til 9 stig, hlýjast syðst. VEÐUR Íslandsmeistarar HK eru í toppsæti N1-deildar karla í handknattleik þegar tveim- ur umferðum er lokið. HK hafði betur á móti Aftureld- ingu í dramatískum leik í Digranesi í gær. FH-ingar gerðu góða ferð á Hlíðar- enda og fögnuðu sigri gegn Valsmönnum og Akureyr- ingar höfðu betur á móti Frömurum í Safamýrinni. »2-3 HK-ingar á toppn- um með fullt hús Íslenska kvennalandsliðið í golfi hóf í gær leik á HM áhugamanna sem fram fer í Tyrklandi. Íslandsmeistarinn Val- dís Þóra Jónsdóttir úr Leyni lék best íslensku kylfinganna en hún var á 77 höggum, sem er fimm högg yfir pari vallarins. »4 Valdís Þóra lék best á HM í Tyrklandi Landsliðsmaðurinn í handknattleik, Arnór Atlason, lék sinn fyrsta Evr- ópuleik með þýska liðinu Flensburg í gærkvöld þegar liðið tók á móti franska meistaraliðinu Montpellier. Arnór átti góðan leik og skoraði fjög- ur mörk en liðin skildu jöfn í æsi- spennandi leik þar sem 74 mörk litu dagsins ljós. »1 Arnór góður í fyrsta Evrópuleiknum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Þetta er valinn 100 manna hópur,“ segir Hilmar B. Jónsson en þeir Gissur Guðmundsson voru fyrstir Íslendinga teknir inn í bandaríska matreiðslumannaklúbbinn Gullnu kokkahúfuna (Golden Toque) við hátíðlega athöfn í Colorado Springs í Bandaríkjunum á dög- unum. Salan hneyksli Hilmar hefur komið víða við á um 52 ára matreiðsluferli. Hann var meðal annars lærlingur á Mat- stofu Austurbæjar, hóf störf á Hót- el Loftleiðum þegar það var opnað 1966 og var veitingastjóri þar í rúman áratug nokkrum árum síð- ar, var opinber matreiðslumaður Vigdísar Finnbogadóttur, forseta Íslands, í 12 ár og matreiðslu- maður hjá Icelandic Seafood í Bandaríkjunum í 22 ár. Hann segir að þegar fyrirtækið var selt til Kanada hafi forstjórinn verið lát- inn fara og síðan hafi honum verið gert að taka pokann sinn. Hann er ekki sáttur við það, vildi vinna í tvö til þrjú ár í viðbót, og finnst hneyksli að Iceland Seafood hafi verið selt. „Það tók 63 ár að vinna upp þetta vörumerki í Bandaríkjunum, sagan er frábær og fyrirtækið var með besta dreifi- og sölumanna- kerfi á fiski í Bandaríkjunum,“ segir Hilmar og áréttar að fisk- verksmiðjan í Newport News í Viginíu, þar sem um 700 manns unnu, hafi verið byggð frá grunni fyrir um 12 árum og sé sennilega flottasta fiskverksmiðja í heimi. „Á 22 árum kom ég inn á mörg þúsund veitingastaði í Banda- ríkjunum með merki Ice- landic á kokkajakkanum mínum og ég held að ég geti sagt það að ég kom aldrei inn í eldhús þar sem menn þekktu ekki þetta merki.“ Hápunkturinn Hilmar segist hafa lifað við- burðaríku lífi og margs sé að minn- ast frá skemmtilegum tíma. Við- urkenningarnar eru líka margar. Hann leynir því ekki að inngangan í Gullnu kokkahúfuna sé viss há- punktur enda menn aðeins teknir inn í klúbbinn þegar félagsmenn falla frá og þarf meðmæli frá fé- lagsmönnum til þess að koma til greina. „Þetta er virtasti kokka- klúbbur Bandaríkjanna, 100 manna hópur í 300 milljóna manna landi.“ Gullna kokkahúfan til landsins  Hilmar og Giss- ur fyrstir Íslend- inga í klúbbinn Morgunblaðið/Styrmir Kári Meðlimur Hilmar B. Jónsson matreiðslumaður með staðfestingu á aðild að klúbbnum Gullnu kokkahúfunni. Íslendingar stjórna nú Alheimssamtökum matreiðslumanna (WACS) annað kjörtímabilið í röð. Fyrir um fjórum árum voru Íslendingar kjörnir til þess að fara með stjórn WACS. Gissur Guðmundsson, sem var í fyrri stjórn, ákvað að bjóða Ísland fram til forystu og var kjörinn forseti, Hilmar B. Jónsson varaforseti og Helgi Einarsson rit- ari, en gjaldkerinn var frá Sviss eins og undanfarna áratugi. WACS eru samtök 93 klúbba og félaga matreiðslumanna um allan heim en í þeim eru samtals um 10 milljónir félagsmanna. „Þetta er í fyrsta sinn sem smáþjóð er með forystu í samtökunum,“ segir Hilmar en Íslendingarnir voru endurkjörnir til fjögurra ára í vor, fengu „rússneska“ kosningu. Fengu „rússneska“ kosningu ÍSLENDINGAR STJÓRNA ALHEIMSSAMTÖKUNUM Gissur Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.