Morgunblaðið - 03.10.2012, Síða 1

Morgunblaðið - 03.10.2012, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 3. O K T Ó B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  231. tölublað  100. árgangur  LEITAÐI LÆKN- INGAR Í SÍNUM INNSTA KJARNA DANSVERK INNBLÁSIÐ ÚR GOÐAFRÆÐI LISTAMAÐUR HINNA MÖRGU MIÐLA ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN 38 LJÓSMYNDASÝNING OTTINGERS 40MISSTI MÁTT Í LÍKAMANUM 10 Þrátt fyrir að ekki sé búið að setja Gagnaveitu Reykjavíkur í formlegt söluferli hefur stjórn Orkuveitunnar þegar gengið frá samningi og sölu- þóknun við fjármálafyrirtækið HF Verðbréf, sem hefur verið ráðgjafi við fjárhagslega endurskipulagningu OR, um að hafa umsjón með fyrirhugaðri sölu. Ekki var talin ástæða til að leita tilboða frá öðrum fjármálafyrirtækj- um, á grundvelli útboðs, til að hafa um- sjón með söluferlinu. Eigendanefnd OR hefur samþykkt að selja 49% hlut í Gagnaveitunni, en væntingar eru um að kaupverðið gæti numið um 2,5 milljörðum. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, lét bóka athugasemd á stjórnar- fundi OR í lok ágúst um að æskilegt væri að slíkur umsóknaraðili yrði val- inn á grundvelli útboðs eða að minnsta kosti yrði gerð verðkönnun. Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður OR, segir að forstjóri OR geti, sam- kvæmt heimild í innkaupareglum fyr- irtækisins, gert slíkan samning án út- boðs, auk þess sem Orkuveitan hafi brugðist við athugasemd Kjartans með því að gera verðkönnun. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst var sú verð- könnun ekki ítarleg, heldur aðeins óskað eftir verð- tilboðum frá stóru bönkunum. hordur@mbl.is »18 Ekki talin þörf á útboði Kjartan Magnússon Haraldur Flosi Tryggvason  OR semur við HF Verðbréf vegna sölu á Gagnaveitunni Þessar ungu snótir kveiktu á friðarkyndlum á Klambratúni í gærkvöldi þar sem fjöldi fólks var samankominn til að mynda mannlegt friðarmerki. Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað 2. október, sem er fæðingardagur Mahatmas Gandis, baráttu fyrir tilveru án ofbeldis. Af því tilefni stóðu fjöl- mörg samtök á Íslandi fyrir gerð mannlegs frið- armerkis á Klambratúni. Yfirskrift dagsins var: „Lærum að sporna gegn ofbeldinu innra með okkur og í umhverfinu.“ Tilgangurinn með þessum baráttudegi er að leggja áherslu á nauðsyn þess að ráðast að rótum ofbeldisins og benda á að ofbeldi er grundvall- arvandamál okkar tíma. Morgunblaðið/Ómar Kveiktu á friðarkyndlum Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Kaupmátturinn hefur rýrnað verulega. Við sjáum engan mun á stöðunni til hins betra. Barnafjölskyldur og einstæðar mæður segja okkur að þær eigi ekki fyrir mat nema rétt í byrjun mánaðar. Ástandið hefur bara versnað. Verð- hækkanir koma niður á börnum efnalítils fólks,“ segir Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður Mæðra- styrksnefndar Reykjavíkur. Eins og rakið er í Morgunblaðinu í dag hafa leik- skólagjöld hækkað verulega síðan 2009. Þannig hefur fullt mánaðargjald í leikskóla í Reykjavík hækkað um 18,6%. Mánaðargjöld fyrir börn einstæðra foreldra í Reykjavík hafa hækkað svipað. Spyrja sig hvort vinnan borgi sig Velferðarvaktin rannsakar hagi barna í erfiðri stöðu og bendir ný könnun til þess að fólk á bótum hugsi sig tvisvar um þegar því býðst starf, hvort það borgi sig að taka því. Þá sé aðgengi barna í erfiðri stöðu að sál- og geðheilbrigðisþjónustu misjafnt, jafnvel milli hverfa. Lára Björnsdóttir, formaður velferðarvaktar, hefur áhyggjur af þessu enda hafi börn í erfiðri stöðu mikla þörf fyrir sál- og geðheilbrigðisþjónustu. Margrét María Sigurðardóttir, umboðs- maður barna, segir „sterkar vísbendingar um að hópurinn sem var í bágri stöðu fyrir sé nú í mun verri stöðu“. MVísbendingar um bótagildru »16 Þrengir að efna- litlum  Verðhækkanir koma niður á börnum Þörfin er mikil » Um 450 manns leituðu til Mæðrastyrks- nefndar í Reykja- vík síðasta mið- vikudag. » Þá var út- hlutað mat en í dag verður út- hlutað fötum.  „Þetta er óvenjulágt verð,“ segir Sigurður Eyþórsson, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, um tilboðsverð sem bauðst í verslunum Nettó um síðustu helgi á niðursöguðum lambsskrokkum frá SS. Hægt var að fá kílóið á 798 kr. eða 25 krónum meira en meðalverð er til bænda að viðbættum heimtökukostnaði ef menn taka skrokkana heim, sem er alls 773 kr. fyrir kílóið. Heimtöku- kostnaður er þar af 210 kr/kg. »4 Búðarverð svipað og frá sláturhúsi  Tæp 10% ís- lenskra mæðra gefa börnum ein- göngu brjóst fyrstu sex mán- uði lífs þeirra eins og Alþjóða- heilbrigðis- málastofnunin (WHO) mælir með. Hlutfall mæðra sem byrja að gefa börnum sínum brjóst er þó hæst á Íslandi af Norðurlandaþjóð- unum. Á mánudag hófst alþjóðleg brjóstagjafarvika til að vekja at- hygli á kostum brjóstagjafar. »22 Flestar byrja með börnin á brjósti Framteljendum til skatts sem reka fyrirtæki í eigin nafni hefur fækkað sleitulaust frá árinu 1997 aðeins að árinu 2009 undanskildu. 1997 reikn- uðu 27.057 einstaklingar sér endur- gjald. Við álagningu í sumar voru þeir hins vegar 16.268 en voru þó 453 fleiri á árinu á undan og þykir sú fjölgun heyra til tíðinda. Þetta kem- ur fram í grein í Tíund, tímariti emb- ættis Ríkisskattstjóra. Þar segir að ástæða þess að fleiri kjósi að reka fyrirtæki í eigin nafni nú kunni að liggja í hærri tekjuskatti af hagnaði lögaðila, sem hefur hækkað töluvert á undanförnum árum. Þá hefur skattur á arð hækkað úr 10% í 20% o.fl. „Ef meira er greitt er tekinn skattur af helmingi um- framgreiðsl- unnar eins og um hverjar aðrar launatekjur sé að ræða. Einkahlutafélög eru því aug- ljóslega ekki jafnfýsilegur kostur og áður, miðað við að reka fyrirtæki á eigin kennitölu.“ »6 Ehf. ekki jafnfýsileg  Fleiri kjósa rekstur í eigin nafni  Yfirvöld í Danmörku og Noregi segjast hafa orðið vör við aukna njósnastarfsemi á norðurslóðum af hálfu erlendra ríkja sem vilja styrkja stöðu sína á norðurskauts- svæðinu. „Nokkur lönd hafa í aukn- um mæli beint sjónum að norður- skautssvæðinu vegna þess að loftslagsbreytingar og þróunin á svæðinu hafa áhrif á möguleikann á að fá aðgang að því. Og þar með til að geta nýtt auðlindirnar á norður- skautssvæðinu,“ hefur fréttavefur Berlingske eftir Jakob Scharf, yfir- manni dönsku öryggislögregl- unnar, PET. »20 Njósnir aukast á norðurslóðum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.