Morgunblaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 44
 Hljómsveitin Mannakorn, þ.e. Magnús Ei- ríksson og Pálmi Gunn- arsson, heldur tónleika í Há- skólabíói 20. október næstkomandi. Auk Magnúsar og Eiríks koma fram á tónleikunum þau Ellen Kristjáns- dóttir, Stefán Már Magnússon, Bene- dikt Brynleifsson, Þór Úlfarsson og Kjartan Valdimarsson. Mannakorn halda tónleika í Háskólabíói MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 277. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Hundsaði einkenni hjartaáfalls 2. Europris hættir á Íslandi 3. Leitarmaður féll ofan í holu hjá … 4. Ætla ekki að eignast barn núna »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónleikar til heiðurs hljómsveitinni Fleetwood Mac verða haldnir í Aust- urbæ fimmtudaginn 11. október kl. 21. Fjöldi tónlistarmanna mun gera tónlist hljómsveitarinnar skil, m.a. Þórunn Antonía Magnúsdóttir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tónleikar til heiðurs Fleetwood Mac  A Force in Nature nefnist banda- rísk heimildarmynd um myndlist- armanninn Jóhann Eyfells sem hefur verið í vinnslu í sex ár. Höfundur hennar er kvikmyndagerðarmaðurinn Hayden de Maisoneuve Yat- es og var myndin tekin að hluta til á Íslandi, skv. vefsíðu hans, vitruviuscrea- tions.com. Heimildarmynd um Jóhann Eyfells Á fimmtudag Norðan 5-13 m/s, hvassast A-til en mun hægari á Vestfjörðum síðdegis. Bjartviðri S-til á landinu, skýjað V-til en rign- ing eða súld N- og A-til. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast S-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hlýnar lítið eitt með rigningu um landið norðanvert og bætir í úrkomu um tíma seinnipartinn. Hiti 0 til 8 stig norðanlands en 4 til 11 stig S-til. VEÐUR Manchester United vann rúmenska liðið CFR Cluj, 2:1, í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi. Wayne Rooney og Robin van Persie voru báðir í byrjunarliðinu í fyrsta skipti á tímabilinu en Van Persie skoraði bæði mörk Man. United eftir sendingar frá Rooney. Chelsea vann auðveldan sigur á dönsku meist- urunum í Nordsjælland og FC Bayern fékk skell. Rooney og Van Persie byrja vel „Njarðvíkingar hafa fengið tröllvax- inn Friðrik Stefánsson aftur og mun hann hækka reynsluvísitölu liðsins töluvert. Ungir leikmenn liðsins áttu góða vertíð í fyrra og þurfa að stíga skrefið áfram í vetur og viðhalda þeirri framför sem hjálpaði liðinu inn í úrslitakeppnina í fyrra. Ég held að þessi vetur gæti orðið erfiðari,“ segir Kristinn Geir Friðriksson í fyrstu grein sinni af þremur þar sem hann fer yfir liðin tólf sem leika í úr- valsdeild karla í körfu- knattleik, Dominos- deildinni, á komandi leiktíð. »2 Friðrik hækkar reynslu- vísitöluna hjá Njarðvík Íslandsmót kvenna í körfuknattleik, Dominos-deildin, hefst í kvöld með heilli umferð. Spá leikmanna og for- ráðamanna liðanna var kynnt í gær og þar var Keflavík spáð Íslands- meistaratitlinum. Íslands- og bik- armeistarar Njarðvíkur hafa misst sterka leikmenn til Grindavíkur og er spáð 5.-6. sæti í deildinni að þessu sinni. »4 Konunum í Keflavík spáð velgengni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þegar seljendur og kaupendur ferðaþjónustu koma saman er iðu- lega svolítið sérstakt andrúmsloft, sem einkennist af eftirvæntingu og gleði. Þannig var ástandið í Hörpu í gær þegar Vestnorræna ferða- kaupstefnan hófst en henni lýkur í dag. Kaupstefnan er nú haldin í 27. sinn, en Ísland, Grænland og Fær- eyjar skiptast á að halda hana ár- lega. Að þessu sinni sækja hana um 160 erlendir kaupendur ferðaþjón- ustu og um 500 seljendur ferðaþjón- ustu í þessum þremur fyrrnefndu löndum. Rússar minna á sig „Markmiðið með kaupstefnunni er að kynna ferðaþjónustu og selj- endur hennar frá Íslandi, Græn- landi og Færeyjum fyrir erlendum ferðaheildsölum,“ segir Margrét Helga Jóhannsdóttir, verkefn- isstjóri hjá Íslandsstofu og formað- ur undirbúningsnefndar kaupstefn- unnar. Hún segir að svæðið veki víða athygli og kaupendur komi víða frá en einkum frá Norðurlönd- unum, annars staðar frá Vestur- Evrópu, Bandaríkjunum og Kan- ada. „Við erum með allnokkra frá Rússlandi, sem er frekar nýtt,“ seg- ir hún. Andi vináttu svífur yfir vötnunum enda segir Margrét Helga að kaup- stefnan hafi skilað því að ferðaþjón- usta landanna starfi nánar saman en áður og ferðamönnum til þeirra hafi fjölgað. Flugfélög, ferðaskrif- stofur, hótel, veitingastaðir, jeppafyrirtæki og fleiri komi saman og eigi saman við- skipti. Kaupstefnan styrki þannig tengslin. Hún segir að þessi tími sé mjög annasamur hjá kaupendum ferða- þjónustu sem séu að skipuleggja næsta ár og því sé gott að fá yfir 160 kaupendur á kaupstefnuna. Margrét Helga segir að á kaup- stefnunni sé vakin meiri athygli en áður á ferðamöguleikum utan há- annatímans. „Reynt er að leggja áherslu á það vegna þess að sum- artíminn er mettaður,“ segir hún og áréttar að samvinna að þessu leyti komi öllum þremur löndunum til góða. Flest ferðaþjónustufyrirtæki landsins eru félagar í markaðs- stofum viðkomandi landshluta og því má segja að kaupstefnan nái til alls landsins. Markaðsstofurnar gegna því mikilvægu hlutverki, að sögn Margrétar Helgu. Ferðafrömuðir á ferðinni  Markaðssetning Færeyja, Græn- lands og Íslands Morgunblaðið/Styrmir Kári Vestnorræna kaupstefnan Margrét Helga Jóhannsdóttir í Hörpu í gær, en um 160 erlendir kaupendur ferðaþjónustu og um 500 seljendur ferðaþjónustu á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum taka þátt í kaupstefnunni. Ferðamálasamtök Norður- Atlantshafsins (NATA), sem er samstarfsvettvangur Íslands, Fær- eyja og Grænlands á sviði ferða- þjónustu, halda kaupstefnuna. Ólöf Ýrr Atladóttir ferða- málastjóri er stjórn- arformaður NATA til ára- móta, en þá tekur fulltrúi Grænlands við enda verð- ur kaupstefnan á Græn- landi 2013. Um helgina var Ísland valið land ársins í Evrópu 2012 í árlegu vali lesenda breska dagblaðsins The Guardian. Fram kom að lág glæpa- tíðni og vinsamlegt viðmót lands- manna gerði landið að ákjósan- legum áfangastað. „Það er skemmtileg tímasetning að halda þessa kaupstefnu núna í ljósi þessa árangurs,“ segir Margrét Helga, en verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í London. Ísland land ársins 2012 VAL LESENDA BRESKA DAGBLAÐSINS THE GUARDIAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.