Morgunblaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Skúli Hansen skulih@mbl.is Ögmundur Jónasson innanríkisráð- herra undirritaði í gær Nordic Built-sáttmálann ásamt Óskari Valdimarssyni, einum af sendiherr- um Nordic Built á Íslandi og for- stjóra Framkvæmdasýslu ríkisins. Auk þess voru viðstaddir undir- skriftina Einar Ragnarsson, Þor- varður Björgvinsson og Eiríkur K. Þorbjörnsson, sem eru fulltrúar hönnunarteymisins sem vinnur að hönnun nýja fangelsisins á Hólms- heiði í Reykjavík. Í tilkynningu frá innanríkisráðu- neytinu segir að Nordic Built sé samvinnuverkefni sem hvetur til þróunar samkeppnishæfra lausna í vistvænni mannvirkjagerð en verk- efnið miðar að því að Norðurlöndin nái markmiðum sínum um að vera leiðandi í grænum hagvexti, velferð og nýsköpun. Með hugmyndafræði sáttmálans er við sköpun á mann- gerðu umhverfi leitast við að nýta sjálfbærni, staðbundnar auðlindir, auka lífsgæði og byggja á norrænni hönnunarhefð eins og hún gerist best. Í tilkynningunni segir einnig að nýja fangelsið á Hólmsheiði falli sér- staklega vel að tíu meginreglum sáttmálans enda verði það vottað samkvæmt alþjóðlega umhverfis- vottunarkerfinu BEEAM. Falla að áherslum stjórnvalda Þá er jafnframt bent á það í til- kynningunni að meginreglur sátt- málans falli vel að áherslum stjórn- valda hér á landi um heildstæða atvinnustefnu fyrir landið sem meðal annars byggist á grænni atvinnu- uppbyggingu í samræmi við hug- myndafræði sjálfbærrar þróunar. Nýtt fangelsi verður vistvænt  „Norræn hönnun eins og hún gerist best,“ segir innanríkisráðuneytið Ljósmynd/Innanríkisráðuneytið Undirritun Nordic Built Innanríkisráðherra og fulltrúar hönnunarteymis fangelsisins á Hólmsheiði undirrituðu Nordic Built-sáttmálann í gær. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins um aukið aðgengi íbúa að fjármálum borgarinnar var samþykkt af borgarstjórn Reykja- víkur á fundi hennar í gær. „Hið opinbera veltir miklu skattfé. Það er alltaf umdeilt í hvað það fer. Oft hefur verið kvartað undan því að almenningur viti ekki hvert peningarnir fara. Víða um heim hefur verið notast við svokallaðar gagnsæisgáttir þar sem skattgreiðendur sjá hvernig farið er með fé þeirra. Með þessu fer eyðsla hins opinbera undir smásjá almennings,“ sagði Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokks, spurður um tillöguna. Samkvæmt tillögunni verða upp- lýsingar um allar kostnaðar- greiðslur borgarinnar gerðar al- menningi tiltækar með rafrænum hætti á netinu. Skipaður verður starfshópur sem skoðar hvernig skuli staðið að slíkum málum. Hann skilar af sér 15. mars næst- komandi. „Þetta er í fínum samhljómi við samstarfsyfirlýsingu Besta flokks- ins og Samfylkingarinnar. Þar er tekið fram að við viljum gera fjár- mál borgarinnar aðgengilegri fyrir borgara. Þetta var sameiginlegur vilji allra flokka og samþykkt sam- hljóða,“ sagði Sigurður Björn Blöndal, aðstoðarmaður borg- arstjóra. Morgunblaðið/Heiddi Við Tjörnina Ráðhús Reykjavíkur. Fjármál borgarinnar aðgengileg  Tillaga sjálfstæð- ismanna samþykkt Ferðalangur heldur í hönd Pómónu, rómverskr- ar gyðju ávaxta, trjáa og garða, í Einarsgarði, sunnan við Hallskot á horni Hringbrautar og Laufásvegar í Reykjavík, í gær. Bronsgyðjan hefur eflaust haldið í ófáar hend- urnar frá því Johannes C. Bjerg reisti hana árið 1952. Haustið í allri sinni litadýrð hefur skartað sínu fegursta undanfarið. Sólin dró fram skemmti- legt samspil bjartra og dökkra lita sölnaðra laufa. Allra sterkustu blöðin reyna í lengstu lög að hanga á trjánum, mannfólkinu til ánægju og yndisauka. Að endingu munu „kaldir vindar haustsins blása“, eins og Bubbi Morthens söng í Rómeó og Júlíu. Þá standa trén ein eftir, nakin. Morgunblaðið/Ómar Heilsað upp á ávaxtagyðjuna í heillandi haustbirtu Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Samkomulagið sem var gert milli Samtaka at- vinnulífsins, stóriðjufyrirtækjanna og fjármála- ráðuneytisins árið 2009 var skýrt. Ráðuneytið hef- ur margoft staðfest að skattarnir yrðu settir á tímabundið en yrðu síðan felldir niður. Allt bendir til að það loforð verði svikið,“ segir Vilhjálmur Eg- ilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Um er að ræða svonefndan orkuskatt en eins og sýnt er hér til hliðar áætla SA að hann skili ríkis- sjóði 6,6 milljörðum 2011 til 2013. Til samanburðar er kolefnisgjaldið tekið með hér til hliðar en SA áætla að skattflokkarnir tveir skili ríkinu 17,6 milljörðum á árun- um 2010-13. Vilhjálmur segir stjórnvöld hafa svikið loforð um viðræður um framhaldið. Orkuskatturinn auki rekstrarkostnað stóriðj- unnar og fæli frá erlenda fjár- festingu, þvert á loforð stjórn- valda í því efni. Fjárfesting í álverinu í Straumsvík hafi verið gerð í trausti þess að skatturinn yrði afnuminn. „Stóriðjan er langstærsti orkukaupandinn. Þetta mun koma niður á öllum at- vinnugreinum.“ Tímabundinn orkuskattur verður ekki felldur niður  SA óttast að milljarðaálögur verði varanlegar  Áttu að renna út um áramótin Milljarðar á ári hverju » Orkuskattar (sérstakur skattur af seldri raforku og sérstakur skattur af sölu á heitu vatni) námu 2,1 milljarði árið 2011. » Á þessu ári er gert ráð fyrir að þeir skili 2,2 milljörðum og 2,3 milljörðum á næsta ári. » Þá skilaði kolefnisgjald 1,9 milljörðum 2010, 2,1 milljarði í fyrra og er gert ráð fyrir að það skili 3,4 milljörðum í ár og 3,6 millj- örðum á næsta ári, að því er SA áætla. Vilhjálmur Egilsson Fylgi ríkisstjórn- arflokkanna minnkar en Sjálf- stæðisflokkurinn bætir hins vegar við sig fylgi sam- kvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gall- ups. Greint var frá niðurstöðum hans á RÚV í gær. Samkvæmt þjóðarpúlsinum mælist Sjálfstæðisflokkurinn með mest fylgi, 37,1%, og bætir við sig frá síðustu könnun. Ríkisstjórnar- flokkarnir tapa hins vegar tveimur prósentustigum; Samfylkingin mælist með 19,4% og Vinstri-grænir 12,4%. Þá mælist Framsóknarflokk- urinn með svipað fylgi og í síðustu könnun, 14,2%. Nýju framboðin mælast öll undir 5% fylgi en það er sá þröskuldur sem framboð þarf að ná til að fá mann inn á þing. skulih@mbl.is Samfylking og VG tapa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.