Morgunblaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 10
Rannsóknir og greining stendur fyrir ráðstefnu í
Háskólanum í Reykjavík fimmtudaginn 4. október
kl. 8:45 – 15:30 í stofu V101.
Fjallað verður um mikilvægi rannsókna á högum
og líðan barna og ungmenna, samspil rannsókna,
stefnumótunar og þróunarstarfs og mikilvægi þess
að tryggja að niðurstöður komist til fagfólks á
vettvangi, almennings og stjórnvalda.
Á ráðstefnunni fjallar hópur alþjóðlegra vísindamanna
um hagnýtt og vísindalegt gildi æskulýðs-
rannsóknanna Ungt fólk 1992 til 2012 á Íslandi
og skrif sín úr þeim gögnum hjá Rannsóknum
og greiningu.
Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Skráning
er með tölvupósti á netfangið rannsoknir@rannsoknir.is
UNGT FÓLK
1992 – 2012
HVAÐ VITUM VIÐ NÚ?
Æskulýðsrannsóknir í 20 ár
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012
Að öðlast vald
yfir eigin sjálfi
Genalíffræðingurinn John Wong lagði í þrjú ár sitt af mörkum til að ná bata en
árið 2005 missti hann mátt í líkamanum og sjónin hafði skerst verulega.
Hann segir það hafa tekið langan tíma að sleppa hendinni af því sem hann hafi
lært í heimi vísindanna til að geta leitað bata innra með sér og í trú sína.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Genalíffræðingurinn John Wong, sem ætt-aður er frá Singapúr, heldur næstu helgifyrirlestur hérlendis sem er hluti afheilsuhelginni Healing the Healers. Þar
segir hann frá því hvernig hann tók málin í eigin
hendur fyrir sjö árum og lagði sitt af mörkum til að
ná bata. Wong hafði misst máttinn í líkamanum og
sjónin skerst verulega. Læknar stóðu ráðþrota og
vissu ekki hvernig þeir ættu að sjúkdómsgreina
þennan unga mann. Svo virðist helst sem ótal vírus-
ar hafi á sama tíma ráðist á líkama Wongs. Líffærin
hættu að starfa eðlilega og hann missti mátt.
Kippt út úr daglegu lífi
Læknar gátu ekki greint Wong nákvæmlega en
rót veikindanna segist hann sjálfur telja að megi
rekja til of mikils vinnuálags. Wong hrakaði
mikið á skömmum tíma og var lengi í rann-
sóknum á spítala.
Sem genalíffræðingi hafði Wong
vegnað vel í starfi. Hann var við það að
ljúka doktorsgráðu í frumspeki en hafði
áður lokið háskólagráðu í genafræði í
Bandaríkjunum. Segir hann auðveldast
að lýsa starfi sínu með því að vísa til
þess sem teymi sérfræðinga í banda-
ríska sjónvarpsþættinum CSI taki
sér fyrir hendur. Við veikindin var
honum kippt úr úr daglegu lífi og
töldu læknar að hann myndi aldrei
geta gengið framar. Raunin varð þó
önnur en með mikilli trú og festu
hefur Wong tekist að ná fullri
heilsu á ný.
Leitaði í trúna
„Ég starfa í rökrænum heimi
vísindanna þar sem við trúum á þá
þekkingu sem fyrir hendi er og það
sem við getum sjálf gert. Það tók
mig langan tíma að sleppa hend-
inni af eigin hroka og því sem ég
hafði lært, en það varð ég að gera
því ég vildi öðlast kraftaverk á borð
við þau sem maður hefur heyrt af.
Alls staðar um heiminn eru til sögur af
skrýtnum hlutum sem gerast en eng-
inn getur útskýrt. Ég er búddisti og
Genafræðingur
John Wong segir
auðveldast að
líkja starfi sínu
við CSI.
sögu. Fundist hefur spjaldvefnaður í
Egyptalandi sem er frá ca. 945 f.Kr.
og vitað er að handverkið þekktist í
Kína fyrir u.þ.b. 5000 árum.
Í kvöld verður stiklað á sögulegum
þáttum spjaldvefnaðar og kynntar
nokkrar aðferðir. Gestum gefst einn-
ig tækifæri á að prófa að vefa.
Ólöf Einarsdóttir útskrifaðist úr
textíldeild Myndlista- og handíða-
skóla Íslands árið 1985. Hún hefur
Handverkskaffi í Gerðubergi er haldið
fyrsta miðvikudagskvöld hvers mán-
aðar og er þetta fjórði veturinn sem
það er haldið. Það hefur mælst einkar
vel fyrir enda markmiðið með slíkum
kvöldum að bjóða upp á notalega
kvöldstund þar sem gestir geta feng-
ið sér kaffi og með því, spjallað og
kynnst spennandi handverki. Boðið
er upp á stuttar, skemmtilegar kynn-
ingar og stundum sýnikennslu, allt
eftir viðfangsefni kvöldsins.
Ofið með fjórum spjöldum
Handverkskaffi októbermánaðar
verður í kvöld, miðvikudag, og mun
Ólöf Einarsdóttir myndlistarkona
kynna hið forna handverk spjaldvefn-
að. Spjaldvefnaðurinn er vefnaðar-
aðferð sem tíðkaðist víðsvegar um
landið fyrr á öldum. Eins og nafnið
gefur til kynna eru spjöld notuð til
verksins, ferhyrnd, og eru þau um 10
cm á hvern veg og fjögur göt á hverju
spjaldi. Bönd eru ofin með spjald-
vefnaði og ákvarðast breidd band-
anna af fjölda spjaldanna.
Gestir fá að prófa að vefa í
kvöld á handverkskaffinu
Spjaldvefnaðurinn er ævagamalt
handverk sem barst hingað til lands
með landnámi en á sér miklu lengri
unnið að listsköpun síðan og einkum
notað spjaldvefnað í verk sín, bæði
veggmyndir og rýmisverk.
Ólöf hefur haldið nokkrar einka-
sýningar auk þess að hafa tekið þátt í
fjölda samsýninga hér heima og er-
lendis. Nánari upplýsingar á heima-
síðu hennar www.internet.is/
ollaeinars. Handverkskaffið hefst kl.
20 og stendur til kl. 22 og er ókeypis
aðgangur.
Handverkskaffi í Gerðubergi
Hið forna handverk spjaldvefnaður kynntur
Nú stendur alþjóðlega kvikmynda-
hátíðin RIFF (Reykjavík International
Film Festival) sem hæst og engin
ætti að láta hana fram hjá sér fara.
Hátíð þessi vex og dafnar með hverju
árinu og hefur skapað sér gott orð,
bæði hér heima og úti í hinum stóra
heimi. Fyrir vikið hefur vönduðum
myndum sífellt fjölgað og virtir kvik-
myndaleikstjórar verið gestir hér á
hátíðinni til að kynna myndir sínar. Á
RIFF er nú sem fyrr boðið upp á ara-
grúa kvikmynda í hinum ólíkustu
flokkum og frá fjölmörgum löndum
heims. Þar sem íslenskir kvikmynda-
áhugamenn sem og aðrir sem njóta
þess að horfa á afrakstur góðrar
kvikmyndagerðar fá allt of sjaldan
hingað á skerið í bíóhúsin annað en
„mainstream“-kvikmyndir, og flestar
frá Ameríkunni, taka margir hátíðinni
fagnandi og sækja jafnvel nokkrar
myndir á dag þá daga sem hátíðin
stendur. Aðrir velja sér nokkrar
myndir sem þeir vilja alls ekki missa
af og fylgjast líka með hvaða myndir
verða áfram sýndar eftir að hátíðinni
lýkur. Full ástæða er til að vekja at-
hygli á flokki sem kallast 25 mínus og
er ætlaður þeim sem eru undir þeim
aldri. Þar er meðal annars afar
áhugaverð og skemmtileg dönsk
mynd sem segir frá honum Max sem
er 14 ára og hans skondna lífi. Hægt
er að skoða sýnishorn úr myndunum
á vefsíðunni riff.is og lesa stutta lýs-
ingu með hverri þeirra. Þannig getur
fólk auðveldlega myndað sér skoðun
og valið sér mynd. Hátíðin stendur
fram á næsta sunnudag.
Vefsíðan www.riff.is
RIFF vex og dafnar
Skannaðu kóðann
til að skoða
síðuna.