Morgunblaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Ljósmyndasýning á verkum þýska
myndlistarmannsins og kvikmynda-
gerðarmannsins Ulrike Ottinger
verður opnuð í dag klukkan 16.30 í
Norræna húsinu. Auk ljósmynda-
sýningarinnar verður mynd hennar
Unter Schnee sýnd í Bíó Paradís
fyrr um daginn, eða klukkan 15.15.
Myndin gerist í Echigo í Japan þar
sem jörð og hús eru snævi þakin
langt fram í maí. Inní þetta goð-
sagnakennda umhverfi setur Ott-
inger tvo leikara sem sérhæfa sig í
japönsku kabuki-leikhúsi og notast
við sögu af svæðinu frá 19. öld. Hún
mun svara spurningum áhorfenda í
lok sýningarinnar.
Ottinger er margræður listamað-
ur sem ólst upp í Konstanz en starf-
aði árum saman sem myndlistar-
maður og ljósmyndari í París. Frá
árinu 1985 hefur hún gert fjölda
langra heimildarmynda í Asíu. Verk
hennar hafa verið sýnd á mikilvæg-
ustu kvikmyndahátíðum heims og
þeim gerð skil meðal annars í Ciné-
mathéque francaise í París og ný-
listasafninu MoMa í New York.
Það er virðuleiki yfir Ottinger
þegar blaðamaður Morgunblaðsins
hittir hana í Norræna húsinu, enda
listamaðurinn orðinn sjötugur og á
langan og farsælan feril að baki. Um
Ottinger var einu sinni sagt í The
New Yorker að myndir hennar
hefðu verið einnar konu avant-garde
andstaða við hinar fýldu, karllægu
og melódramatísku myndir Wend-
ers, Fassbinders og Herzogs. Þegar
hún er spurð út í álit sitt á þeim seg-
ir hún að Fassbinder hafi verið
ágætur, hann hafi verið vinur henn-
ar.
Aðspurð hvort það hafi verið rétt
sem um hann var sagt að þótt hann
hafi verið góður leikstjóri hafi hann
verið andstyggileg persóna glottir
hún við og segir að það sé kannski
matsatriði. „En ég átti ekkert undir
honum, þannig að hann var vinaleg-
ur við mig.“
Austrið heillar
Aðspurð um áhuga sinn á Aust-
urlöndum segist hún snemma hafa
fengið áhuga á þeim, sérstaklega
Mongólíu, Kína og Japan. Það hafi
komið til vegna barnabóka og
mynda sem hún kynntist í æsku. En
hún hafi líka haft áhuga á austrinu
hér í Evrópu enda mörg verka henn-
ar þaðan og er ein minnisstæð mynd
á sýningunni í Norræna húsinu sem
tekin er í fátækrahverfi í úkraínskri
borg þar sem tvær konur á áttræð-
isaldri horfa vonleysislega á ljós-
myndarann og heldur önnur þeirra á
Coco Chanel poka. Hún segist ung
hafa haft áhuga á því hvernig
austur-evrópsk menning var ein-
hvernveginn skorin út úr hug-
arheimi Vesturlanda með járntjaldi
og múrvegg. Eftir að veggurinn féll
er einsog hann standi enn í hugum
fólks og sé haldið uppi með fáfræði.
Avant-garde-myndir
Það er erfitt að flokka sérkenni-
legar en seiðandi myndir Ottinger
og blaðamanninum dettur helst í
hug avant-garde-myndir af New
York svæðinu og svokölluðum San
Francisco-skóla. Ottinger gefur lítið
út á það og segist hafa reynt að
halda sérstöðu sinni. Hún segir að
hún hafi orðið fyrir áhrifum af mörg-
um og nefnir kvikmyndaleikstjóra
einsog hinn franska Lumiere, aust-
urríkismanninn Eric von Stroheim
og Robert Altman sem áhrifavalda.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Listamaður Ottinger er ljósmyndari, myndlistarmaður, ætilistamaður, leikskáld og kvikmyndgerðarmaður.
Listamaður hinna
mörgu miðla mættur
Ottinger sýnir verk í Bíó Paradís og í Norræna húsinu
Búti úr aðallagi nýrrar kvik-
myndar um njósnarann James
Bond, Skyfall, hefur verið lekið á
netið, skv. frétt á vef dagblaðsins
Wall Street Journal. Breska söng-
konan Adele flytur lagið sem
verður frumflutt á föstudaginn, 5.
október.
Í laginu leikur 77 manna sinfón-
íuhljómsveit og mun það vera í
ætt við gömlu, góðu Bond-lögin.
Frumflutningur á laginu verður á
vefnum adele.tv og verður lagið til
sölu á netinu skömmu eftir hann.
Í ár eru fimmtíu ár liðin frá því
að fyrsta Bond-myndin, Dr. No,
var frumsýnd með Sean Connery í
hlutverki njósnarans. Skyfall verð-
ur frumsýnd 26. október í Bret-
landi sem og á Íslandi. Líkt og í
síðustu tveimur Bond-myndum fer
Daniel Craig með hlutverk njósn-
arans. Leikstjóri myndarinnar er
Sam Mendes.
Bútur úr Bond-lagi kominn á netið
007 Adele syngur aðallag Skyfall.
AFP
um Tísku og förðun
föstudaginn 12.október.
Í Tísku og förðun verður
fjallað um tískuna veturinn 2012 í
förðun, snyrtingu og fatnaði,
fylgihlutum auk umhirðu
húðarinnar, dekur og fleira.
SÉRBLAÐ
Morgunblaðið gefur út
stórglæsilegt sérblað
TÍSKA & FÖRÐUN
Pöntunartími auglýsinga:
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
8.október
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569-1105
kata@mbl.is
– Meira fyrir lesendur
Förðunarvörur.•
Förðun - litir, straumar og stefnur í•
haust og vetur.
Krem fyrir andlit og líkama.•
Umhirða húðar.•
Hártískan í vetur.•
Ilmvötn fyrir dömur og herra.•
Brúnkukrem.•
Neglur og naglalakk.•
Fylgihlutir.•
Skartgripir.•
Nýjar og spennandi vörur.•
Haust- og vetrartíska kvenna.•
Haust- og vetrartíska karla.•
Íslensk hönnun.•
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.•
MEÐAL EFNIS:
TRYGGÐU Þ
ÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN
GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%
27. SEPTEMBER - 7. OKTÓBER 2012
GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
SAVAGES KL. 8 - 10.45 16
DJÚPIÐ KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 10
DJÚPIÐ LÚXUS KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 10
THE DEEP (DJÚPIÐ) ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10
DREDD 3D ÓTEXTUÐ KL. 8 - 10.10 16
RESIDENT EVIL KL. 10.20 16
ÁVAXTAKARFAN KL. 3.30 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 8 16
THE WATCH KL. 5.40 12
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L
SAVAGES KL. 8 - 10.15 16
DJÚPIÐ KL. 6 - 8 - 10 10
DREDD 3D KL. 6 16
- Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN
- J.I., EYJAFRÉTTIR
-H.G., RÁS 2
- K.G., DV
- H.S.S., MORGUNBLAÐIÐ
- H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ
DJÚPIÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10 10
T.V. - KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ OG HEYRT
HHHH
-Þ.Þ., Fréttatíminn
HHHHH
- J.I., Eyjafréttir.is
HHHHH
- H.H., Rás 2
HHHHH
- H.S.S., Morgunblaðið
HHHH
- H.V.A., Fréttablaðið
HHHH
- K.G., DV
SAVAGES Sýnd kl. 8 - 10:40
DJÚPIÐ Sýnd kl. 6 - 8 - 10
THE BOURNE LEGACY Sýnd kl. 10:15
INTOUCHABLES Sýnd kl. 5:50 - 8
PARANORMAN 3D Sýnd kl. 6
LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarÍSL TEXTI
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
“Oliver Stone reisir sig (loksins)
aftur upp með skemmtilegri,
stílískri og spennandi ræmu sem
neitar að fara fínt í hlutina.”
-T.V - Kvikmyndir.is/Séð og Heyrt
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
ÍSL TAL
10
7
12
12
16
HÖRKU SPENNUMYND