Morgunblaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012 Skokkað í Laugardal Það er hressandi og mannbætandi að stunda hreyfingu utandyra á svölum haustdegi. Styrmir Kári Fjárlagafrumvarpið 2013 felur í sér hugs- analega seinkun á bygg- ingu fimm stjörnu lúx- ushótelfangelsis fyrir 56 lúxusfanga á Hólmsheiði. Upp kemur sú hugsun, að seinkunin kunni að stafa af því, að sérstakur sak- sóknari sé á eftir áætlun með ákærur á hendur bankaræningjunum, en óhugsandi er annað en bjóða þeim fimm stjörnu lúxusgistingu, ef þeir fá fangelsisdóma. Að vísu gefa síðustu atburðir til kynna, að þeir muni allir sleppa með einhvers konar sam- félagsþjónustu í stað fangelsisvistar og sinna henni sem háttlaunaðir starfs- menn hinna ýmsu lögfræðistofa og fjár- málafyrirtækja. Ögmundur segir að tukthúsið muni rísa og virðist mjög ánægður með nýja fangelsið á Hólmsheiði, sem á að kosta á þriðja milljarð króna, eða um 20-25 milljónir bandaríkjadala. Líklegt er að sú upphæð eigi eftir að hækka mikið, eins og venja er um opinberar fram- kvæmdir. Fangelsið virðist helzt eiga að verða minnisvarði um arkitektúr hrunáranna 2007-2008, enda ekkert til sparað í undirbúningi þess, og dýrustu lausnir valdar. Þegar hefur verið bent á, að gamla fólkið, sem dvelur á hjúkr- unar- og elliheimilum, myndi gjarnan vilja skipta við fangana, því að aðbún- aður þess er mun lakari. Í fyrravetur var ég staddur í Florida og hitti þar bandarískan vin minn. Hann er gamall byggingarverktaki og þekkir byggingariðnaðinn í Bandaríkj- unum út og inn. Ég sagði honum, að til stæði að byggja nýtt fangelsi fyrir um 50 fanga á Íslandi nálægt Reykja- vík. Það ætti að kosta um 25 milljónir Bandaríkja- dala. Hann missti málið um stund en sagði svo: „Ég get tekið upp sím- ann, hringt og pantað eitt stykki fangelsi fyrir 50, 100 eða 150 fanga af lag- er. Tilsniðið efni yrði af- greitt og sent á bygging- arstað innan sex vikna frá greiðslu. Það myndi síðan taka um þrjá mánuði að reisa og ljúka byggingarframkvæmdum. Kostnaður við byggingu 50 fanga fangelsis ætti ekki að verða meiri en sem nemur tveimur milljónum bandaríkjadala“ (um 250 milljónir króna). Sem sagt, í Bandaríkjunum er kostnaður við að byggja sambærilegt tugthús um 10% af því sem nýja fangelsið mun kosta. Og nýlega hefur komið fram, að kostnaður við arkitektasamkeppni um hönnun hins nýja fangelsis er svipaður og heild- arkostnaður við að byggja bandaríska fangelsið. Sem sagt, teikningarnar ein- ar sér á Íslandi kosta meira en fang- elsið í Bandaríkjunum. Er nema von, að þessi þjóð sé á hausnum? Var ekki hægt að kaupa vinnubúðirnar á Reyð- arfirði og flytja þær á Hólmsheiði? Eftir Júlíus Sólnes » Sem sagt, teikning- arnar á Íslandi kosta meira en fangelsið í Bandaríkjunum. Júlíus Sólnes Höfundur er eftirlaunaþegi. Lúxusfangelsi fyrir lúxusfanga Vinstri ríkisstjórn Jóhönnu Sigurð- ardóttur og Steingríms J. Sigfússonar á undir högg að sækja. Stjórn- arliðar gera sér engar vonir um að rík- isstjórnin haldi velli í komandi kosningum. Þeir biðla því til ann- arra „félagshyggju- flokka“ um að veita þeim liðsinni svo hægt sé að sitja áfram að heitum kjötkötlunum. Staðan er viðkvæm og ekkert má út af bera. Þrátt fyrir fögur loforð hefur störfum ekki fjölgað og í stað þess að horfast í augu við stað- reyndir dregur forsætisráðherra töl- ur Hagstofunnar í efa. Fjárlaga- frumvarp fyrir komandi ár byggist á veikum grunni með gamalkunnugum kosningaloforðum. Fáir treysta for- sendum frumvarpsins og jafnvel stjórnarliðar efast. Í pólitískri angist er nauðsynlegt að beina athyglinni að öðru en því sem máli skiptir. Slíkt brella hefur oft gefist vinstri ríkisstjórninni vel. Í moldviðri er hægt að fela það sem miður fer. Grafið undan trúverðugleika Með skipulegum hætti hefur for- maður fjárlaganefndar reynt að grafa undan trúverðugleika Rík- isendurskoðunar. Þar ber hann fyrir sig að stofnunin hafi dregið úr hófi að skila skýrslu um kaup á fjárhags- upplýsingakerfi fyrir ríkið. Um það verður ekki deilt að vinnu- brögð Ríkisendurskoðunar við skýrslugerðina eru ámælisverð. Undir það hefur ríkisendurskoðandi tekið. Það getur aldrei talist ásætt- anlegt að eftirlitsstofnun taki átta ár að ganga frá skýrslu sem Alþingi hefur óskað eftir. En í þrjú ár hefur formaður fjárlaganefndar vitað að drög að skýrslunni væru tilbúin en gerði ekkert til að fylgja málinu eftir fyrr en nú þegar stutt er til kosninga og ganga þarf frá fjáraukalögum árs- ins og fjárlögum kom- andi árs. Að frumkvæði for- manns hefur meirihluti fjárlaganefndar ákveð- ið að óska ekki eftir um- sögn Ríkisendurskoð- unar á fjáraukalögum. Því er borið við að trún- aðarbrestur hafi orðið á milli Alþingis og stofnunarinnar vegna þess dráttar sem orðið hefur á umræddri skýrslu. Þó hefur Rík- isendurskoðun lagt fyrir Alþingi á hverju einasta ári heildarskýrslu um störf sín. Ekki verður séð að þing- menn hafi gert athugasemdir. Skýring formanns fjárlaganefndar stenst enga skoðun. Vandséð er hvernig meirihluti fjárlaganefndar getur komist að þeirri niðurstöðu fyrir hönd Alþingis að trún- aðarbrestur sé fyrir hendi. Ástæður meirihlutans eru aðrar og dýpri. Það er verið að beina athyglinni frá fjár- aukalögum og fjárlögum. Um leið er hafinn undirbúningur að því að draga broddinn úr þeim aðfinnslum sem Ríkisendurskoðun kann að setja fram við stjórnun ríkisfjármála fram að kosningum. Alvarlegar athugasemdir og gagnrýni Aðhald að framkvæmdavaldinu er helsta hlutverk Ríkisendurskoðunar, sem starfar í skjóli Alþingis og undir stjórn þess samkvæmt lögum. Hún á að „endurskoða ríkisreikning og reikninga þeirra aðila sem hafa með höndum rekstur og fjárvörslu á veg- um ríkisins,“ segir í 1. grein laga um Ríkisendurskoðun. Stofnunin getur framkvæmt stjórnsýsluendurskoðun en einnig skal hún „annast eftirlit með framkvæmd fjárlaga og vera þingnefndum til aðstoðar við störf er varða fjárhagsmálefni ríkisins“. Ríkisendurskoðun er því ein mik- ilvægasta stofnun landsins og for- senda þess að Alþingi og almenn- ingur geti veitt framkvæmdavaldinu nauðsynlegt aðhald. Engu skiptir hvaða ríkisstjórn situr að völdum. Nokkur dæmi Í samræmi við lagalegar skyldur sínar hefur Ríkisendurskoðun ítrek- að sett fram alvarlegar athugasemd- ir og gagnrýni á fjármálastjórn rík- isins í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sig- fússonar. Hvorugu er vel við gagn- rýni, eins og þekkt er. Samkvæmt ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra tók ríkissjóður þátt í björgun Sjóvár með 11,6 milljarða króna framlagi. Rík- isendurskoðun gerði athugasemdir við þetta og benti á að ekki væri ljóst hvaða lagaheimildir fjármálaráð- herra hefði til þessa. Ríkissjóður tók á sig skuldbind- ingar vegna yfirtöku Arion banka hf. á innstæðum í SPRON hf. og yf- irtöku Íslandsbanka hf. á innstæðum í Straumi-Burðarási hf. Ríkisend- urskoðun taldi það ámælisvert að ekkert væri getið um þessar skuld- bindingar í ríkisreikningi árið 2009 líkt og reikningsskilareglur gera ráð fyrir. Ríkisendurskoðun gagnrýndi hvernig staðið var að lækkun launa samkvæmt tilmælum sem rík- isstjórnin gaf út í ágúst 2009. Gagn- rýnin beindist fyrst og fremst að fjármálaráðuneytinu. Ríkisendurskoðun hefur ítrekað gert athugasemdir og gagnrýnt að fjármálaráðuneyti fái svokallaðar „opnar heimildir“ á fjárlögum vegna stofnfjárframlaga og útgjalda. Þann- ig var ekkert tillit tekið til útgjalda ríkissjóðs vegna SpKef þó vitað hafi verið að kostnaðurinn yrði a.m.k. 11,2 milljarðar króna. Þegar upp er staðið er ljóst að skattgreiðendur þurfa að standa undir allt að 25 millj- örðum vegna sparisjóðsins, að teknu tilliti til vaxta. Þannig má lengi telja. Ríkisend- urskoðun hefur bent á að stórra skuldbindinga ríkissjóðs sé í engu getið í ríkisreikningi – séu utan efna- hags. Þannig gefur ríkisreikningur skakka mynd af stöðu ríkissjóðs. Þess er að vænta að Ríkisend- urskoðun geri til dæmis alvarlegar athugasemdir við hvernig „fela“ á skuldbindingar ríkissjóðs vegna Vaðlaheiðaganga. 100 skýrslur Alþingi hefur fengið um 100 skýrslur frá Ríkisendurskoðun frá árinu 2008. Með þeim hefur stofn- unin veitt framkvæmdavaldinu að- hald sem annars væri ekki fyrir hendi og fengið alþingismönnum í hendur tæki og tól til að sinna eft- irlitshlutverki sínu. Það er fullkomlega eðlilegt að þingmenn geri alvarlegar at- hugasemdir við að Ríkisendurskoðun gangi ekki hratt til verks og skili ekki umbeðnum skýrslum innan ákveðins tíma. En mikið væri það gleðilegt ef þingmenn eyddu jafnmiklum tíma til að ræða þær skýrslur sem þegar liggja fyrir og þeir hafa gert um skýrslu sem ekki er tilbúin. Í þessu sambandi má benda á úttekt Rík- isendurskoðunar á ríkisábyrgðum og öðrum fjárhagsskuldbindingum sem ekki koma fram í fjárlögum eða fjár- aukalögum. Skýrslan var unnin að beiðni Péturs H. Blöndal, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, og hefur legið fyrir frá því í janúar. Þar er um hundruð milljarða að ræða og gríð- arlega hagsmuni, ekki síst fyrir kom- andi kynslóðir. En það hentar ekki meirihluta fjárlaganefndar að beina athyglinni að ríkisábyrgðum eða öðrum fjár- hagslegum skuldbindingum sem rík- ið hefur tekið á sig, beint og óbeint. Ekki frekar en að axla ábyrgð á að halli ríkissjóðs á síðasta ári var 52 milljörðum króna meiri en samþykkt fjárlög sem nefndin vann að. Að ekki sé talað um afgreiðslu meirihluta fjárlaganefndar á fjáraukalögum þar sem horft var framhjá augljósum út- gjöldum. Niðurstaðan var sú að hall- inn var 42 milljörðum meiri en fjár- aukalög leyfðu. Einhver hefði talað um trúnaðarbrest við fjármálastjórn ríkisins af minna tilefni. „… erfitt að blekkja aðra …“ Ríkisendurskoðandi er starfs- maður Alþingis samkvæmt lögum og ber ábyrgð gagnvart því. Í annarri grein laga um stofnunina segir að forsætisnefnd Alþingis geti, „að fengnu samþykki Alþingis, vikið rík- isendurskoðanda úr starfi“. Ef meirihluti fjárlaganefndar er á því að trúnaðarbrestur hafi orðið milli ríkisendurskoðanda og Alþing- is, ber meirihlutanum að leggja til við forsætisnefnd að viðkomandi verði vikið úr starfi. Í framhaldinu verður forsætisnefnd að óska eftir sam- þykkis Alþingis. Komi slík tillaga ekki fram er ekki hægt að draga aðra ályktun en að um pólitískan leik- araskap hafi verið að ræða. Franski rithöfundurinn Francois de la Rochefoucauld sagði einhverju sinni: „Það er jafnauðvelt að blekkja sjálfan sig án þess að taka eftir því og það er erfitt að blekkja aðra svo þeir komist ekki að því.“ Forráðamenn vinstri ríkisstjórn- arinnar og meirihluti fjárlaganefnd- ar ættu að hafa þessi orð franska rit- höfundarins í huga. Eftir Óla Björn Kárason »Mikið væri gleðilegt ef þingmenn eyddu jafnmiklum tíma til að ræða skýrslur sem þeg- ar liggja fyrir og þeir hafa gert um skýrslu sem ekki er tilbúin. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Pólitísk atlaga að Ríkisendurskoðun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.