Morgunblaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012
Um 500 árum fyrir
Krist sagði sá mikli
spekingur Lao Tze
okkur söguna um
Veginn eilífa og sú
saga var þýdd
snemma á síðustu öld
yfir á íslensku af
þeim bræðrum Yngva
og Jakobi Jóhann-
essonum sem Bókin
um veginn. Á okkar
tímum og í okkar
landi er okkur nú þarft að minnast
þessara sígildu og sönnu orða Lao
Tze og draga af þeim lærdóm,
sem hliðstæðu við okkar tíma og
hvaða leið íslensk þjóð skuli velja,
Veginn eilífa eða krókóttar gróða-
leiðir hnattræðisins, skv. vott-
unarferli ESB:
1. Væri ég nógu vitur, myndi ég
fara veginn eilífa.
2. Vegurinn eilífi er beinn og
greiðfær,
en mönnum eru krókaleiðirnar
kærari.
3. Höllin ljómar af skrauti, en
akrarnir eru vanhirtir og hlöð-
urnar tómar. Að búast í skart og
vera girtur biturlegu sverði, eta
og drekka óhóflega og hafa fullar
hendur fjár – það er ofmetnaður
ræningja.
(Bókin um veginn, LIII.)
Við þekkjum þetta allt. Hér
varð hrun haustið 2008 og 4 árum
síðar hefur hér ekkert breyst.
Enn velja vanhæfir
og drambsamir vald-
herrar stjórnsýslu
ríkisins, samfylktir
innan raða alls 4-
flokksins, sér króka-
leiðirnar fyrir hönd
ofmetnaðarfullra
ræningja. Nú heitir
nýjasta krókaleiðin
ESB. Þeir hafa gerst
ofsatrúaðir ESB-
Vottar til dýrðar sín-
um yfirherrum. Ekk-
ert hefur verið tekið
á ræningjunum, enda
voru þeir flestir drjúgir við að
kaupa sér þingmenn innan raða
samfylkts fjórflokksins og ræn-
ingjarnir voru vel tengdir hnattr-
áðum auðdrottnum ofurbankanna,
þ.m.t. Deutsche Bank, sem gerir
út á hnattræðis vísu, þó að heima-
höfnin sé skráð í Frankfurt þar
sem höfuðstöðvar bankaveldis
ESB eru. Allt skal gert til að
forðast að taka á ofmetnaðarfullu
ræningjunum, sem nú eru leppar
ofurbankanna.
Á sama tíma og valdherrar
stjórnsýslu ríkisins … hvaða rík-
is? Ríkis hverra? … hafa ekkert
tekið á fjárglæpum hinna ofmetn-
aðarfullu ræningja, sem við vitum
þó öll hverjir voru og hverjir eru,
þá virðist það í staðinn vera sér-
stakt líf og yndi ESB-Vottanna að
þrælpína nú almenning þessa
lands með ofurskattlagningu og
okurvöxtum.
Já, áfram vilja valdherrar
stjórnsýslu ríkisins, hinir ofsa-
trúuðu ESB-Vottar, velja sér
krókaleiðina ESB og hneppa okk-
ar litlu þjóð í staðlað form yf-
irþyrmandi reglugerða og laga-
bálka og vottunarferla, í stíl
kaþólskra kirkjuskipana páfans á
myrkustu miðöldum, sem þjónar
sem fyrr því gamla meginmark-
miði miðevrópskra fursta og
greifa og keisarahirða Habsburg-
ara, að drepa niður alla millistétt
og gera okkur öll að skattlögðum
leiguliðum á okkar eigin landi.
Já, áfram marsera hinir ofsa-
trúuðu ESB-Vottar krókaleiðina
eftir gullbrydduðum og blóð-
rauðum Brussel-dreglinum, fyrir
hönd þjófa og ræningja, en drepa
á sama tíma niður alla grósku ein-
yrkja, lítilla og meðalstórra fyr-
irtækja og heimila landsins með
yfirþyrmandi laga- og reglugerða-
vottunarferli ESB.
Lao Tze þekkti vel til hlið-
stæðra verka vondra kínverskra
keisara og hirða þeirra, fyrir hönd
ofmetnaðarfullra þjófa og ræn-
ingja:
Því meira verður um þjófa og
ræningja sem lög og reglugerðir
eru fleiri.(Bókin um veginn, LVII,
2.)
En nú er svo komið að ESB-
Vottarnir eru endanlega orðnir
sturlaðir. Nú vilja þeir setja bað-
laugar á hálendi Íslands í sam-
ræmt og staðlað vottunarferli og
að staðla skuli náttúrulegar ís-
lenskar uppsprettur, s.s. Land-
mannalaugar og á Hveravöllum.
Nú skal valtað yfir íslenska nátt-
úru og hún stöðluð samkvæmt
Brussel forskrift í nafni „sjálf-
bærni“. Þið fyrirgefið mér aum-
um, en mig grunar að þessi „sjálf-
bærni“ þjóni einungis
hagsmunum ESB-Vottanna
sjálfra í öllu þeirra vinstra-hægra
moði í þeirra eigin hirðlegu
svínastíum til þjónkunar fyrir
hnattráða auðhringadrottna og
hrægamma.
Nei, hingað og ekki lengra. Það
er nú kominn tími til að vanhæft
Alþingi hífi nú gungu og druslu-
legan sóma sinn eilítið upp og að
vísi ESB-aðlöguninni til þjóð-
aratkvæðagreiðslu, sem fram fari
í síðasta lagi í desember 2012. Við
báðum aldrei um þessa krókaleið
hinna marserandi ESB-Votta í
gljáspeglandi og stálslegnum leð-
urstígvélum. Við höfum þraukað
hér ein norður í Dumbshafi í nær-
fellt 1.150 ár og skiljum ekki
þennan undarlega áhuga sem hin-
ir hnattráðu auðræðis hringa-
drottnar sýna okkur nú í gegnum
sína ágengu ESB-Votta.
Myndum samstöðu um það að
hafna krókóttum gróðavegum
hnattræðisins og óhugnanlegri
ásælni auðdrottna ofurbankanna
og þeim yfirgangi sem þeir beita
hér í gegnum leppa sína, ESB-
Vottana. Veljum svo þann eina
hreina og greiðfæra veg sem við
þekkjum og höfum í gegnum sögu
okkar lært að rata svo vel, veginn
að heiman, sem er vegurinn okkar
heim, til uppruna okkar, til ætt-
lands okkar, móa og mela og smá-
blóma og hvítfyssandi lækja, hjal-
andi og flissandi af kátínu niður
hlíðarnar og streymandi fram um
láglendið og nærandi grasrót
engja og túna, með tignarlegan
fjallasalinn í bakgrunni með nátt-
úrulegum fossaföllum og baðlaug-
um sínum og jarðhita. Og makríl-
inn og fjölbreytta fiskistofnana í
200 mílna landhelgi okkar, sem við
háðum okkar einu stórstríð um, til
lífsbjargar okkar, næringar og
vaxtar.
Yfirgnæfandi meirihluti þjóð-
arinnar vill slíta ESB-aðlöguninni.
Alla okkar íslensku náttúru og all-
ar okkar íslensku náttúrulegu auð-
lindir viljum við, sem höfum
þraukað hér í nærfellt 1.150 ár,
eiga sjálf sem fullvalda þjóð og
skila því þannig til barna okkar og
barnabarna og til heilla til allrar
ókominnar framtíðar íslenskrar
þjóðar.
Vegurinn eilífi eða vottunarferli ESB
Eftir Pétur Örn
Björnsson »Nú skal valtað
yfir íslenska
náttúru og hún
stöðluð samkvæmt
Brussel forskrift í
nafni „sjálfbærni“.
Pétur Örn
Björnsson
Höfundur er arkitekt
og er félagi í Samstöðu,
flokkilýðræðis og velferðar.
Bankar í Banda-
ríkjum Norður-
Ameríku (BNA) hafa
tekið þá við-
skiptaákörðun að það
sé hagkvæmara að
greiða lántakendum
fyrir árangursríka
skortsölu en að
þvinga þá í nauðung-
arsölu. Markmiðið er
þó fyrst og fremst að
hjálpa fólki til þess að
halda heimilinu sínu og mun ég
fjalla um tvær vinsælustu leiðirnar
til þess og síðan aðeins um skort-
sölur. En áður en ég geri það
langar mig til þess að nefna
hvernig markaðurinn í mið-
Flórída hefur breyst við þessa
ákvörðun. Í júlí 2009 voru 8% af
sölum skortsölur en 34% af sölum
nauðungarsölur, svo í júlí á þessu
ári voru 28% af sölum skortsölur
en 24% af sölum nauðungarsölur.
Vinsælasta leiðin hér í BNA til
að hjálpa heimilunum er HAMP
(Home Affordable
Modification Pro-
gram) eða „Að hafa
efni á, lánabreyt-
ingar“. Það sem lán-
takinn þarf að gera er
að fylla út eyðublöð
sem sýna fjárhags-
stöðu heimilisins,
skila inn skattskýrslu
fyrir síðustu tvö ár
ásamt launaseðlum
síðustu tveggja mán-
aða og yfirliti banka-
reikninga síðustu
tveggja mánaða.
Einnig þarf lántakinn að skila inn
bréfi sem útskýrir hvað veldur
vandræðunum, við köllum þetta
bréf „Hardship letter“, harðræð-
isbréfið. Þú þarft ekki að vera
kominn í vanskil við bankann en
þarft að sýna fram á að vanskil
eru væntanleg. Þegar lántakinn
hefur skilað inn öllum gögnum fer
bankinn yfir þau og skoðar hvort
lánabreyting er vænleg fyrir lán-
takann, ef ekki þá er lántakanum
yfirleitt boðið að selja húsið í
skortsölu eða endurfjármögnun á
heimilinu. Sem dæmi um mögu-
lega lánabreytingu, þá geta þeir
lækkað vexti í 2% í allt að 5 ár,
hengt vanskil aftur fyrir lán og
klippt af láni. 110.114 heimili hafa
fengið lánabreytingu í gegnum
HAMP-kerfið frá fyrsta janúar og
út júní á þessu ári.
Endurfjármögnun á lánum
HARP (Home Affordable Ref-
inancing Program), „Að hafa efni
á endurfjármögnun“, er kerfi fyrir
fólk sem skuldar meira en 80% af
verði eignarinnar og hefur alltaf
verið í skilum við bankann. Þessu
fólki er boðið að breyta gömlu lán-
unum í ný lán á lægri vöxtum. Það
þarf ekki að fara mörg ár aftur í
tímann til þess að finna 7,5% vexti
eða þaðan af hærri, nú eru boðnir
vextir allt niður í 3,5% á nýju lán-
in með föstum afborgunum til 30
ára, þetta er mikill léttir fyrir
heimili sem skuldar mögulega
130% af verði fasteignarinnar. Um
66.002 heimili í BNA fengu lána-
breytingu í júlí á þessu ári.
Því miður er alltaf einhver hóp-
ur sem er það illa staddur að lána-
breyting eða endurfjármögnum
hjálpar honum ekki, þessum hópi
er boðið að nýta sér HAFA (Home
Affordable Forclosure Alternati-
ves), „Að hafa efni á að koma í
veg fyrir nauðungarsölu“. HAFA-
kerfið býður fólki upp á að selja
eignina á markaðsvirði og síðan
gefa því eftirstöðvarnar eftir. Fyr-
ir gott samstarf við skortsöluna er
lántakandanum umbunað að lág-
marki 372.000 kr. Margir bankar
greiða uppbætur og sem dæmi
fékk einn kúnninn minn 1.612.000
kr. fyrir árangursríka skortsölu.
Það góða við HAFA-kerfið er að
það eru sett markmið í því, hve-
nær lántakandinn á að gera sína
hluti, hvenær fasteignasalinn á að
vinna sín verkefni og hversu lang-
an tíma bankinn hefur til þess að
svara bréfum og samþykkja söl-
una. Þetta kerfi hefur stytt sölu-
og markaðsferlið og gert skortsöl-
ur meira aðlaðandi fyrir kaup-
endur. Í júlí á þessu ári voru seld-
ar 36.260 fasteignir í skortsölu í
BNA.
Það góða við þessi kerfi er að
þeim er að takast að fækka lánum
í vanskilum, sem dæmi fækkaði
lánum sem voru í vanskilum í
meira en 60 daga úr 2,52 millj-
ónum í júní niður í 2,47 milljónir í
júlí á þessu ári. Þessar tölur og
aðrar tölur sem ég nota í þessari
grein koma af heimasíðunni
DSnews.com. Tölur frá Flórída
eru annaðhvort mínar tölur eða
frá Félagi fasteignasala í Orlandó,
ORRA. Við útreikninga miða ég
við að 1 USD sé 124 kr.
Skortsala er betri en nauðungarsala
Eftir Pétur Má
Sigurðsson » Bankar í Banda-
ríkjum Norður-
Ameríku telja að það
sé hagkvæmara að
leyfa skortsölu fast-
eigna en að þvinga
lántakendur í nauð-
ungarsölu.
Pétur Már
Sigurðsson
Höfundur er fasteignamiðlari
í mið-Flórída og eigandi The Viking
Team, Realty. Íslensk heimasíða
www.Floridahus.is.
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Sérsmíðaðar innréttingar
Hjá GKS færð þú faglega ráðgjöf er varðar
sérsmíði á innréttingum.
Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði
alla leið inn á þitt heimili.