Morgunblaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 11
ákvað að leita í trúna til að biðja um kraftaverk.
Um leið gerði ég mér grein fyrir því að krafta-
verk hafa engin rök og því ákvað ég að láta af
rökrænum hugsunarhætti mínum til að krafta-
verk gæti átt greiðari leið inn í líf mitt. Þegar
fólk spyr hvernig ég hafi farið að þessu vill það
heyra um aðferðir en þær eru ekki til. Þetta
snýst um að leita aftur í sinn innsta kjarna og
þangað komumst við með því að trúa stað-
fastlega. Ég ákvað að trúa engu sem stóð í bók-
um eða læknar sögðu mér heldur bara því að ég
næði bata. Fólk í kringum mig biður líka fyrir
mér og ég hef fundið fyrir því,“ segir Wong.
Kjarni sjálfs sín
Hluti búddismans snýr að því að lifa í
núinu, sem Wong tileinkaði sér og reyndi hvern
dag að tengja sig við það hver hann væri. Hann
segir þá tengingu hafa tekið marga mánuði að
nást og á þeim tíma hafi hann sveiflast frá því
að vilja halda áfram yfir í það að gefast upp.
„Þessi tilfinning kom yfir mig í stutta
stund, hver ég væri og hvers vegna ég væri hér
á jörð. Ég hefði vald yfir eigin sjálfi og gæti
nýtt það til að virkja kraft í líkama mínum. Þá
varð ég í fyrsta sinn í lengri tíma ánægður,“
segir Wong. Eftir þetta tók það Wong rúm þrjú
ár að ná sér að fullu. Honum tókst smám saman
að þjálfa upp styrk í líkamanum á ný og öðlast
sjón. Hann þjálfaði sig sjálfur með aðstoð vina,
fjölskyldu og sjúkraþjálfara. Hann segir lækna
lítið hafa komið að málum þar sem þeir hafi ótt-
ast útkomuna en þeir hafi vissulega glaðst yfir
bata hans.
Uppgjöf nauðsynleg
„Jákvæð hugsun er ekki nóg í svona til-
fellum heldur verður þú að sýna uppgjöf og
hafa staðfasta trú. Ég er alls ekkert einstakur
hvað þetta varðar og fleiri slíkar sögur eru til í
heiminum. Það að vera þátttakandi í eigin bata
snýst um að breyta hugarfari sínu til lífsins og
þannig breytist líkaminn. Ég trúði því að
taugar mínar myndu styrkjast á ný jafnvel þó
að læknisfræðilega ætti það ekki að geta orðið.
Hefðbundnar lækningar eru mikilvægar og
hjálpa mörgum, ég vil leggja áherslu á það. En
mannlegur hugur er þannig að við viljum hafa
eins konar guðdómlegan hugsunarhátt og ráða
við allt. Í rauninni þurfum við stundum að
sleppa tökunum,“ segir Wong. Hann skrifaði
bók um reynslu sína og miðlar nú af henni á
fyrirlestrum víða um heim. Hann starfar í dag
sem heilsuþjálfari og -ráðgjafi og er stofnandi
Transcendental Connection®. Nánar má lesa
um starf hans á vefsíðu samtakanna,
www.transcendentalconnection.com.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012
Kia Ceed 1,6 TDi
Árgerð 2011, dísel
Ekinn 16.000 km, sjálfsk.
VW Touran
Árgerð 2006, bensín
Ekinn 125.000 km, beinsk.
Ásett verð:
3.550.000,-
Toyota Yaris 1000
Terra. Árgerð 2011, bensín
Ekinn 36.000 km, beinsk.
Toyota Land Cruiser
120 VX. Árgerð 2007, bensín
Ekinn 57.800 km, sjálfsk.
Ásett verð
2.100.000,-
Komdu og skoðaðu úrvalið!
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
VW Golf Trendl. 1,4TSi AT
Árgerð 2011, bensín
Ekinn 39.500 km, sjálfskiptur
Ásett verð:
2.890.000,-
GOTT ÚRVAL
AF NÝLEGUM
GÆÐABÍLUM
Ásett verð:
1.250.000,-
Ásett verð 5.690.000
Tilboðsverð
4.990.000,-
Te & kaffi hafa kynnt nýja hönnun á umbúðum á
sérvöldum kaffitegundum fyrirtækisins sem
seldar eru í verslunum og á kaffihúsum þess.
Um er að ræða nýjar, endurlokanlegar umbúðir
sem auðvelda að halda kaffinu fersku.
,,Þetta eru nýjar umbúðir sem innihalda
bestu kaffitegundirnar sem fyrirtækið hefur
upp á að bjóða hverju sinni.
Kaffisérfræðingar okkar smakka allar prufur
sem koma inn og mikill metnaður er lagður í að
kaupa einungis bestu baunir sem fáanlegar eru
hverju sinni. Það ræðst því af framboði mark-
aðarins hverju sinni hvað við bjóðum upp á í
verslunum okkar,“ segir Kristín María Dýrfjörð,
markaðsstjóri fyrirtækisins. Kaffið í þessum
nýju umbúðum er ristað í nýjum 5 kg kaffi-
brennara sem staðsettur er í nýju kaffihúsi Tes
& kaffis í Aðalstræti.
,,Framleiðsla sem er smærri í sniðum gefur
meiri möguleika á sjaldgæfari kaffitegundum í
minna magni og kaffið er því alltaf nýbrennt og
ferskt,“ segir Kristín María.
Miðinn utan á nýju pökkunum er með ít-
arlegri upplýsingum en áður þar sem hægt er
að lesa um ræktunarhæð, vinnsluaðferð og af-
brigði baunanna ásamt bragðeiginleikum svo
neytandinn ætti að vera nokkuð vel upplýstur
um kaffið sem hann velur sér hverju sinni.
Ný hönnun
Nýjung Kristín María með nýjan poka sem auðveldar að halda kaffinu fersku.
Enn ferskara kaffi
Eitt af því sem gerir haustið svo skemmtilegt
eru allir þeir viðburðir sem boðið er upp á
með lækkandi sól Nú berast þau ánægjulegu
tíðindi að óperuprakkarinn Jón Svavar
Jósefsson og djasshundarnir úr kvartettinum
Ferlíki ætli að halda hádegistónleika í Há-
teigskirkju næstkomandi föstudag 5. október.
Ætla þeir félagar að leika lágstemmdan djass
eins og hæfir umgjörðinni í kirkjunni og verð-
ur Chet Baker fyrirmynd þeirra.
Ferlíki skipa þeir Ásgrímur Angantýsson á
píanó, Jón Ómar Árnason á gítar, Þórður
Högnason á bassa og Óskar Kjartansson á
trommur.
Hádegistónleikar Háteigskirkju eru haldnir
annan hvern föstudag á
milli 12:30 og 13:00 og þar mæta nýir tón-
listarmenn hverju sinni.
Hádegistónar í Háteigskirkju
Óperuprakkarinn Jón Svavar
með djasshundunum úr Ferlíki
Vinalegt
Þetta ku vera
Ferlíkið.
Árleg, alþjóðleg heilsuhelgi verður haldin í
sjöunda sinn á Íslandi dagana 5.-7. október
næstkomandi.
Þar gefst fólki kostur á að hlusta á er-
indi íslenskra og erlendra fagaðila sem feta
ótroðnar slóðir og miðla af þekkingu sinni.
Verður fjallað um margvíslegar meðferð-
arnýjungar s.s. lífljóseindameðferð, lækn-
ingar með mataræði og vakningu heil-
unarkrafta svo fátt eitt sé nefnt.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru m.a. sjúkra-
þjálfarar, læknar og meðferðarþerapistar.
Að leiðarljósi næstu helgi verða heilsa,
glens og gaman, gleði og friður en ráð-
stefnan fer fram á Hótel Kríunesi við El-
liðavatn. Allar nánari upplýsingar um dag-
skrá má nálgast á vefsíðunni
www.heilsuhelgi.com en þar fer skráning
einnig fram.
Heilsa, gleði og friður að leiðarljósi
ALÞJÓÐLEG HEILSUHELGI