Morgunblaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012
AFP
Starfsmenn fjarskiptafyrirtækis í Indónesíu sýna batik-
litaðan vefnað við athöfn í Jakarta í gær, á degi sem
helgaður var batiklitun. Batik er aðferð til að myndlita
vefnað með því að þekja með vaxi þann hluta efnisins
sem ekki á að lita hverju sinni. Menningarmálastofnun
Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur viðurkennt að-
ferðina sem sérstakt framlag Indónesíu til heimsmenn-
ingarinnar, að sögn fréttaveitunnar AFP.
Batiklitun hafin til vegs og virðingar
Helle Thorning-Schmidt, forsætis-
ráðherra Danmerkur, sagði í ræðu
við setningu danska þingsins í gær
að gripið yrði til harðra aðgerða
gegn erlendum glæpagengjum eftir
að árás var gerð á slysavarðstofu
sjúkrahúss í Óðinsvéum.
Thorning-Schmidt sagði það hafa
fengið mikið á sig að frétta af árás
um sextíu vopnaðra manna á slysa-
varðstofu háskólasjúkrahússins í
Óðinsvéum í ágúst eftir að árás var
gerð á tvo bræður í Vollsmose.
„Þetta var glæpsamlegt, verknaður
sem ég get ekki fordæmt nógsam-
lega. Árás á sjúkrahús … gerð af
afbrotamönnum sem lifa í allt öðrum
heimi en við hin – og þá á ég við mik-
inn meirihluta Dana, óháð því hvað-
an þeir eru ættaðir,“ sagði Thorning-
Schmidt.
„Við munum finna þá sem frömdu
glæpinn og refsa þeim,“ sagði for-
sætisráðherrann og bætti við að
stjórnin myndi m.a. sjá til þess að
löggæsla yrði efld á svæðum sem er-
lend glæpagengi hafa herjað á.
Vill taka hart á glæpagengjum
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mikheil Saakashvili, forseti Georgíu,
viðurkenndi í gær að flokkur sinn
hefði beðið ósigur
í þingkosningum
sem fram fóru í
landinu í fyrra-
dag.
Saakashvili,
sem hefur verið
við völd frá árinu
2003, sagði að
ljóst væri að
flokkur auðkýf-
ingsins Bidzina
Ivanishvili hefði
sigrað í þingkosningunum. Ivanishvili
krafðist þess að forsetinn segði af sér.
„Það er eina rétta ákvörðunin í stöð-
unni,“ sagði hann.
Kjörtímabili forsetans lýkur ekki
fyrr en á næsta ári. Samkvæmt um-
bótum, sem samþykktar hafa verið, á
þingið og forsætisráðherra landsins
að fá aukin völd á kostnað forsetans
eftir næstu forsetakosningar.
Gert er nú ráð fyrir því að Ivanis-
hvili verði skipaður forsætisráðherra
en talið er að erfitt verði fyrir hann og
Saakashvili að vinna saman ef forset-
inn neitar að segja af sér.
Fréttaskýrandi breska ríkis-
útvarpsins sagði valdatöku flokks
auðkýfingsins marka tímamót vegna
þess að þetta væru fyrstu lýðræðis-
legu valdaskiptin í Georgíu frá því að
landið fékk sjálfstæði eftir að Sovét-
ríkin leystust upp árið 1991.
Saakashvili komst til valda í rósa-
byltingunni svonefndu árið 2003 og
hefur lagt kapp á að auka tengsl
Georgíu við Vesturlönd og losa landið
undan áhrifum Rússlands. Hann hef-
ur því verið eitur í beinum Vladímírs
Pútíns Rússlandsforseta.
Ivanishvili segir að flokkur sinn
vilji að Georgía gangi í Atlantshafs-
bandalagið og Evrópusambandið en
bæta um leið samskiptin við Rúss-
land. Fréttaskýrendur telja ólíklegt
að honum takist hvort tveggja.
Ivanishvili er auðugasti kaupsýslu-
maður í sögu Georgíu, býr í glæsilegu
stórhýsi úr stáli og gleri í höfuðborg-
inni Tbilisi. Í einu af sveitasetrum
hans er safn villtra dýra á borð við
sebrahesta, kengúrur og mörgæsir.
Saakashvili viður-
kennir ósigur
Flokkur auð-
ugasta manns
Georgíu sigraði
AFP
Sigursæll Auðkýfingurinn Bidzina
Ivanishvili á blaðamannafundi.
Mikheil
Saakashvili
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ - ÞAÐ ER TENGI
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
TEKA INDIC
sturtutæki
Tilboð kr. 18.600,-
TEKA SP995
eldhústæki
Tilboð kr. 14.400,-
TEKA MT- plus
handlaugartæki
Tilboð kr. 9.200,-
KYNNINGARVERÐ Á TEKA * öllu nema lagnaefni, heitum pottum ogsérverðmerktum vörum
TEKA SPIRIT
handlaugartæki
Tilboð kr. 10.800,-
TEKA MF-2
eldhústæki
Tilboð kr. 7.800,-
TILBOÐSDAGAR
TEKA MT-Plus
sturtusett og tæki
Tilboð kr. 49.500,-
LÝKUR 6. OKTÓBER
20% afsláttur af öllum vörum í Tengi*