Morgunblaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 18
BAKSVIÐ
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Ekki var talin þörf á því að halda
útboð í tengslum við fyrirhugaða
sölu Orkuveitunnar á stórum eign-
arhlut í Gagnaveitu Reykjavíkur, en
stjórn OR hefur nú þegar gengið
frá samningi og söluþóknun við fjár-
málafyrirtækið HF Verðbréf um að
hafa umsjón með sölunni. Tillaga
um að selja 49% hlut í Gagnaveit-
unni var samþykkt í eigendanefnd
OR í síðustu viku, eins og greint var
frá í Morgunblaðinu í gær, en vonir
standa til að hægt verði að fá um 2,5
milljarða króna fyrir eignarhlutinn.
Viðmælendur Morgunblaðsins,
sem þekkja vel til á fjármálamark-
aði, lýsa furðu sinni á því að Orku-
veitan hafi ekki leitað tilboða frá
öðrum fjármálafyrirtækjum, á
grundvelli útboðs, til að hafa umjón
með söluferlinu. Sé miðað við að 2,5
milljarðar muni fást fyrir 49% hlut í
Gagnaveitunni þá telja þeir hinir
sömu að söluþóknun HF Verðbréfa,
sem hefur verið ráðgjafi Orkuveit-
unnar í þeirri fjárhagslegu endur-
skipulagningu fyrirtækisins sem
hófst í ársbyrjun 2011, gæti numið á
bilinu 40-50 milljónum króna. Einn
viðmælandi blaðsins tekur þó fram
að það sem skipti Orkuveituna
mestu máli í þessu samhengi sé
ekki endilega sú upphæð sem fyr-
irtækið greiðir fyrir ráðgjafavinnu
og söluþóknun, heldur miklu fremur
að umsjónaraðila söluferlisins takist
að fá sem hæst verð fyrir hlutinn
sem til stendur að selja í Gagnaveit-
unni.
Á stjórnarfundi Orkuveitunnar í
lok ágústmánaðar óskaði Kjartan
Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, eftir því að bókuð
yrði athugasemd um þá ákvörðun
OR að ganga til samninga við HF
Verðbréf, en hann telur „furðulegt
að þannig sé staðið að málum, ekki
síst vegna þess að formleg ákvörðun
hefur enn ekki verið tekin um um-
rædda sölu. Æskilegt er að slíkur
umsjónaraðili sé valinn úr hópi við-
urkenndra fjármálafyrirtækja, sem
reynslu hafa af slíkri sölu, á grund-
velli útboðs eða að minnsta kosti
með verðkönnun.“
Forstjórinn hafði heimild
Í samtali við Morgunblaðið við-
urkennir Haraldur Flosi Tryggva-
son, stjórnarformaður Orkuveitunn-
ar, að það væri almennt heppilegra
að standa þannig að málum að bjóða
út slík stærri verk. Hins vegar
bendir hann á að það séu heimildir í
innkaupareglum Orkuveitunnar
sem heimili forstjóra fyrirtækisins
að ganga til samninga um ráðgjafa-
kaup án útboðs, eins og gert hafi
verið í þessu tilfelli, auk þess sem
forstjóri Orkuveitunnar hafi brugð-
ist við athugasemd Kjartans með
því að framkvæma verðkönnun.
Ekki náðist í Bjarna Bjarnason, for-
stjóra OR, við vinnslu fréttarinnar.
Einhver áhöld virðast hins vegar
vera um hversu ítarleg sú verð-
könnun hafi verið. Þegar Morgun-
blaðið leitaði eftir svörum frá öðrum
fjármálafyrirtækjum – MP Banka,
Straumi, Virðingu, Auði Capital og
Arctica Finance – þá kannaðist ekk-
ert þeirra við að Orkuveitan hefði
óskað eftir tilboðum frá þeim til að
hafa umsjón með fyrirhugaðri sölu á
eignarhlut í Gagnaveitu Reykjavík-
ur. Eftir því sem Morgunblaðið
kemst næst var aðeins leitað til
stóru viðskiptabankanna eftir verð-
tilboðum.
Kjartan Magnússon segir í sam-
tali við Morgunblaðið að sala á op-
inberum eignum sé ætíð viðkvæm
og þess vegna sé hann þeirrar skoð-
unar að það hefði verið „heppilegra“
ef Orkuveitan hefði óskað eftir til-
boðum, á grundvelli útboðs, til að
hafa umsjón með söluferlinu.
„Þarna er um að ræða sölu á op-
inberu fyrirtæki og ljóst að upp-
hæðirnar eru verulegar,“ segir
Kjartan.
Aðspurður hvort ekki hafi verið
réttlætanlegt að standa að málum
með þessum hætti, í ljósi þess að
sumir telji mikilvægt að hraða sölu-
ferlinu vegna stórra afborgana OR
sem falla í gjalddaga í byrjun næsta
árs, bendir Kjartan á að stjórn
Orkuveitunnar hafi haft nægan tíma
til að fara í útboð með þetta verk-
efni. „Ég lagði fram tillögu um sölu
fyrirtækisins í mars á síðasta ári,“
segir Kjartan, en skömmu síðar
samþykkti stjórn OR að vísa tillög-
unni til eigendanefndar Orkuveitu
Reykjavíkur.
Samið um umsjón á sölu
Gagnaveitunnar án útboðs
HF Verðbréf sér um söluna Aðeins stóru bankarnir beðnir um verðtilboð
Morgunblaðið/Ómar
Sala Fyrirhuguð sala á GR mun líklega fara brátt fyrir stjórn OR.
Sala Gagnaveitunnar
» OR búið að ganga frá samn-
ingi og söluþóknun við HF
Verðbréf til að hafa umsjón
með fyrirhugaðri sölu. Ekki tal-
in þörf á útboði.
» Stjórnarformaður OR segir
að gerð hafi verið verðkönnun
eftir athugasemd borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins.
» Ekkert af smærri fjármála-
fyrirtækjunum kannast við að
OR hafi óskað eftir tilboði til að
hafa umsjón með sölunni.
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012
Norska verslanakeðjan Europris
hefur ákveðið að hætta smásölu-
verslun á Íslandi og verður þremur
verslunum fyrirtækisins hér á
landi, á Dalvegi í Kópavogi, Fiski-
slóð í Reykjavík og á Selfossi, lok-
að.
Vaxandi samkeppni
og erfiðleikar í rekstri
Fyrsta Europris-verslunin á Ís-
landi var opnuð í júlí 2002 og voru
verslanirnar sex talsins hér á landi
þegar mest var.
Vaxandi samkeppni og erfiðleikar
í rekstri eru helstu ástæður þess að
ákvörðun hefur verið tekin um að
hætta starfsemi verslana Europris
á Íslandi, samkvæmt því sem Pet-
ter Wilskow, lögfræðingur hjá Eu-
ropris í Noregi, sagði í samtali við
mbl.is í gær.
Spurður hversu margir mundu
missa vinnuna á Íslandi vegna lok-
urnar þeirra þriggja verslana sem
Europris hefur rekið að undanförnu
hér á landi, sagði Petter Wilskow
að 46 manns misstu vinnuna.
Europris hættir
starfsemi á Íslandi
46 manns munu missa atvinnu sína
Morgunblaðið/Sverrir
Hættir Verslun Europris við Fiskislóð og tvær aðrar hætta nú starfsemi.
● Atvinnuleysi jókst um 1,7% á Spáni í
september og eru nú 4,7 milljónir Spán-
verja án atvinnu, samkvæmt upplýs-
ingum frá vinnumálaráðuneyti Spánar.
Spánverjum í atvinnuleit fjölgaði um
11,3% í september í ár frá sama mán-
uði í fyrra. Atvinnuleysi jókst mest í
þjónustu en dróst saman í landbúnaði,
byggingariðnaði og iðnaði.
Samkvæmt tölum frá Hagstofu
Spánar, sem notar önnur viðmið við út-
reikninga á atvinnuleysi en vinnu-
málaráðuneytið, var atvinnuleysið
24,63% í lok júní og er atvinnuleysi
hvergi jafnmikið á Vesturlöndum. Sam-
kvæmt opinberum spám er talið að at-
vinnuleysi verði 24,6% í lok þessa árs
en í lok ársins 2013 verði það komið
niður í 23,3%.
4,7 milljónir án atvinnu
● Hugbúnaðarfyrirtækið Google er nú
næstverðmætasta tæknifyrirtæki
heims og veltir þar með Microsoft úr
sessi niður í þriðja sætið. Þetta kom
fram á vef Bloomberg-fréttaveitunnar í
gær. Þessi þróun er rakin til þess að
fólk sinnir tölvuvinnslu í auknum mæli á
netinu.
Fram kemur að markaðsvirði Google
sé tæpir 250 milljarðar dollara, en
Microsoft sé metið á liðlega 247 millj-
arða dollara.
Google í annað sæti
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.-
+//.,0
+,1.0/
,+.-2+
,+.123
+3.210
+-+.2-
+.1441
+3/.34
+1/.,2
+,-.1/
+//.4,
+,1.32
,+.0,-
,+.2-,
+3.45/
+-,
+.13,+
+/5.00
+1/.4+
,,5.40/3
+,-.33
,55.,
+,2.,-
,+.031
,+.2/2
+3.420
+-,.-4
+.1324
+/+.5+
+25.+2
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á