Morgunblaðið - 03.10.2012, Page 23
23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012
Skokkað í Laugardal Það er hressandi og mannbætandi að stunda hreyfingu utandyra á svölum haustdegi.
Styrmir Kári
Fjárlagafrumvarpið
2013 felur í sér hugs-
analega seinkun á bygg-
ingu fimm stjörnu lúx-
ushótelfangelsis fyrir 56
lúxusfanga á Hólmsheiði.
Upp kemur sú hugsun, að
seinkunin kunni að stafa
af því, að sérstakur sak-
sóknari sé á eftir áætlun
með ákærur á hendur
bankaræningjunum, en
óhugsandi er annað en
bjóða þeim fimm stjörnu lúxusgistingu,
ef þeir fá fangelsisdóma. Að vísu gefa
síðustu atburðir til kynna, að þeir muni
allir sleppa með einhvers konar sam-
félagsþjónustu í stað fangelsisvistar og
sinna henni sem háttlaunaðir starfs-
menn hinna ýmsu lögfræðistofa og fjár-
málafyrirtækja.
Ögmundur segir að tukthúsið muni
rísa og virðist mjög ánægður með nýja
fangelsið á Hólmsheiði, sem á að kosta
á þriðja milljarð króna, eða um 20-25
milljónir bandaríkjadala. Líklegt er að
sú upphæð eigi eftir að hækka mikið,
eins og venja er um opinberar fram-
kvæmdir. Fangelsið virðist helzt eiga
að verða minnisvarði um arkitektúr
hrunáranna 2007-2008, enda ekkert til
sparað í undirbúningi þess, og dýrustu
lausnir valdar. Þegar hefur verið bent
á, að gamla fólkið, sem dvelur á hjúkr-
unar- og elliheimilum, myndi gjarnan
vilja skipta við fangana, því að aðbún-
aður þess er mun lakari.
Í fyrravetur var ég staddur í Florida
og hitti þar bandarískan vin minn.
Hann er gamall byggingarverktaki og
þekkir byggingariðnaðinn í Bandaríkj-
unum út og inn. Ég sagði honum, að til
stæði að byggja nýtt
fangelsi fyrir um 50 fanga
á Íslandi nálægt Reykja-
vík. Það ætti að kosta um
25 milljónir Bandaríkja-
dala. Hann missti málið
um stund en sagði svo:
„Ég get tekið upp sím-
ann, hringt og pantað eitt
stykki fangelsi fyrir 50,
100 eða 150 fanga af lag-
er. Tilsniðið efni yrði af-
greitt og sent á bygging-
arstað innan sex vikna frá
greiðslu. Það myndi síðan
taka um þrjá mánuði að reisa og ljúka
byggingarframkvæmdum. Kostnaður
við byggingu 50 fanga fangelsis ætti
ekki að verða meiri en sem nemur
tveimur milljónum bandaríkjadala“
(um 250 milljónir króna). Sem sagt, í
Bandaríkjunum er kostnaður við að
byggja sambærilegt tugthús um 10% af
því sem nýja fangelsið mun kosta. Og
nýlega hefur komið fram, að kostnaður
við arkitektasamkeppni um hönnun
hins nýja fangelsis er svipaður og heild-
arkostnaður við að byggja bandaríska
fangelsið. Sem sagt, teikningarnar ein-
ar sér á Íslandi kosta meira en fang-
elsið í Bandaríkjunum. Er nema von,
að þessi þjóð sé á hausnum? Var ekki
hægt að kaupa vinnubúðirnar á Reyð-
arfirði og flytja þær á Hólmsheiði?
Eftir Júlíus Sólnes
» Sem sagt, teikning-
arnar á Íslandi kosta
meira en fangelsið í
Bandaríkjunum.
Júlíus Sólnes
Höfundur er eftirlaunaþegi.
Lúxusfangelsi
fyrir lúxusfanga
Vinstri ríkisstjórn
Jóhönnu Sigurð-
ardóttur og Steingríms
J. Sigfússonar á undir
högg að sækja. Stjórn-
arliðar gera sér engar
vonir um að rík-
isstjórnin haldi velli í
komandi kosningum.
Þeir biðla því til ann-
arra „félagshyggju-
flokka“ um að veita
þeim liðsinni svo hægt sé að sitja
áfram að heitum kjötkötlunum.
Staðan er viðkvæm og ekkert má
út af bera. Þrátt fyrir fögur loforð
hefur störfum ekki fjölgað og í stað
þess að horfast í augu við stað-
reyndir dregur forsætisráðherra töl-
ur Hagstofunnar í efa. Fjárlaga-
frumvarp fyrir komandi ár byggist á
veikum grunni með gamalkunnugum
kosningaloforðum. Fáir treysta for-
sendum frumvarpsins og jafnvel
stjórnarliðar efast.
Í pólitískri angist er nauðsynlegt
að beina athyglinni að öðru en því
sem máli skiptir. Slíkt brella hefur
oft gefist vinstri ríkisstjórninni vel. Í
moldviðri er hægt að fela það sem
miður fer.
Grafið undan trúverðugleika
Með skipulegum hætti hefur for-
maður fjárlaganefndar reynt að
grafa undan trúverðugleika Rík-
isendurskoðunar. Þar ber hann fyrir
sig að stofnunin hafi dregið úr hófi að
skila skýrslu um kaup á fjárhags-
upplýsingakerfi fyrir ríkið.
Um það verður ekki deilt að vinnu-
brögð Ríkisendurskoðunar við
skýrslugerðina eru ámælisverð.
Undir það hefur ríkisendurskoðandi
tekið. Það getur aldrei talist ásætt-
anlegt að eftirlitsstofnun taki átta ár
að ganga frá skýrslu sem Alþingi
hefur óskað eftir. En í þrjú ár hefur
formaður fjárlaganefndar vitað að
drög að skýrslunni væru tilbúin en
gerði ekkert til að
fylgja málinu eftir fyrr
en nú þegar stutt er til
kosninga og ganga þarf
frá fjáraukalögum árs-
ins og fjárlögum kom-
andi árs.
Að frumkvæði for-
manns hefur meirihluti
fjárlaganefndar ákveð-
ið að óska ekki eftir um-
sögn Ríkisendurskoð-
unar á fjáraukalögum.
Því er borið við að trún-
aðarbrestur hafi orðið á
milli Alþingis og stofnunarinnar
vegna þess dráttar sem orðið hefur á
umræddri skýrslu. Þó hefur Rík-
isendurskoðun lagt fyrir Alþingi á
hverju einasta ári heildarskýrslu um
störf sín. Ekki verður séð að þing-
menn hafi gert athugasemdir.
Skýring formanns fjárlaganefndar
stenst enga skoðun. Vandséð er
hvernig meirihluti fjárlaganefndar
getur komist að þeirri niðurstöðu
fyrir hönd Alþingis að trún-
aðarbrestur sé fyrir hendi. Ástæður
meirihlutans eru aðrar og dýpri. Það
er verið að beina athyglinni frá fjár-
aukalögum og fjárlögum. Um leið er
hafinn undirbúningur að því að
draga broddinn úr þeim aðfinnslum
sem Ríkisendurskoðun kann að setja
fram við stjórnun ríkisfjármála fram
að kosningum.
Alvarlegar athugasemdir
og gagnrýni
Aðhald að framkvæmdavaldinu er
helsta hlutverk Ríkisendurskoðunar,
sem starfar í skjóli Alþingis og undir
stjórn þess samkvæmt lögum. Hún á
að „endurskoða ríkisreikning og
reikninga þeirra aðila sem hafa með
höndum rekstur og fjárvörslu á veg-
um ríkisins,“ segir í 1. grein laga um
Ríkisendurskoðun. Stofnunin getur
framkvæmt stjórnsýsluendurskoðun
en einnig skal hún „annast eftirlit
með framkvæmd fjárlaga og vera
þingnefndum til aðstoðar við störf er
varða fjárhagsmálefni ríkisins“.
Ríkisendurskoðun er því ein mik-
ilvægasta stofnun landsins og for-
senda þess að Alþingi og almenn-
ingur geti veitt framkvæmdavaldinu
nauðsynlegt aðhald. Engu skiptir
hvaða ríkisstjórn situr að völdum.
Nokkur dæmi
Í samræmi við lagalegar skyldur
sínar hefur Ríkisendurskoðun ítrek-
að sett fram alvarlegar athugasemd-
ir og gagnrýni á fjármálastjórn rík-
isins í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu
Sigurðardóttur og Steingríms J. Sig-
fússonar. Hvorugu er vel við gagn-
rýni, eins og þekkt er.
Samkvæmt ákvörðun Steingríms
J. Sigfússonar fjármálaráðherra tók
ríkissjóður þátt í björgun Sjóvár með
11,6 milljarða króna framlagi. Rík-
isendurskoðun gerði athugasemdir
við þetta og benti á að ekki væri ljóst
hvaða lagaheimildir fjármálaráð-
herra hefði til þessa.
Ríkissjóður tók á sig skuldbind-
ingar vegna yfirtöku Arion banka hf.
á innstæðum í SPRON hf. og yf-
irtöku Íslandsbanka hf. á innstæðum
í Straumi-Burðarási hf. Ríkisend-
urskoðun taldi það ámælisvert að
ekkert væri getið um þessar skuld-
bindingar í ríkisreikningi árið 2009
líkt og reikningsskilareglur gera ráð
fyrir.
Ríkisendurskoðun gagnrýndi
hvernig staðið var að lækkun launa
samkvæmt tilmælum sem rík-
isstjórnin gaf út í ágúst 2009. Gagn-
rýnin beindist fyrst og fremst að
fjármálaráðuneytinu.
Ríkisendurskoðun hefur ítrekað
gert athugasemdir og gagnrýnt að
fjármálaráðuneyti fái svokallaðar
„opnar heimildir“ á fjárlögum vegna
stofnfjárframlaga og útgjalda. Þann-
ig var ekkert tillit tekið til útgjalda
ríkissjóðs vegna SpKef þó vitað hafi
verið að kostnaðurinn yrði a.m.k.
11,2 milljarðar króna. Þegar upp er
staðið er ljóst að skattgreiðendur
þurfa að standa undir allt að 25 millj-
örðum vegna sparisjóðsins, að teknu
tilliti til vaxta.
Þannig má lengi telja. Ríkisend-
urskoðun hefur bent á að stórra
skuldbindinga ríkissjóðs sé í engu
getið í ríkisreikningi – séu utan efna-
hags. Þannig gefur ríkisreikningur
skakka mynd af stöðu ríkissjóðs.
Þess er að vænta að Ríkisend-
urskoðun geri til dæmis alvarlegar
athugasemdir við hvernig „fela“ á
skuldbindingar ríkissjóðs vegna
Vaðlaheiðaganga.
100 skýrslur
Alþingi hefur fengið um 100
skýrslur frá Ríkisendurskoðun frá
árinu 2008. Með þeim hefur stofn-
unin veitt framkvæmdavaldinu að-
hald sem annars væri ekki fyrir
hendi og fengið alþingismönnum í
hendur tæki og tól til að sinna eft-
irlitshlutverki sínu.
Það er fullkomlega eðlilegt að
þingmenn geri alvarlegar at-
hugasemdir við að Ríkisendurskoðun
gangi ekki hratt til verks og skili ekki
umbeðnum skýrslum innan ákveðins
tíma. En mikið væri það gleðilegt ef
þingmenn eyddu jafnmiklum tíma til
að ræða þær skýrslur sem þegar
liggja fyrir og þeir hafa gert um
skýrslu sem ekki er tilbúin. Í þessu
sambandi má benda á úttekt Rík-
isendurskoðunar á ríkisábyrgðum og
öðrum fjárhagsskuldbindingum sem
ekki koma fram í fjárlögum eða fjár-
aukalögum. Skýrslan var unnin að
beiðni Péturs H. Blöndal, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins, og hefur legið
fyrir frá því í janúar. Þar er um
hundruð milljarða að ræða og gríð-
arlega hagsmuni, ekki síst fyrir kom-
andi kynslóðir.
En það hentar ekki meirihluta
fjárlaganefndar að beina athyglinni
að ríkisábyrgðum eða öðrum fjár-
hagslegum skuldbindingum sem rík-
ið hefur tekið á sig, beint og óbeint.
Ekki frekar en að axla ábyrgð á að
halli ríkissjóðs á síðasta ári var 52
milljörðum króna meiri en samþykkt
fjárlög sem nefndin vann að. Að ekki
sé talað um afgreiðslu meirihluta
fjárlaganefndar á fjáraukalögum þar
sem horft var framhjá augljósum út-
gjöldum. Niðurstaðan var sú að hall-
inn var 42 milljörðum meiri en fjár-
aukalög leyfðu. Einhver hefði talað
um trúnaðarbrest við fjármálastjórn
ríkisins af minna tilefni.
„… erfitt að blekkja aðra …“
Ríkisendurskoðandi er starfs-
maður Alþingis samkvæmt lögum og
ber ábyrgð gagnvart því. Í annarri
grein laga um stofnunina segir að
forsætisnefnd Alþingis geti, „að
fengnu samþykki Alþingis, vikið rík-
isendurskoðanda úr starfi“.
Ef meirihluti fjárlaganefndar er á
því að trúnaðarbrestur hafi orðið
milli ríkisendurskoðanda og Alþing-
is, ber meirihlutanum að leggja til við
forsætisnefnd að viðkomandi verði
vikið úr starfi. Í framhaldinu verður
forsætisnefnd að óska eftir sam-
þykkis Alþingis. Komi slík tillaga
ekki fram er ekki hægt að draga aðra
ályktun en að um pólitískan leik-
araskap hafi verið að ræða.
Franski rithöfundurinn Francois
de la Rochefoucauld sagði einhverju
sinni:
„Það er jafnauðvelt að blekkja
sjálfan sig án þess að taka eftir því og
það er erfitt að blekkja aðra svo þeir
komist ekki að því.“
Forráðamenn vinstri ríkisstjórn-
arinnar og meirihluti fjárlaganefnd-
ar ættu að hafa þessi orð franska rit-
höfundarins í huga.
Eftir Óla Björn
Kárason »Mikið væri gleðilegt
ef þingmenn eyddu
jafnmiklum tíma til að
ræða skýrslur sem þeg-
ar liggja fyrir og þeir
hafa gert um skýrslu
sem ekki er tilbúin.
Óli Björn Kárason
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Pólitísk atlaga að Ríkisendurskoðun