Morgunblaðið - 03.10.2012, Side 4

Morgunblaðið - 03.10.2012, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mjög hefur dregið úr nýfram- kvæmdum og viðhaldi eigna Reykja- víkurborgar í Breiðholti, Árbæ og Selási undanfarin ár. Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi segir að tölur sem hann fékk frá fram- kvæmdasviði borgarinnar staðfesti þetta. Þessi hverfi hanga saman í kostnaðargreiningu framkvæmda- sviðs en gert er ráð fyrir að hlutdeild Breiðholts vegi um 70% af heildar- tölu þessara þriggja borgarhverfa. „Margir íbúar í Breiðholti hafa haldið því fram við mig að viðhaldi gatna í hverfinu og fasteigna í eigu borgarinnar sé ábótavant,“ sagði Júlíus Vífill. Hann sagði þetta einkar athyglisvert í ljósi þess að samstarf núverandi meirihluta borgarstjórnar hafi verið kynnt uppi á þaki við Æsu- fell sumarið 2010 auk yfirlýsinga meirihlutans um að nú væri komið að Breiðholtinu. Júlíus Vífill sagði að fyrri meiri- hluti hefði vissulega þurft að draga úr framkvæmdum og viðhaldi eigna og gatna eftir hrunið 2008. Jafnvægi hefði átt að vera komið á rekstur borgarinnar hvað þetta varðar þegar kom fram á árið 2010. Hann sagði að sér hefði þótt sláandi að sjá hversu mjög framlög til Breiðholts, Árbæj- ar og Seláss höfðu dregist saman eft- ir að nýr meirihluti tók við. „Það dró úr viðhaldi og rekstri vega í Breiðholti um 67% á milli ár- anna 2010 og 2011. Á sama tímabili var dregið úr hreinsun borgarlands- ins þar um 22%. Í heildina drógust fjárveitingar vegna viðhalds og reksturs gatnakerfis, götugagna og borgarlands í Breiðholti saman um 24% á milli áranna 2010 og 2011. Stofnkostnaður við fasteignir og búnað í Breiðholti dróst saman um 50% á milli áranna 2010 og 2011,“ sagði Júlíus Vífill. Hann ætlar að óska eftir sambærilegum upplýsing- um um önnur hverfi í Reykjavík. „Borgarbúar eiga rétt á að vita hvernig borgin sinnir viðhaldi eigna. Við sem sitjum í borgarstjórn eigum að hafa upplýsingar um það hvort jafnræðis sé gætt milli hverfa svo hægt sé að bregðast við ef þörf kref- ur,“ sagði Júlíus Vífill. Miklu minna til framkvæmda  Íbúar í Breiðholti segja viðhaldi borgareigna ábótavant Framlög til Breiðholts árin 2008-2012 Viðhald og rekstur gatnakerfis, götugagna og borgarlands í Breiðholti. Raunkostnaður hvers árs á verðlagi 2012 Endurgerð Stofnkostnaður við fasteignir og búnað (Uppreikn. bvt. 575) Framkvæmdir við götur, gönguleiðir, opin svæði og annar frágangur *Fyrstu 6 mánuði ársins Heimild: Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar 2008 2009 2010 2011 2012 1.907.288.647 kr. 819.510.244 kr. 679.350.566 kr. 476.017.639 kr. 386.740.572 kr. 64.000.000 1.338.575.000 66.207.076 438.506.571 337.424.838 379.737.000 249.736.736 317.507.000 189.234.266 160.484.000 93.990.572* 110.000.000 51.000.000 51.348.406 43.106.830 69.000.000 105.000.000 21.299.373 39.750.000* 143.000.000 Morgunblaðið/Ernir Breiðholt Dregið hefur úr framlögum til framkvæmda borgarinnar í hverf- inu. Unnið var að viðhaldi lóðar Fellaskóla þegar myndin var tekin 2010. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Tilboð var í verslunum Nettó um síð- ustu helgi á hálfum niðursöguðum lambskrokki frá SS á 798 krónur kílóið. Hafa aðrar verslanakeðjur ekki farið neðar en í kringum 900 krónur kílóið af niðursöguðum skrokkum, eftir því sem næst verður komist. Verðið hjá Nettó er orðið æði nálægt því sem þarf að borga ef menn láta slátra fyrir sig í sláturhúsi og taka lambskrokkana heim, hvað þá ósagaða eins og mörg dæmi eru um. Sum sláturhús hafa þó boðið ókeypis niðursögun í allt að sjö bita. Samkvæmt upplýsingum frá Landssamtökum sauðfjárbænda er meðalverð til bænda fyrir lamba- kjötið 563 kr/kg, með virðisauka- skatti, og heimtökukostnaður slátur- húsanna er að jafnaði 210 kr/kg, einnig með vsk. Samanlagt er þetta 773 kr. fyrir kílóið, eða 25 krónum lægra en tilboðið í Nettó. Ef virð- isaukaskatturinn er tekinn af ætti meðalverð út úr sláturhúsi að lág- marki að vera 693 kr/kg en heim- tökukostnaður til bænda ber fullan vsk. þó að kjötið sjálft sé með 7% vsk. Í tilviki sauðfjárbændanna sjálfra greiða þeir eingöngu heim- tökukostnaðinn ef þeir taka eigin skrokka heim. Fá 35-50% af skrokknum Sigurður Eyþórsson, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka sauð- fjárbænda, segir ljóst að miðað við tilboðið í Nettó sé álagningin vissu- lega lág, hvernig sem hún skiptist á milli sláturhússins og verslunarinn- ar. Um óvenjulágt verð sé að ræða. Samtökin tóku það saman eftir sláturtíðina í fyrra að þá voru bænd- ur að fá greitt fyrir 35-50% af lamb- skrokknum, mismunandi eftir versl- unum. „Okkur fannst það nú ekkert alltof hátt hlutfall. Það er alveg ljóst að ef menn geta selt kílóið á 798 krónur þá er verið að taka minna til sín. Þetta hefur ekki komið niður á verðinu til bænda,“ segir Sigurður, sem almennt er sáttur við kjötsöluna það sem af er árinu á innanlands- markaði. Lambakjötið hafi fest sig í sessi sem mest selda kjötið á eftir alifuglunum. Útflutningsmarkaðir hafi hins vegar gefið eftir, sér í lagi í Evrópu. Elías Þór Þorvarðarson, inn- kaupastjóri ferskvöru hjá Samkaup- um, sem eiga og reka verslanir Nettó, segir Samkaup hafa náð hag- stæðum kjörum hjá SS á miklu magni af skrokkum. Viðtökur neyt- enda hafi verið mjög góðar og lamba- kjötið rokið út. Elías segir það koma sér vel fyrir sláturhúsin á þessum árstíma að koma kjötinu sem mest út þannig að lagerplássin fyllist ekki. „Við erum með þessu að fá kjötið á mun hagstæðara verði en alla jafna. Það er hins vegar ekkert launung- armál að við ríðum heldur ekki feit- um hesti frá þessum tilboðum sem slíkum,“ segir Elías Þór. Óvenjulágt verð á lamba- kjöti í Nettó  Lítið ódýrara að láta slátra fyrir sig Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lambakjöt Sláturhúsin keppast við að setja kjötið á markað. Sláturtíð » Sláturtíðin stendur sem hæst og margir bændur taka skrokka heim af sláturhús- unum til eigin nota. » Miðað við tilboðið í versl- unum Nettó er það ekki mikið dýrara að kaupa kjötið nið- ursneitt þar heldur en fá skrokkana heim, kannski ósag- aða og óunna. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Uppboð fór fram í Malmö í Svíþjóð um helgina hjá uppboðsfyrirtækinu Postiljonen. Þátttaka var mjög góð og hátt verð fékkst fyrir munina. Gátu uppboðshaldarar þess sér- staklega að hafa aldrei fyrr séð jafn marga bjóðendur frá Íslandi. Alls seldust þar íslensk frímerki fyrir um 215 þúsund evrur, jafnvirði um 34 milljóna króna. Að sögn Magna R. Magn- ússonar safnara voru fjölmörg frí- merki og frímerkjabréf í boði, auk gamalla frímerkjahefta, og dæmi um einstaka sölu upp á ríflega 2.000 evr- ur, jafnvirði um 320 þúsund króna, og eru umboðslaun þá ótalin. Magni segir engin íslensk skildingabréf hafa verið á uppboðinu en þau eru mjög verðmæt og fara jafnan á 3-5 milljónir króna. Mörg íslensku frímerkjanna að þessu sinni voru frá aldamótunum 1900, bæði fyrir og rétt eftir. „Það er ekki ónýtt að finna nokkur gömul bréf frá langömmu eða langafa og fá fyrir það allt að 300 þúsund krónur,“ segir Magni. Eitt verðmætasta frímerkja- bréfið á uppboðinu var frá Þýska- landi og fór það á 18.500 evrur, eða nærri 3 milljónir króna. Þá seldist blokk af frímerkjum með mynd af hauskúpu af Hitler á 17.500 evrur. Íslensk frímerki seld á uppboði fyrir 34 milljónir Ljósmynd/Postiljonen.se Selt Þetta hefti með gömlum ís- lenskum frímerkjum seldist dýrt.  Fjölsótt uppboð hjá Postiljonen Milljónavelta » Postiljonen í Svíþjóð er stærsta uppboðsfyrirtæki með frímerki á Norðurlöndunum og með þeim stærstu í Evrópu, stofnað árið 1968. » Tvö stór uppboð fara fram árlega. Postiljonen veltir 3-4 milljónum evra á ári. Skúli Hansen skulih@mbl.is „Samkvæmt viðtali við mig í gær hafði verið um misskilning að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá Trygg- ingastofnun er það ennþá í gildi að séreignarsparnaður hefur almennt ekki áhrif. Hann hafði það hinsvegar fyrir nokkrum árum og þess vegna heldur fólk jafnvel í dag að hann hafi áhrif, sumir eru að taka þetta út vegna þess,“ segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Lands- sambands eldri borgara, spurð út í ummæli sín sem birtust í Morgun- blaðinu í gær þess efnis að séreign- arlífeyrissparnaður gæti haft áhrif á tekjur eldri borgara frá Trygginga- stofnun. Tryggingastofnun birti í gær til- kynningu á heimasíðu sinni vegna fyrrnefndrar fréttar en þar segir m.a.: „Sér- eignarsparnaður hefur almennt ekki áhrif á út- reikning lífeyris- greiðslna (elli-, örorku-, slysa- og endurhæfingar- lífeyris og tengdra greiðslna) frá Tryggingastofnun. Úttekt séreignarsparnaðar hefur eingöngu áhrif á uppbætur á lífeyri, þ.e.a.s. uppbót vegna kostnaðar (t.d. mikils lyfjakostnaðar) og sérstaka uppbót vegna framfærslu, svokall- aða lágmarksframfærslutryggingu, sem tryggir öllum lífeyrisþegum lág- marksgreiðslu ef tekjur þeirra eru undir ákveðnum viðmiðum.“ Skerðir ekki lífeyrisgreiðslur  Segir fólk halda að skerðing gildi enn Jóna Valgerður Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.