Morgunblaðið - 03.10.2012, Side 8

Morgunblaðið - 03.10.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012 Jón Magnússon, fyrrverandi al-þingismaður, telur virðing- arvert að héraðsdómari sem ekki hafi viljað „taka þátt í löglausum athöfnum hafi horfið frá rannsókn á falli sparisjóð- anna“.    Sama staðfestaog virðing fyrir lögum hafi ekki ein- kennt störf Rann- sóknarnefndar Al- þingis. Minnt er m.a. á að rannsóknarnefndin réði ekki við að virða skýr brot á vanhæfisreglum sem vörðuðu nefndina sjálfa.    Svo segir:„Verst var þó vanvirðing nefndarinnar á andmælarétti, sem eingöngu var til málamynda. Það að birta ekki andmæli í hinni prentuðu skýrslu sýndi best hug- arfar skýrsluhöfunda. Auk þess var þar um algeran dónaskap að ræða í garð þeirra sem sendu and- mæli. Skýrsla rannsóknarnefndar Páls (Hreinssonar) og félaga var ekki byggð á rannsókn hlutlausra aðila. Hún er stemningsskýrsla en ekki vönduð staðreyndaskýrsla. Þetta sést vel á framsetningu, vali og meðferð upplýsinga.    Ýmsir, þ.á m. forseti Íslands,hafa bent á að skýrslan er full af staðreyndavillum og röngum ályktunum.“    Í lok eftirtektarverðs pistils JónsMagnússonar segir: „Það er umhugsunarefni hvort að skipan og vinnubrögð pólitískra rannsóknarnefnda standist grund- vallarmannréttindi um réttláta málsmeðferð.    Löglaus vinnubrögð slíkranefnda eru ávísun á pólitíska misnotkun og pöntuð álit.“ Jón Magnússon Flæðir undan skýrslu STAKSTEINAR Veður víða um heim 2.10., kl. 18.00 Reykjavík 8 skýjað Bolungarvík 2 alskýjað Akureyri 3 alskýjað Kirkjubæjarkl. 7 skýjað Vestmannaeyjar 8 heiðskírt Nuuk 5 skýjað Þórshöfn 9 skýjað Ósló 12 skýjað Kaupmannahöfn 13 heiðskírt Stokkhólmur 13 léttskýjað Helsinki 12 skýjað Lúxemborg 12 skýjað Brussel 16 léttskýjað Dublin 12 léttskýjað Glasgow 12 léttskýjað London 16 skýjað París 18 heiðskírt Amsterdam 15 léttskýjað Hamborg 16 skýjað Berlín 18 heiðskírt Vín 14 skúrir Moskva 12 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt Madríd 23 heiðskírt Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 25 léttskýjað Róm 22 léttskýjað Aþena 27 léttskýjað Winnipeg 17 léttskýjað Montreal 17 skýjað New York 17 skúrir Chicago 20 léttskýjað Orlando 27 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 3. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:45 18:50 ÍSAFJÖRÐUR 7:52 18:52 SIGLUFJÖRÐUR 7:35 18:35 DJÚPIVOGUR 7:15 18:19 Egill Ólafsson egol@mbl.is Skiptir það máli þegar gefin var út ákæra í máli Gunnars Andersens, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeft- irlitsins, að Helgi Magnús Gunn- arsson vararíkissaksóknari sótti um starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins árið 2009 þegar Gunnar fékk starf- ið? Um þessa spurningu var tekist á í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Guðjón Ólafur Jónsson, verjandi Gunnars, krefst þess að málinu verði vísað frá, en Helgi Magnús telur engar forsendur vera fyrir frávísun. Nítján sóttu um starf forstjóra FME árið 2009, en í þeim hópi voru bæði Gunnar og Helgi Magnús. Gunnar var valinn eftir að hæfn- isnefnd hafði metið hann hæfastan umsækjenda. Sagði niðurstöðuna áfall fyrir Helga Magnús Guðjón Ólafur sagði í réttinum í gær, að það hefði væntanlega verið áfall fyrir Helga Magnús að fá ekki starfið og fá þá umsögn að hann væri ekki eins hæfur og Gunnar. Hann benti á að við útgáfu ákæru bæri saksóknara bæði að horfa til atvika sem gætu leitt til sýknu og sektar. Guðjón Ólafur sagði að það væri ekki útilokað að samkeppni Gunnars og Helga Magnúsar um starfið hefði haft áhrif á störf Helga Magnúsar þegar hann tók ákvörðun um að gefa út ákæru í málinu. Guðjón Ólafur minnti á að það væri ekki nóg að ná fram réttlæti í sakamáli. Réttlætið yrði einnig að vera sýnilegt. Helgi Magnús hafnar því alger- lega að nokkurt tilefni sé til að vísa málinu frá á þessum grunni. Hann sagði að hann hefði aldrei látið í ljós neina skoðun á því mati sem fór fram 2009 þegar Gunnar var ráðinn. Hann hefði aldrei látið í ljósi neina vanlíðan vegna þeirrar niðurstöðu sem varð þegar ráðið var í starfið. Raunar sagðist Helgi Magnús ekki hafa getað varist brosi þegar Guðjón Ólafur lýsti því áfalli sem hann hefði orðið fyrir vegna þess að hann fékk ekki starfið. Helgi Magnús sagðist aldrei hafa dregið í efa hæfi Gunnars til að gegna starfinu. Þvert á móti sagðist hann telja að Gunnar hefði verið ein- staklega hæfur í sínu starfi. Helgi Magnús sagði að ef kröfur Gunnars væru teknar til greina væru fá tengsl sem ekki myndu leiða til vanhæfis. Hann spurði hvort dómari eða saksóknari ætti að víkja sæti ef þeir hefðu spilað saman fót- bolta tíu árum áður. Engin tengsl, sem mögulega vörðuðu efnisatriði málsins, væru fyrir hendi sem gætu leitt til vanhæfis. Úrskurðar um frá- vísun er að vænta 10. október. Veldur starfs- umsókn vanhæfi?  Krefst frávísunar á máli forstjóra FME Gunnar ákærður » Gunnar er ákærður fyrir brot á þagnarskyldu með því að brjóta bankaleynd og fyrir brot í opinberu starfi. » Gunnar fékk, samkvæmt ákæruskjali, starfsmann Landsbankans til að afla gagna úr bókhaldi bankans um við- skipti Bogamannsins ehf. sem hann afhenti þriðja manni en um var að ræða skjal sem sýndi að bankinn greiddi kr. 32 milljónir inn á bankareikning Bogamannsins 13. júní 2003. Helgi Magnús Gunnarsson Guðjón Ólafur Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.