Morgunblaðið - 03.10.2012, Side 13

Morgunblaðið - 03.10.2012, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012 Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Ótrúleg sértilbo ð fyrir áskrifendur Mor gunblaðsins Takmarkaður fjöldi sæta í boði! Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferðir, býður áskrifendum sínum frábær tilboð til Sevilla. Fjölbreytt gisting í boði á afar hagstæðum kjörum. Um mjög takmarkaðan fjölda flugsæta er að ræða og gisting er einnig takmörkuð. Hér gildir fyrstur kemur, fyrstur fær! 26. október – 3 nætur Verð frá 84.900 kr. Þú bókar tilboðið á www.heimsferdir.is eða hjá ferðaráðgjöfum okkar í síma 595 1000. Ath. verð getur hækkað án fyrirvara! Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér. Verðdæmi Sevilla Alm. verð Áskr. verð Þú sparar Hotel Catalonia Giralda **** 3 í herbergi með morgunmat 106.900 84.900 22.000 2 í herbergi með morgunmat 109.500 87.900 21.600 1 í herbergi með morgunmat 128.600 102.900 25.700 Tryp Macarena **** 2 í herbergi með morgunmat 110.300 89.900 20.400 1 í herbergi með morgunmat 134.300 109.900 24.400 Hotel Abba Triana ****+ 2 í herbergi með morgunmat 111.500 89.900 21.600 1 í herbergi með morgunmat 126.500 103.900 22.600 Ótrúlegt verð!Þú getur sparað allt að 25.700 kr.á mann 26. október – verð frá 84.900 kr. Borgarstjórn hefur samþykkt að fela umhverfis- og skipulagssviði og skrifstofu eigna- og atvinnu- þróunar að efna til samráðs um framtíðarnotkun skiptistöðvar- innar á Hlemmi verði hún flutt af reitnum. Áætlun um endurnýjun og uppbyggingu Hlemms verður unnin í nánu samstarfi við nærsamfélagið og hagsmuna- og rekstraraðila í ná- grenni Hlemms, segir í tilkynningu frá borginni. Í greinargerð með tillögunni kemur fram að stefnt er að því að byggja upp litlar og meðalstórar íbúðir á reitum í nágrenni við Hlemm, auk atvinnu-, þjónustu- og gistirýmis. Hugmyndir eru nú uppi um að aðalskiptistöð Strætó verði flutt á Umferðarmiðstöðina (BSÍ), sem borgin hyggst kaupa. Við það myndast talsverður sveigjanleiki í skipulagi í kringum Hlemm og tækifæri skapast til að bæta að- stöðu fyrir gangandi, hjólandi og akandi vegfarendur. Öflugar al- menningssamgöngur munu þó áfram þjóna Hlemmsvæðinu og miðborginni. Miklar breytingar eru í vændum í nágrenni Hlemms, sem býður upp á ný tækifæri fyrir skiptistöðina á Hlemmi. Breyttur Hlemmur Morgunblaðið/Sverrir Hlemmur Skiptistöð Strætó. Björk Vilhelms- dóttir, borg- arfulltrúi og fé- lagsráðgjafi, mun gefa kost á sér í 3.-4. sæti í vænt- anlegu forvali Samfylking- arinnar í Reykja- vík vegna alþing- iskosninga 2013. Björk hefur átt sæti í borgarstjórn í 10 ár en hún starfaði áður m.a. sem svínahirðir, fangavörður og sjómaður og sem fé- lagsráðgjafi hjá Stígamótum, Kvennaráðgjöfinni og á kvennadeild Landspítalans. Hún var formaður BHM 1998-2002. Nái Björk kjöri til Alþingis mun hún hætta sem borgarfulltrúi til að geta einbeitt sér á nýjum vettvangi, segir í fréttatilkynningu um fram- boðið. Björk er gift Sveini Rúnari Hauks- syni heimilislækni. Saman eiga þau fimm börn og þrjú barnabörn. Gefur kost á sér í 3.-4. sæti Björk Vilhelmsdóttir Skúli Hansen skulih@mbl.is Orkuveita Reykjavíkur gæti aflað sér 15 milljarða króna með því að semja við lífeyrissjóðina um að selja þeim Sleggjuna, raforkustöðina á Hellisheiði, í verkefnafjármögnun, að sögn Guðlaugs Sverrissonar, fyrr- verandi stjórnarformanns Orkuveit- unnar. Þá segir hann að upphæðin gæti náð allt að 25 milljörðum króna ef Evrópski fjárfestingarbankinn er tilbúinn til þess að hafa lán sitt áfram hjá Orkuveitunni. „Ég hef bent á það að Sleggjan sem slík er eingöngu að framleiða rafmagn til stóriðju og það er lítið vandamál að taka hana rekstrarlega út úr rekstareiningu Orkuveitunnar og selja hana í verk- efnafjármögnun til lífeyrissjóð- anna,“ segir Guðlaugur í samtali við blaðamann og bætir við: „Þannig að lífeyrissjóðirnir og Orkuveitan kom- ist að samkomulagi um ávöxtunar- kröfuna. Það liggur fyrir sölusamn- ingur á orkunni, það liggur fyrir að virkjunin er komin upp og það er allt klárt til þess að menn geti sest niður og reiknað út hversu langt þetta tímabil þarf að vera til að lífeyris- sjóðirnir fái sína ávöxtunarkröfu greidda.“ Veð í fjárstreyminu Að sögn Guðlaugs eru tekjur af virkjuninni 2,5 til rúmlega 3 millj- arðar á ári ef miðað er við 100% orkusölu. „Á þessu er hægt að semja um verkefnafjármögnun sem gæti gefið Orkuveitunni laust fé á bilinu 15 til 25 milljarða ef Evrópski fjár- festingabankinn er til í að hafa lán sitt áfram hjá Orkuveitunni,“ segir Guðlaugur og bendir á að með þess- ari leið taki lífeyrissjóðirnir veð í fjárstreymi virkjunarinnar en ekki í virkjuninni sjálfri. „Lífeyrissjóðir geta fjárfest í þessu núna. Orkuveitan getur tekið þetta út fyrir reikning núna og allt gengur eðlilega. Það gerist ekkert annað en það að lífeyrissjóðirnir munu fá fullkomin veð á móti þess- um samningi,“ segir Guðlaugur og bendir á að hér væri ekki um einka- væðingu að ræða heldur lán frá líf- eyrissjóðunum sem tryggi þeim örugga ávöxtunarkröfu. Segir OR geta aflað sér 15-25 milljarða Sleggjan Virkjunin á Hellisheiði.  Guðlaugur Sverrisson leggur til að Orkuveitan selji lífeyrissjóðum Sleggjuna í verkefnafjármögnun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.