Morgunblaðið - 03.10.2012, Page 16
Vísbendingar um
bótagildru í kerfinu
Vikið að bótaþegum í rannsókn á börnum í erfiðri stöðu
Verð á nokkrum vörutegundum og þjónustu
Neysluviðmið fyrir fjögurra manna fjölskyldu á höfuðborgarsvæðinu
Mánaðargjald í leikskóla,
börn einstæðra foreldra
(í Reykjavík 8 tíma vistun
<5 ára)
2009
2010
2011
2012
12.207
12.207
12.860
14.477
Mánaðargjald í leikskóla,
börn námsmanna, (í
Reykjavík 8 tíma vistun
<5 ára)
2009
2010
2011
2012
16.799
16.799
21.764
24.501
Mánaðargjald í leikskóla,
fullt gjald (í Reykjavík 8
tíma vistun <5 ára)
2009
2010
2011
2012
20.665
20.665
21.764
24.501
Mánaðargjald í leikskóla,
börn einstæðra foreldra
(í Reykjavík 4 tíma vistun
<4 ára)
2009
2010
2011
2012
4.243
4.243
4.470
5.032
Strætisvagnaferð
fullorðinna í Reykjavík,
stakt fargjald, ferð
2009
2010
2011
2012
227
227
273
273
Strætisvagnaferð barna í
Reykjavík, afsláttarmiði,
ferð
2009
2010
2011
2012
38
38
40
45
Klipping karla, gjald
2009
2010
2011
2012
3.804
3.832
4.031
4.120
Klipping kvenna, gjald
2009
2010
2011
2012
5.794
6.138
6.487
6.830
Klipping barna, gjald
2009
2010
2011
2012
2.599
2.599
3.083
3.193
Dæmigert viðmið
Grunnviðmið
Heildarútgjöld fjölskyldu án
húsnæðiskostnaðar
Samgöngur
Útgjöld án samgangna og
húsnæðiskostnaðar
Tómstundir og afþreying
Þjónusta (leikskólagjöld falla í
þennan flokk)
Neysluvörur
311.068
516.628
134.018
382.610
80.314
131.921
170.375
30.800
41.089
97.039
142.140
280.268
Heimild: Hagstofa Íslands, verð miðast við ágúst ár hvert
Heimild: Velferðarráðuneytið
Neysluviðmið eru á verðlagi í maí 2012 Samkvæmt
áætlun á að uppfæra viðmiðin næst í febrúar 2013.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Velferðarkerfið þykir ekki nægilega
hvetjandi fyrir fólk í fjárhagsþreng-
ingum og þarf það að vega og meta
hvort það borgi sig að fara af bótum
þegar vinna býðst.
Þetta er meðal þess sem viðmæl-
endur lýstu í framhaldsrannsókn
velferðarvaktarinnar á velferð barna
í erfiðri stöðu.
Vísbendingar er um að almennar
verðhækkanir hafi komið niður á
börnum í þessum hópi en eins og
rakið er hér til hliðar hafa leikskóla-
gjöld hækkað umtalsvert síðan 2009.
Hefur fullt mánaðargjald í leikskóla í
Reykjavík t.d. hækkað um 18,6%, að
því er fram kemur hjá Hagstofunni.
Rannsóknin er framhald af könn-
un sem var gerð í grunnskólum
landsins, öllum heilsugæslustöðvun-
um og hjá öllum barnaverndarnefnd-
um á landinu þar sem leitað var
svara um velferð barna sem bjuggu
við alvarlegan vanda fyrir kreppu.
Heimilisofbeldi virðist tíðara
Var þar m.a. haft eftir starfsmönn-
um barnaverndar að tilfinning þeirra
væri sú að börn sem nefndin hefði af-
skipti af stæðu verr en fyrir kreppu.
Heimilisofbeldi virtist tíðara og
drykkja á heimilum meiri. Fjárhags-
legir erfiðleikar kæmu fram í því að
börnin stunduðu síður tómstunda-
iðju, jafnframt því sem tónlistarnám
væri nánast óþekkt hjá þessum hópi.
Tannheilsu væri síður sinnt.
Þeirri könnun var fylgt eftir með
nýrri könnun í sumar þar sem þrír
rýnihópar voru settir saman af fag-
fólki frá skólum, heilsugæslu og
barnaverndarnefndum. Einn hópur
kom saman í Grafarvogi í Reykjavík,
einn í Hafnarfirði og einn í Árborg
og var markmiðið að varpa skýrara
ljósi á niðurstöður fyrri könnunar.
Lára Björnsdóttir, formaður vel-
ferðarvaktar, segir stýrihóp um
vaktina taka undir með rýnihópun-
um um að kalla beri eftir heildrænni
sýn fyrir málaflokk barna og barna-
fjölskyldna. Aðgangur barna að
þjónustu sé misjafn, sem aftur komi
niður á börnum í erfiðri stöðu.
„Kerfið þarf að vinna betur saman
að hagsmunamálum þessara barna.
Það eru allir sammála um að þessi
börn séu á margan hátt verr sett og
að það væri hægt að bjarga ýmsu ef
horft væri heildrænt á stöðu barns-
ins, til dæmis á milli barnaverndar-
nefnda, skóla og heilsugæslunnar.
Það er mikil eftirspurn eftir sál- og
geðheilbrigðisþjónustu og það var
kallað eftir því að börnin sætu við
sama borð hvar sem þau búa.
Börn sem eru í erfiðri stöðu þurfa
sérstaklega á sál- og geðheilbrigðis-
þjónustu að halda. Það geta verið
ýmsar ástæður fyrir því að börn búa
við erfiða stöðu og fátækt. Þótt þetta
sé ekki stór hópur á Íslandi er það
hópur sem við megum ekki gleyma.
Við höfum bent velferðarráðherra
á að börn efnalítilla foreldra, sér-
staklega einstæðra foreldra, séu í
hættu. Börn sem búa við fátækt fara
á mis við ýmislegt sem önnur börn fá
og það verður ekki aftur tekið í
mörgum tilvikum. Þá erum við að
tala um langvarandi skort á heim-
ilinu sem kemur niður á barninu.“
Vísbendingar um erfiðari stöðu
Margrét María Sigurðardóttir,
umboðsmaður barna, kveðst ekki
hafa tök á því að safna upplýsingum
eða tölum um kjör barnafjölskyldna.
Hún heyri hins vegar af fólki í erfið-
leikum. „Það eru sterkar vísbending-
ar um að hópurinn sem var í bágri
stöðu fyrir sé nú í mun verri stöðu.
Það kemur m.a. heim og saman við
skýrslu sem velferðarráðuneytið gaf
út varðandi stöðu barnafjölskyldna.
Vísbendingar eru um að börn sem
voru í slæmri stöðu fyrir hrun séu nú
í mun verri stöðu þótt það virðist
ganga nokkuð vel hjá þorra barna.
Það er niðurskurður á öllum sviðum
og hópurinn sem nýtur einhvers
stuðnings verður því fyrir niður-
skurði úr mörgum áttum. Síðan er
maður að heyra frá fólki sem starfar
með börnum að t.d. tómstundastarf
sé að detta út hjá einhverjum barna-
fjölskyldum.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útgjaldaliður Leikskólagjöld hafa hækkað talsvert síðan árið 2009.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012
Rótarýklúbbur Borgarness stendur
í kvöld fyrir málþingi um líf-
færagjafir. Verður málþingið hald-
ið í Menntaskólanum í Borgarnesi
og hefst kl.19:30 undir yfirskrift-
inni: Einn gefur öðrum líf – tökum
afstöðu.
Meðal frummælenda á mál-
þinginu eru Jón Baldursson, stað-
gengill landlæknis, sem fjallar um
sýn embættisins á líffæragjafir. Þá
munu fjórir einstaklingar lýsa upp-
lifun og reynslu líffæragjafa og
Inga S. Þráinsdóttir hjartalæknir
segja frá meðhöndlun sjúklinga við
hjartabilun.
Pallborðsumræður verða að
loknum erindum frummælenda þar
sem þeir munu sitja auk Sivjar
Friðleifsdóttur alþingismanns..
Áætlað er að málþinginu ljúki
klukkan 21:45. Það er öllum opið.
Aðgerð Málþing um líffæragjafir verður í
Borgarnesi í kvöld.
Málþing um
líffæragjafir
Gareth Evans,
fyrrverandi ut-
anríkisráðherra
Ástralíu, heldur
opinn fyrirlestur
í Reykjavík á
morgun um
kjarnorkuvopn
og útrýmingu
þeirra.
Evans, sem er
núverandi rektor
The Australian National Univers-
ity, er gestur aðstandenda ljós-
mynda- og fræðslusýningarinnar
um kjarnorkuárásirnar á Hírósíma
og Nagasaki og Alþjóðamálastofn-
unar Háskóla Íslands.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 12 í
Súlnasal Hótels Sögu og er öllum
opinn.
Fyrirlestur um
kjarnorkuafvopnun
Gareth
Evans
Alþjóðlegur dagur dýranna er á
morgun, 4. október, en þessi dagur
var fyrst ákveðinn á ráðstefnu vist-
fræðinga í Flórens á Ítalíu árið
1931 til að vekja athygli á dýrateg-
undum í útrýmingarhættu.
Haldið verður upp á daginn í
fyrsta skipti hér á landi með form-
legum hætti á morgun með sam-
verustund í Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði sem hefst klukkan 20.
Alþjóðlegur
dagur dýranna
STUTT
Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 -23
Indverskt buff í grófu
naanbrauði, grilluð
paprika, rauðlaukur,
jöklasalat, raita og
mangó chutney
Indverji Borgari, franskar,
gos og kokteilsósa
1.550 kr.