Morgunblaðið - 03.10.2012, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga
Ákæran á hendur Geir H. Haarde
er dæmi um það hvernig það eitrar
pólitíska umræðu án þess að rétt-
lætið nái fram að ganga, að höfða
sakamál á hendur stjórnmálaleið-
togum vegna pólitískra ákvarðana
þeirra.
Þetta kemur fram í minnisblaði
sem undirbúið hefur verið fyrir
laganefnd þingmannasamtaka Evr-
ópuráðsins af hollenska þingmann-
inum Pieter Omtzigt.
Haft er eftir Omtzigt á heimasíðu
Evrópuráðsins, að tilraunir ís-
lenskra stjórnmálamanna til þess
að saka Geir um glæpsamlegt at-
hæfi hafi greinilega misheppnast
og „skilið eftir sig óbragð“. Hann
segir að Geir hafi verið tekinn fyrir
og ofsóttur af pólitískum andstæð-
ingum sínum og sakfelldur fyrir að
hafa einungis fylgt fyrirkomulagi
sem lengi hefði viðgengist.
„Enginn gat sagt mér hvað for-
sætisráðherrann hefði átt að gera
eða getað gert á umræddum tíma
til þess að koma í veg fyrir banka-
hrunið,“ er haft eftir Omtzigt en
hann var staddur hér á landi í maí
síðastliðnum þar sem hann ræddi
við málsaðila, þingmenn og lög-
fræðinga.
Stjórnmálamönnum, sem tækju
rangar ákvarðanir, ætti að refsa í
kosningum en ekki fyrir dóm-
stólum, segir Omtzigt ennfremur.
Ákæru fyrir glæpsamlegt athæfi
ætti aðeins að gefa út þegar stjórn-
málamaður skarar eld að eigin
köku eða gengur viljandi á rétt
annarra.
Þá lýsir Omtzigt efasemdum sín-
um um að Alþingi sé heppilegasta
stofnunin til þess að hafa ákæru-
valdið í slíkum málum.
hjorturjg@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Í landsdómi Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í landsdómi.
Pólitískar ákærur
eitra andrúmsloftið
VIRTU
AL
SHOW
-
ROOM
www.k
ahrs.co
m
KRONOTEX PLANKAHARÐPARKET
Fyrir heimili jafnt sem sumarhús.
30ára
ábyrgð
FLÍSAR FYRIR FAGURKERA
Ítölsk hönnun eins og hún gerist best
RINGO INNIHURÐIR
Einfaldar í uppsetningu - gott verð
HU
RÐ
IR
FLÍ
SA
R
PA
RK
ET
Ármúli 8 I 108 Reykjavík
Sími 516 0600 I www.birgisson.isÞekking og persónuleg þjónusta
BORÐLEGGJANDI
GÆÐI
Á GÓÐU VERÐI
Kährs parket er gjöf náttúrunnar
til þín og framtíðarinnar.
30ára
ábyrgð
Smiðshöfði 1, 110 Reykjavík, sími 587 9700, propack.is, propack@propack.is
Sérhæfum okkur í pökkun og frágangi
á búslóðum til flutnings milli landa,
landshluta eða innanbæjar
Við pökkum búslóðinni, önnumst farmbréf, tollafgreiðslu og sjáum um flutning á áfangastað. Flytjum fyrir
einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Sjáum einnig um að pakka upp búslóðinni á nýju heimili og koma öllu fyrir
eins og óskað er. Ef heimilið er ekki tilbúið bjóðum við geymslu búslóða, í nýlegu og glæsilegu húsnæði, með
fullkomnu öryggis- og brunavarnakerfi.
Stofnað árið 1981