Morgunblaðið - 03.10.2012, Page 38

Morgunblaðið - 03.10.2012, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012 Þriðja ríkið er að hrynja ogósigur nasista blasir við. Íhúsi í Suður-Þýskalandikeppist heimilisfaðirinn, háttsettur liðsmaður SS-sveitanna, við að eyða fortíð sinni á meðan aðrir á heimilinu pakka niður verð- mætum til að hafa með sér á flótt- anum. En það er engrar und- ankomu auðið. Foreldrarnir eru handteknir og Lore, fimmtán ára dóttir þeirra, fær það hlutverk að fara með systkini sín, systur og þrjá bræður, til ömmu þeirra mörg hundruð kílómetra leið. Lore er af- sprengi þess um- hverfis, sem hún kemur úr, og sá veruleiki, sem blasir við í rúst- um sigraðs Þýskalands rímar eng- an veginn við þá heimsmynd, sem hún fékk í húsum foreldra sinna. Ungur maður á flótta verður á vegi þeirra og slæst brátt í för með þeim. Þegar Lore sér gula stjörnu Davíðs í skilríkjum hans fyllist hún tortryggni. Linnulaus áróður nas- ista gegn gyðingum hefur glumið svo í eyrum hennar að hún situr föst og getur ekki treyst honum. Hún laðast að honum, en býður við tilfinningum sínum og hrindir hon- um frá sér. Lore byggir á skáldsögu eftir Rachel Seiffert, Myrkraherberginu. Þar fléttast saman þrjár sögur og er ein þeirra efniviður ástralska leikstjórans Cate Shortland. Mest mæðir á hinni ungu leik- konu Saskiu Rosendahl í hlutverki Lore, sem þarf að bjarga sér og systkinum sínum frá hungri og vos- búð. Enginn er tilbúinn að rétta þeim hjálparhönd endurgjaldslaust fyrir utan flóttamanninn unga. Á vegg sér Lore myndir úr gereyð- ingabúðum nasista. Á einni þeirra sér hún föður sinn einkenn- isklæddan innan um horaða fanga og rífur hann í burtu. Það er ljóst að heimsmynd hennar mun ekki lifa af. Myndin gerist vorið 1945. Eymd hinna sigruðu Þjóðverja er alger og stangast á við íðilgrænan og gróskumikinn gróðurinn, sem alls staðar sprettur fram. Lore er áhrifamikil og óvenjuleg þroska- saga. Þroskasaga í stríðsrústum RIFF: Háskólabíó Lore bbbnn Leikstjórn: Cate Shortland. Leikarar: Saskia Rosendahl, Kai Malina, Nele Trebs og Ursina Lardi. Þýskaland, Bret- land, Ástralía, 2012. 109 mín. Flokkur: Fyrir opnu hafi. KARL BLÖNDAL KVIKMYNDIR Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Íslenski dansflokkurinn frumsýnir tvö ný verk á stóra sviði Borgarleik- hússins nk. föstudag kl. 20. Annars vegar It is not a metaphor eftir Cameron Colbert og hins vegar Hel haldi sínu eftir franska danshöfund- inn Jérôme Delbey. „Verkið mitt er innblásið af norrænni goðafræði. Ég notast við Völuspá þar sem sögð er saga heimsins, allt frá sköpun hans til endaloka. Í raun má segja að verkið fjalli um vitneskjuna um að við séum öll dauðleg. Þannig vita goðin allan tímann að búast má við ragnarökum,“ segir Delbey og bendir á að mikill samhljómur sé milli Völuspár og tónlistarinnar sem hann valdi verki sínu. „Mig hefur lengi langað til að semja dansverk við Vier letzte Lie- der [Fjögur síðustu ljóð] eftir Rich- ard Strauss, en ljóðin fjalla um árs- tíðirnar og hina eilífu hringrás lífs og dauða og passa því sérlega vel við goðafræðina þó að tónlist Strauss sé mjög íburðarmikil,“ seg- ir Delbey, en einnig hljómar í verk- inu tónlist Önnu Þorvaldsdóttur. „Tónlist hennar fær að túlka ragna- rök. Mig langaði til að nota íslenska tónlist í verkinu og bað því Láru [Stefánsdóttur, listrænan stjórn- anda Íd] um að senda mér lista yfir íslensk tónskáld þegar ég var að undirbúa það að semja verkið,“ seg- ir Delbey og bendir á að tónlist Önnu hafi hentað stemningunni vel. Delbey hefur starfað sem dansari frá unga aldri en hann hlaut mennt- un sína í Frakklandi við annars veg- ar Ecole Nationale de Musique et de Danse í Tourcoing og hins vegar Rosella Hightower’s Ecole Nation- ale Supérieure de Danse í Cannes. Nítján ára gamall lá leið hans til Þýskalands þar sem hann dansaði með Badisches Staatstheater í Karlsruhe og Stadttheater í Re- gensburg. Árið 2006 réð hann sig svo til starfa hjá GöteborgsOperans Danskompani (Gautaborgar dans- flokknum) og hefur verið þar síðan. Sér verkið fyrir sér sem heild „Ég samdi mitt fyrsta dansverk árið 1999 fyrir danskeppni og komst í úrslit sem var mikil viðurkenning og mér góð hvatning þó að ég hafi ekki unnið. Síðan þá hef ég samið dansverk meðfram því að dansa sjálfur,“ segir Delbey, en seinasta verk hans, I shall die in Florence, í uppsetningu Gautaborgar dans- flokksins vakti athygli Láru Stef- ánsdóttur sem í framhaldinu bað Delbey um að semja nýtt verk fyrir Íd. Eitt af því sem einkennir höfund- arverk Delbeys er að hann hannar ávallt sjálfur bæði leikmynd og bún- inga fyrir verk sín. „Auk þess hef ég alltaf miklar skoðanir á því hvernig lýsingin í verkum mínum er. Það er ekki vegna þess að ég treysti ekki öðrum, heldur einfald- lega vegna þess að þegar ég sé dansverkin fyrir mér þá sé ég þau fyrir mér sem heild, þar sem útlit verksins skiptir ekki minna máli en sjálfar hreyfingarnar,“ segir Delbey og tekur fram að hann leggi jafn- framt mikla áherslu á að dans- ararnir sem hann vinni með séu skapandi í vinnuferlinu. „Þannig notast ég við hreyfingar þeirra og orku, þó að ég móti hvort tveggja að minni listrænu sýn,“ segir Del- bey að lokum. Hin eilífa hringrás lífs og dauða  Íslenski dansflokk- urinn frumsýnir tvö ný verk, Hel haldi sínu og It is not a me- taphor, á föstudag Morgunblaðið/Golli Dauðleikinn „Í raun má segja að verkið fjalli um vitneskjuna um að við séum öll dauðleg,“ segir Jérôme Delbey. „Mig langaði að búa til verk þar sem allar hreyfingar hefðu tilgang. Ég legg mikið upp úr því að verk mín hafi skýran söguþráð og séu ekki bara samansafn af fallegum hreyf- ingum,“ segir Cameron Corbett um verk sitt It is not a metaphor. Að- spurður segir hann þetta fjórða verkið sem hann semur fyrir eða í samvinnu við Íd, en Cameron hefur starfað sem dansari hjá flokknum síðan 1997 og er því einn reynslu- mesti dansari Íd. Að sögn Camerons fór Lára Stef- ánsdóttir, listrænn stjórnandi Íd, þess á leit við hann að hann semdi dansverk til þess að heiðra minn- ingu bandaríska tónskáldsins John Cage en í ár eru 100 ár liðin frá fæð- ingu hans. „Ég kynntist tónlist hans fyrst þegar ég var í námi og var svo heppinn að fá ungur að dansa í verki eftir Merce Cunningham við tónlist Cages,“ segir Cameron og tekur fram að tónlist Cages hafi orðið til þess að hann fór að skoða og leita sér innblásturs í hinum ólíku þemum og listabylgjum sem fram komu á 20. öld. Tónlistin í verkinu er í höndum Tinnu Þor- steinsdóttur píanóleikara en hún flytur tónlist John Cage á „prep- ared“ píanó. „Það er alltaf mjög spennandi þegar tónlistin er flutt lifandi á sviðinu, því það felur í sér allt aðra orku en þegar dansað er við fyrirfram upptekna tónlist,“ segir Cameron og bætir við: „En í því felst líka áskorun, því tónlist- arflutningurinn má helst ekki verða meira spennandi í augum áhorf- enda en hreyfingar dansaranna. Auk þess sem passa þarf betur upp á samhæfinguna.“ silja@mbl.is Allar hreyfingar hafi tilgang Morgunblaðið/Golli Söguþráður „Ég legg mikið upp úr því að verk mín hafi skýran söguþráð og séu ekki bara samansafn af fallegum hreyfingum,“ segir Cameron. Leikkonan Saskia Rosendahl í Lore. HERRASKÓR Þú færð SKECHERS herraskó í: Skór.is, Kringlunni og Smáralind Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | OUTLET Fiskislóð 75, Rvk Fjarðarskór, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri | Mössuskór, Akureyri Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Versluninni Skógum, Egilstöðum | System, Neskaupstað Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.