Morgunblaðið - 03.10.2012, Side 41

Morgunblaðið - 03.10.2012, Side 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012 Bandaríski tónlistarmaðurinn Kyle Woolard heldur tónleika í kvöld kl. 20 á heimili söngvaskáldanna Uni og Jóns Tryggva að Merkigili á Eyrarbakka. Woolard er for- sprakki bandarísku rokkhljóm- sveitarinnar The Anatomy of Frank en hefur haldið tónleika einn víða um Norður-Ameríku og Evrópu síð- ustu misseri. Kyle Woolard heldur tónleika í Merkigili Kvikmyndaleikstjórinn David Gordon Green mun að öllum lík- indum taka að sér að leikstýra kvik- mynd sem byggð er á barnabók- unum um Húsið á sléttunni, The Little House on the Prairie, eftir Lauru Ingalls Wilder. Samnefndir sjónvarpsþættir voru byggðir á bókunum og sýndir á RÚV í fjölda ára. Handritið að myndinni skrifar Bretinn Abi Morgan en hann á m.a. að baki handrit að kvikmyndunum The Iron Lady og Shame. Húsið á sléttunni á hvíta tjaldið Fjölskylduvænt Ingalls-fjölskyldan í sjónvarpsþáttunum Húsið á sléttunni. Það er nokkur vandi að fjallaum þessa stórskemmtileguog að mörgu leyti furðu-legu kvikmynd leikstjór- ans Rians Johnsons. Það má nefni- lega svo lítið segja um söguþráðinn, skemmtigildið felst fyrst og fremst í því hversu margt kemur á óvart. Söguþráðurinn verður því aðeins rakinn hér í mjög grófum dráttum og þeir sem hafa áhuga á að sjá myndina ættu fyrir alla muni að forðast þá sem hafa séð hana. Þeir gætu sagt of mikið og skemmt fyrir. Looper, eða Lykkjari, gerist í Bandaríkjunum árið 2044. Í henni segir af leigumorðingjum mafíunnar sem kallaðir eru lykkjarar. Mafían hefur komist yfir tímavél árið 2074 og sendir þá sem hún vill taka af lífi aftur til ársins 2044. Þar birtast fórnarlömbin frammi fyrir lykkj- urunum sem skjóta þau til bana og losa sig við líkin. Árið 2074 er nefni- lega ógerlegt að afmá öll verks- ummerki um morð. Lykkjararnir fá greitt fyrir morðin í silfri en sá galli er á starfinu að þeir þurfa á end- anum að drepa eldri útgáfuna af sjálfum sér, þessa frá 2074. Nefnist það að loka lykkjunni. Takist lykkj- urum ekki að drepa sjálfa sig verður lykkjufall, ef svo mætti að orði kom- ast. Lykkjarinn Joe (Gordon-Levitt) lendir í slíku og eldri útgáfan af hon- um (Willis) sleppur með ófyrirséðum afleiðingum. Tímaflakksmyndir eiga það til að rugla mann verulega í rím- inu og Looper tekst það ágætlega. Yfirleitt kemur maður auga á eitt- hvað sem gengur ekki upp, hvað mótun framtíðar varðar, en þar sem tímaflakk er ekki beinlínis rökrétt yfirhöfuð er best að sleppa öllum slíkum vangaveltum og njóta kvik- myndarinnar. Það er einmitt gert góðlátlegt grín að slíkum myndum í Looper, Joe eldri segir Joe yngri að hætta öllu tímaflakkskjaftæði, það sé tilgangslaust að velta sér upp úr því. Yfirmaður lykkjaranna (Dani- els) kemur líka skemmtilega inn á þetta í myndinni þegar hann segir við Joe að allt tímaflakkskjaftæðið steiki vissulega í mönnum heilann. Útlit myndarinnar er skemmti- lega hrátt, enda var myndin ekki dýr í framleiðslu á Hollywood-mæli- kvarða. Leikstjórinn eyðir ekki óþarfa púðri í að búa til fljúgandi bíla eða geimför á himni, menn klæða sig ekki furðulega í framtíð- inni heldur eru hálsbindi aftur kom- in í tísku. Ýmsar kvikmyndir koma upp í hugann þegar maður horfir á Looper, m.a. 12 Monkeys, The Wit- ness, Firestarter og jafnvel The Terminator. Af hverju þær gera það má ekki segja, það myndi eyðileggja fyrir þeim sem ætla að sjá myndina. Willis er skotheldur í hlutverki Joe eldri, tilfinningaríkt hörkutól og Gordon-Levitt er engu síðri sem Joe yngri. Í myndinni skartar hann m.a. gervinefi og augnlinsum, útliti hans var breytt til þess að hann líktist sem mest Willis ungum og útkoman er dálítið einkennileg en þó gletti- lega lík Willis. Þá ber að geta sér- staklega barnungs leikara, Pierce Gagnon, sem fer með lítið en afar mikilvægt hlutverk. Hann heillar mann gjörsamlega upp úr skónum. Looper er fyrirtaks afþreying, Rian Johnson missir ekki niður lykkju. Morðingi Joseph Gordon-Levitt í hlutverki lykkjarans Joe í Looper. Fórnarlamb frá árinu 2074 hefur birst fyrir framan hann, reiðubúið til slátrunar. Looper kemur áhorfandanum skemmtilega á óvart og það oftar en einu sinni. Afdrifaríkt lykkjufall Sambíóin Looper bbbbn Leikstjóri: Rian Johnson. Aðalhlutverk: Bruce Willis, Joseph Gordon-Levitt, Emily Blunt, Jeff Daniels, Pierce Gagn- on. Bandaríkin, Kína 2012. 118 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR ÁLFABAKKA 7 L L L 12 12 EGILSHÖLL 12 12 L L L VIP VIP 16 16 16 16 16 KRINGLUNNI 16 12 AKUREYRI 16 16 16 LOOPER KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D FINDING NEMO KL. 5:40 3D SAVAGES KL. 8 - 10:40 2D LAWLESS KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D DARK KNIGHT RISES SÍÐ SÝN KL. 5:30 2D THE CAMPAIGN KL. 8:30 - 10:30 2D LOOPER KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D LOOPER LUXUS VIP KL. 8 - 10:30 2D FINDING NEMO ÍSL.TALI KL. 5:50 2D LAWLESS KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D LAWLESS LUXUS VIP KL. 5:30 2D THE CAMPAIGN KL. 8 - 10:10 2D FROST KL. 10:30 2D THE BOURNE LEGACY KL. 8 - 10:40 2D STEP UP REVOLUTIONKL. 5:50 2D BRAVE ÍSL.TALI KL. 5:50 2D BRAVE ENSKU.TALI KL. 8 2D L KEFLAVÍK 16 16 16 LOOPER KL. 8 2D SAVAGES KL. 10:30 2D FROST ÍSL.TALI KL. 10 2D BRAVE ENSKU TALI KL. 8 2D LOOPER KL. 8 2D LEITIN AF NEMO ÍSL.TALI KL. 6 3D LAWLESS KL. 10:10 2D BRAVE ÍSL.TALI KL. 6 2D BABYMAKERS KL. 8 2D FROST KL. 10:10 2D -S.G, FRÉTTABLAÐIÐ 16LAWLESS TOM HARDY HEFUR ALDREI VERIÐ BETRI L SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SJÁÐU NÝJUSTU TOY STORY STUTTMYNDINA Á UNDAN JOSEPH GORDON-LEVITT BRUCE WILLIS EMILY BLUNT  -BOXOFFICE MAGAZINE  -TOTALFILM -JOBLO.COM ÖRUGGLEGA BESTA SPENNUMYNDIN Í ÁR  -EMPIRE 16 „TRULY WORTHY OF BEING COMPARED TO SOMETHING LIKE THE TERMINATOR“ 12 16 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á LOKAÐ Í DAG VEGNA ENDURBÓTA A World of Service Við erum í mat Við bjóðum upp á hollan og góðan hádegisverð alla virka daga fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. Þrjá daga vikunnar bjóðum við að auki upp á grænmetisrétt – til að mæta þörfum sem flestra. Markmið okkar er að sérsníða lausnir að þínum þörfum, hvort sem um er að ræða hádegisverð, veislur, fundi eða önnur tilefni. Skoðaðu matarmálin hjá þér og vertu í samband við veitingasvið ISS. www.iss.is - sími 5 800 600. ”Ég eldaði fyrir 890 manns í hádeginu” Mér finnst frábært að elda venjulegan heimilismat og heyra ”takk fyrir góðan mat”

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.