Morgunblaðið - 10.11.2012, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 10.11.2012, Qupperneq 10
María Ólafsdóttir maria@mbl.is Dansgleði kallast dansbóksem Guðbjörg Arnar-dóttir danskennari hefursett saman. Þar er farið yfir helstu tegundir dansa og þeir út- skýrðir en bókin er einnig tengd vef- síðunni dansgledi.is þar sem nálgast má kennslu á sjónrænan hátt. Guðbjörg segir bókina vera hugsaða bæði fyrir kennara og eins fyrir fjölskylduna til að brydda upp á nýjungum í samveru sinni. Það geti t.d. verið skemmtileg tilbreyting frá því að spila borðspil þegar fjöl- skyldan kemur saman að dansa í staðinn. Leikurinn er sjálfsprottinn „Dansinn er gleðigjafi og það má nú alveg lyfta aðeins upp geðheilsu landans. Maður finnur um leið og maður fer að gera eitthvað skemmti- legt hvað það eflir huga manns alveg sama hvað það er. Í einstaka tilfelli getur verið erfitt að fá fólk út á gólf en oftast er auðvelt að fá fólk til að hristast og brosa. En um leið og fólk fer að hlæja losnar líka um ákveðnar hömlur. Leikurinn í eðli okkar mann- fólksins er sjálfsprottinn en við leyf- um honum dálítið að dala með ár- unum. Rétt eins og við skömmumst okkur fyrir að vera börn í okkur en það er mikilvægt að halda því ljósi inni í okkur og sleppa taumunum. Ég einbeiti mér að því að kenna fólki auðvelda tækni við að dansa til að sporin flækist nú ekki fyrir og það er líka allt í lagi að gera smá mistök,“ segir Guðbjörg. Hlátur losar um hömlur Eitt af lykilorðum bókarinnar er Prófaðu, framkvæmdu og njóttu og hvetur Guðbjörg t.d. hjón til að Hópefli í dansinum Dans kallar fram gleði og auð- veldar fólki að létta af ákveðnum hömlum. Í dansbók sinni, Dans- gleði, sem væntanleg er á mark- aðinn skýrir Guðbjörg Arnar- dóttir danskennari frá ólíkum dansstílum en tengt bókinni er vefsíða þar sem horfa má á dans- kennslu. Guðbjörg segir salsa og diskó alltaf vera vinsælt og þar hafi tónlistin sitt að segja. Danskennari Guðbjörg lét gamlan draum rætast með því að gefa út bók. Sameining Guð- björg segir það vera hópefli að dansa í hring. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 Það er ágætt að geta æft sig dálít- ið í Norðurlandamálunum og lesið áhugaverðar greinar um leið. Vef- ræna útgáfu af norska blaðinu Tara má finna á vefsíðunni tara.no og þar má nálgast greinar og fréttir úr ýmsum efnisflokkum. Á vefsíð- unni má meðal annars lesa athygl- isverða grein um norska rannsókn sem sýnir að konur sem gangist undir lýtaaðgerðir séu líklegri til að finna fyrir þunglyndi. Í greininni kemur fram að í kringum sjö pró- sent norskra kvenna á aldrinum 18 til 65 ára hafi undirgengist lýtaað- gerðir í fegrunarskyni og að þeim fjölgi stöðugt. Í heilsuflokki vefsíð- unnar má finna grein um rannsókn sem gerð var við Imperial College í London en hún sýnir að sleppi fólk að borða morgunmat verði það sólgnara í kaloríuríkan mat í há- deginu. Þá er einnig að finna á vef- síðunni margt skemmtilegt er tengist afþreyingu, tísku og feg- urð. Það er afbragð að æfa sig dá- lítið í norskunni og sjá um leið hvað helst er í deiglunni í ná- grannalöndum okkar. Vefsíðan www.tara.no Tara Í norska vefritinu er að finna greinar um heilsu, tísku, menningu og fleira. Hin norska Tara á netinu Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Í dag kl. 15 verður opnuð ljós- myndasýning Davids Bar- reiro í Listhúsi Ófeigs, Skóla- vörðustíg 5. Ljósmyndarinn David Barreiro er ungur spænskur ljósmyndari, fæddur árið 1982 og kemur hann frá Santiago de Compo- stela. Á sýningunni eru ljós- myndir frá ferð Davids um Kambódíu árið 2010. Mynd- irnar sýna tvo áhrifamikla og átakanlega staði, Bokor og Tuol Sleng, sem lýsa hvað best þeim hörmungum sem íbúar landsins hafa mátt þola. Kambódía er land mik- illa náttúruauðæfa, með ár- þúsunda menningarsögu. Frakkar lögðu landið undir sig árið 1863. Árið 1953 öðl- aðist landið sjálfstæði. Rauðu Kmerarnir komust til valda árið 1975 og stóð ógnarstjórn þeirra til 1979 er Víetnamar réðust inn í landið og komu stjórn Rauðu Kmer- anna frá völdum. Sjá má myndir frá David á slóðinni: www.davidbarreiro.com. Endilega… Ljósmyndari David Barreiro er frá Santiago de Compostela. …sjáið myndir frá Kambódíu Crossfit þjálfunarkerfið er orðið tals- vert vinsælt á Íslandi en í dag verður opnuð ný æfingastöð sem leggur áherslu á slíka þjálfun. Stöðin kallast CrossFit XY og er í Garðabæ. Innan dyra eru tveir rúmgóðir salir og einn minni en einnig er greiður aðgangur úr stöðinni að hlaupastígum í hraun- inu í kring og stutt í Heiðmörkina. Opið hús er í dag á milli 11 og 16 en allar nánari upplýsingar má finna á www.crossfitxy.is eða www.facebo- ok.com/crossfitxy. Opið hús hjá CrossFit XY Crossfit Púl og sviti. Inni og úti þjálfun
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.