Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939 Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00 Opið um helgar frá 18:00 - 23:00 frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar Þrír Frakkar Café & Restaurant Hádegistilboð fram að jólum Súpa, nýbakað brauð og gratineraður Plokkfiskur - 1890 kr www.volkswagen.is Komdu og reynsluaktu Volkswagen Passat Alltrack Allir vegir færir á nýjum Passat Alltrack Passat Alltrack 4Motion, sjálfskiptur kostar: 6.590.000 kr. Öryggi og ánægja fara vel saman Nýr Volkswagen Passat Alltrack er með fullkomnu fjórhjóladrifi, aukinni veghæð og ESP stöðugleikastýringu sem gera aksturinn öruggann við krefjandi aðstæður. Sjö gíra DSG sjálfskiptingin og 170 hestafla TDI dísilvélin sjá um að aksturinn verði einstök upplifun. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sú gagnrýni sem Geir Sigurðsson, forstöðumaður Konfúsíusarstofnun- ar, og Sverrir Jakobsson, aðjunkt í sagnfræði við Háskóla Íslands, settu fram á bókina Maó eftir Jung Chang og Jon Halliday er veigalítil og breytir engu um þá heildarniður- stöðu hennar að Maó hafi verið ein- hver mesti fjöldamorðingi sögunnar. Þetta er eindregin skoðun Hann- esar Hólmsteins Gissurarsonar, pró- fessors í stjórnmálafræði við Há- skóla Íslands, sem kom bókinni til varnar í fyrirlestri á dögunum á veg- um Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt, RNH. Hannes segir aðspurður að þeir Geir og Sverrir einblíni á minni hátt- ar atriði í þessu 800 síðna verki. „Þeir gagnrýndu ýmis smáatriði í bók þeirra Jung Chang og Jon Halli- day eins og til dæmis deilur um orr- ustu á Luding-brúnni, og hvaða ár kínverski kommúnistaflokkurinn var stofnaður. Allt eru þetta álitamál en skiptir engu máli um tvær meg- instaðreyndir. Önnur er sú að bók Chang og Halliday er feikilegt afrek. Þau töluðu við á milli 350 og 400 manns og grófu upp skjöl í skjala- söfnum í Kína, Rússlandi og víðar sem brugðu nýju ljósi á ævi og störf Maós. Seinna atriðið er að þetta skiptir engu máli um þá staðreynd að Maó var einhver afkastamesti fjöldamorðingi sögunnar,“ segir Hannes og rifjar upp söguna. Milljónir manna týndu lífi „Við valdatöku kommúnista féllu milljónir manna í valinn, voru drepn- ar af kommúnistum. Síðan voru lík- lega fleiri sem sultu í hel í stóra stökkinu fram á við 1958-1962 en þau jafnvel töldu, Chang og Hal- liday. Þá veita nýrri rannsóknir vís- bendingu um að jafnvel 45 milljónir manna hafi soltið í hel. Svo féllu nokkrar milljónir manna í menningarbyltingunni. Þannig að jafnvel þótt það tækist að finna smá- atriði sem leiðrétta ætti gæfi það ekkert tilefni til þess harða dóms sem þeir Geir Sigurðsson og Sverrir Jakobsson felldu yfir bókinni. Ég satt að segja velti því fyrir mér hvers vegna sumir í fræðaheiminum tóku þessari bók illa. Ég held að það séu ýmsar skýringar á því. Fyrsta skýringin er auðvitað sú að þeir sem eru kallaðir sérfræðingar um kínversk málefni kunna því ef til vill illa þegar einhver kemur á þeirra vettvang og talar hispurslaust og semur metsölubók. Þannig að sum- part er um að ræða fræðilega af- brýðisemi manna sem eru kannski að skrifa um einhver smáatriði í kín- verskri sögu og fylla allt með neðan- málsgreinum. Þeir taka því illa. Það er ein skýring,“ segir Hannes og heldur áfram. Háðir Kínastjórn um styrki „Önnur skýring er sú að sumir hafa auðvitað mikil tengsl við kín- versk stjórnvöld og eru háðir kín- verskum stjórnvöldum um styrki eða stöður. Það er alkunna að bók Chang og Hallidays er bönnuð í Kína. Kínversk stjórnvöld vilja ekki uppgjör við Maó. Ég held að þetta tvennt skýri ef til vill best hvers vegna bókinni var misjafnlega tekið í fræðaheiminum en var afar vel tek- ið af almennum lesendum og virtum ritdómurum.“ Forstöðumaður eftir ritdóm – Leitast menn hér heima við að styggja ekki Kínastjórn? „Ég átta mig ekki alveg á því en auðvitað var Geir Sigurðsson – án þess að ég vilji gera honum upp skoðanir – ráðinn forstöðumaður Konfúsíusarstofnunar í Háskóla Ís- lands skömmu eftir að hann skrifaði sinn ritdóm en hún er kostuð af kín- verskum stjórnvöldum. Ég tek það þó fram að stofnunin bauð mér að halda þennan fyrirlest- ur þannig að hún fylgir ekki algjör- lega línu kínverskra stjórnvalda – hún á að vera óháð – þannig að ég hef ekkert nema gott eitt um það að segja. En ég held að margir vilji ekki styggja þetta stórveldi. Það er athyglisvert að bók Chang og Hallidays er bönnuð í Kína. Þau ljúka bókinni á að tala um að myndin af Maó hangir enn þá uppi á Torgi hins himneska friðar og myndir af honum eru líka á peningaseðlum í Kína. Hvað myndum við segja ef Þýskaland væri með myndir af Hit- ler uppi á torgum og hefði myndir af Hitler á peningaseðlum?“ spyr Hannes. Fyrirlesturinn verður sett- ur á Youtube innan tíðar. Prófessor svarar gagn- rýni á bók um Maó Morgunblaðið/Kristinn Prófessor Hannes Hólmsteinn flytur erindi um Maó á dögunum.  Hannes Hólm- steinn telur að- finnslur léttvægar Tugmilljónir fórust » Fræðimaðurinn Frank Diköt- ter bendir á það í nýlegri bók, Mao’s Great Famine, að 45 milljónir Kínverja hafi soltið í hel í stökkinu mikla fram á við. » Bókin sem Hannes vísar til heitir Maó – sagan sem aldrei var sögð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.