Morgunblaðið - 10.11.2012, Síða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012
Geymt en ekki gleymt
Sumarið 1962 hélt dr. Kristján Eldjárn
dagbók um „Vínlandsför“ sína. Hér birtist
einstök ferðasaga hans í fyrsta sinn, ásamt fjölda
skemmtilegra ljósmynda úr leiðangrinum.
K R I S TJ Á N E L DJ Á R N / V Í N L A N D S DAG B Ó K
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
Miðrými
Óskar Thorarensen
Forsalur
Björk Bjarkadóttir
Glimpses Borgarsýn
Opnun kl. 15
Allir velkomnir
Tvær sýningar í Gallerí Fold · 10. – 25. nóvember
brjóta reglur um peningaþvætti.
Bandarísk þingnefnd komst að þeirri
niðurstöðu að eftirlit HSBC með pen-
ingaþvætti hefði verið ábótavant í
Mexíkó. Auk þess hefur bankinn ver-
ið sakaður um að fela viðskipti tengd
Íran.
Talið er að þessi leki um þá sem
eiga innstæður í Jersey sé sá stærsti
sinnar tegundir í Bretlandi. Á listan-
um eru 4.388 manns sem eiga samtals
699 milljónir punda eða 144 milljarða
króna. Talið er að fólkið eigi enn
meira í allskyns fjárfestingum. Árið
2008 seldi innanbúðarmaður bankans
í Sviss lista yfir viðskiptavini í Genf til
skattayfirvalda. Á þeim lista voru tvö
þúsund Bretar. Aftur á móti er talið
að skattayfirvöld hafi ekki greitt fyrir
Jersey-listann.
Dóp- og vopnasalar í
viðskiptum við HSBC
Skattayfirvöld í Bretlandi rannsaka stærsta banka landsins eftir uppljóstrun
AFP
Handtekinn Grískur blaðamaður var handtekinn og kærður í síðasta mán-
uði fyrir að birta nöfn Grikkja sem eiga bankareikninga hjá HSBC í Sviss.
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Skattayfirvöld í Bretlandi rannsaka
stærsta banka landsins, HSBC, fyrir
að hafa stofnað reikninga í skatta-
skjólinu Jersey fyrir glæpamenn.
Uppljóstrari lét skattinn fá upplýs-
ingar um alla bresku viðskiptavini
bankans í Jersey. Í gögnunum kemur
fram hver innstæðan er, nafn og
bankanúmer.
Yfir fjögur þúsund manns, búsettir
í Bretland, eru á listanum. Talið er að
þetta leiði til þess að komið verði auga
á hundruð manna sem hafa ekki gefið
allt upp til skatts þar í landi. Á listan-
um eru um fjögur þúsund manns sem
eru búsettir annars staðar en í
Bretlandi.
Þetta kemur fram í frétt Tele-
graph. Meðal þeirra sem eru á listan-
um er dæmdur dópsali, dæmdur
vopnasali, þrír bankamenn sem grun-
aðir eru um fjársvik og maður sem
kallaður hefur verið „annar versti
tölvuglæpamaðurinn“. Ýmsir banka-
reikningar með háum fjárhæðum eru
í eigu fólks sem býr í frekar fátækum
hluta landsins. Eftirtektarvert er hve
margir á listanum starfa á breskum
fjármálamarkaði.
Lögum samkvæmt ber bankanum
að tilkynna yfirvöldum ef grunur leik-
ur á að verið sé að sýsla með illa feng-
ið fé. Þetta vekur upp spurningar um
starfshætti HSBC, segir í fréttinni,
því bankinn þarf að greiða 1,5 millj-
arða dollara í Bandaríkjunum fyrir að
Skatturinn með listann
» Bresk skattayfirvöld hafa
komist yfir lista yfir viðskipta-
vini HSBC bankans sem eiga
innstæður í skattaskjólinu
Jersey.
» Dæmdir glæpamenn og
ýmsir sem búa í frekar fátæk-
um hluta Bretlands eiga mikla
peninga í skattaskjólinu.
» Á listanum eru um fjögur
þúsund manns sem búsettir
eru annars staðar en í
Bretlandi.
Ragna Sara Jónsdóttir hefur verið
ráðin forstöðumaður samfélags-
ábyrgðar hjá Landsvirkjun. Inn-
leiðing stefnu fyrirtækisins á því
sviði verður sérstakt forgangs-
verkefni hjá fyrirtækinu á næsta
ári. Hún hefur frá 2010 gegnt
stöðu yfirmanns samskiptasviðs
Landsvirkjunar. Magnús Þór
Gylfason tekur við því starfi af
Rögnu Söru. Þetta kemur fram í
tilkynningum.
Ragna Sara er MSc í alþjóða-
viðskiptum frá Viðskiptaháskól-
anum í Kaupmannahöfn og BA í
mannfræði frá Háskóla Íslands.
Magnús Þór er menntaður við-
skiptafræðingur frá Háskólanum í
Reykjavík og býr yfir langri
reynslu á sviði samskipta. Hann
hefur starfað hjá Landsvirkjun á
samskiptasviði sem staðgengill yf-
irmanns frá byrjun þessa árs.
Magnús Þór var aðstoðarmaður
borgarstjórans í Reykjavík á ár-
unum 2008-2010.
Manna-
breytingar
Magnús Þór
Gylfason
Ragna Sara
Jónsdóttir
þýddur yfir á japönsku og norsku
vegna mikillar eftirspurnar á
þessum mörkuðum.
Félagið hefur í hyggju að ráða 10-
15 hugbúnaðarsérfræðinga á næstu
mánuðum til að mæta vaxandi
eftirspurn eftir vörum og þjónustu
þess.
„TM Software er í mikilli sókn
með eigin hugbúnaðarlausnir og góð
eftirspurn er eftir sérfræðingum fyr-
irtækisins vegna umfangsmikilla
verkefna fyrir innlenda og erlenda
aðila. Gert er ráð fyrir áframhald-
andi vexti og eru horfur jákvæðar,
segir Ágúst Einarsson, fram-
kvæmdastjóri TM Software, í til-
kynningunni.
Tekjur TM Software, sem leggur
áherslu á þróun vef- og hugbúnaðar-
lausna, jukust um 28% á þriðja árs-
fjórðungi miðað við sama tímabil í
fyrra. TM Software er dótturfyrir-
tæki Nýherja. Erlendar tekjur fyrir-
tækisins af Tempo-hugbúnaði og
sérverkefnum hafa vaxið umtalsvert
og er hlutfall erlendra tekna nú 31%
af heildartekjum félagsins. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá
félaginu.
Vörur TM Software eru seldar til
yfir 2.000 fyrirtækja í 73 löndum og
þýddar yfir á 12 tungumál, þar af var
Tempo-hugbúnaðurinn, sem er tíma-
skráningar- og áætlunargerðarvið-
bót fyrir Atlassian JIRA, nýlega
Hyggst fjölga
starfsmönnum Mun færri þinglýstir leigusamn-
ingar voru gerðir í haust en í
fyrrahaust. Miðað við síðustu 12
mánuði hefur húsaleigusamn-
ingum fækkað um 10% í sam-
anburði við 12 mánuðina þar á
undan.
Þjóðskrá heldur utan um fjölda
leigusamninga. Á síðustu 12 mán-
uðum hefur 9.106 húsaleigusamn-
ingum verið þinglýst, en þeir
voru 10.124 12 mánuðina þar á
undan.
Flestir húsaleigusamningar eru
gerðir í ágúst og september en þá
eru námsmenn að tryggja sér
húsnæði fyrir veturinn. Í ágúst og
september voru 2.278 leigusamn-
ingar gerðir en í sömu mánuðum
árið á undan var 2.271 samningur
gerður og 2.792 haustið 2010.
Leigusamn-
ingum fækkar