Morgunblaðið - 10.11.2012, Síða 36

Morgunblaðið - 10.11.2012, Síða 36
BAKSVIÐ Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Tólf einstaklingar létust ítólf umferðarslysum á Ís-landi á síðasta ári sam-kvæmt nýútkominni árs- skýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa. M.a. vakti það sér- staka athygli nefndarinnar að fjögur af slysunum tólf komu til með þeim hætti að ekið var á gangandi vegfar- anda. Fjögur banaslys urðu vegna útafaksturs bifreiða og þrjú vegna áreksturs bifreiða. Eins og sést á myndinni hér til hliðar hefur banaslysum í umferðinni farið fækkandi undanfarin ár. Í skýrslunni segir að ýmsar skýringar séu þar á. Unnið hafi verið eftir um- ferðaröryggisáætlun og fé veitt til rannsókna. Þá eru þættir eins og fræðsla, löggæsla og vegabætur einn- ig nefndir til sögunnar. Einnig segir að umferð hafi dregist saman. Sér- staklega er tekið fram að á Vestur- landsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut hafi engin banaslys orðið á árunum 2009-2011 vegna framanákeyrsla. Einar Magnús Magnússon, verkefnastjóri umferðaráróðurs og upplýsingafulltrúi Umferðarstofu, er sammála því að fækkun banaslysa komi til af mörgum samverkandi þáttum. „Á undanförnum árum hefur einnig átt sér stað ör þróun er varðar öryggisbúnað í bílum. En hinsvegar má ekki gleyma að mannlegu mistök- in vega hvað þyngst þegar kemur að orsökum umferðarslysa,“ segir Ein- ar. Hann tekur fram að starfsmenn Umferðarstofu hafi þá trú að umferð- armenning hér á landi hafi batnað á undanförnum árum. Það stafi m.a. af aukinni fræðslu, svonefndu aksturs- banni nýliða og bættu ökunámi. Þá sýni mælingar Vegagerðarinnar jafn- framt að dregið hafi úr hraða á veg- um landsins. Þetta séu aðeins nokkur atriði af mörgum sem nefna má sem áhrifavalda hvað aukið umferðar- öryggi varðar. „Svo kom það fyrir mig“ Þegar aldursdreifing bæði þeirra sem látast í banaslysum í um- ferðinni og þeirra sem valda bana- slysum frá 1998-2011 er skoðuð kem- ur í ljós að hlutur ungra ökumanna er stór. Ökumenn 15-24 ára ollu 30% banaslysa frá 1998-2011. Umferðar- stofa beinir forvarna- og fræðslu- starfi sínu fyrst og fremst að yngri ökumönnum en Einar vill einnig leggja áherslu á hlutverk foreldra í því sambandi. „Fyrir nokkrum árum fórum við af stað með verkefni sem heitir „Svo kom það fyrir mig“ sem hefur staðið framhaldsskólunum til boða. Verkefnið byggir á því að nem- endum er sýnd umfjöllun og viðtöl við ungt fólk sem hefur ollið banaslysum í umferðinni. Þarna er um að ræða fólk sem hefur tekið rangar ákvarð- anir á ögurstundu. Þar getur verið um að ræða ölvunar- eða hraðakstur sem eru aðstæður og freistingar sem margir krakkanna geta samsvarað sig við,“ segir Einar og tekur fram að það sé mat Umferðarstofu að verk- efnið hafi þegar borið árangur þó ávallt sé erfitt að leggja hönd á slíkt. Hjá Umferðarstofu er ásamt mörgu öðru á döfinni að efna til her- ferðar gegn símanotkun ökumanna sem hefur verið ört vaxandi vanda- mál. Einar segir jafnframt nauðsyn- legt að efna til fræðslu er varðar óvarða vegfarendur þ.e. þá sem eru gangandi, skokkandi eða hjólandi. Hlutur þeirra fari sem betur fer sí- vaxandi í umferðinni. En þótt þetta séu öruggustu ferðamátar sem hugs- ast getur þá séu aðstæður hér á landi víða mjög erfiðar hvað þetta varðar og huga þurfi að ákveðnum for- vörnum og fræðslu í því sambandi. Samverkandi þættir fækka banaslysum Fjöldi banaslysa og látinna í umferðarslysum 1998-2012 35 30 25 20 15 10 5 0 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 Heimild: Rannsóknarnefnd umferðarslysa*Skv. upplýsingum 9. nóvember Látnir Fjöldi slysa 27 27 21 21 32 23 24 19 29 22 23 20 23 20 19 16 31 28 15 15 12 12 17 15 8 7 12 12 7* 36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sérstök um-ræða um af-leiðingar veiðigjaldsins sem fram fór á Alþingi í vikunni stóð fylli- lega undir nafni. Hún var mjög sérstök. Einar K. Guðfinnsson, sem hóf um- ræðuna, vakti athygli á því hverjar afleiðingar ofurskatt- lagningarinnar á sjávarútveginn væru. Hann benti á að sú aukna samþjöppun í greininni sem var- að hefði verið við væri þegar að koma fram. Og hann vísaði í því sambandi til orða bankastjóra Landsbankans, sem er með langflest sjávarútvegsfyrirtæki í viðskiptum, sem hafi á aðal- fundi Samtaka fiskvinnslu- stöðva sagt orðrétt: „Vegna veiðigjalds er samþjöppun orðið þvingað úrræði fyrirtækja í erf- iðri stöðu.“ Viðbrögð atvinnuvega- og ný- sköpunarráðherra, sem sinnir sjávarútvegsmálum ef tími gefst til frá öðrum verkefnum, voru sem fyrr að þróa þyrfti nýsett lög áfram. Þessi lög voru að vísu þvinguð með látum í gegnum þingið og þá þoldi enga bið að beygja sjávarútveginn, en nú sem fyrr en gagnrýninni svarað með því að agnúar verði skoð- aðir og gefið í skyn að ef til vill verði eitthvað lagað síðar. Þó er ekki viðurkennt að neitt sé að í grundvallaratriðum, síður en svo, þannig að ekki er við mikl- um bótum að búast. En þó að sá sem sinnir sjávar- útveginum innan stjórnarráðs- ins í strjálum lausum stundum frá nýsköpunarvinnu hafi sýnt þeim vanda sem hann hefur komið sjávarútveginum í lítinn skilning var ekki síður sér- kennilegt að hlusta á aðra stjórnarliða. Helgi Hjörvar sneri öllu á haus og taldi að nú fyrst, eftir að búið væri að leggja ofurskatt á greinina, væri hægt að gæta að arðsemi hennar. Nú má að hans mati ná arðsemi út úr sjávar- útveginum. Með hliðsjón af því að sjávarútvegurinn á Íslandi er einstakur hvað hagkvæmni snertir er málflutn- ingur af þessu tagi auðvitað með ólíkindum, ekki síst þegar allir sem til þekkja vita að þær breytingar sem rík- isstjórnin hefur staðið fyrir draga úr arðseminni en auka hana ekki. Helsti talsmaður Steingríms J. Sigfússonar og flóttamaður úr Norðausturkjördæmi vegna fylgishruns VG, Björn Valur Gíslason, var ekki síður öf- ugsnúinn en Helgi. Björn Valur kaus að túlka það sem svo að þeir sem lýstu áhyggjum af stöðu sjávarútvegsins væru að „tala illa um sjávarútveginn“. Annað í ræðu hans var á sömu lund. Því miður var niðurstaða þessarar sérstöku umræðu á Al- þingi fyrirsjáanleg. Ábyrgir þingmenn á borð við Einar Kristin, Gunnar Braga Sveins- son og Sigurð Inga Jóhannsson vöruðu við afleiðingum stjórn- arstefnunnar og reyndu að halda uppi vitrænni umræðu. Svör stjórnarliða fólust í að snúa út úr, berja höfðinu við steininn og neita að viðurkenna vandann. Því miður er ekki útlit fyrir að stjórnarliðar sjái að sér og vindi ofan af mistökunum sem þeir hafa gert. Meiri líkur eru á að þeir knýi í gegn enn frekari skemmdarverk. Í umræðunum beindi Sigurður Ingi orðum sín- um til þeirra útgerða sem berj- ast nú í bökkum vegna laga- breytinga stjórnarflokkanna: „Reynið að þrauka veturinn. Þessu verður breytt.“ Þetta eru hárrétt skilaboð hjá þingmann- inum og eiga ekki aðeins við um sjávarútveginn. Eftir næstu kosningar bíður nýs meirihluta á þingi mikil vinna við að vinda ofan af skaðlegri lagasetningu þessarar ríkisstjórnar á flestum sviðum þjóðlífsins. Fjandskapur stjórn- arliða í garð sjáv- arútvegsins á sér lítil takmörk} „Þessu verður breytt“ Óbindandi at-kvæða- greiðslan sem haldin var um dag- inn um tillögur um drög að stjórn- arskrá og nokkrar spurningar að auki fékk ekki háa ein- kunn á fundi í Háskóla Íslands í gær. Prófessor í lögum sagði að hún hefði verið „gífurlega opin“ og að margþættar spurn- ingar sem lagðar hefðu verið fyrir kjósendur gerðu það „úti- lokað að alþingismenn væru bundnir af einhvers konar óskilgreindum vilja um breyt- ingar á stjórnarskránni“. Þjóð- aratkvæðagreiðslan hefði verið „algjörlega ótímabær og ómarkviss“. Prófessor í stjórnmálafræði sagði að farið hefði verið í dýrar að- gerðir á borð við þjóðfund og þjóð- aratkvæðagreiðslu en að „vönduð skoðanakönnun hefði veitt miklu fyllri og gagnlegri upp- lýsingar fyrir miklu minni fjár- muni“. Talsmenn atlögu stjórnvalda að stjórnarskránni kveinkuðu sér undan því að atkvæða- greiðslan væri kölluð skoð- anakönnun, en samkvæmt þessu var það orð ofrausn um þann óskapnað sem þarna var á ferðinni. Aðför stjórnvalda að stjórnarskránni fékk ekki glæsilega um- sögn á fundi í Há- skóla Íslands í gær} Verri en skoðanakönnun H eimsbyggðin veit að vinnan göfg- ar, og þarf svo sem ekki að fara mikið nánar út í þá sálma. Vinn- an nær meira að segja stundum út yfir gröf og dauða. Eða svona næstum því. Þannig var að ég þurfti að kveðja gamlan vin minn á dögunum. Mann sem vann alltaf mikið og var að nánast alveg fram í andlátið. Og hafði gaman af. Eins og ég hef hugsað mér að gera, þótt ég nenni kannski ekki alltaf að stunda yfirvinnu eða vinna á kvöldin og um helgar. Útförin var á föstudegi, lokaspretturinn í vinnslu sunnudagsblaðsins hafinn og ég hafði því varla tíma til að mæta. Höfðingjann varð ég samt að heiðra með nærveru minni og því varð ekki hjá því komist að laumast til þess að sinna vinnunni aðeins meðan á kveðjustundinni stóð. Fátt var aftast í kirkjunni og síminn stilltur þannig að ekki heyrðist í honum. Guð blessi tæknina. Forspilið, Intermezzo, var leikið það hátt að ég hefði eflaust getað hringt í vinnufélagann en kunni ekki við það. Hófst því handa við að skrifa sms. Á meðan kórinn kveikti á kertum sínum og lét hið milda ljós lýsa dönsuðu fingur mínir eftir snertiskjánum og þar var ekki bullað. Einsöngvarinn lýsti því yfir að hann væri kominn heim og svo komst þú í hlaðið á hvítum hesti og enn var ég að sinna útgáfufélaginu. Verst að þegar ekki var sungið hátt tók ég eftir að hljóð heyrðist þegar ég ýtti á stafina. Hvíldi mig því andartak en tók upp þráðinn næst þegar kór- inn hóf upp raust sína. Prestinum lá sem betur fer heldur hátt róm- ur og minningarorðin voru býsna löng þannig að hægt var að sinna vinnunni af töluverðum móð á meðan hann flutti þau. Skipti ekki öllu þótt ég væri ekki með hugann algjörlega við það sem sá hempuklæddi mælti; þekkti gamla manninn svo vel. Einbeitti mér að vísu að hluta til í átt til altaris þótt síminn nyti mestr- ar athygli. Mér heyrðist ekkert koma fram sem ég ekki vissi. Og minningarorðin voru góð. Farið var með bljúga bæn, kórinn sagðist nú leggja augun aftur og faldi í forsjá þína … Ég er ekki frá því að maður á næsta bekk fyrir framan mig hafi tekið eftir því hvað ég var að brasa, þótt ég teldi mig hafa leynt því afar vel. Fannst eins og ég fengi illt augnaráð. Þótt illa geti staðið á er engin ástæða til að sleppa jarð- arför fólks sem hefur skipt mann máli. Og hinum látna er ekki sýnd nein óvirðing þótt ómögulegt sé að sitja graf- kyrr og hlusta alla athöfnina. En ég verð að játa að ég þakkaði guði hve tækninni hef- ur fleygt fram síðan ég byrjaði í blaðamennsku. Og sá al- máttugi er án efa ánægður með þá þróun sjálfur. Þótt ég sæti aftast í kirkjunni hefði líklega ekki verið við hæfi að sitja með ritvél í fanginu. Þau verkfæri voru ekki hljóðlaus. skapti@mbl.is Skapti Hallgrímsson Pistill Guð veit að vinnan göfgar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um breytingar á umferðarlögum sem m.a. felur í sér að skipaður verði sérstakur trúnaðarlæknir Umferðarstofu. Að sögn Einars Magnúsar mun slíkur trún- aðarlæknir geta skorist í leikinn ef vafi leikur á ökuhæfni ein- staklings. Í frumvarpinu kemur fram að ef lögregla eða læknir telji ökumann vanhahæfan af heilsufarslegum ástæðum skal gera trúnaðarlækni viðvart. „Trúnaðarlæknir lætur í slíku tilfelli framkvæma rannsókn til staðfestingar á hæfni eða van- hæfni ökumanns,“ segir Einar. Samkvæmt frumvarp- inu getur trún- aðarlæknir ákveðið að láta handhafa ökuréttinda und- irgangast verklegt hæfnispróf að lokinni lækn- isrannsókn. Læknir meti ökuhæfni NÝTT FRUMVARP Einar Magnús Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.