Morgunblaðið - 10.11.2012, Síða 46

Morgunblaðið - 10.11.2012, Síða 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 ✝ Helga Páls-dóttir fæddist í Hnífsdal 19. september 1917. Hún andaðist á sjúkrahúsinu á Ísafirði 29. októ- ber 2012. Foreldrar henn- ar voru Páll Páls- son útvegsbóndi, f. 10. júlí 1883, d. 26. mars 1975, og Guðrún Guðríður Guðleifs- dóttir húsmóðir, f. 4. júlí 1895, d. 3. mars 1923. Systkini Helgu eru: Páll, skipstjóri, f. 1. apríl 1914, d. 19. desember 1994, Jóakim, framkvæmda- stjóri, f. 20. maí 1915, d. 8. september 1996, Halldór, f. 4. ágúst 1916, d. 6. júní 1917, Leifur Guðmundur, skipstjóri, f. 28. nóvember 1918, d. 22. júlí, 1999, Kristján, f. 25. maí 1920, d. 1. desember 1941, og Halldór Gunnar, verkstjóri, f. 5. nóvember 1921. Helga giftist 28. október mundsson. Þau eiga þrjá syni. 5) Helga Guðbjörg Skúladóttir, f. 31. mars 1955, maki Hilmar Rúnar Sigursteinsson. Þau eiga eina dóttur. Fyrri maki er Hjörtur Ágúst Helgason. Þau eiga þrjá syni. Helga var fædd og uppalin í Hnífsdal og bjó þar mestan hluta ævi sinn- ar. Hún nam við Húsmæðra- skólann Ósk á Ísafirði árið 1936. Hún varð ráðskona á heimili föður síns þegar Krist- ín Jónsdóttir (f. 17. mars 1883, d. 20. nóvember 1935) seinni kona hans fellur frá. Skúli og Helga bjuggu á Brekkunni hjá Páli föður hennar þegar Skúli ferst og hélt Helga heimili þar meðan hann var á lífi. Utan heimilisins starfaði Helga á símstöðinni, í kaupfélaginu og hraðfrystihúsinu í Hnífsdal. Hún var einnig ötull þátttak- andi í starfi Kvenfélagsins Hvatar og heiðursfélagi í Slysavarnadeildinni í Hnífsdal. Síðustu árin bjó hún á Hlíf, íbúðum aldraðra á Ísafirði. Helga verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju í dag, 10. nóv- ember 2012 og hefst athöfnin klukkan 13. 1939 Skúla Her- mannssyni, sjó- manni frá Ög- urnesi við Ísafjarðardjúp, f. 5. maí 1918. Skúli lést af slysförum við veiðar á Ný- fundnalandsmiðum 1. janúar 1959. Foreldrar Skúla voru Hermann Björnsson, útvegs- bóndi, og Guðfinna Andr- ésdóttir, húsfreyja, í Ögurnesi. Börn Helgu og Skúla eru 1) Guðrún Kristín Skúladóttir, f. 3. apríl 1940, maki Carl Andr- eas Bergmann (d. 2. apríl 2011). Þau eiga fimm börn. 2) Hermann Kristinn, f. 24. mars 1943, d. 18. júní 2001, maki Sólveig Sigurjóna Gísladóttir. Þau eiga fimm börn. 3) Páll Skúlason, f. 8. desember 1945, maki Jóhanna Einarsdóttir. Þau eiga þrjú börn. 4) Guð- finna Skúladóttir, f. 7. október 1952, maki Kristján Guð- 6 ára snáði er keyrður út á Reykjavíkurflugvöll. Flugfreyjan beðin um að hafa auga með snáða, ferðinni er heitið til Ísafjarðar. Ég held á rauðum 5 króna seðli sem er til að borga fargjaldið með Kel- arútunni, spenningurinn er svo mikill að hitta ömmu að ég gleymi að borga Kela, hleyp upp rampinn og amma kemur hlaupandi út úr Pálshúsi á móti mér með opinn faðminn, amma! amma!, þessu augnabliki í lífi mínu mun ég aldr- ei gleyma. Þetta var upphafið að fyrstu sumardvöl minni af mörgum hjá ömmu og afa Páli í Hnífsdal. Þessi ár áttu eftir að móta líf mitt til framtíðar. Þegar ég hugsa til baka þá finnst mér það hafa verið mikil forréttindi að fá að hafa alist upp hjá þér og lært lífsreglurnar hjá þér. Fá að snúast í kringum afa Pál, fara á sjó með afa á Stundvísi, slá með orfi og ljá, rifja og raka, já minningarnar eru endalausar. Eitt sumar var ég hjá þér eftir að afi dó og þá byrjaði ég í minni fyrstu launuðu alvöru vinnu í salt- fiski. Seinna kom ég svo aftur vestur til að vinna, þá við smíðar og dvaldi þá ýmist hjá þér eða Helgu og Hirti. Alltaf gat ég haft öruggt athvarf hjá þér, umvafinn ást þinni og hlýju. Fljótlega fórstu að kalla mig hjartakónginn þinn og var ég mik- ið upp með mér við það. Fyrir nokkrum árum fórstu að tala um aðra ömmustráka sem hjarta- kónga. Ég tók þá upp á því að senda þér bréf og smápakka, ekk- ert nafn skrifaði ég undir, en laumaði einum hjartakóngi úr spilastokk með. Ekki leið á löngu þangað til þú hringdir skellihlæj- andi og sagðir að þetta hefði eng- um dottið í hug nema mér, þá vissi ég að ég væri hjartakóngurinn þinn! Elsku besta amma mín, það var nú ekki gaman að horfa upp á þig rúmliggjandi síðustu mánuðina það var nú ekki þinn stíll. 50 ára afmælisdeginum mínum varði ég að mestum hluta hjá þér og þegar við kvöddumst vissum við bæði að það væri líklegast í síðasta sinn, lífsneistinn búinn og þú sagðist tilbúin að fara. Að leiðarlokum vil ég minnast þín sem glæsilegustu og falleg- ustu manneskju sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Hvíldu í friði í dalnum þínum, Hnífsdal. Ég mun aldrei gleyma þér. Hjartakóngurinn þinn, Guðmundur Karl Bergmann. Elsku fallega og góða amma mín og nafna, Helga Pálsdóttir, amma Helga eins og hún var jafn- an kölluð, verður borin til grafar í dag, 10. nóvember. Mig langar til að minnast hennar með fáeinum orðum. Amma mín var yndisleg og glæsileg kona sem bar höfuðið hátt alla tíð, teinrétt og spengileg svo að eftir því var tekið. Ég fór ung að árum í Hnífsdal í Pálshús með pabba mínum og mömmu og litla bróður mínum þar sem mamma og pabbi komu vestur með okkur krakkana og fóru á vertíð. Pabbi fór á sjóinn og mamma fór að vinna í frystihúsinu svo að þau gætu haldið áfram að klára að byggja húsið sitt. Þar átt- um við yndislegar stundir. Síðan var ég mörg sumur ein hjá ömmu Helgu þegar hún var flutt á Garðaveginn. Amma hugsaði allt- af vel um að maður borðaði vel, ég var í íþróttagöllum sem mamma mín sendi mig með, var með þrenna til skiptanna. Amma þvoði þá til skiptis. Síðan þegar ég kom heim á haustin eftir dvölina hjá ömmu Helgu þá fékk mamma alltaf sjokk því þá var stelpan búin að bæta nokkrum kílóum á sig í góða yfirlætinu hjá ömmu. Síðar meir strax eftir fermingu þá kom ég vestur á vertíð ásamt Bryndísi Bergmann, frænku minni og vin- konu, þar sem við vorum allt sum- arið í góðu yfirlæti hjá ömmu, hún eldaði fyrir okkur bæði í hádeginu og á kvöldin . Hún var okkur svo yndislega góð, það hefðu ekki allar konur á hennar aldri nennt eða haft burði til að standa í að vera með tvær unglingsstelpur. Og síð- an mun ég aldrei gleyma þegar að við frænkur fórum að kíkja á böll- in og þegar við læddumst inn á nóttunni, þar sem amma svaf laust spurði hún: „Voruð þið nokkuð að kyssa stráka?“ Já, þetta voru ynd- islegir tímar sem ég mun alltaf geyma í minningunni. Mörgum árum síðar flutti ég vestur í Bolungarvík og bjó þar í átta ár og þá hitti ég hana ömmu mína nokkrum sinnum í viku. Ég vann alltaf tvo morgna á Hlíf dval- arheimili þar sem amma var íbúi. Þar var ég að klippa, lita og leggja hár og setja í permanett. Þá var amma mín komin yfir áttrætt, en þegar að mikið var að gera þá hjálpaði amma mér að skola permanett og taka spólur úr. Já, hún amma var engum lík. Og enn hugsaði hún um að stelpan fengi nóg að borða, því 1997 þegar var ég ófrísk af mínu fyrsta barni og var alveg hrikalega flökurt og síælandi allan sólarhringinn þá kom amma sterk inn að passa upp á að Helga sín fengi að borða mjög reglulega. Já, amma mín, þú ert flottasta konan i öllum heiminum og ég elska þig óendanlega mikið og á eftir að sakna þín sárt. Einnig langar mig að skila innilegu þakk- læti fyrir alla sokkana og vett- lingana sem þú ert búin að gefa börnunum mínum í gegnum tíð- ina. Þau eiga eftir að ylja sér í þeim um ókomna framtíð. Ég veit að afi Skúli og Hemmi frændi eiga eftir að taka vel á móti þér á nýj- um stað. Elsku amma mín, við sjáumst síðar þegar minn tími kemur. Takk fyrir tímann sem með þér áttum, tímann sem veitti birtu og frið. Ljós þitt mun loga og leiðbeina áfram, lýsa upp veg okkar fram á við. ... ( P.Ó.T .) Þín að eilífu Helga Pálsdóttir. Elsku besta amma mín í Hnífs- dal. Nú ertu farin í ferðalagið langa. Þú varst farin að bíða eftir því núna undir það síðasta, og ég reyni að hugga mig við það að nú líður þér vel, þó ég syrgi þig mikið. Þú barst aldurinn ótrúlega vel og varst heppin með það. Höfuðið algjörlega í lagi til síðasta dags og alltaf svo líkamlega vel á þig kom- in. Það var ekki fyrr en fyrir nokkrum árum sem líkaminn fór að gefa sig og þú þurftir að fá göngugrind. Þú grínaðist nú með það að loksins eignaðist þú farar- tæki, en þú áttir aldrei bíl og tókst ekki einu sinni bílpróf. Það fannst og finnst mér svo magnað, enda varst þú mögnuð kona. Það fyrsta sem kemur upp í huga minn þegar ég hugsa um þig er hvað þú varst rosalega góð fyr- irmynd, og einnig mörg lýsingar- orð eins og falleg, góð, gáfuð, glöð, tignarleg, ákveðin, dugleg, orku- mikil og svona mætti lengi telja. Það hefur ekki verið auðvelt að missa manninn sinn svona ung frá 5 börnum, en þú stóðst þig eins og hetja og getur svo sannarlega ver- ið stolt af börnunum þínum öllum sem eru hvert öðru yndislegra. Það var alltaf svo gaman að fá ömmu í heimsókn á Skagann, ekki skemmdi það fyrir að maður vissi að þú gaukaðir að manni smá pen- ingum. Ég upplifði það eins og ég væri sú eina sem fengi svona extra gjafir frá þér, þú lést mig alltaf finnast ég vera sérstök. Ég er svo fegin að hafa getað sagt þér í allra síðasta sinn hvað ég elskaði þig mikið, aðeins nokkr- um mínútum áður en þú kvaddir þennan heim. Og hvað ég er líka glöð að hafa heimsótt þig í sumar, og þú gast séð Tinnu Maríu mína í fyrsta skipti. Ég á eftir að segja henni margar góðar sögur af ömmu Helgu, það eitt er víst. Takk, elsku amma mín, fyrir allt og allt. Ég óska þér góðrar ferðar en ég veit að afi og Her- mann þinn hafa tekið vel á móti þér, ásamt fullt af fleirum ástvin- um sem hafa kvatt þennan heim. Guð geymi þig, ég elska þig ávallt, elsku amma mín. Kær kveðja, þín Elísabet. Elsku besta amma mín, amma í Hnífsdal, er fallin frá. Hún var ótrúleg kona, ég á henni svo margt að þakka og minning henn- ar mun ávallt lifa í hjarta mínu. Hún var stórglæsileg og ávallt vel til höfð. Aldurinn bar hún lipurtá ávallt vel, enda var það þannig, að þegar ég sýndi vinum mínum myndir af henni trúði mér enginn þegar ég sagði hversu gömul hún væri. Ég kallaði hana ömmu pæju á seinni árum og hló hún mikið að því en fussaði samt pínulítið um leið, hún kunni ekki við svona hrós. Ávallt var dásamlegt að koma í heimsókn til ömmu og aldrei mun ég gleyma ilminum af gómsætu pönnukökunum hennar, sem voru svo vinsælar að um leið og hún sagði okkur að hún væri að koma suður, stökk pabbi út í búð og keypti hráefni í pönsur, hann var pönnukökuaðdáandi nr. 1. Amma passaði afar vel upp á mig þegar ég var hjá henni, og ávallt var mik- ið brallað og gaman að vera í Páls- húsi, þó mér hafi þótt minna spennandi að þurfa alltaf að pissa í kopp á næturnar, sem geymdur var undir rúmi, þar sem amma var hrædd um að ég myndi slasa mig í bratta stiganum, enda laumaðist ég oftar en ekki niður, en fékk svo smá skammir daginn eftir. Því auðvitað vaknaði hún við brakið í stiganum. Sumar eftir sumar tók hún á móti okkur með bros á vör þegar við Helga frænka, sumargæsirnar tvær, komum og bjuggum hjá henni á meðan við vorum að vinna í frystihúsinu í Hnífsdal. Þrátt fyr- ir að vera komin á sjötugsaldur fannst henni það nú ekki mikið mál að vera með tvo unglinga í fjóra mánuði mörg, mörg sumur í röð. Á hverjum einasta degi beið hún eftir okkur með heitan mat í hádeginu. Henni leiddist afar mik- ið að hafa afganga, borðuðum við þess vegna vel og mikið og komum pattaralegar heim eftir sumar- dvölina. „Sláturkeppssagan“ er fræg og mikið höfum við hlegið að henni síðan, þó svo að amma hafi ávallt sagt að sagan sé helber lygi! Ekki vorum við skammaðar þó við lægjum í slorgallanum í stofusóf- anum angandi af grálúðufnyk. Við unglingarnir fórum auðvit- að stundum á böll um helgar, en ávallt vaknaði hún við heimkomu okkar, sama hversu mikið við læddumst og hvísluðumst á. Og ef við komum seinna heim en hún hafði átt von á sagði hún morg- uninn eftir: Þið komuð seint heim í gær, voruð þið að kyssa stráka? Við skellihlógum allar og svo var það ekkert rætt meira, þetta útstáelsi á okkur frænkunum. Ég á mér svo óhemju margar fallegar og skemmtilegar minningar um frábærar stundir með ömmu minni, sem og mikið af ótrúlega fallegum hlutum og fatnaði sem hún bjó til. Litla „hjartarósin“ á einnig eftir að sakna ömmu Helgu afar mikið og vilja skreppa í heim- sókn til hennar eftir leikskólann. Núna síðustu árin áttum við amma ótrúlega mörg skemmtileg og hressandi símtöl, sem ég á eftir að sakna ótrúlega, en við grínuð- umst endalaust og hlógum svo mikið að hláturstárin láku niður kinnarnar á okkur báðum. Í dag renna annars konar tár niður kinnar mínar, með sorg og sökn- uði en jafnframt miklu þakklæti, virðingu,væntumþykju og ást kveð ég yndislegu ömmu í Hnífs- dal. Hvíl í friði, elsku amma mín. Þín elskandi, Bryndís Bergmann. Þegar ég kvaddi ömmu í sept- ember var ég viss um að við mynd- um taka upp þráðinn aftur og eiga gott samtal við fyrsta hentugleika. E.t.v. er það óraunsæi að ætla enn frekara langlífi manneskju á 96. aldursári sem hafði glímt við versnandi heilsu. En hún var alltaf svo kröftug, hnarreist og seig í mótlæti, að burtferðardagurinn virtist enn í óræðri framtíð. Eftir á að hyggja, þegar ég fer yfir samtal okkar í huganum, ætlaði hún lík- lega að útskýra að þetta gæti orð- ið okkar hinsta kveðja. En ég eyddi öllu feigðartali snarlega. Hún var hins vegar æðrulaus og óhrædd við dauðann. Hipsurslaus og ófeimin að ræða endalokin, eins og hvað annað. „Enginn veit sína ævina fyrr en öll er“, kom oft fyrir meðal þeirra fjölmörgu spakmæla sem hún hafði á hraðbergi. Eftir standa minningarnar og þakklæti fyrir að hafa átt hana að. Ómögulegt er að henda reiður á þeirri skuld, hvorki í stóru né smáu. Allar pönnukökurnar og spilamennskan. Öll þolinmæðin og umhyggjusemin. Þannig sáust t.d. aldrei nein merki óþreyju þó ég fengi hana til að lesa eftirlætis- bækurnar aftur og aftur. Henni tókst þó aldrei að kenna mér að prjóna svo vel væri og brá loks á það ráð að leysa prjónaverkefnin sjálf. Vona ég að skólayfirvöld láti það óátalið úr þessu. Þá voru þetta bernskustundir einlægrar gleði. En í reynd ómetanlegt veganesti. Amma mín var áhugasöm um flesta hluti og náttúrlega gagn- rýnin. Hún hafði góða hæfileika til að miðla fróðleik og segja frá áreynslulaust. Minnið óþrjótandi að því er virtist. Þá var hún lagin við að spyrja og draga fram það áhugaverðasta sem aðrir voru að fást við. Hún var framfarasinni hvort sem var í félagsmálum eða tækni. Átti t.d. auðvelt með að til- einka sér farsímatæknina og þótti smáskilaboð hentug. Hún var heima í flestum mál- um. Í sumar ræddum við t.d. rannsóknir á lífgasframleiðslu í dreifbýli í Skotlandi sem ég hafði nýverið kynnst. Hún var fljót að benda mér á að þetta væri auðvit- að náskylt hauggassöfnuninni hjá Sorpu í Reykjavík. Þá birti yfir henni. Hugurinn hreif hana með og líkamlegir krankleikar gleymdust andartak. Amma naut þess að gera að gamni sínu í góðum félagsskap, ræða þjóðmálin, rifja upp liðna tíð, rekja ættir og fara með verk þjóð- skáldanna. Þannig hefur verið fitj- að upp á ýmsu meðal nágrann- anna á Hlíf. Sérstaklega hafa þær Björney Björnsdóttir verið sam- rýndar vinkonur og reyndist það mikill styrkur. Amma átti net stuðningsmanna sem hún reiddi sig á með ýmsa hluti. Þannig tókst henni að varðveita sjálfstæði sitt og höfðingjabrag fram á síðustu vikur. Þegar á reyndi mætti hún velvilja og hlýju heilbrigðisstarfs- fólks sem hún var afar þakklát fyrir. Fyrir hönd aðstandenda vil ég ítreka þær þakkir. Ég kveð fyrirmynd, stuðnings- mann og vin. Fyrir hönd fjölskyldu minnar sendi ég afkomendum Helgu, að- standendum og vinum innilegar samúðarkveðjur. Kristinn Hermannsson. Tilveran er nú tómlegri og með söknuði kveð ég einstaka mann- eskju sem hefur alltaf gegnt mik- ilvægu hlutverki í mínu lífi. Þegar ég var yngri var hún amman sem sýndi ómælda ást og umhyggju, prjónaði bestu lopasokkana og bakaði gómsætustu pönnukök- urnar. Eftir því sem ég komst til vits og ára kynntist ég betur stór- kostlegu manneskjunni á bakvið ömmuna góðu. Sambandið á milli okkar varð sífellt dýpra og hún var mér dýrmæt tenging við minningu pabba eftir fráfall hans. Sannkallaður fjársjóður og for- réttindi að hafa átt hana ömmu í heimahögunum og fengið að eiga ótalmargar gleðistundir með henni. Landfræðileg fjarlægð seinni árin var miður, en fagnað- arfundir voru miklir og innilegir þegar við hittumst, það var und- ursamlegt að taka þráðinn upp að nýju. Amma var fjölfróð, skörp og minnug, fylgdist með menningu, þjóðmálum og líðandi stund af miklum áhuga og náttúrulegri gagnrýni. Þar sem amma hafði lif- að tímana tvenna var hún merki- leg heimild í sjálfu sér. Kvæðin voru hluti af arfleifðinni, og hún lífgaði iðulega upp á samræður með heilræðum og vísum, sem runnu lauflétt upp úr henni. Við vorum sammála um að það þyrfti að halda þessu til haga, amma rit- aði og fór með fyrir mig, en það var ekkert sem hún amma vildi ekki fyrir mig gera. Það er því með miklum heiðri og þökk sem „Kvæði í boði Helgu Páls“ kemur út á meðal fjölskyldunnar. Amma bar sig alltaf vel, sýndi kjark og kraft, sama hvað á dundi, og mætti áföllunum á lífsleiðinni af einstakri sálarró. Hún var ung í anda og til í að slá hlutunum upp í grín. Ég gat sagt henni sömu gamansögur og vinunum og við hlógum innilega að uppákomum og frásögnum hvor annarrar. Þeg- ar fólk varð vitni að símtölunum og uppgötvaði að á línunni var öldruð amma mín, en ekki jafn- aldri, vakti það undrun. Mér er minnisstætt hvernig lífsgleði hennar sýndi sig þegar við Krist- inn leiddum hana á milli okkar út í hríðarbyl eftir jólahald. Hún tókst nánast á loft, varð drifhvít á auga- bragði og náði varla andanum, en rifjaði atvikið oft upp og hló dátt. „Mundu nú að hafa gaman líka“ var hún vön að segja við mig þeg- ar henni fannst námið taka yfir- höndina. Amma gerði allt af dugnaði og samviskusemi, hvort sem var handavinna, tryggð við fólk eða rausnarskapur, en var þó einstak- lega hógvær. Hún svaraði með blíðu brosi þegar við spjölluðum um kosningabaráttuna í vor og ég sagði af miklu áræði að hún hefði orðið næsti forseti ef aldur hefði leyft. „Allt er best í hófi“ voru hennar einkunnarorð, og áttu sinn þátt í góðu andlegu og líkamlegu formi. Amma hélt tign sinni og skerpu fram á síðasta dag, þótt líkamleg heilsa væri farin að bresta, og lifði hvert ár lifandi, hnarreist og glæsileg. Ég var gæfusöm að fá að njóta hennar, og fór hvert sinn af hennar fundi sem betri mann- eskja, brýnd til dáða, umvafin hlýju. Ég tek hennar lífsgildi og hvatningarorð með áfram í lífið og ylja mér við ljúfar minningarnar, ævinlega þakklát fyrir allt sem hún hefur gefið mér. Ég sendi innilegar samúðar- kveðjur til frændfólksins og vel- unnara ömmu. Hafdís Sunna Hermannsdóttir. Okkur bræðurna langar til að minnast Helgu langömmu okkar með miklum hlýhug og væntum- þykju. Frá því við fórum að muna eftir okkur yljuðu lopavettlingar og sokkar, sem hún sendi okkur suður, á köldum vetrardögum og okkur þótti mjög vænt um að fá þessar hlýju gjafir frá henni. Þegar við heimsóttum hana vestur bauð hún okkur ávallt uppá pönnukökur og aðrar kræsingar og á eftir lékum við okkur að öll- um dýrunum sem hún átti í kassa og hafði til taks þegar barna- og langömmubörnin heimsóttu hana. Langamma náði því að verða 95 ára og vorum við afar stoltir að eiga svona glæsilega og dugmikla langömmu sem alltaf var svo hress og hlý. Hún var há og tign- arleg og sérlega minnug á alla skapaða hluti og þegar við hitt- umst faðmaði hún okkur alltaf svo innilega að sér. Við eigum margar góðar minningar um Helgu lang- ömmu og erum við afar þakklátir fyrir að hafa notið samveru henn- ar og gæsku. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Hermann Ingi og Ingvar Páll Skúlasynir. Við systkinin urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast Helgu Páls árið 1989. Faðir okkar flytur síðan til hennar í Hnífsdal er þau hófu sambúð. Var hann því alsæll, kominn á sínar bernsku- Helga Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.