Morgunblaðið - 10.11.2012, Síða 51

Morgunblaðið - 10.11.2012, Síða 51
elskuðum hann rosalega mikið. Hann gat sett tennurnar út úr sér, það fannst okkur gaman, þá ýtt- um við á nefið á afa og tennurnar skutust út. Við eigum eftir að sakna hans og skemmtilegra stunda með honum. Þín barnabörn, Andrea Þórey og Sindri Aron. Óskar var alinn upp á Háeyri í Vestmannaeyjum ásamt systkin- um sínum og var einn af hinum svokölluðu Lautarpeyjum. Strax á ungum aldri varð hann vina- margur og vel látinn, enda stóð heimilið vinum og félögum alltaf opið þótt þröngt væri búið. Lautin var leiksvæðið þar sem leikinn var fótbolti á sumrin, brunað á vetr- um og ekki skorti prakkarastrik- in. Á sumrum var hann eins og títt var sendur í sveit undir Fjöllin þar sem hann dvaldi á Miðbælis- bökkum og bast ábúendum þeim vináttuböndum sem entust ævina út. Strax á æskuárum kynntist Óskar djazztónlistinni hjá Sigga frænda sínum á Háeyri og Týssa bróður sínum og heillaðist svo að hann notaði flest tækifæri til að njóta djazztónlistar. Ekki var mulið undir Óskar frekar en marga á þessum árum og þurfti hann snemma að sjá sér sjálfur farborða og aðeins fjórtán ára að aldri var hann orðinn háseti á síld á því kunna aflaskipi Gull- borginni með Binna í Gröf. Upp frá því varð sjómannslífið hans hlutskipti, stundaði hann sjóinn með mörgum landskunnum afla- og sjómönnum á ýmsum bátum. Sautján ára gamall var hann á Hersteini með Ása í Bæ og varð þá sá lánsmaður að bjarga skáld- inu, sem hafði fallið fyrir borð í öllum sjóklæðum, frá drukknun. Óskar hikaði hvergi þó ungur væri og stakk sér til sunds og kaf- aði eftir Bæjaranum. Um tvítugt dreif Óskar sig í Stýrimannaskólann í Vestmanna- eyjum og varð strax stýrimaður og síðan skipstjóri. Óskar var stýrimaður á vélbátnum Erlingi IV sem fórst á leiðinni vestur á Selvogsbanka á vetrarvertíðinni 1963 og varð það honum sár reynsla, ekki síst þar sem annar þeirra sem fórust var tilvonandi mágur hans, sem hann hafði ráðið til afleysinga í þennan róður. Þá tók Óskar það mjög nærri sér þegar besti vinur hans, Óli Tótu, fórst í róðri suður af Eyjum og þegar Bjössi kokkur og Eisi, vinir hans til margra ára, drukknuðu í höfninni í Vestmannaeyjum. Mörg ár var Óskar skipstjóri á bátum Fiskiðjunnar eða þar til hann keypti vélbátinn Frá og hóf eigin útgerð. Hann var alla tíð far- sæll og fengsæll skipstjóri og naut einstakra vinsælda og vináttu skipverja sinna, enda voru þeir margir um borð hjá honum um áratugi. Óskar var félagslyndur og mikill húmoristi, gæddur fleygri frásagnargáfu og naut sín vel á góðum stundum. Stærsta gæfuspor í lífi sínu steig hann, þegar hann gekk að eiga eiginkonu sína Ingu Ander- sen, sem bjó honum og börnunum fagurt og gott heimili við Há- steinsveg í Eyjum. Var Inga hans kjölfesta í tilverunni og síðan stoð og stytta þegar boðaföll sjúkdóma riðu yfir á seinni árum. Á miðjum aldri fékk Óskar hjartaáfall og á seinni árum varð hann oft mikið veikur og vart hug- að líf. En aldrei heyrðist hann mæla æðruorð af vörum, en hélt heldur uppi glettni og gamanmál- um. Elsku bróðir, ég verð ævinlega þakklát fyrir hvað við vorum góðir vinir á lífsleiðinni og fyrir að hafa fengið tækifæri til að umfaðma þig og kveðja á þínum síðustu ævi- dögum. Hugur minn dvelur hjá Ingu, börnunum og fjölskyldum þeirra og votta ég þeim alla mína samúð og hluttekningu. Þín systir, Ásta (Bubba). Mig langar í fáeinum orðum að minnast Óskars Þórarinssonar sem lést á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum 2. nóvember sl. Ég kynntist Óskari lítillega þegar ég var í yngri hópi Laut- arpeyjanna en hann í þeim eldri. Og sem yngri Lautarpeyi vissi ég vel að hann sem einn af þeim eldri hafði ákveðna stöðu í Laut- inni, stöðu sem við þeir yngri virtum skilyrðislaust. Við litum svo sannarlega upp til þeirra eldri og þeir voru á vissan hátt okkar fyrirmyndir. Við hlökkuð- um reyndar óendanlega til þeirr- ar stundar er við yrðum í flokki hinna eldri og nýr hópur yngri peyja færi að líta upp til okkar með takmarkalausri virðingu. Þannig gekk þetta fyrir sig í Lautinni í þann tíð. Ég kynntist Óskari aftur löngu síðar. Þá var ég uppkominn og Lautarstundirnar lifðu misskýr- ar í minningunni. Óskar var þá kvæntur Ingibjörgu frænku hennar Jóhönnu minnar og þar sem fjölskyldur þeirra voru bæði frændræknar og nánar á margan hátt, fór ekki hjá því að leiðir okkar Óskars lægju saman aftur. Enn fannst mér Óskar búa yfir sama aðdráttaraflinu og fyrr. Hann kunni frá mörgu að segja, var skemmtilegur á mannamót- um og hafði sérstakt lag á að hrífa fólk með sér í frásögninni. Oftar en ekki sagði hann skemmtilegar sögur úr Eyjum, stundum af sjálfum sér og sínum en einnig af skemmtilegum og stundum sérstæðum samferða- mönnum sem lent höfðu í ótal æv- intýrum, trúlegum og ótrúlegum. Nánara spjall í kringum sögur Óskars kallaði síðan á enn fleiri vangaveltur og nýjar nálganir á mannlífinu. Þar sem Óskar var sjómaður tengdust sögur hans gjarnan sjómannslífinu og fjöl- breytileika þess. Nú á seinni árum áttum við Jó- hanna stundum ómetanlegar og skemmtilegar samverustundir með Ingu, Óskari, Marý og Kolla. Borðaður var góður matur og síð- an tók spjallið við. Um nóg var að tala því mannlífið var enn sem fyrr ótæmandi uppspretta og alltaf voru umræðuefnin fleiri en tími gafst til að ræða um til fulls. Mér fannst oft einna skemmtileg- ast þegar Óskar komst á skrið, sagði frá og við Kolli hlustuðum og skutum kannski inn einni og einni athugasemd. Sami léttleik- inn og húmorinn var enn sem fyrr í fyrirrúmi og hláturinn sjaldnast fjarri. Stundum ræddum við reyndar alvarlegri málefni líð- andi stundar og brutum þau til mergjar. Allar þessar stundir eru ógleymanlegar, þær gáfu svo margt og bættu svo sannarlega upp hversdagsleikann. Alls þessa mun ég alltaf minnast með eft- irsjá í huga. Nú er Óskar látinn, reyndar allt of fljótt og eftir erfið veikindi. Við sem kynntumst honum minn- umst hans sem góðs drengs sem við vorum sannarlega heppin að fá að kynnast. Í minningu okkar lifir myndin af glöðum og skemmtilegum samferðamanni. Ég votta Ingu, afkomendum þeirra Óskars og öllum ættingj- um dýpstu samúð okkar hjóna. Minningin um Óskar Þórarinsson mun lifa og blessuð sé sú minn- ing. Ragnar Óskarsson. Það þarf ekki að lýsa hér ljúfmenni því sem lét svo margt gott af sér leiða. Nærvera hans var svo heillandi hlý eŕann hjálpaði mönnum um greiða. (Lýður Ægisson) Mér þykir vænt um þig Tóti. Þetta voru kveðjuorðin þín þegar við kvöddumst eftir síðustu heim- sóknina mína til þín á sjúkrahús- ið, þar sem þú beiðst eftir að maðurinn með ljáinn kæmi og þið færuð saman út í eilífðina. Í þessari heimsókn fengum við í síðasta sinn tækifæri til að slá á létta strengi og tala saman um liðnar stundir, en þau minninga- brot verða ekki rædd hér. Ég kynntist Óskari á Frá fyrir rúmlega hálfri öld en mæður okk- ar voru vinkonur og svo ólumst við báðir upp í „Lautinni“. Síðar í lífsdansinum tókst með okkur mikil vinátta sem, hann, sjómað- urinn, skipstjórinn og útgerðar- maðurinn, og ég rafvirkinn höf- um haldið síðan. Þær voru margar stundirnar sem við áttum saman um borð í bátunum hans við leik og störf. Að koma um borð, fara í lúk- arinn og fá kaffi í könnu var eins og að lenda á frumsýningu á góðu leikriti, þvílík var frásagnarlist Óskars, þar sem hann var leik- stjórinn, leikarinn og ljósamað- urinn. Hann hafði þá náðargáfu að öllum leið vel í návist hans og allir sem áttu um sárt að binda áttu örugga heimahöfn hjá hon- um. Hann einfaldlega mátti ekkert aumt sjá. Það var stutt í húmorinn hjá Óskari og tilsvörin voru ávallt á léttu nótunum. Ein er sú saga af Óskari sem sýnir það. Það tíðkaðist hér áður, að í alla dýptarmæla var notaður sérstakur pappír, sem mælirinn ritaði á botn og lóðningar. Þetta var oftar en ekki pappír sem var blautur og margir höfðu það fyrir sið, að þegar rúllan var búin var hún bleytt og notuð aftur. Ég spurði Óskar eitt sinn hvort hann bleytti pappírinn og notaði rúll- una aftur. Óskar svaraði: „jú, ég bleyti pappírinn alltaf þegar ég hendi rúllunni í sjóinn“. Nú er Óskar farinn og siglir á ókunnum miðum eilífðarinnar. En minningin um góðan dreng lifir og góðar stundir í tonnatali. Það eru menn eins og Óskar sem skilja slíkt eftir. Mér þykir vænt um þig Óskar. Fjölskyldan kveður sinn kærasta vin í kærleik og fráfall hans harmar en sálina Óskars við himneskan hlyn nú hlúa að frelsarans armar. (Lýður Ægisson) Við Gunna vottum fjölskyldu Óskars okkar dýpstu samúð. Þórarinn Sigurðsson (Tóti í Geisla). Látinn er góður vinur okkar, Óskar Þórarinsson, skipstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyj- um. Hann var Eyja-peyi og ávallt nefndur Óskar frá Háeyri, en Háeyri í hjarta bæjarins var ættaróðalið. Þar bjó Guðmundur afi hans skipasmiður ásamt konu sinni Jónínu og börnum þeirra. Ein- hvern veginn var þar alltaf opið hús fyrir gesti og gangandi og þá sem þurftu skjól. Guðmundur var mætur mað- ur og fyrirmynd ungum dreng. Oft vitnaði Óskar í afa sinn og ljómaði í fallegu brosi, svo römm var sú taug. Óskar var farsæll skipstjóri og rak myndarlega útgerð m/b Frá með fjölskyldu sinni. Hann var víðlesinn og fróður, minnug- ur og sagði skemmtilega frá. Hann var mikill djassáhuga- maður og naut tónlistar í botn. Óskar var drengur góður, „vinur litla mannsins“, mátti ekkert aumt sjá. Margt góðverkið gerði hann sem aldrei var talað um, bara brosað með hlýju í augun- um. Hann giftist æskuvinkonu minni Ingu Andersen. Þau eign- uðust Rakel og Sindra, fyrir átti Óskar Sigmar Þröst. Með Ingu tók hann að sér tvö stjúpbörn Knút og Kristínu. Þetta er mannvænlegur hópur sem stóð þétt saman í veikindum síðustu ára. Gott var að eiga þau Ingu og Óskar að vinum, sú vinátta er þökkuð af alhug. Ferðalög, spjall, bros og ekki síst allar veiðiferðirnar í Grenlækinn. Það eru okkur dýrmætar minningar sem aldrei gleymast. Við hugs- um til hans með flugustöngina sína að kasta í lækinn. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Elsku Inga og fjölskylda, við biðjum góðan Guð að blessa ykkur öll og varðveita. Blessuð sé minning Óskars frá Háeyri. Hrönn og Þórður. HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn. Vonandi líður þér betur uppi hjá Guði. Ég sakna þín, þú ert svo skemmtileg- ur og góður. Ég skal passa ömmu á meðan þú ert hjá Guði. Ég elska þig. Bestu kveðjur frá litla stráknum þínum, Teit.  Fleiri minningargreinar um Óskar Þórarinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 Inger Steinsson Inger Rós Ólafsdóttir ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta Sími: 551 7080 - 691 0919 athofn@athofn.is - Akralandi 1 - 108 Reykjavík ✝ Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför okkar ástkæru MARGRÉTAR TINNU G. PETERSSON, Birkilundi 2, Akureyri. Selma Aradóttir, Jóhann Freyr Jónsson, Martin Petersson, Saga Marie Petersson, Guðmann Ólfjörð Guðmannsson, Helga Magnúsdóttir, Þorleifur Stefánsson, Stefán Grétar Þorleifsson, Ari B. Hilmarsson, Margrét Kristinsdóttir, Gunnar Sólnes og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓHANN EINVARÐSSON, Heiðargarði 29, Keflavík, lést laugardaginn 3. nóvember. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 12. nóvember kl. 15.00. Ef þörf krefur verður mögulegt að fylgjast með útförinni í Stapa í Njarðvík. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast Jóhanns er bent á Líknarsjóð Oddfellow- stúkunnar nr. 13, Njarðar, 0121-15-201303, kt. 680380-0239, eða aðrar líknarstofnanir. Guðný Gunnarsdóttir, Gunnar Jóhannsson, Fríða Kristjánsdóttir, Einvarður Jóhannsson, Alice Harpa Björgvinsdóttir, Vigdís Jóhannsdóttir, Birgir Örn Tryggvason og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minn- ar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, dóttur og systur, JÓNÍNU ÓLAFSDÓTTUR, Melás 11, Garðabæ. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild 11E á Landspítalanum ásamt heimahjúkrun Karítas fyrir góða umönnun og einstaklega hlýtt viðmót. Hafþór Árnason, Sigríður Kristín Hafþórsdóttir, Magnús Már Magnússon, Hanna Björk Hafþórsdóttir, Sveinbjörn Hólmgeirsson, Ólafur Árni Hafþórsson, Hanna S. Steinarsdóttir, Helga María Hafþórsdóttir, Sigríður Benediktsdóttir, Sigurvin Ólafsson, Svandís Sigurðardóttir, Ríkey, Ísak, Bergur, Sara, Hafþór, Freyr og Aníta Máney. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eigin- konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, INGVELDAR EINARSDÓTTUR Álfabergi 14, Hafnarfirði. Trausti Sveinbjörnsson, Björn Traustason, Helga Halldórsdóttir, Bjarni Þór Traustason, Sigrún Ögn Sigurðardóttir, Ólafur Sveinn Traustason, Eydís Eyþórsdóttir og barnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu. ÁLFHEIÐAR BJÖRNSDÓTTUR, áður til heimilis í Hörgatúni 11, Garðabæ. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins á Vífilsstöðum fyrir alúð og einstaka umönnun. Guð blessi ykkur öll. Jóhanna S. Sigmundsdóttir, Eiríkur Hjaltason, Birna J. Sigmundsdóttir, Kolbrún S. Sigmundsdóttir, Jón Torfason, Kristján P. Sigmundsson, María E. Ingvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGU SIGURJÓNSDÓTTUR, Víðimel 72. Garðar Guðmundsson, Guðrún Helgadóttir, Sigrún Kristín Guðmundsdóttir, Torfi Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.