Morgunblaðið - 10.11.2012, Síða 68
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 315. DAGUR ÁRSINS 2012
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 699 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Gaf dóttur í bætur fyrir nauðgun
2. Tom Hanks í leiðindamáli
3. „Virðingarleysið er algjört“
4. Hófst allt eftir Playboy
Fítónblaðið er komið út, fram-
úrstefnulegt tímarit sem auglýs-
ingastofan Fítón gefur út árlega. Svo
framúrstefnulegt er blaðið, að þar
eru auglýsingaplaköt fyrir forseta-
kosningarnar 2016. Á meðal fram-
bjóðenda eru Vigdís Finnbogadóttir
með slagorðið „Þá var allt svo
gott …“ og Ben Stiller með slagorðið:
„Íslandsvinur í raun“.
Ljósmynd/Pétur Kristjánsson
Stiller og Vigdís í
framboði til forseta
Hljómsveitin
Gus Gus vinnur að
nýrri plötu þessa
dagana. En það er
ekki það eina sem
President Bongo
eða Stephan
Stephensen fæst
við, því hann rek-
ur eigin plötu-
útgáfu til hliðar, Radio Bongo. Hún
hefur vefslóðina radiobongo.fm og er
lénið skráð í Mikrónesíu. Fyrir jólin
gefur Radio Bongo út tónlist Högna í
Hjaltalín við Ofviðri Shakespeares
sem fært var upp í Borgarleikhúsinu
á síðasta leikári.
Plata með Gus Gus og
tónlist úr Ofviðrinu
Garðar Thór Cortes tenór heldur
tónleika í Grafarvogskirkju 30. des.
og í Hofi 5. jan. Sérstakir gestir verða
faðir Garðars, Garðar
Cortes, Valgerður
Guðnadóttir og söng-
flokkurinn Mr. Norr-
ington. Garðar er
að hefja vinnu
við hljómplötu
sem kemur út
næsta haust.
Nýárstónleikar og
plata hjá Garðari
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 15-25 víða um land fram eftir degi með snjókomu, en þurrt
syðra. Lægir smám saman, fyrst V-til. Norðan 5-13 í kvöld. Hiti yfirleitt um frostmark.
Á sunnudag Minnkandi N-átt og él N- og A-lands, annars bjartviðri. Frost 0 til 10 gráð-
ur. Vaxandi suðaustanátt á S- og V-landi seinnipartinn, 10-18 m/s þar um kvöldið og
slydda eða snjókoma, en rigning við ströndina. Hlýnandi veður.
Á mánudag Austan 15-23 með rigningu eða slyddu, en sums staðar snjókoma.
Íslands- og bikarmeistarar Vals
í handknattleik kvenna eru í
góðri stöðu til að slá út Zalau
frá Rúmeníu í 3. umferð EHF-
keppninnar en um er að ræða
silfurlið keppninnar í fyrra. Val-
ur vann fyrri leikinn í gærkvöld
24:23 en síðari leikurinn fer
einnig fram á Hlíðarenda og
hefst klukkan 16 í dag. Í sögu-
legu samhengi er um mjög
merkileg úrslit að ræða fyrir ís-
lenskar handboltakonur. »2
Sögulegur sigur
Valskvenna
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Við Linnetsstíg 3 í Hafnarfirði
stendur ein elsta verslun bæjarins,
blómabúðin Burkni. Það voru hjónin
Sigrún Þorleifsdóttir og eiginmaður
hennar Gísli Jón Egilsson sem stofn-
uðu búðina á þessum degi fyrir
fimmtíu árum í gamla pósthúsinu við
Strandgötu 35 í Hafnarfirði.
Sigríður, sem er betur þekkt sem
Dúna meðal Hafnfirðinga, segir
reksturinn hafa verið erfiðan í upp-
hafi. „Við vorum með tvær hendur
tómar og þrjú lítil börn. Ofan á það
bættist svo versnandi heilsa eig-
inmanns míns.“ Þrátt fyrir erfiðar
aðstæður voru þau hjónin staðráðin í
að standa á eigin fótum. „Við vildum
ekki biðja um hjálp og áttum ekkert
nema viljann. Fyrstu árin voru því
erfið en bæjarbúar tóku okkur vel
og við eigum þeim mikið að þakka
enda traustir og góðir viðskiptavin-
ir.“
Ný kynslóð tekur við
Verslunin endurspeglar áræði og
dugnað hjónanna sem lögðu allt und-
ir til að standa á eigin fótum og
byggja grunn og framtíð fyrir fjöl-
skyldu sína. Í dag er búðin bók-
staflega í blómlegum rekstri í hjarta
Hafnarfjarðar og við hæfi að dóttir
Sigrúnar, Gyða Gísladóttir, skuli
eiga og reka verslunina en hún tók
við henni árið 1996. „Blómabúðin
verður alltaf hluti af mér og hún
heldur mér gangandi
þótt ég sjái ekki lengur
um rekstur hennar,“
segir Sigrún sem
þykir vænt um að sjá
búðina enn í rekstri
og í eigu fjölskyld-
unnar. Við hlið móður
sinnar og ömmu stendur
Brynhildur Helgadóttir,
þriðja kynslóðin sem vinnur
í búðinni og tekur þátt í
rekstri hennar. Brynhildur segir
það forréttindi að fá að vinna á jafn-
skemmtilegum og góðum vinnu-
stað.
Brosa og hlæja í vinnunni
Sigrún segir andrúmsloftið alltaf
hafa verið gott í búðinni og vinnuna
skemmtilega. Það hafi verið mikið
fjör og mikið hlegið. Undir þetta
tekur Brynhildur en hún segir for-
réttindi að fá að vinna á jafngóðum
vinnustað. „Það er alltaf gaman að
mæta í vinnuna og þægilegt og gott
að vinna með mömmu og ömmu
þegar hún kemur,“ segir Brynhild-
ur, en hún er alin upp í kringum
verslunarreksturinn. Fræið sem
Sigrún og Gísli sáðu fyrir fimmtíu
árum heldur því enn áfram að vaxa
og dafna með hverri nýrri kynslóð.
Rósirnar hennar Dúnu í 50 ár
Blómabúðin
Burkni fagnar 50
ára afmæli sínu
Blómastúlkurnar Brynhildur Helgadóttir, Sigrún Þorleifsdóttir og Gyða Gísladóttir saman í versluninni.
Eftir fimmtíu ára rekstur er
margs að minnast, segir
Sigrún Þorleifsdóttir.
Hún segir þó jólaversl-
unina alltaf standa
upp úr. „Jólaverslunin
fyrstu árin var
þannig að það klár-
aðist úr öllum hill-
um og skreytingar
voru uppseldar. Við
þurftum því að fylla
á búðina á hverju
kvöldi og ég, ásamt Margréti Pét-
ursdóttur og Jóhönnu Kristjáns-
dóttur, sat fram eftir að búa til
skreytingar til að eiga eitthvað
daginn eftir til sölu.“ Sigrún segir
þetta ekki gerast í búðinni í dag.
„Þetta er ógleymanlegt og meiri-
háttar upplifun. Það voru allir svo
glaðir og kátir. Við hlógum og
skemmtum okkur og lifum enn á
því í dag hvenær sem við hitt-
umst,“ segir Sigrún en senn líður
að jólaversluninni í búðinni.
Jólaverslunin einstakur tími
EFTIRMINNILEGIR ATBURÐIR Í BLÓMABÚÐINNI
Auðunn Jónsson segir að það hafi
verið afar sætt að sigra Evrópumeist-
arann í réttstöðulyftu á heimsmeist-
aramótinu í kraftlyftingum í Púertó
Ríkó á dögunum. „Ég náði aðeins að
hefna mín á honum eftir að hafa tap-
að fyrir honum á Evrópumótinu,“
sagði Auðunn sem vann heimsmeist-
aratitilinn í greininni. »4
Náði að hefna mín á
Evrópumeistaranum
KR-ingar eru að taka við sér eftir erf-
iða byrjun á Íslandsmótinu í körfu-
bolta og þeir unnu Njarðvík örugg-
lega í gærkvöld. „Ef við byggjum á
þessu verðum við flottir og öll lið
verða í erfiðleikum á móti okkur,“
segir Brynjar Þór Björnsson KR-ingur.
Stjarnan komst að hlið Snæfells á
toppnum með öruggum sigri á ÍR í
Garðabænum. »3
Verðum flottir ef við
byggjum á þessu