Morgunblaðið - 16.11.2012, Qupperneq 11
Ljósmynd/Kristján S. Kristjánsson
Vinsæl íþrótt á Íslandi
Hægt er að æfa karate í nokk-
uð mörgum félögum hérlendis og
eru þrjár mismunandi tegundir af
karate æfðar hér. Algengt er sho-
tokan-karate sem Heiðar stundar
og það er æft hjá Breiðabliki og
Þórshamri en fjöldi annarra íþrótta-
félaga býður einnig karatekennslu.
Heiðar segir að svo virðist sem ka-
rate sé að verða sífellt vinsælla.
Þjálfari Heiðars er Helgi Jó-
hannesson sem hann segir vera eina
af sína helstu fyrirmyndum í ka-
rate, en Helgi er með hæsta stig
Evrópskra- dómararéttinda og hef-
ur oft verið yfirdómari á þeim mót-
um sem Heiðar hefur keppt á bæði
hérlendis og erlendis. Hann segir
það skapa ákveðið aðhald að hafa
ætíð sama þjálfara um leið sé hent-
ugt að safna að sér tækni frá öðrum
þjálfurum. Aðal atriðið sé þó að
finna þá tækni sem henti hverjum
og einum. Hingað koma reglulega
erlendir þjálfarar og halda æf-
ingabúðir og það veitir aukna víð-
sýni. Stærstu mótin í karate eru
haldin í Svíþjóð en framundan er
þriðja Norðurlandameistaramótið
hjá Heiðari í Noregi á næsta ári og
opið mót í Malmö næsta vor. Hann
stefnir einnig að því að komast á
Evrópumeistaramót árið 2015.
Bíla- og tækniáhugamaður
Nóg er að gera hjá Heiðari fyr-
ir utan karateiðkun en hann vinnur
í þríþrautarversluninni TRI við
Suðurlandsbraut við að setja saman
reiðhjól. Hann er áhugamaður um
tækni og stefnir á að fara í véla-
verkfræði í framtíðinni.
Íþróttaáhugann á Heiðar ekki
langt að sækja en móðir hans Ásdís
Kristjánsdóttir lauk nýverið Járn-
karlinum á Havaí. Segist Heiðar
hafa fengið metnaðinn og þraut-
seigjuna frá móður sinni og líti
mjög upp til hennar. Aðrir fjöl-
skyldumeðlimir eru einnig íþrótta-
lega sinnaðir og hjólar og hleypur
pabbi hans t.d. mikið.
Heiðar er einnig í Kvenna-
skólakórnum en til að hafa daginn
vel skipulagðan heldur hann utan
um allt sem hann þarf að gera í
tölvunni sinni og segir það reynast
vel.
Heiðar Er með svarta beltið og er metnaðarfullur í karateiðkun sinni, markmið hans í keppni er að ná fyrsta sæti.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
Litríkar, hagnýtar,
fíngerðar, óbrjótandi,
fallegar, spennandi,
endingargóðar,
mjúkar, skemmtilegar...
Alls konar jólagjafir fyrir þá
sem þú þekkir.
Undanfarna daga hef ég átt í bar-
áttu við myrkraöflin. Nei, ég hef
ekki gengið hinu illa á vald og
framkvæmt særingar á stofugólf-
inu, heldur hef ég barist gegn
myrkrinu sem nú umlykur okkur.
Ég hef gert nokkrar óvísindalegar
prufur á því sem best er að gera
og ætla mér að deila því hér með
þér, lesandi góður. Það er síðan á
eigin ábyrgð hvernig þér mun tak-
ast upp. Hið fyrsta er fremur ein-
falt en þó flókið sé maður fremur
morgunfúll (eins og ég verð á vet-
urna). Hið fyrsta er bara að vera
hress sama hvað og brosa. „Fake
it till you make it“ eins og þeir
segja í Ameríkunni. Næsta skref
er að auka ljósmagn smám saman
á meðan þú vaknar. Fyrst er að
kveikja á lampanum en hafa augun
enn þá lokuð. Svo er að koma sér
fram úr og kveikja smám saman á
ljósum hér og þar.
Hér koma dimmerar
mjög sterkir inn sé
fólk svo heppið að hafa
slíkan ljósabúnað. Í
þriðja lagi skal byrja á
því þegar risið er úr rekkju að
fálma sig áfram inn í eldhús og
hefja þar te- eða kaffiundirbúning.
Koffín skal í blóðið og það sem
allra fyrst. Það er ekkert víst að
þú hafir þetta af ef þú nærð ekki
fyrsta koffínskammtinum fyrir
klukkan 9. Næst skaltu fara inn í
stofu og kveikja á nokkrum
kertum en fara varlega þar sem
þú ert jú enn hálfsofandi. Svo
er bara að koma sér í leppana.
Fríska sig með sturtu fyrir þá
sem hafa sig í það og taka sér
svo góðan tíma í morgunmat-
inn. Það skiptir máli að setjast
niður þó ekki sé
nema smástund,
sturta í sig koffíni
og borða. Á meðan
er æskilegt að
hlusta á ljúfa tón-
list en eitthvað mjög hressandi
rétt áður en maður fer út. Í
þetta þarf maður góðan klukku-
tíma og getur þá haldist nokk-
urn veginn vakandi og mun
minna pirraður af stað í vinn-
una. PS: Fólk með börn: ég tek
ofan hatt minn.
Fálm í myrkri
Ógn og skelfing Morgunþján-
ing fyrir fyrsta kaffisopann.
Koffín skal í
blóðið og það
sem allra fyrst.
Mæja
masar
maria@mbl.is