Morgunblaðið - 16.11.2012, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Fólk er spennt fyrir því að heimsmeistaramót sé
haldið í stórborg eins og Berlín. Margir eru að
gera borgarferð úr þessu, ásamt því að sækja við-
burðinn,“ segir Rúnar Guðbrandsson sem er
tengiliður skipuleggjenda Heimsleika íslenska
hestsins sem haldnir verða í höfuðborg Þýska-
lands í byrjun ágúst á næsta ári. Fjöldi Íslendinga
er þegar búinn að kaupa sér ferð eða panta far og
hótel í Berlín.
Mótið verður haldið á hestaíþróttasvæði í
Karlshorst í austurhluta Berlínar dagana 4. til 11.
ágúst 2013. Skipuleggjendur mótsins hafa boðið
til hópreiðar frá Brandenborgarhliðinu í miðborg
Berlínar að keppnissvæðinu á setningardaginn, 4.
ágúst.
Unnið hefur verið að undirbúningi svæðisins
fyrir mótið. Þar hefur verið lögð keppnisbraut,
innan í gömlu brokkbrautinni. Fyrir mótið verða
settar upp áhorfendastúkur við brautina og að-
staða til að þjóna gestum og kynningarsvæði fyrir
fyrirtæki. Stórt mót, unglingamót þýskra Íslands-
hestaeigenda, sem haldið var á keppnissvæðinu í
lok júlí í sumar, var eins konar reynslumót og
gekk það vel.
Mótssvæðið getur tekið við 19 þúsund áhorf-
endum. Búist er við fjölda eigenda íslenskra hesta
frá Evrópulöndum en í Þýskalandi einu eru 24
þúsund félagar. Þá kemur alltaf stór hópur frá Ís-
landi. Skipuleggjendur mótsins munu auglýsa það
vel upp í Þýskalandi og höfða sérstaklega til fjöl-
skyldufólks í Berlín að sækja einstaka viðburði.
Íslandsstofa er að undirbúa kynningu á ís-
lenskum fyrirtækjum á mótssvæðinu. Þá verða
menningarviðburðir á vegum sendiráðsins um
sumarið.
Fjöldi Íslendinga stefnir til Berlínar
Búist við margmenni á Heimsleikum íslenska hestsins sem haldnir verða í höfuðborg Þýska-
lands í byrjun ágúst Ný keppnisbraut lögð á hestaíþróttasvæðinu og unnið að undirbúningi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Karlshorst Æfing á hestaíþróttasvæðinu í Karlshorst. Reistar verða stúkur við nýja keppnisbraut.
Íslendingar fjölmenna
» Um þúsund Íslendingar
hafa þegar keypt sér sæti í
hópferðum eða pantað hótel-
herbergi í Berlín vegna heims-
leikanna.
» Úrval-Útsýn hefur fyllt
eina flugvél í heimsmeistara-
mótsferð sína og biðlisti er
þegar í næstum aðra vél.
» Stjórnendur fyrirtækj-
anna Hrímnis og Top Reiter
hafa bókað 320 herbergi fyrir
ferð sem þeir skipuleggja fyrir
vini sína í samvinnu við þýska
ferðaskrifstofu.
» Þá fara margir á eigin
vegum. Wow air og fleiri flug-
félög bjóða ferðir frá Íslandi.
» Búist er við mörgum Ís-
lendingum að sækja sitt fyrsta
heimsmeistaramót.
Málþingið Land-
heilsa – loftgæði
– lýðheilsa verð-
ur haldið í dag
kl. 13.30-16.30 í
Öskju í HÍ. Þing-
ið er öllum opið
og aðgangur
ókeypis. Á mál-
þinginu verður
fjallað um jarð-
vegstengda svifryksmengun,
hverjar orsakir hennar eru og
hvaða áhrif hún hefur á fólk.
Einnig verður fjallað um það hvað
hægt er að gera til að draga úr
menguninni.
Málþingið er þverfaglegt og er
ætlað sem vettvangur milli nátt-
úruvísinda, lýðheilsuvísinda, hag-
fræði, stjórnsýslu, landnotenda og
framkvæmdaaðila.
Svandís Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra setur málþingið og síð-
an verða flutt tíu erindi. Dag-
skrána má finna á www.ust.is.
Landgræðsla ríkisins og Um-
hverfisstofnun í samstarfi við emb-
ætti landlæknis standa fyrir mál-
þinginu.
Málþing
um mengun
af svifryki
Tíu vísindamenn
halda erindi um efnið Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverja-
hrepps hefur ákveðið að auglýsa
ekki að svo stöddu breytingar á að-
alskipulagi sem heimila myndu
byggingu vindrafstöðva á bænum
Vorsabæ á Skeiðum. Í bókun sinni
vísar sveitarstjórn til álits Umhverf-
isstofnunar sem hvetur til þess að
áhrif vindrafstöðva verði metin, þótt
það sé ekki skylt að lögum.
Steingrímur Erlingsson, eigandi
hluta jarðarinnar Vorsabæjar 1, ósk-
aði eftir breytingum á aðalskipulagi
til að gera honum kleift að reisa þar
vindmyllur til raforkuframleiðslu.
Hann hefur áform um að reisa tvær
myllur til að byrja með en einnig
menningarhús og íbúðarhús. Vind-
myllurnar geta náð upp í 74 metra
hæð.
Sjást langt að
Skeiða- og Gnúpverjahreppur hef-
ur heimilað Landsvirkjun að reisa
tvær vindmyllur í tilraunaskyni í ná-
grenni Búrfellsstöðvar. Þar hafa far-
ið fram mælingar á vindi. Lands-
virkjun vinnur nú að undirbúningi
stöðvanna.
Í afgreiðslu sveitarstjórnar á er-
indi eiganda Vorsabæjar kemur
fram það álit að svo stórar vindmyll-
ur falli illa að landslagi á svæðinu.
Gunnar Örn Marteinsson, oddviti
Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir
öðru máli gegna um vindmyllur ofan
við Búrfellsstöð. Þar sé engin byggð.
Á Skeiðum sé hins vegar flatlent og
vindmyllur sjáist langt að. Telur
Gunnar rétt að sjá hvernig vindmyll-
ur Landsvirkjunar komi út í lands-
lagi áður en lengra er haldið.
Ekki hafa verið gerðar athuga-
semdir við áform um uppbyggingu
annarra mannvirkja á landinu.
Tillaga jarðareigandans var kynnt
fyrir íbúum og ýmsum stofnunum.
Athugasemd kom frá Umhverfis-
stofnun og landslagsarkitekt. Um-
hverfisstofnun vekur athygli á því að
raflínur fari um land Vorsabæjar.
Telur stofnunin mikilvægt að skoða
hvernig sameiginleg sjónræn um-
hverfisáhrif frá raflínum og vindraf-
stöð verði. Einnig er vakin athygli á
fjölda frístundabyggða á þessu
svæði og skoða þurfi hvaða áhrif
vindrafstöðvar hafi á umhverfið og á
útsýni frá frístundabyggðum til
fjalla.
Móta þarf stefnu
Ekki er skylt að láta meta um-
hverfisáhrif rafstöðva af þessari
stærð. Sveitarstjórnin telur eigi að
síður nauðsynlegt að meta áhrif
framkvæmdarinnar. Umhverfis-
stofnun hvetur sveitarfélagið til að
móta sér stefnu um það hvar í sveit-
arfélaginu helst væri að koma vind-
rafstöðvum fyrir án þess að það hefði
neikvæð sjónræn umhverfisáhrif.
Vakin er athygli á því að ef slíkar
stöðvar verði byggðar á einni bújörð
án þess að umhverfisáhrif séu rann-
sökuð og metin geti eigendur ann-
arra bújarða sótt um það sama og þá
gæti orðið óreglulegur skógur vind-
mylla innan sveitarfélagsins.
Heimila ekki vindmyllur
Umhverfisstofnun og sveitarstjórn vilja að umhverfisáhrif vindmylla á Skeiðum
verði metin þótt þess sé ekki krafist í lögum um umhverfismat
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Orka Vindmyllur sem áhugi er á að reisa á Skeiðum ná upp í rúmlega 70
metra hæð, meira en tvöfalt hærra en háspennumöstur í nágrenninu.
Ertu að taka til …
… á vinnustaðnum
Komdu spilliefnunum og raftækjunum
á söfnunarstöðina næst þér …
… við sjáum um framhaldið!
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is… í bíls umkúrn