Morgunblaðið - 16.11.2012, Side 17

Morgunblaðið - 16.11.2012, Side 17
FRÉTTIR 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stafnesið KE fékk 16 túnfiska í októbermánuði djúpt suður af Reykjanesi, en tilraunum til frek- ari veiða hefur nú verið hætt. Odd- ur Sæmundsson, skipstjóri og út- gerðarmaður, segir að þeir hafi einfaldlega fallið á tíma. „ Síðustu vikur hafa verið stöðugar brælur og stórviðri. Hitaskilin, þar sem helst er von um að veiða túnfisk, straujuðu langt, langt suður í höf,“ segir Oddur. Hann segir að talsvert tap hafi orðið á þessari tilraun, en hefur þó áhuga á að reyna aftur næsta haust fái hann til þess leyfi. „Við erum reynslunni ríkari og mynd- um byrja fyrr en við gerðum í haust. Við höfum aflað okkur reynslu í veiðum og meðferð fisks- ins og komið okkur upp búnaði.“ Japönsk túnfiskveiðiskip hrað- frysta fiskinn yfirleitt í um 60 gráður. Um borð í Stafnesinu var hann kældur niður í núll gráður um leið og hann kom um borð og hitanum haldið stöðugum. Aldrei var dregið oftar en þrisvar sinnum í veiðiferð til að tryggja gæði svo að fiskurinn kæmist sem fersk- astur á markað eftir langt flug til Japans. Gæði í fyrstu sendingunni voru mjög mikil við komuna til Japans, en misjafnari í þeim tólf fiskum sem voru í seinni sendingunni, að sögn Odds. Hann segir að flutn- ingskostnaðurinn hafi verið mikill, en það hafi verið vitað fyrirfram. „Verðið sem við fengum á mark- aði í Japan var ekkert nálægt þeim sprengiháu upphæðum sem við vorum búnir að heyra um. Það er greinilegt að slíkar tölur sjást ekki á hverjum degi á þessum mörk- uðum,“ segir Oddur. Góð byrjun Skipverji á Stafnesinu KE við einn af fyrstu túnfiskunum sem fengust á flotlínuna í haust. Féllu á tíma á túnfiskveiðum  Sextán fiskar en stórviðri torvelduðu  Hitaskilin straujuðu langt suður í höf Gjafir sem gleðja Verð 17.000 kr. LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660 hvað þarf til? Markaðsfyrirtæki ársins 2012 Málstofa MBA námsins í Háskóla Íslands og ÍMARK. Hátíðasalur Háskóla Íslands í Aðalbyggingu, fimmtudagur 22. nóvember kl. 12-13. Ingólfur Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Markaðssviðs Marel, fjallar um markaðsstefnu fyrirtækisins og lykilinn að góðum árangri. Fundarstjóri: Þórhallur Örn Guðlaugsson, dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Ókeypis aðgangur, allir velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.