Morgunblaðið - 16.11.2012, Qupperneq 21
Kristján Ólafsson hrl
Lögg. fasteignasali
414-4488
Heimir
Sölufulltrúii
822-3600
Höfuð
Fasteignamiðlun
borg
Kleppsvegur 104 RVK
nei1m
2
71
Seld á 2 dögum !
Falleg 2ja herbergja
Kleifarsel 109 RVK
nei2m
2
79
Seld á 2 dögum !
Snyrtileg 3ja herbergja
íbúð á annari hæð
Barónsstígur 101 RVK
nei1m
2
31
Seld á 10 dögum !
Ósamþykkt risíbúð í 101
Reykjavík
Frostafold 112 RVK
nei2m
2
90
Seld á 32 dögum !
Falleg þriggja herb.
íbúð á útsýnisstað.
Rósarimi 112 RVK
nei2m
2
72
Seld á 3 dögum !
Fín þriggja herbergja
íbúð í litlu fjölbýli
Flúðasel 109 RVK
nei3m
2
101
Seld á 42 dögum !
Falleg 4ra herbergja
Vegna mikillar sölu og eftirspurnar
get ég bætt við mig 2ja - 4ra herb.
höfuðborgarssvæðinu.
Dæmi úr kaupendaskrá:
Margrét leitar að tveggja herbergja íbúð
Verð um 15 milljónir
Elín leitar að fjögurra herberbergja íbúð.
Helst með þvottahúsi innan íbúðar
Verð allt að 26 milljónir
Svanur leitar að þriggja herbergja íbúð í
Hlíðum/Holtum/101 Rvk
Verð allt að 25 milljónir
rað/parhúsi eða hæð og ris í Hlíðum og
Verð allt að 50 mills
Hringdu núna 822-3600
heimir@hofudborg.is
Ef ekki færð þú 50% afslátt
“Seljum eignina þína
innan 60 daga”
af umsaminni söluþóknun
Dæmi úr kaupendaskrá:
Anna leitar ð 3ja-4ra herb. í úð allt að
180 fm. Þarf að hafa gott útsýni. Óskastaðir
eru Kirkjusandur, Mánatún, Sjálandshverfi.
Verð allt að 50 milljónir
Elín leitar að fjögurra herberbergja íbúð.
Helst með þvottahúsi innan íbúðar.
Verð allt að 26 milljónir.
Svanur leitar að þriggja herbergja íbúð
í Hlí um/Holtum/101 Rvk.
Verð allt að 25 milljónir.
Anna og fjölskylda leitar eftir fimm herb.
rað/parhúsi eða hæð og ris í Hlíðum
og Holtahverfi.
Verð allt að 50 milljónir.
Hringdu -360
hei ir org.is
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Ungmennin á listnámsbrautinni
teiknuðu þetta alfarið sjálf. Enginn
kennari kom nálægt þessu. Verk-
efnið er ekki hluti af venjulegum
áfanga, heldur er þetta stórt sam-
vinnuverkefni,“ segir Elín Rafns-
dóttir, kennari og verkefnastjóri
umhverfisverkefnis sem nefnist
Regnbogabrú.
Nemendur í listnámi, húsasmíði
og rafvirkjun við Fjölbrautaskólann
í Breiðholti hafa hannað og unnið
verkefnið ásamt sex breskum gesta-
nemendum. Verkefnið er liður í Co-
meníusar-verkefni listnámsbrautar
FB og breskra nemenda frá Sir Ro-
ger Manwood’s School of Sandwich í
Kent. Reykjavíkurborg er fimmti
samstarfsaðilinn.
Á Breiðholtsdögum, sunnudaginn
18. nóvember kl. 14:00, verður
Regnbogabrúin vígð á Markúsar-
torgi við Gerðuberg.
Bjartsýn fyrir framtíð landsins
„Þetta gengur mjög vel. Ung-
mennin eru mjög jákvæð. Þau hafa
sýnt mikið sjálfstæði og unnið mörg
hver langt fram á kvöld. Þau eru
hreint út sagt alveg dásamleg. Mað-
ur er bjartsýnn fyrir framtíð lands-
ins eftir að hafa séð þau vinna þetta
verkefni. Þau eru bara svo flott,“
segir Elín stolt, sem beið eftir að
sendiferðabíll birtist með listaverkið
innanborðs.
„Það er mikil lífsreynsla að fá að
vinna þetta. Mikil hugmyndavinna
liggur á bak við slíkt verkefni og
það tók tíma að stilla allar hug-
myndirnar af. Þetta er mjög krefj-
andi en skemmtilegt,“ segir Ragna
Ragnarsdóttir, nemi á öðru ári í
listnámi við FB.
„Þetta byrjaði hægt en nú er
þetta loksins búið. Samvinnan hefur
gengið vel. Það var erfitt að finna
tíma en það tókst að lokum. Við
unnum þetta líka mikið eftir skóla.“
Ragna segir að þau hefðu viljað fá
að hafa bresku krakkana aðeins
lengur með í verkefninu en þau
höfðu lítinn tíma hér á landi.
„Við erum mjög ánægð með verk-
efnið og mér er sagt að þetta sé ein-
staklega vel heppnað,“ segir Ragna
sem myndi ekki slá hendinni á móti
því að taka þátt í öðru sambærilegu
verkefni.
Torg í biðstöðu
Verkefnið er unnið í samstarfi við
umhverfis- og skipulagssvið borg-
arinnar sem undanfarið hefur unnið
að því að fegra og bæta mannlíf á
torgum Reykjavíkur undir yf-
irskriftinni „Torg í biðstöðu“.
Regnbogabrúin er tilvísun í brúna
Bifröst í norrænni goðafræði; brú
milli tveggja heima.
Verkefninu er m.a. ætlað að
þjálfa samvinnu og þekkingu nem-
enda á mismunandi menningu og
lífssýn. Brúin er skreytt með hefð-
bundnum íslenskum og breskum
munstrum sem gerð eru úr gos-
flöskutöppum og kalla má
„tappa-mósaík“.
„Listaverkið er heljarinnar smíði
sem ungmennin á trésmíðadeild
smíðuðu, auk þess lögðu nemar við
rafvirkjun rafmagn á verkið,“ segir
Elín.
Litríkt listaverk Nemendur vinna hörðum höndum við að líma niður tappa eftir kúnstarinnar reglum.
Útilistaverk úr töppum
á Markúsartorgi
Regnbogabrúin afhjúpuð á Breiðholtsdögum
Samvinna Margir nemendur tóku þátt í gerð Regnbogabrúarinnar.
Brúarsmíð Nemendur við trésmíðadeild í FB smíðuðu brúna af nákvæmni.
Regnbogabrúin
» Er liður í Comeníusar-
verkefni, sem er samstarfs-
verkefnis listnáms, húsasmíði
og rafvirkjunar í FB og breskra
nemenda.
» Listaverkið er unnið í sam-
starfi við umhverfis- og skipu-
lagssvið borgarinnar.
» Verður afhjúpað á Breið-
holtsdaginn, sunnudaginn 18.
nóvember á Markúsartorgi við
Gerðuberg.