Morgunblaðið - 16.11.2012, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 16.11.2012, Qupperneq 24
Ný fastanefnd stjórnmálaráðsins Nefndin tekur allar mikilvægustu ákvarðanirnar í kínverskum stjórnmálum. Xi Jinping Skipaður aðalritari kommúnistaflokksins, verður að öllum líkindum forseti Kína í mars. Fékk sæti í fastanefnd stjórnmálaráðsins, æðstu valda- stofnunar flokksins, árið 2007. Hefur verið varaforseti frá 2008 og notið stuðnings Jiangs Zemin, fyrrverandi forseta. Á að taka við embætti forsætisráðherra í mars á næsta ári. Hefur átt sæti í fastanefnd stjórnmálaráðsins frá 2007 og verið aðstoðarforsætisráðherra frá 2008. Lauk lögfræðinámi við Peking-háskóla og tók síðan doktorspróf í hagfræði. Talar ensku. Li Keqiang Hefur verið aðstoðarforsætisráðherra og farið með efnahagsmál í ríkisstjórninni. Hefur verið æðsti fulltrúi Kína í viðræðum um efnahagsmál við Bandaríkin og Evrópusambandið. Wang Qishan Brautskráðist frá verkfræðiskóla kínverska hersins í Harbin eftir nám í eldflaugaverkfræði. Einn af „ smáprinsunum” svonefndu, sonum byltingarhetja. Yu Zhengsheng Var fréttaritari í Innri-Mongólíu og seinna einn af leiðtogum flokksins þar. Yfirmaður áróðursdeildar flokksins frá árinu 2002 Liu Yunshan Hagfræðingur að mennt. Var á meðal leiðtoga Shenzhen á árunum 1997-2002. Skjólstæðingur Jiangs Zemin og í nánum tengslum við auðkýfinginn Li Ka-shing í Hong Kong Zhang Gaoli Var gerður að leiðtoga flokksins í stórborginni Chongqing eftir að Bo Xilai, sem spáð var sæti í fastanefndinni, féll í ónáð í febrúar sl. Lauk hagfræðinámi við Kim Il-Sung-háskóla í Norður-Kóreu. Zhang Dejiang FRÉTTASKÝRING Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ekki er búist við miklum breytingum á stefnu stjórnvalda í Kína eftir að ný fastanefnd stjórnmálaráðs Kommúnistaflokksins tekur við völdunum undir forystu Xi Jinping, nýs leiðtoga flokksins. Flestir nefndarmannanna eru taldir fastheldnir á rótgrónar venjur og hefðir valdaflokksins og nýja forystusveitin er án tveggja manna sem taldir voru líklegastir til að beita sér fyrir pólitískum umbótum. Eins og spáð hafði verið var nefndar- mönnunum fækkað úr níu í sjö til að auðvelda nefndinni að ná samstöðu um ákvarðanir í erf- iðum úrlausnarefnum á næstu árum. Það kom hins vegar meira á óvart að Xi Jinping var ekki aðeins gerður að aðalritara kommúnista- flokksins heldur einnig að formanni hermála- nefndar miðstjórnarinnar og þar með yfir- manni hersins. Þegar fráfarandi forseti, Hu Jintao, varð aðalritari flokksins fyrir tíu árum hélt forveri hans í forsetaembættinu, Jiang Zemin, formennskunni í hermálanefndinni í tvö ár til viðbótar. Þetta ætti að styrkja stöðu nýja leiðtogans en þykir ekki auka líkurnar á því að stefnunni verði breytt. Litið er á Xi Jinping sem mála- miðlunarlausn, mann sem tvær helstu fylking- arnar í flokknum gátu sætt sig við, þ.e. banda- menn Hu Jintao annars vegar og skjól- stæðingar Jiangs Zemin hins vegar. Þessir tveir menn eru taldir hafa ráðið mestu þegar nýja forystusveitin var valin á bak við tjöldin með hrossakaupum fráfarandi og fyrrverandi leiðtoga flokksins. Svo virðist sem Hu Jintao og bandamenn hans hafi látið í minni pokann fyrir skjólstæðingum Jiangs þótt bandamenn Hu séu enn áhrifamiklir í miðstjórninni, að sögn fréttaskýranda The Wall Street Journal. Skjólstæðingar Jiangs öflugir Fyrir valdaskiptin voru tveir af forystumönnum kommúnistaflokksins, Wang Yang og Li Yu- anchao, taldir líkleg- astir til að beita sér fyrir pólitískum um- bótum, meðal annars auknu lýðræði innan flokksins. Þeir fengu ekki sæti í nýju fasta- nefndinni. Gert er ráð fyrir því að einn nefndarmannanna, Li Keqiang, taki við embætti forsætisráð- herra, en hann hefur notið stuðn- ings Hu Jintao. Aðeins tveir af nefndarmönnunum sjö eru taldir vera bandamenn Hu Jintao og annar þeirra, Liu Yunshan, hefur reyndar einnig verið í nánum tengslum við Jiang Zemin, að sögn Chengs Li, sérfræðings í kín- verskum stjórnmálum við Brook- ings-stofnunina. „Þessi skortur á jafnvægi [milli valdafylkinganna] verður hugsanlega alvarlegt vandamál næstu mánuði eða árin,“ hefur fréttavefur CNN eftir Cheng Li. Hann spáir því að kínverskur almenningur, sem vilji pólitískar umbætur, verði lítt hrifinn af nýju forystusveitinni. „Þetta flokksþing hef- ur sent mjög skýr skilaboð um að nýja for- ystan verði íhaldssöm í stjórnmálunum,“ segir hann. Joseph Cheng, stjórnmálaskýrandi við Borgarháskóla Hong Kong, tekur í sama streng. „Uppstillingin á forystunni er verulega íhaldssöm,“ hefur fréttaveitan AFP eftir hon- um. „Flokkurinn virðist vita mjög lítið um hvernig næsti umbótakafli eigi að vera og hef- ur nú sýnt að samstaða er um að fara mjög varlega.“ Bo Zhiyue, sérfræðingur í kínverskum stjórnmálum í Singapúr, telur að litlar breyt- ingar verði í Kína eftir valdaskiptin. „Ég tel ekki að við getum flokkað ráðamennina í Kína sem annaðhvort umbótasinna eða íhaldsmenn; ef andrúmsloftið einkennist af íhaldssemi eru þeir allir íhaldssamir, ef andrúmsloftið gefur umbótum byr undir báða vængi eru allir umbótasinnar,“ hefur AFP eftir honum. Jean-Pierre Cabestan, stjórnmálaskýrandi við Baptistaháskólann í Hong Kong, telur að bandamenn Jiangs Zemin séu mjög öflugir í nýju fastanefndinni og áhrif Hu Jintao hafi minnkað. Hann segir að framvindan ráðist af því hvort nýi leiðtoginn sýni forystuhæfileika og beiti sér fyrir umbótum. „Getur hann komið á umbótum? Ég er mjög efins um það.“ Tekur ekki áhættu Í ræðu sem nýi leiðtoginn flutti í gær þegar nýja fastanefndin var kynnt hét hann því að skera upp herör gegn spillingu í stjórnkerfinu og bæta lífskjör Kínverja. Xi Jinping hefur gefið mjög litlar vísbendingar um hvernig hann ætli að stjórna landinu. Hann var mjög varfærinn fyrir flokksþingið, studdi mál sem allir styðja og forðaðist hvers konar yfir- lýsingar sem gátu mögulega veikt stöðu hans sem þess leiðtogaefnis sem mest samstaða var um. „Hann er maður sem spilar fyrir liðið sitt. Hann fer eftir leikreglum flokksins síns,“ hefur AFP eftir kínverska stjórnmálaskýr- andanum Willy Lam. „Hann vill ekki taka áhættu sem gæti stefnt frama hans sem stjórnmálamanns í hættu.“ Xi Jinping er 59 ára og einn af „smáprinsunum“ svonefndu, son- um frammámanna kínverskra kommúnista í byltingunni árið 1949. Hann er sonur Xi Zhongxun, sem barðist með Maó Zedong í byltingunni og var aðstoðarfor- sætisráðherra þar til hann féll í ónáð í menningarbyltingunni og var settur í fangelsi. Xi Jinping byrjaði að klifra upp metorðastig- ann á þrítugsaldri. Hann varð leið- togi flokksins í Sjanghaí og fékk sæti í fastanefnd stjórnmálaráðs- ins 2007. Árið eftir varð hann varaforseti. Ekki líklegur til umbóta  Nýr leiðtogi Kína tregur til að taka áhættu  Nýja forystusveitin fastheldin á venjur og stefnu flokksins  Samstaða um að fara mjög varlega  Menn Jiangs Zemin öflugir í forystusveitinni Varfærinn Xi Jinping, nýr leið- togi kínverskra kommúnista. AFP Umbótasinni? Kona fylgist með ræðu nýs leiðtoga Kína í eldhúsi matvælamarkaðar í Sjanghaí. 24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.