Morgunblaðið - 16.11.2012, Side 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012
✝ Inge Jens-dóttir Laursen
fæddist í Förslev
við Haslev í Dan-
mörku 25. desem-
ber 1921. Hún lést
á Landspítalanum
6. nóvember 2012.
Foreldrar henn-
ar voru Jens Peter
Rafael Laursen
járnsmíðameistari,
f. 1898, d. 1969 og
kona hans Karen Sofie Laur-
sen, f. 1901, d. 1979. Inge flutt-
ist á fyrsta ári með foreldrum
sínum til Nörre Tvede þar sem
faðir hennar tók við járnsmiðj-
unni í héraðinu. Hún ólst þar
upp og þar fæddust yngri
systkini hennar: Tove, f. 1923,
d. 2011, Alf, f. 1926, d. 1995,
Vagn, f. 1928 og Jytte, f. 1929
d. 2009.
Inge giftist 28. júlí 1956 Geir
Þorsteinssyni, verkfræðingi og
forstjóra Ræsis hf., f. 1916, d.
2005. Foreldrar hans voru Þor-
veisluhöld og sá um veislur
meðal annars í Ráðherrabú-
staðnum, danska og franska
sendiráðinu.
Vegna fjölskyldu Inge í Dan-
mörku dvöldust þau Geir oft í
Nörre Tvede og vegna starfs
Geirs urðu ferðirnar til Þýska-
lands margar, einkum til Stutt-
gart þar sem eru höfuðstöðvar
Mercedes Benz-bifreiðaverk-
smiðjanna. Þau ferðuðust einn-
ig töluvert til fjarlægra landa.
Af þessum ferðalögum höfðu
þau mikla ánægju. Inge og
Geir voru gestrisin og höfð-
ingjar heim að sækja. Vinahóp-
urinn var stór og það var oft
glatt á hjalla í Skeiðarvoginum.
Þeim hjónum var umhugað um
að halda góðum og traustum
tengslum við systkini Geirs,
ættingja og vini. Það gerðu
þau með alúð og í hlutverki
gestgjafans naut Inge sín vel
og þá komu oftar en ekki vel í
ljós hæfileikar hennar og kunn-
átta við matargerð.
Útför Inge fer fram frá
Langholtskirkju í dag, 16. nóv-
ember 2012, og hefst athöfnin
kl. 13.
steinn Þorsteinsson
hagstofustjóri, f.
1880, d. 1979 og
kona hans Guðrún
Geirsdóttir Zoëga,
f. 1887, d. 1955.
Fyrstu árin bjuggu
þau Geir á Lauf-
ásvegi 57 en fluttu
árið 1960 í Skeið-
arvog 37 þar sem
þau bjuggu síðan.
Inge fór snemma
að vinna fyrir sér og starfaði
við barnagæslu og matseld á
prestsetrum í Toksværd og
Fensmark við góðan orðstír.
Seinna starfaði hún í Kaup-
mannahöfn en árið 1948 sigldi
hún til Íslands þar sem hún réð
sig á heimili Jóns Eyþórssonar
veðurfræðings. Það var ekki
ráðgert hjá Inge að ílengjast á
Íslandi en örlögin höguðu því
þannig að hér á landi átti hún
heima æ síðan. Inge var natin
við börn og orðlagður kokkur.
Hún var eftirsótt til að sjá um
Mig langar að minnast Inge
með örfáum orðum. Ég er búin að
þekkja hana frá unglingsárum
mínum. Einn vina föður míns kom
með danska stúlku í heimsókn og
hún varð síðan eiginkona Geirs
Þorsteinssonar. Hún var strax
tekin inn í vinahóp foreldra
minna. Þau komu oft í heimsókn
og á öllum hátíðarstundum í fjöl-
skyldu minni voru þau þátttak-
endur. Nú átti Inge að læra ís-
lensku og tók tengdafaðir hennar
að sér að kenna henni, en það
gekk ekki vel þannig að hún talaði
sambland af íslensku og dönsku
alla tíð. Sennilega má kenna því
um að flestir sem hún var sam-
skiptum við skildu dönsku þannig
að það var ekki nein sérstök þörf
á að hún lærði íslensku.
Inge var ákaflega glaðsinna
kona. Hún var meistarakokkur og
gat reitt fram kræsingar með
litlum fyrirvara. Þeir eru orðnir
margir sem sátu við veisluborð
hennar.
Mér er minnisstætt þegar ég
spurði hana skömmu eftir andlát
Geirs hvort hún væri ekki ein-
mana. Nei hún var ekki einmana,
hún var sátt við sitt hlutskipti,
þau höfðu átt langt og gott líf
saman og hún var þakklát fyrir
það. Þeim hjónum varð ekki
barna auðið, en þau áttu samt
mörg börn og er ég eitt þeirra.
Þau voru sérlega barngóð bæði
tvö og nutu systkinabörn Geirs
góðs af og börnin í hverfinu þar
sem þau bjuggu. Eitt af þeim
börnum er Hafþór, sem á nú um
sárt að binda. Hann kom oft til
hennar og hjálpaði henni með ým-
islegt sem hún gat ekki gert sjálf.
Hún hafði þann eiginleika að
krefjast einskis fyrir sig, en var
alltaf glöð og þakklát fyrir hvert
smáviðvik sem var gert fyrir
hana. Hún var vön að segja þegar
ég fór frá henni: Komdu fljótt aft-
ur og takk fyrir komuna.
Þau hjón voru dugleg að
ferðast og fóru margar ferðir til
Danmerkur á æskuslóðir Inge og
dvöldu þar oft langdvölum í faðmi
fjölskyldu hennar og var það
henni mikils virði. Einnig ferðuð-
ust þau oft til Þýskalands og víð-
ar. Nú er næstum allur vinahópur
foreldra minna horfinn yfir móð-
una miklu. Þetta fólk kunni að lifa
lífinu lifandi. Það var með spila-
klúbb fyrir karlana, saumaklúbb
fyrir konurnar og matarklúbb
þegar aldurinn færðist yfir menn
og var hann einu sinni viku og
alltaf var vináttan innan hópsins
jafn einlæg og góð. Inge gleymdi
ekki dönskum vinkonum sínum
hér á landi og var vikulega með
samveru fyrir þær á heimili sínu
og veit ég að þær nutu þess.
Það má segja að það hafi hallað
undan fæti hjá Inge fyrir u.þ.b.
ári þegar hún lærbrotnaði og var
fram á sumar á sjúkrastofnunum,
en hún ætlaði heim aftur og henni
tókst það. Ég sá hana síðast fyrir
nokkru og var hún þá lasin og ég
mátti alls ekki koma nálægt henni
því ég gat smitast og það vildi hún
ekki. Góð og hjartahlý kona er
gengin.
Við synir mínir sendum fjöl-
skyldu hennar og aðstandendum
innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Sigríður Bjarnadóttir.
„Mikið lán var það fyrir okkur
að Geir skyldi giftast henni Inge“
var oft haft að orði í stórfjölskyld-
unni. Undir það getum við tekið,
því „tante Inge“ var einstök kona
og þau hjón í sérstöku uppáhaldi
hjá okkur systkinabörnum Geirs.
Heimilið þeirra að Skeiðarvogi
stóð öllum opið og þangað var
gott að koma. Það var eitthvað
svo sparilegt og spennandi við
Skeiðarvoginn, svo danskt og
notalegt. Jólaboðin þegar við vor-
um börn eru minnisstæð; logandi
kerti á tré, danskur jólamatur og
allir svo glaðir. Ef við vorum
heppin, setti Geir upp járnbraut-
arlestina sína og hún brunaði um
efri hæðina flautandi og reykspú-
andi. Slíkar minningar er gott að
eiga.
Inge var glæsileg kona. Hún
var óvenju hávaxin, nokkuð stór-
skorin í andliti og augun skærblá
eins og Kattegat á sumardegi.
Hún var mikill karakter, föst fyr-
ir og stóð ávallt með sjálfri sér.
Hún var einstaklega jákvæð og
hafði skemmtilegt viðhorf til lífs-
ins; vonda veðrið var t.d. kær-
komið því þá gat hún lesið bókina
sem hún hafði geymt sér. Inge
hafði leiftrandi húmor og gerði
óspart grín að sjálfri sér. Það var
oft mikið hlegið í Skeiðarvogin-
um. Hún var mikil matkona og
listakokkur og fengu margir að
njóta þess. Á okkar æskuheimili
var hún sjálfkjörinn yfirverk-
stjóri í eldhúsinu þegar eitthvað
stóð til. Þá var eldað af lífi og sál.
Öllum var ljóst að fráfall Geirs
fyrir sjö árum var Inge þungbært
þó hún bæri sig vel og kvartaði
aldrei. Hún hélt sínu striki meðan
heilsan leyfði; leysti krossgátur,
las glæpasögur, fylgdist spennt
með íþróttum og tók á móti gest-
um í Skeiðarvoginum. Hennar
verður nú sárt saknað.
Að leiðarlokum þökkum við
Inge og Geir allt það sem þau
voru okkur.
Ragnheiður, Guðrún og
Þorsteinn Narfabörn.
Inge Jensdóttir, ekkja Geirs
Þorsteinssonar föðurbróður
míns, er látin. Þau Geir voru sam-
rýmd hjón og ég hygg að mörgum
hafi fundist að þau hafi alltaf ver-
ið saman. En samt voru þau ekki
alveg kornung þegar þau giftu
sig. Geir var orðinn fertugur og
það vissu fáir í fjölskyldunni að
hann ætti kærustu þegar sím-
skeyti kom frá Danmörku um að
hann væri búinn að gifta sig. Ég
fékk bréf í sveitina með þessari
frétt og ég man hvað ég hló og
fannst það fyndið. Svo kom hann
heim með brúðina og það er mér
enn í fersku minni þegar við syst-
urnar stóðum forvitnar fyrir neð-
an forstofutröppurnar á Laufás-
veginum og sáum Inge í fyrsta
skipti, háa og myndarlega konu
koma gangandi niður tröppurnar,
brosandi til okkar í morgunslopp.
Hún náði til okkar eins og hún
náði til annarra barna. Fyrstu bú-
skaparár sín, meðan þau Inge og
Geir voru að byggja húsið sitt við
Skeiðarvog, bjuggu þau á Lauf-
ásveginum. Stórfjölskyldan deildi
eldhúsi og borðstofu og við syst-
urnar og frændsystkini kynnt-
umst danskri menningu og mat-
reiðslu. Við fórum í sendiferðir til
Kleins kaupmanns til að kaupa
„leverpostej og spejepølse“. Við
vissum ekki hvað það þýddi en
það skipti ekki máli vegna þess að
Klein var líka danskur og skildi
við hvað var átt og var ekki lengi
að skera niður og taka til vöruna.
Þegar ég var átta ára gömul
var mér boðið með Inge til Dan-
merkur að heimsækja fjölskyldu
hennar í Nørre Tvede. Við sigld-
um til Kaupmannahafnar með
Dronning Alexandrina og það er
mér minnisstætt þegar við Inge,
nýkomnar á danska grund, sátum
með ferðatöskur á tröppunum við
heimili Tove systur hennar við
Gamle Kongevej og biðum eftir
að hún kæmi heim úr vinnunni á
hjólinu sínu. Ég fékk síðan að
kynnast bernskuheimili þeirra
systra í Nørre Tvede og danskri
sveit með ökrum, epla- og plómu-
trjám, og smiðju föður þeirra
þangað sem nágrannarnir komu
með stóru hestana sína til að láta
járna þá.
Fimm áratugum seinna, eftir
að Geir var fallinn frá, fórum við
Inge ásamt foreldrum mínum og
eiginmanni í tvær ferðir til Dan-
merkur en Inge bað mig um að
aðstoða sig við að komast í heim-
sókn til fjölskyldu sinnar í Nørre
Tvede. Það eru eftirminnilegar
ferðir.
Þau Inge og Geir voru með af-
brigðum gestrisin og voru vinsæl
af bæði ungum og öldnum. Börn-
um fannst gaman að heimsækja
þau. Geir var svo skemmtilegur
og Inge gat töfrað fram kræsing-
ar á augabragði. Inge var góð
kona. Hún var dugleg að hugsa
um gamla fólkið þegar hún sjálf
var yngri og margt ungmennið
átti afdrep hjá henni. Fuglar og
kettir í Vogunum gengu að veislu-
borðinu vísu í garðinum við
Skeiðarvog.
Inge var ákveðin kona og stolt.
Hún var ekki tilbúin til að láta í
minni pokann fyrir veikindum.
Þegar ég heimsótti hana tæpri
viku fyrir andlát hennar sagði
hún við mig: „Jeg bliver bedre i
næste uge.“ Viku seinna var hún
laus við þrautir sínar og ef til vill
gengur hún nú létt á fæti um
græna skóga með Geir sínum.
Guðrún Þorsteinsdóttir.
Okkur systkinunum er ljúft að
minnast Inge nú þegar komið er
að kveðjustund.
Í bernskuminningu okkar var
Inge, konan hans Geirs frænda, í
senn flott og framandi enda talaði
hún dönsku og kom frá landi Tí-
volís og röndótts brjóstsykurs.
Við litum til hennar með aðdáun
um leið og við nutum andrúms-
loftsins í nánd hennar. Það var
eins og við værum komin út fyrir
landsteinana.
Inge var afar glæsileg kona og
góður fulltrúi danskrar menning-
ar. Hrein íslenska varð henni
aldrei mjög töm og reyndar sagði
hún samkrullið hafa komið niður
á dönskunni sinni líka. Þannig var
hluti af sjarma hennar þetta sér-
staka málfar Dana af hennar kyn-
slóð á Íslandi. Afi Þorsteinn lagði
sig í líma við að kenna henni ís-
lensku og samverustundir þeirra
hafa örugglega veitt þeim ánægju
og gagnkvæma virðingu.
Inge var jólabarn, fædd á jóla-
dag. Alltaf var opið hús hjá þeim
hjónum þennan dag og þangað
streymdu vinir og vandamenn.
Við fórum þangað fyrst börn með
foreldrum okkar og eftir því sem
árin liðu bættust makar okkar og
börn í hópinn, allir nutu einstakr-
ar gestrisni á heimili þeirra. Þessi
jólaboð þar sem Inge tók á móti
ungum og öldnum gestum með
hlýju og höfðingsskap eru ein-
staklega skemmtileg og falleg
minning í huga okkar.
Inge lá aldrei hátt rómur og
ekki bar hún tilfinningar sínar á
torg. Hún hafði hins vegar sínar
skoðanir á mönnum og málefnum
og þegar kom að matargerð og
stórveislum þá var hún drottning
í ríki sínu. Hlutverk hróksins í
fagnaðinum eftirlét hún Geir sín-
um en húmor hennar og létt lund
leyndi sér ekki.
Hún var mjög vel að sér og
fylgdist vel með enda lestrarhest-
ur mikill og áhugasöm um málefni
líðandi stundar. Eftir að Geir lést
var ljúft að hlusta á Inge minnast
hans af mikilli hlýju og rifja upp
ánægjulegar ferðir þeirra innan-
lands og utan.
Nú þegar hún hefur lagt upp í
síðustu langferðina þökkum við
það æviskeið sem við áttum með
henni.
Una, Guðrún og Hjörtur.
Nú er Inge konan hans Geirs
frænda fallin frá. Geir og Inge
voru einn af föstu punktunum í
tilverunni hjá okkur krökkunum í
fjölskyldunni.
Það var alltaf tilhlökkunarefni
að fara til Inge og Geirs. Inge
kom alltaf brosandi á móti okkur
og tók okkur opnum örmum. Þeg-
ar við systkinin vorum börn gist-
um við oft hjá þeim en þau höfðu
sérstakt lag á börnum, löðuðu þau
að sér og veittu vel af öllu því sem
börn kunna vel að meta, nammi
og kökum.
Á menntaskólaárunum borðaði
ég stundum í hádeginu hjá Inge
og Geir. Alltaf var tekið vel á móti
mér og Inge reiddi fram ljúffenga
rétti en hún var annáluð fyrir
góða matargerð. Það var alltaf
stutt í glettnina hjá henni og hafði
hún t.d. gaman af að lauma á mat-
arborðið hlutum sem líktust mat,
eins og t.d. gervieggjum, og vakti
það mikla kátínu.
Þegar við hjónin bjuggum í
Danmörku heimsóttum við Inge
og Geir þar sem þau dvöldu á
æskuheimili hennar í Nørre
Tvede en þar bjuggu systur Inge,
þær Jytte og Tove. Þar dvöldu
þau hjónin alltaf góðan tíma á ári
hverju. Þar voru haldnar veislur
fyrir okkur sem seint gleymast og
minntu einna helst á Babettes
gæstebud.
Eftir að við fluttum heim frá
Danmörku höfðum við fjölskyld-
an gaman af að kíkja í heimsókn
til þeirra hjóna og var þá oft
spjallað á dönsku, móðurmáli
Inge. Þá oft farið um víðan völl og
tekinn púlsinn á því sem efst var á
baugi í Danmörku. Inge fylgdist
mjög vel með og var mikill lestr-
arhestur og ekki spillti fyrir að
alltaf lágu nýjustu dönsku blöðin
frammi.
Ég þakka Inge fyrir allar góðu
stundirnar sem við höfum átt
saman.
Þorsteinn Helgason.
Maður eignast marga góða vini
á lífsleiðinni. Í dag kveð ég konu
sem skipaði stóran sess í lífi mínu.
Það var Inge Jensdóttir sem bjó
ásamt eiginmanni sínum Geir
Þorsteinssyni í Skeiðarvoginum.
Ég man eftir því þegar ég var
þriggja ára gamall og Geir var úti
að snyrta runnana. Ég kom til
hans og bauð honum aðstoð mína.
Ég hjálpaði honum í garðinum og
hóf að ræða við hann um daginn
og veginn. Hann sýndi mér
hvernig maður ætti að raka laufin
saman ásamt fleiri góðum garð-
yrkjuráðum. Inge og Geir voru
mér eins og amma og afi. Ég kom
þangað á hverjum degi eftir
skóla, stalst reglulega úr frímín-
útum í skólanum og Inge bjó til
eitthvað gott fyrir mig að borða.
Þegar Geir dó var Inge ein eftir í
húsinu og hélt ég áfram að koma
þangað. Það er ein minning sem
stendur upp úr og mun alltaf lifa
með mér en við Inge borðuðum
saman hamborgara og franskar
einu sinni í viku. Það var svo ótrú-
lega margt sem ég og Inge gerð-
um saman. Við borðuðum ham-
borgara, lásum danskar bækur,
pússuðum silfur, horfðum á sjón-
varpið og spjölluðum um allt
mögulegt. Alltaf þegar ég kom til
Inge sat hún í stólnum og leysti
krossgátur eða las spennandi
glæpasögu á dönsku eða íslensku.
Ég man eftir því þegar ég vaknaði
klukkan sjö á aðfangadagsmorg-
un og hljóp yfir til Inge því ég
vissi að hún var alltaf vöknuð
snemma. Ég fór út í bílskúr og
náði í nokkra poka af jólaskrauti
og skreytti alla stofuna hjá henni
og alltaf var Inge jafn ánægð,
sama hvernig skrautið var sett
upp. Inge hafði alltaf ótrúlega
góðan tíma til að hlusta á mig og
sátum við oft klukkutímunum
saman og töluðum um allt milli
himins og jarðar. Það sem ein-
kenndi Inge var að hún var alltaf
hress og létt í lund. Henni fannst
allt „meget dejligt“. Ég á ótrúleg-
an fjölda góðra minninga sem ég
mun alltaf geta rifjað upp. Það að
hafa kynnst Inge hefur sýnt mér
hversu mikilvægt það er að meta
allt það góða sem maður hefur í
lífinu og hversu mikilvægt það er
að eiga góða vini.
Farvel Inge.
Hafþór Sólberg Gunnarsson.
Það er dýrmætt að kynnast
góðu fólki á lífsleiðinni. Í dag
kveðjum við góðan nágranna og
vinkonu, Inge Jensdóttur. Við
höfðum ekki verið marga daga í
Skeiðarvoginum þegar Hafþór,
yngsti sonurinn, hjólaði yfir til
þeirra hjóna, Inge og Geirs á þrí-
hjólinu sínu. Ferðunum yfir til
þeirra fjölgaði og Hafþór bauð
bræðrum sínum með í heimsókn
þangað. Ég fékk reglulega símtöl
frá skólagæslunni að strákarnir
væru horfnir en þá voru þeir í
góðu yfirlæti hjá þeim hjónum.
Inge og Geir voru yndisleg hjón
og höfðu alltaf tíma fyrir strák-
ana. Hvort sem það var hjálp í
stærðfræði, dönsku eða að borða
eitthvað gott sem Inge setti á
borð. Geir lést árið 2005 og Inge
bjó áfram í húsinu í Skeiðarvogi.
Vináttusamband Hafþórs og Inge
þróaðist með árunum og þegar
hún hætti að geta sinnt öllu gat
hann hjálpað henni með garðinn
og verslað. Inge ætlaðist aldrei til
neins og var þakklát fyrir allt og
var gaman að geta glatt hana með
mat og kökum. Hún laðaði að sér
fólk með hlýju og skemmtileg-
heitum og var gaman að ræða við
hana um bækur og matargerð.
Við Gunnar og strákarnir þökk-
um samfylgdina og huggum okk-
ur við góðu minningarnar.
Bergþóra K. Jóhannsdóttir.
Fallin eru síðustu blóm sum-
arins, og bráðum hverfa þau öll
undir fyrstu snjóa.
Þannig hugsaði ég þegar ég
kvaddi mína góðu vinkonu á
hennar dánardegi.
Þegar ég kynntist Inge fyrir
nokkrum árum í gegnum frænd-
fólk mitt í Danmörku, urðu með
okkur miklir kærleikar, fyrst í
heimsókn til þeirra hjóna og síðan
eftir að Geir dó fór ég að gista hjá
henni í borgarferðum mínum.
Við áttum margar góðar stund-
ir saman, t.d. fórum við saman í
leikhús og á tónleika og einnig var
nauðsynlegt að fara á „Jómfrúna“
og eiga huggulega stund saman.
Einnig er okkur hjónunum
ógleymanlegur sunnudagsbíltúr-
inn sem endaði með miðdegiskaffi
í Valhöll á Þingvöllum helgina áð-
ur en húsið brann.
Við sátum oft á kvöldin og töl-
uðum saman á dönsku og hún
sagði mér frá uppvexti sínum í
Næstved og hvernig þau systk-
inin og foreldrar hennar komust
af í stríðinu. Og frá því þegar hún
kom til Íslands og kynntist Geir
og hans stóru góðu fjölskyldu. Við
nutum þess að fara yfir dönsku
blöðin og fínkemba „de konge-
lige“, því þetta var hennar fólk.
Það var mikill missir hjá henni
þegar Geir lést og saknaði hún
hans mikið og var oft einmana, en
hún átti hans góðu fjölskyldu að
og gömlu góðu vinina og ná-
granna, og gaman var að koma í
Skeiðarvoginn seinnipart föstu-
dags og hitta „fredagsklúbbinn“,
þarna voru gömlu félagarnir
mættir og áttu stund saman.
Inge var glæsileg kona og
þægileg í alla staði og jákvæð og
var gott að tala við hana og gott
þótti okkur að sitja saman á
kvöldin og ræða málin, en hún var
eins og amma, það mátti ekki
trufla hana ef boltaleikir voru í
sjónvarpinu.
Elsku Inge, hafðu þökk fyrir
alltof stutt kynni, við áttum eftir
að ræða svo mikið saman, en fjöl-
skyldan Magnússon í Danmörku
sendir sínar samúðarkveðjur og
þakkar fyrir ógleymanlegar sam-
verustundir. Þinn tími var kom-
inn og það verður tekið vel á móti
þér, minning þín lifir með okkur.
Bestu kveðjur frá Gunnlaugi.
Blessuð sé minning þín.
Kristjana
Sigurðardóttir.
Inge Jensdóttir
HINSTA KVEÐJA
Minningarnar margar vakna
er mætri konu gerð eru skil.
Inge mín þín sárt ég sakna
og stundir góðar geyma vil.
Nanna Jónsdóttir.
Að skrifa minningagrein
Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum
dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til
birtingar á mánudag og þriðjudag.
Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins
hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt
sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000
tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum,
þar sem þær eru öllum opnar.