Morgunblaðið - 16.11.2012, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 16.11.2012, Qupperneq 52
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 321. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Nær dauða en lífi vegna sýkinga 2. Stúlkurnar í áfalli 3. Ók inn í Hekluhúsið 4. Gefinn kostur á að endurgreiða »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Útvarpsleikritið Í gömlu húsi, eftir Hávar Sigurjónsson, verður frumflutt í Útvarpsleikhúsinu á Rás 1 á sunnu- daginn kl. 13. Í því segir af aldraðri konu sem kemur að 15 ára, heimilis- lausum vímuefnafíkli sofandi í stofu sinni. Hún dregst inn í atburðarás sem hún hefur fram að því aðeins séð og heyrt um í gegnum fjölmiðla. Leik- stjóri er Marta Nordal. Morgunblaðið/Styrmir Kári Nýtt útvarpsleikrit eftir Hávar frumflutt  Nemendur í menningarmiðlun við Háskóla Ís- lands standa fyrir Menningarbræð- ingi í Þjóðminja- safninu í dag, örfyrirlestra- maraþoni kl. 9.15- 16. Verður m.a. fjallað um sögu salernisins og hús- næðisvanda jólasveinsins. Hver fyrir- lestur er 5 mínútna langur og lýkur með umræðum. Örfyrirlestrar um sögu salernis o.fl.  Ragnheiður Skúladóttir hefur verið ráðin leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar til tveggja ára. Hún hefur gegnt starfi listræns stjórnanda leikhússins og var stjórn LA einhuga um ráðninguna. Ragn- heiður er með MFA- gráðu í leiklist og var deildarforseti leiklistar- og dansdeildar LHÍ í 11 ár. Ragnheiður ráðin leikhússtjóri LA Á laugardag Norðan 13-18 m/s, en mun hægari SA-lands fram eftir degi. Snjókoma eða skafrenningur um norðanvert landið. Á sunnudag Norðan- og norðvestan 10-18 m/s og snjókoma á N- og A-landi, en annars hægari og bjartviðri. Kólnandi veður. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan og norðan 13-20 og snjókoma N-til, en 5-13 og úrkomulítið syðra. Frost 0 til 6 stig. VEÐUR Bikarmeistarar Hauka eru áfram á sigurbraut í N1- deildinni í handknattleik karla. Þeir hafa aðeins tap- að einu stigi í átta leikjum tímabilsins. Í gær unnu þeir Fram, 21:20, á útivelli og eru langefstir. ÍR-ingar sneru taflinu við í síðari hálfleik gegn Aftureld- ingu og unnu og Akureyri lagði FH í Kaplakrika með góð- um lokaspretti. »2 Haukar áfram á sigurbraut „Ég þarf að leita svara hjá nokkrum leikmönnum áður en endanlegt val fer fram en ljóst er að það verður erf- itt fyrir okkur Gústaf Adolf Björnsson aðstoðarþjálfara að skera hópinn nið- ur,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson, lands- liðsþjálfari í hand- knattleik kvenna, þegar hann valdi 22 leikmenn til æf- inga fyrir Evrópu- meistaramótið sem fram fer í Serbíu í næsta mánuði. »1 Ágúst segir að erfitt verði að velja EM-fara Íslandsmeistarar Grindavíkur báru sigurorð af Stjörnumönnum, 90:86, í Dominos-deild karla í körfuknattleik í gær. Njarðvík skellti KFÍ, 102:73, Snæfell hafði betur gegn botnliði Tindastóls, 86:76, og Keflavík bar sigurorð af Skallagrími á heimavelli, 82:71. Snæfell er með tveggja stiga forskot í toppsætinu en liðið vann í gær sinn fimmta sigur í röð. »4 Íslandsmeistararnir unnu í hörkuleik ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta er fyrst og fremst áhugamál hjá mér og ég er ekki í þessu til að græða peninga,“ segir Sigurður Pálmason myntsafnari, betur þekkt- ur sem Siggi Pálma, en hann hefur safnað mynt og seðlum alveg síðan hann var 13 ára og á orðið dágott safn. Hann sér þó ekki fyrir sér að verða safnari að atvinnu. „Maður skal þó aldrei segja aldrei.“ Siggi er með til sölu ýmislegt úr safni sínu á bandaríska uppboðs- vefnum eBay.com, m.a. ónotaðan 100 krónu seðil frá árinu 1927, útgef- inn af Landsbanka Íslands. Ásett verð á þann seðil er 12 þúsund doll- arar, jafnvirði um 1,5 milljónir króna. Einnig er Siggi með 500 krónu seðil frá árinu 1928, prýddan mynd af Jóni Sigurðssyni, þar sem uppsett verð er tæplega 4 þúsund dollarar, eða um hálf milljón kr. Hægt að selja hvað sem er Þegar grannt er skoðað á eBay má sjá margs konar íslenska muni til sölu, ekki aðeins mynt og seðla held- ur einnig orður, styttur, skartgripi og húsgögn. Þá ber nokkuð á mun- um tengdum skákeinvígi Fischers og Spasskys á Íslandi 1972. „Þú get- ur í rauninni selt hvað sem er, þetta er bara spurning um verð og að hitta á réttan aðila. Það hafa margir góðir hlutir farið á eBay og margir Íslend- ingar sem eiga þar sín viðskipti,“ segir Siggi en nokkuð er um að fólk leiti til hans með mynt og aðra muni, til að kanna verðmæti og möguleika á sölu. Hefur hann þurft að snúa mörgum vonsviknum til baka, sem hafa talið að þeir byggju yfir földum fjársjóði. „Við Íslendingar bjuggum til okk- ar fyrstu mynt árið 1922. Ekkert af þeirri mynt er í raun mikils virði fyrr en þú finnur hluti sem eru ónot- aðir, þá breytist allt saman. Þetta á sérstaklega við um kórónumynt.“ Siggi segist aðallega safna svo- nefndum vöru- og brauðpeningum, sem voru notaðir hér þegar Danir sendu lítið af peningum til landsins. Þá fóru kaupmenn eins og P.Th. Thorsteins að slá sína eigin mynt sem notuð var í bakaríum og ýmsum verslunum. Voru þá aurar gefnir út í nokkrum útgáfum. „Það er mjög erfitt að finna þessa hluti, ætli séu ekki til þrjú eða fjögur heildstæð söfn á landinu. Fyrstu peningarnir af þessu tagi eru mjög sjaldgæfir. Ég hef ekki slegið á verð- mæti safnsins míns, enda er ég fyrst og síðast áhugasafnari og sagan á bak við myntirnar og seðlana finnst mér einstaklega áhugaverð. Fyrir mér er það stórkostlegt að vita af karli á Bíldudal sem notaði vörupen- inga til að bjarga sér. Síðan voru þessir peningar bannaðir og þeir nánast hurfu um tíma,“ segir Siggi. Gamlir seðlar settir á milljónir  Siggi Pálma með mynt og seðla til sölu á eBay Morgunblaðið/Golli Myntsafnari Sigurður Pálmason, Siggi Pálma, með hluta af vöru- og brauð- peningum í safni sínu. Hann hefur verið safnari allt frá 13 ára aldri og er í þessu af lífi og sál, ekki til að græða peninga, eins og hann segir sjálfur. Ekki eru til mörg ónotuð ein- tök af seðlunum sem Siggi Pálma er með á eBay, enda höfðu þeir mikið verðgildi á sínum tíma. Hann segist ekki reikna með að selja seðlana á þessu verði, hann noti eBay meira til að sýna söfnurum úti í hinum stóra heimi að fágæt myntsöfn séu til á Íslandi. Gríðarlega mikið sé t.d. til af lýðveldis- myntinni svonefndu, sem not- uð var frá 1940 til 1980. „Við skiluðum ekki 600 tonnum við síðustu myntbreyt- ingu þannig að mikið er til af því sama. Með því að setja á vefinn sjaldgæfa mynt kemst maður kannski í samband við áhugasama safnara. Þessir seðlar eiga það skilið að vera sýndir,“ segir hann. Finna má seðlana á eBay með því t.d. að slá inn „Ice- landic Bank Notes“. Eiga það skilið að vera sýndir SJALDGÆFIR SEÐLAR Seðill 100 krónu peningaseðill frá 1927 er falur fyrir 1,5 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.