Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 73
Þ að er hönnunartvíeykið Stáss sem á heiðurinn af skálinni sem ber einmitt heitið Árstíðir. Stáss skipa þær Helga Guðrún Vilmundardóttir og Árný Þórarinsdóttir, sem báðar eru arkitektar, en Árstíðir eru ekki fyrsti hönnunargripurinn sem þær stöllur hanna. Hvernig kom til að Stáss fór út í vöruhönnun í stað húsahönnunar? Helga Guðrún verður fyrir svörum: „Það var í kjölfarið á hruninu sem við fórum út í þessa sálma, fikruðum okkur út í smærri muni og fórum að gera skartgripi sem og inn- anstokksmuni,“ útskýrir Helga Guðrún. „Núorðið erum við alveg á fullu með ýmis arkitektaverkefni en ætlum að sinna þessu samhliða, svo við séum ekki með öll eggin í sömu körfinni ef harðnar á dalnum.“ Fyrir jólin 2008 byrjuðu þær svo á því að senda frá sér gluggaskraut úr plex- ígleri, og þaðan í frá hafa þær sent frá sér nýja jólavöru fyrir hver jól. „Þá sendum við frá okkur þrívíða stjörnu til að setja saman og hengja upp. Síðast gerðum við skrautmuni úr pappa, stjörnur og kúlur.“ Skál fyrir allan ársins hring Nýja skálin er þó eilítið frábrugðin jólaskrauti fyrri ára að því leytinu til að hún er ekki eingöngu hugsuð sem jólavara. „Skálin hentar vita- skuld einkar vel til jólaskreytinga og hún passar sérlega vel sem aðventuskreyting þar sem hún hefur statíf fyrir fjögur kerti. Hug- myndin er samt sem áður sú að þú getir notað hana allan ársins hring,“ bendir Helga Guðrún á. „Þá er hugsunin á bak við gripinn sú að hver og einn geti sett sinn svip – sinn persónulega stíl – á stjakann því mögu- leikarnir eru óteljandi. Það má setja allt mögulegt í skálina til að skreyta Árstíðir. Þannig getur hver og einn gert gripinn perónulegri.“ Í framhaldinu útskýrir Helga Guðrún að bakkinn sé úr áli en viðarskálin sem í honum liggur sé úr beyki. „Skálin er í heild sinni íslensk fram- leiðsla og viðarskálin er til að mynda rennd af mjög flinkum og ynd- islegum manni hér í borg sem tók verkefnið að sér fyrir okkur, og okk- ur er það ákaflega hugleikið að nýta þau framleiðslutækifæri sem bjóðast hér heima á Íslandi. Þannig viljum við líka meina að við fáum meiri gæði samanborið við það ef við værum að panta þetta erlendis frá.“ Góðar viðtökur Helga Guðrún bendir á að kertastjakinn Árstíðir sé í reynd framhald af hillu sem þær gerðu fyrir nokkrum misserum og heitir Fold. Þar voru þær sömuleiðis að vinna með mjúk form og mjúka áferð sem and- stæðu við harðan efnivið. Helga Guðrún segir Árstíðir hafa fengið prýðilegar viðtökur. „Við frumsýndum stjakann á hönnunarsýningunni í Ráðhúsinu um daginn og fengum afskaplega góðar viðtökur. Grunn- urinn er ákaflega einfaldur, kertastjakinn hefur einfalt form og auðvelt að setja sinn svip á hann. Þess vegna höfðar hann til breiðs hóps.“ Árstíðir fást ásamt öðrum hönnunargripum þeirra Stásssystra í Netagerðinni við Mýrargötu, en þá hönnunarverslun reka þær ásamt fjórum öðrum hönnuðum, og svo fæst gripurinn einnig í EPAL. Helga Guðrún bætir við að allar eldri vörurnar frá Stássi séu ennþá fáanlegar hjá þeim í Netagerðinni. jonagnar@mbl.is Stáss „ Hugsunin á bak við gripinn er sú að hver og einn geti sett sinn svip – sinn persónulega stíl – á stjakann því möguleikarnir eru óteljandi,“ segja þær Helga Guðrún Vilmundardóttir og Árný Þórarinsdóttir. Jólaskraut Stöllurnar í Stáss senda frá sér nýja jólavöru fyrir hver jól. Skál fyrir allar árstíðir Meðal íslenskra hönnunargripa sem koma á markaðinn fyrir þessi jól er skál sem nefnist Árstíðir. Skálin er um leið kertastjaki og hentar því sérlega vel um hátíðirnar en gengur þó allan ársins hring, eins og annar hönnuða hennar útskýrir. ’Hugmyndin er sú að hægt sé að nota kertastjakann all- an ársins hring. Það má setja allt mögulegt í skálina til að skreyta Árs- tíðir. Þannig getur hver og einn gert gripinn perónu- legri. Morgunblaðið/Styrmir Kári Fjölhæf Kertaskálin Árs- tíðir frá Stáss er prýði, hvort heldur er um jólin eða á öðrum tímum árs. Jólablað Morgunblaðsins 73
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.