Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 62
62 Jólablað Morgunblaðsins
É
g baka jólakökuna í lok október en
fyrstu sneiðina fæ ég mér ekki fyrr
en með síðdegiskaffinu á jóladag,“
segir Paul Newton, eigandi versl-
unarinnar Pipar og salt. „Kakan
þarf að standa í átta vikur og á meðan vökva
ég hana reglulega með koníaki.“
Paul er fæddur og uppalinn á Englandi þar
sem jólakaka tilheyrir matarhefð jólahátíð-
arinnar. „Að mati flestra Englendinga er hún
hreinlega ómissandi á jólum. Á mínu heimili
var alltaf heimabökuð jólakaka borðuð með
teinu á jóladag og ég hef sjálfur gert mína
köku frá því að ég byrjaði að búa um þrítugs-
aldurinn.“
Kökumix í pakka
Paul lætur jólakökuna standa í tvær vikur
að loknum bakstri. „Þá vökva ég hana með ko-
níaki og endurtek það svo vikulega þangað til
tvær vikur eru til jóla. Þá þek ég kökuna með
marsipani og viku fyrir jól set ég á hana syk-
urhúð og skreyti hana með marsipanfígúrum.“
Hann bendir á að áður fyrr hafi fólk haft
meiri tíma til að einbeita sér að jólakökugerð-
inni, en hin síðari ár hafi þróunin orðið sú að
margir kjósi nú að kaupa kökuna tilbúna.
„Enskar jólakökur fást mjög góðar, við selj-
um til dæmis hjá okkur í búðinni kökur frá
tveimur gæðaframleiðendum. Við seljum ým-
islegt sem þarf til kökugerðarinnar, svo sem
form og sykraða blandaða ávexti. Við göngum
þó ekki svo langt að selja tilbúið jólakökumix í
pakka, eins og ég sá í fyrsta sinn í verslun í
London í haust.“
Ensk jólakaka
350 g ósaltað smjör
350 g púðursykur
450 g hveiti
6 egg
salt á hnífsoddi
½ tsk. kanill
½ tsk. múskat
½ tsk. negull
300 g sykraðir blandaðir ávextir (fæst í
Pipar og salt)
450 g ljósar rúsínur
450 g kúrennur
125 g rúsínur
125 g möndluflögur
30 ml síróp
½ tsk. matarlitur
1 bolli koníak
Notið springform, 23 cm í þvermál, eða tvö
lítil, 18 cm í þvermál. Setjið þrjú lög af smjör-
pappír á botninn og smyrjið með smjörinu.
Sama gildir um hliðar formsins, þær eru huld-
ar með smjörpappír og síðan er brúnum mask-
ínupappír vafið utan um formið og bundið með
bómullargarni. Á bökunarplötuna eru sett tvö
lög af brúnum maskínupappír; kakan er bökuð
í allt að sex klukkustundir og margfaldur
pappír kemur í veg fyrir að hún brenni.
Að þessu loknu hefst vinnan við deigið.
Blandið saman í skál kúrennum, ljósum rús-
ínum, venjulegum rúsínum, ávöxtum, möndlu-
flögum og kryddi. Þeytið í annarri skál smjör
og púðursykur uns það verður létt og ljóst og
bætið svo einu og einu eggi í og hrærið saman.
Sigtið hveitið og blandið í eggjahræruna.
Blandið nú eggjahrærunni saman við ávext-
ina og hrærið. Að lokum er matarlit blandað
saman við sírópið og því bætt út í blönduna
ásamt koníaki, deigið er tilbúið ef það dettur af
sleif.
Deigið er nú sett í formið og það má alveg
fylla það því kakan lyftir sér lítið enda ekkert
lyftiduft í uppskriftinni.
Margir geyma kökuna nú í ísskáp fram á
næsta dag en það má líka baka hana strax. Úð-
ið aðeins yfir kökuna með vatni og hyljið svo
með tveimur lögum af smjörpappír sem búið
er að smyrja aðeins með smjöri og klippa á
loftgat. Kakan er bökuð við 140 gráða hita í sex
klukkustundir, en ef formin eru tvö er hún
bökuð í þrjár klukkustundir.
Þegar kakan hefur kólnað þarf að pakka
henni inn eftir kúnstarinnar reglum. Fyrst er
henni pakkað í tvöfalt lag af smjörpappír og
pappírinn festur kirfilega með gúmmíteygjum.
Næst er kökunni pakkað inn í álpappír og hún
sett í loftþétt kökubox. Þar fær kakan að
standa óhreyfð í tvær vikur. Þá er hún tekin
fram og gerðar litlar holur í botn og topp með
grillprjóni og koníaki hellt yfir, ca tveimur
matskeiðum í hvert skipti. Þetta er endurtekið
vikulega, þangað til tvær vikur eru til jóla.
Marsipan og marmelaði
1 krukka hreint apríkósumauk
550 g möndlumarsipan
Þegar hálfur mánuður er til jóla er kakan
tekin úr umbúðunum og pensluð rækilega með
apríkósumauki sem búið er að hita í potti. Það
er gert til þess að marsipanið festist betur við
kökuna. Möndlumarsipanið er því næst rúllað
út og lagt yfir kökuna (marsipan má líka kaupa
tilbúið í stórmörkuðum eða hjá bakara).
Flórsykurbráð
675 g flórsykur
4 eggjahvítur
1 msk. sítrónusafi
2 tsk. glýserín (fæst í apóteki)
Viku fyrir jól er svo komið að skreytingu
kökunnar með flórsykurbráð. Sigtið flórsykur.
Þeytið eggjahvítur uns þær eru orðnar að hálf-
gerðu frauði. Bætið þá saman við flórsykri,
einni matskeið í einu, ofurhægt, og þeytið vel á
milli. Bætið við sítrónusafa og glýseríni og
haldið áfram að þeyta þangað til blandan er
orðin eins og marengs. Hyljið skálina með rök-
um klút og geymið í 1-2 klukkustundir þannig
að loftbólur myndist á yfirborðinu.
Flórsykursbráðina má lita með matarlit ef
vill. Berið hana nú varlega á kökuna, byrjið á
toppi hennar og jafnið bráðina út með
pönnukökuspaða. Látið þorna í að minnsta
kosti eina klukkustund áður en byrjað er á
hliðum kökunnar. Þegar kakan er öll hulin
flórsykurbráð er hún skreytt með marsip-
anskrauti sem hægt er að lita í jólalegum litum
að vild.
beggo@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Deig Kakan inniheldur meðal annars kúrennur, ljósar rúsínur og sykraða, blandaða ávexti.
Morgunblaðið/Ásdís
Umbúðir Kökunni er pakkað inn eftir kúnstarinnar reglum í smjörpappír og álpappír.
Bakað með hægð
Jólaundirbúningurinn
hefst hjá Paul Newton í
lok október með enskri
jólaköku sem hann nostrar
við og vökvar reglulega með
koníaki fram að hátíð.
Morgunblaðið/Ómar
Hefðir Paul Newton vandar vel til verka, en hann hefur bakað enska jólaköku á hverju ári frá því að hann byrjaði að búa um þrítugt.
’Á mínu heimili var alltaf
heimabökuð jólakaka með
teinu á jóladag.