Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 43
Hvenær hófst framleiðsla á Nóatúns
hamborgarhrygg?
Nóatúns hamborgarhryggurinn hefur
verið framleiddur undir merkjum
Nóatúns í nærri þrjá áratugi.
Hefur vinnsluaðferð Nóatúns
hamborgarhryggsins breyst eitthvað
í áranna rás?
Nei og það er ástæða þess hve vel
hryggurinn hefur gengið þessa áratugi.
Viðskiptavinir hafa ávallt getað treyst
því að fá sömu góðu vöruna ár eftir ár.
Hver framleiðir Nóatúns hamborgar-
hrygginn?
Eins og undanfarin ár sjá kjötiðnaðar-
meistarar Norðlenska á Akureyri um
meðhöndlun á hryggnum og notast
þeir við þær aðferðir sem Nóatún hefur
mótað í gegnum árin.
Hvað er svona gott við Nóatúns
hamborgarhrygginn?
Við höfum lagt upp úr því að nota
einungis sérvalda hryggi sem eru hold-
miklir og vel snyrtir. Einnig höfum við
lagt áherslu á að vera alltaf með nýreykta
hryggi hverju sinni í búðunum. Það
koma nýreyktir hryggir nánast daglega
síðustu dagana fyrir jól. Nóatúns
hamborgarhryggirnir eru mildir með
passlegu reykjarbragði og rýrna lítið við
eldun.
Hvers vegna nýtur Nóatúns
hamborgarhryggurinn svona mikilla
vinsælda?
Fyrir utan gæði hryggsins þá skiptir
miklu máli sú góða þjónusta sem fólk
fær í kjötborði Nóatúns.
Á hvaða hátt?
Í kjötborði Nóatúns njóta viðskipta-
vinirnir þjónustu fagfólks við val á
hamborgarhryggnum. Hægt er að fá
hrygginn sagaðan niður eftir óskum
hvers og eins, auk þess sem hægt er að
fá hryggjarsúluna sagaða frá. Að sjálf-
sögðu aðstoða kjötmeistarar Nóatúns
viðskiptavinina við að áætla magn
miðað við gestafjölda og veita ráðlegg-
ingar um eldun hryggjarins.
Er vitað hversu vinsæll Nóatúns
hamborgarhryggurinn er?
Já, Nóatúns hamborgarhryggurinn
nýtur alveg gríðarlegra vinsælda því yfir
80.000 Íslendingar borða árlega
Nóatúns hamborgarhrygginn um jól og
erum við einstaklega stolt af því. Það
sýnir hve sterk hefðin er fyrir Nóatúns
hamborgarhryggnum í jólahaldi
Íslendinga og að Nóatúns hamborgar-
hryggurinn er meðal sterkustu
vörumerkja á Íslandi.
Hvernig er verðið á Nóatúns
hamborgarhryggnum?
Við höfum ákveðið að halda verðinu
óbreyttu og búumst ekki við öðru en að
það mælist vel fyrir hjá viðskiptavinum
okkar.
Hvernig bragðast hryggurinn í ár?
Við getum með stolti fullyrt að ham-
borgarhryggur Nóatúns bragðast jafn
vel og undanfarin ár – ef ekki betur.
Þess ber líka að geta að hamborgar-
hryggir Nóatúns eru margverðlaunaðir
í óháðum bragðkönnunum sem hafa
verið framkvæmdar undanfarin ár.
Í fyrra buðuð þið svo upp á nýja útfærslu
á hamborgarhryggnum. Verður hún
aftur í boði fyrir þessi jól?
Já, sú útfærsla er saltminni og fyrir
vikið mildari á bragðið. Hún sló svo
rækilega í gegn í fyrra að við bjóðum að
sjálfsögðu upp á hana aftur í ár. Þessi
saltminni hamborgarhryggur er árangur
vandaðrar vöruþróunar Nóatúns. Það
þarf ekki að að sjóða hrygginn heldur
er hægt að setja hann beint í ofninn.
Eldunin er því einstaklega auðveld og
það sást á vinsældum hryggjarins fyrir
síðustu jól að margir kunnu að meta
þessa nýjung.
Aðeins það besta
um jólin!
Yfir 80 þúsund Íslendingar
borða árlega Nóatúns
hamborgarhrygg yfir jólin.
Uppskrift að Nóatúns
hamborgarhrygg
fyrir 8
1 Nóatúns hamborgarhryggur, u.þ.b. 3 kg
2 dósir tómatpúrra (litlar)
1 flaska maltöl
Hryggurinn er soðinn rólega í u.þ.b.
50 mín. í vatni, malti og tómatpúrru.
Þá er hann tekinn úr pottinum og látið
renna af honum.
Saltminni hrygginn á ekki að sjóða heldur
setja í 170 °C heitan ofn í 95 mín.
Glassering:
1 bolli púðursykur
½ bolli tómatsósa
½ bolli sætt sinnep
1½ bolli rauðvín
Öllu blandað saman og látið krauma í
ca. 5 mín. Hryggurinn er síðan penslaður
með glasseringunni og settur inn í 200 °C
heitan ofn í u.þ.b. 15 mín.
Þarf ekki a
ð sjóða!
Klassísku
r
Léttsaltað
urNý
tt
Nóatúns hamborgarhryggurinn
„Það geta ekki
allir grísahryggir
orðið Nóatúns
hamborgarhryggir“
ÓLAFUR JÚLÍUSSON
innkaupastjóri
Hamraborg – Nóatún 17 – Austurver - Hringbraut – Grafarholt
AUGLÝSING
Nóatúns
hamborgarhryggurinn,
nú líka léttsaltaður!
„Hamborgarhryggir
Nóatúns eru
margverðlaunaðir
í óháðum
bragðkönnunum“