Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 86
86 Jólablað Morgunblaðsins
Þ
að er orðin löng hefð fyrir jólasýningu Árbæjarsafns og hún hef-
ur hlotið fastan sess í menningarlífi höfuðborgarinnar á aðvent-
unni,“ segir Guðbrandur Benediktsson, sagnfræðingur á Minja-
safni Reykjavíkur.
„Við viljum trúa því að Árbæjarsafn sé orðið sígilt í hugum
landsmanna og það sem þar er í boði á stöðugt erindi við fólk. Enda mun
fortíðarþekking vonandi seint heyra sögunni til. Það sýnir sig að safnið virð-
ist höfða til allra aldurshópa. Á það sérstaklega við um jólasýninguna, þar
sem ungir sem aldnir geta rölt milli húsanna og fylgst með undirbúningi
jólanna eins og hann var í gamla daga. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á
glugga og kíkja í potta en börn og fullorðnir fá að kynnast gömlum hefðum,
föndra og syngja jólalög.“
Kóngakerti og sauðaket
Meðal dagskrárliða í Árbæjarsafni á aðventunni er guðsþjónusta í safn-
kirkjunni, sem er að sögn Guðbrands einstök upplifun, og jólatrés-
skemmtun á torginu þar sem sungin eru jólalög og dansað í kringum jóla-
tréð. „Það er margt um að vera á jólasýningunni og líf í hverju húsi. Í
Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en
uppi á baðstofulofti er spunnið og prjónað,“ segir Guðbrandur og heldur
áfram:
„Í Kornhúsinu verður jólamarkaður á vegum Heimilisiðnaðarfélags
Íslands. Í Hábæ er hangikjöt í potti og gestum boðið að bragða á nýsoðnu
keti en í stofunni er sýndur útskurður. Í hesthúsinu frá Garðastræti er sýnt
hvernig fólk bjó til tólgar- og kóngakerti hér áður fyrr. Dillonshús býður
upp á ljúffengar veitingar, heitt súkkulaði og jólalegt meðlæti, og í Kram-
búðinni verða til sölu handgerð kramarhús, konfekt, kandís í bandi og ýmis
jólavarningur.“
Áhugasamir útlendingar
Guðbrandur segir Árbæjarsafn vera sívinsælt meðal yngstu kynslóð-
arinnar. „Það er alltaf mikill áhugi leikskóla- og skólahópa á þeirri fræðslu
sem safnið býður upp á á aðventunni, en það er sérstök leiðsögn sem nefnist
Senn koma jólin. Staðan hjá okkur er raunar sú að eftirspurn er meiri en
við getum annað og því hafa skólahópar brugðið á það ráð að panta tíma
með góðum fyrirvara. Kjarni safngesta er íslenskar fjölskyldur og skóla-
börn en fjöldi erlendra gesta sækir safnið jafnframt heim á hverju ári. Í
vetur hefur orðið nokkur fjölgun á erlendum gestum með bættri þjónustu,
svo sem leiðsögn á ensku alla daga en það er framlag safnsins til hins ágæta
átaks Ísland allt árið. Á aðventunni verður útlendingum daglega boðið upp
á sérstaka jólaleiðsögn þar sem við munum skyggnast inn á heimili bænda-
fjölskyldu um aldamótin 1900.“
Jól í heiðni
Aðspurður segir Guðbrandur aðventudagskrá Árbæjarsafns jafnan laða
að mikinn fjölda fólks en safnið sé þó sívinsælt, sumar jafnt sem vetur. Ár-
bæjarsafn er þó ekki eini sýningarstaður Minjasafns Reykjavíkur því undir
það heyrir einnig Landnámssýningin Reykjavík 871+/-2 sem er til húsa í
Aðalstræti 16.
„Mig langar til að vekja athygli á nýjung á Landnámssýningunni, dag-
skrá sem við nefnum Jól að heiðnum sið og fer fram á ensku. Með henni er
ætlunin að varpa ljósi á hátíðarhöld sem þekkt voru hér á landi fyrir kristni
og tengdust vetrarsólhvörfum. Í desember býðst gestum að fræðast frekar
um jól í heiðni og jafnvel strengja heit, líkt og áður tíðkaðist.“ beggo@mbl.is
Gleði Nikkan þanin undir berum himni á jólaballi á Árbæjarsafni.
Gaman Samkomur á Árbæjarsafni á aðventunni eru fjölsóttar.
Kandís í bandi
Í Árbæjarsafni liggja jólasveinar á gluggum,
kíkja í potta og trufla vinnandi fólk við
laufabrauðs- og kertagerð.
’Er ætlunin að varpa
ljósi á hátíðarhöld
sem þekkt voru hér á
landi fyrir kristni og
tengdust vetrarsól-
hvörfum.
Sveitabær Sú var tíð að Árbær var langt fyrir utan bæinn. Gömlu húsin þar eru í stíl gömlu íslensku torfbæjanna og í glysveröld jóla er gaman á broti úr degi að hverfa aftur um aldir.
Járn Eldsmiður stendur við aflinn.
Morgunblaðið/Ómar
Sagan Guðbrandur Benediktsson segir að á jólasýningu Árbæjarsafns fái fólk að kynnast gömlum jólahefðum.
Gjöf sem hittir í mark!
Flott og öðruvísi veggskraut úr tré. EIKJUVOGUR 29 - 104 RVK. - S:694-7911