Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 95
urpólslestinni og jólastemningin er
ósvikin.
Elf (2003)
Á góðum degi standast fáir Will Fer-
rell snúning þegar kemur að gam-
anleik. Hér leikur hann Buddy, mann
sem hefur verið alinn upp meðal álfa í
smiðju jólasveinsins á norðurpólnum.
Þar rekst hann heldur illa sökum
stærðar sinnar og heldur því til
mannheima, nánar tiltekið Banda-
ríkjanna, í leit að sjálfum sér og til-
gangi tilveru sinnar. Bráðfyndnar
uppákomur á færibandi, endalausir
frasar sem henda má á lofti og Fer-
rell í einu sínu besta hlutverki.
The Nightmare Before Christ-
mas (1993)
Þetta meistaraverk sem runnið er
undan rifjum Tims Burtons er brúðu-
mynd unnin með stop-motion-tækni
og afraksturinn svo ævintýralega
flottur að áhorfendur setur hljóða.
Þegar hrekkjavökukóngurinn Jack
Skellington gerist leiður á því að gera
það sama ár eftir ár beinir hann sjón-
um að jólahátíðinni. Hann afræður
því að taka jólin yfir, þó ekki nema
einu sinni fyrir tilbreytinguna, með
ferlegum afleiðingum sem leiðréttast
þó fyrir sögulok. Klassík.
Trading Places (1983)
Ein af myndunum sem gerðu Eddie
Murphy að einni skærustu stjörnu
kvikmyndanna, sem hann var á fyrri
hluta níunda áratugarins. Tveir
bræður, moldríkir kaupsýslumenn,
gera með sér veðmál um hvort hægt
sé að gera útigangsmann að brodd-
borgara – og öfugt. Murphy fer fyrir
þeirra atbeina lóðbeint á toppinn,
Dan Aykroyd í ræsið og að endingu
taka þeir höndum saman um hefndir.
Snilldargamanmynd sem tapar ekki
sjarmanum nema síður sé.
Scrooged (1988)
Nútímaleg útfærsla á Jólasögu Dic-
kens segir frá sjónvarpsstjóranum
Frank Cross sem treður á öllum sem
hann umgangast og það án þess að
blikna. Jólaandarnir heimsækja hann
samkvæmt ævintýrinu og snúa
mannkertinu fljótt til betri vegar. Bill
Murray er hér í einu af sínum bestu
hlutverkum og smellpassar í rulluna
– skemmtilegri ef eitthvað er sem
ódámurinn sem hann er áður en and-
arnir rétta skapgerðina af. Ómissandi
um jólin!
Bad Santa (2003)
Af svipuðum meiði er jólamynd þessi
með órakaðan og slompaðan Billy
Bob Thornton í frábærum ham sem
einn ófélegasti jólasveinn kvikmynda-
sögunnar. Svikahrappurinn Willie
notar jólasveinagervið til að ræna
verslanir en málin vandast þegar ör-
yggisvörður einn kemst á snoðir um
vafasamar fyrirætlanirnar og tekur
til sinna ráða. Fyrir þá sem vilja frí
frá sykursætum jólamyndum. Gam-
anið er þó allsráðandi og Thornton er
óborganlegur í rullunni.
The Santa Clause (1994)
Þegar jólasveinninn hrapar fram af
þaki húss eins verður heimilisfaðirinn
að gera svo vel og taka við skyldum
þess fyrrnefnda, með tilheyrandi
gjafadreifingu, skeggvexti og bumbu-
söfnun. Tim Allen er réttur maður á
réttum stað sem fráskilinn faðir, full-
komlega úti á þekju, í þessari fjöl-
skylduvænu mynd sem setur líf og
starf sveinka í talsvert nýtt sam-
hengi. Afraksturinn er ljómandi
skemmtun þar sem Judge Reinhold
stelur ítrekað senunni.
Home Alone, 1 (1990) & 2 (1992)
Hinar hressilegu myndir um úrræða-
góða stráklinginn Kevin MacAllister
eru sígild jólaskemmtun, þar sem
saman fara indælis jólaboðskapur og
bráðfyndin bardagaatriði þegar gutt-
inn tekur innbrotsþjófana Harry og
Marv til bæna með úthugsuðum og
háskalegum dauðagildrum. Fyrri
myndin var einn óvæntasti smellur
ársins 1990 í kvikmyndahúsum hvar-
vetna enda stendur Macauley Culkin
sig með stakri prýði. Seinni myndin,
sem gerist í New York, er síst síðri.
National Lampoon’s Christmas
Vacation (1989)
Á einhver enn eftir að sjá þessa
óborganlegu jólasnilld? Það er und-
irrituðum til efs enda má endalaust
hlæja sig máttlausan að hrakföllum
hins ólánlega heimilisföður, Clarks
Griswolds, sem er löngu orðin ódauð-
leg týpa í meðförum Chevys Chase.
Hann á nóg með jólin eins og þau
koma fyrir, en þegar við bætast geð-
vondir tengdaforeldrar, snobbaðir
nágrannar og bróðurómyndin Eddie
ásamt sinni óviðjafnanlegu fjölskyldu
er von á eftirminnilegum jólum.
Three Days of the Condor (1975)
Þessi magnaða spennumynd Sidneys
Pollacks er ekki hefðbundin jólamynd
sem slík en jólin eru í bakgrunni snú-
innar njósna- og svikafléttu þar sem
Robert Redford og Faye Dunaway
fara með aðalhlutverkin. Seventís-
sjarminn er ótvíræður í henni þess-
ari, hvort sem er á fatatískunni eða
tölvubúnaðinum sem er ómót-
stæðilega gamaldags og myndin er í
hópi hinna bestu af pólitísku par-
anoju-bylgjunni sem gaf af sér marg-
ar toppmyndir á árunum ’70-’76.
jonagnar@mbl.is
Vistaskipti Eddie Murphy, Jamie Lee Curtis og Dan Aykroyd leggja á ráðin. Skröggur Sjónvarpsstjórinn Frank Cross kemst í hann krappan í Scrooged.
Jólablað Morgunblaðsins 95
Sími 553 7355 • www.selena.is
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
Bláu húsin v/Faxafen
• Undirföt
• náttföt
• náttkjólar
• sloppar
Gjöfin hennar