Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 74
H
eimili Birnu G. Jóhannsdóttur og eig-
inmannsins, Sigurðar Rúnars Valtýs-
sonar, í einu af úthverfum borgarinnar
breytist í sannkallað jólahús við upphaf
aðventu. Þá spretta upp í öllum horn-
um hrekkjóttir handgerðir sveinar og himneskir hvít-
ir englar, hátíðleg ljós lýsa upp tré og glugga og líf
færist yfir ævintýralegt amerískt jólaþorpið í miðri
stofunni.
„Jólaskrautið geymi ég í 28 kössum uppi á háalofti
og það tekur mig um hálfan mánuð að skreyta allt
húsið,“ segir Birna. „Ég byrja að tína skrautið upp úr
kössum um mánaðamótin nóvember-desember. Til að
heimilið verði ekki ofhlaðið fjarlægi ég fyrst alla
muni af borðum og úr hillum og sting þeim ofan í
tóma kassana utan af jólaskrautinu. Það má því eig-
inlega segja að ég pakki hversdeginum niður, um leið
og ég tek upp jólin.“
Fimm hundruð perur
Allur útsaumur á heimilinu og
flest jólaskrautið er handverk
Birnu. „Ég hef alltaf verið mikið
jólabarn og föndrað og safnað jóla-
skrauti í um 30 ár. Ég hef voðalega
gaman af því að kíkja í jólabúðir í
Bandaríkjunum en ég ferðast reglu-
lega þangað og kippi alltaf ein-
hverju með mér heim. Jólatréð er
til dæmis úr JC Penney, það er
gervitré en virkar ekta og er með 500 áföstum ljósa-
perum.“
Hún segist varla hafa pláss fyrir meira jólaskraut
en þó sé erfitt að hætta að safna. „Mér er sagt að ég
sé fíkill í þeim efnum. Ég er alltaf föndrandi svo það
bætist hægt og rólega við. Ef ég sé jólaskraut í búð
sem ég stenst ekki þá bregð ég á það ráð að taka nið-
ur skraut í stofunni sem er orðið þreytt og má missa
sín og bý þannig til pláss fyrir nýtt.“
Þorpsbúar kætast
Jólaþorp Birnu er ævintýri líkast enda nær það að
fanga athygli þeirra sem kíkja á það. „Ég hef alltaf
verið hrifin af jólaþorpum og keypti mér fyrsta húsið
í Bandaríkjunum fyrir 15 árum. Síðan hef ég hægt og
rólega bætt í safnið og á nú orðið myndarlegt þorp.
Það skipar veglegan sess í húsinu og allir sem hingað
koma hrífast. Jólaþorpið kallar fram barnið í manni;
ég get sjálf gleymt mér þegar búið er að kveikja öll
ljósin í bænum og hringekjan er byrjuð að snúast.“
Á heimilinu á allt skrautið sinn ákveðna stað; á
borði, í hillu eða uppi á nagla. Öllu er raðað smekk-
lega og ekki of mikið af neinu. Birna býr til jólagjaf-
ir, saumar bútasaumsteppi og föndrar kransa. Spurð
út í jólabaksturinn segist hún láta til sín taka í eld-
húsinu á jólum, bæði við köku- og
matargerð. „Ég baka svona tíu til
fimmtán smákökusortir, ásamt form-
og lagkökum, og bý til konfekt. Svo
höldum við hjónin skemmtilegar mat-
arveislur með stórfjölskyldunni; börn-
um, barnabörnum og systkinum okk-
ar.“
Styttist í páska
Aðspurð kveðst Birna halda fast í
hefðir í jólahaldi, bæði við upphaf og
lok jólahátíðarinnar. „Sjötta janúar slökkvum við öll
jólaljós og tökum niður skrautið, það er fljótlegt mið-
að við að setja það upp og tekur aðeins nokkra daga.
Mér finnst alltaf gott að pakka jólaskrautinu. Það er
að vísu tómlegt fyrstu dagana á eftir, en þá er ágætt
að minna sig á að það er stutt til páska.“
beggo@mbl.is
Eldhúsglugginn Jólaleg stemning jafnt úti sem inni.
Kórinn Prúðbúnir söngvarar syngja af innlifun. Töfrar Undraheimur jólanna rúmast í glerkúlu.
Hrímað Hvítir könglar og gylltir smáfuglar eru fallegir á hátíðarborðinu.
Álfar og menn
Morgunblaðið/Golli
Hughrif „Jólaþorpið kallar fram barnið í manni; ég get sjálf gleymt mér þegar búið er að kveikja öll ljósin.“
Jólaþorp Fyrsta húsið keypti Birna í Bandaríkjunum fyrir 15 árum.
Táknrænt Kristur við krossinn.Jólasokkar Handunnið og keypt.
Hlýlegt og fallegt heimili Birnu G. Jóhannsdóttur hefur að geyma
handunnið jólaskraut, fjörlegar fígúrur, friðsæla engla og amerískt
jólaþorp sem lifnar við í byrjun desember.
’„Jólaskrautið geymi
ég í 28 kössum uppi á
háalofti og það tekur
mig um hálfan mán-
uð að skreyta.“
74 Jólablað Morgunblaðsins